Morgunblaðið - 20.01.2004, Side 6

Morgunblaðið - 20.01.2004, Side 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIÐRÆÐUR eru á lokastigi um kaup Atl- anta flugfélagsins á viðhaldsfyrirtæki við Shannon-flugvöll á Írlandi, Shannon MRO, sem er í hópi þriggja stærstu fyrirtækja á Ír- landi á sviði viðgerða og viðhalds á flugvélum. Starfsmenn eru ríflega 153 talsins og veltan á síðasta ári var tæplega einn milljarður króna. Áætlanir þessa árs gera ráð fyrir 1,5 millj- arða veltu þar sem bæta þarf við um 30 starfsmönnum til að vinna við þrjár nýjar flugvélategundir með eignarhaldi Atlanta. Stefnt að undirritun í febrúar Íslandsflug, sem er að hluta í eigu sömu að- ila og Atlanta, mun einnig fá þjónustu hjá fé- laginu í Shannon með sínar vélar. Hafþór Hafsteinsson, forstjóri Atlanta, seg- ir viðræðurnar við eigendur Shannon MRO ganga vel. Fátt eigi að geta komið í veg fyrir undirskrift samninga í febrúar. Hann segir að hér sé um gott viðskiptatækifæri að ræða. Atlanta geti farið með sinn flugflota þangað í smærri skoðanir og breytingar á vélum milli verkefna, auk þess sem ætlunin sé að ná meiri viðskiptum við önnur flugfélög. Fjár- festingin á Írlandi gefi möguleika á arðbær- um rekstri. Aðstaðan við Shannon-flugvöll sé öll til fyrirmyndar og flugskýli félagsins að- eins tveggja ára gamalt. Hafþór segir engin áform uppi um breytingar á tæknideildinni á Íslandi. Hafþór segir Atlanta hafa í nokkur ár verið að leita að hentugri aðstöðu fyrir flugvélaflot- ann en þá sem hefur verið í Manston í suður- hluta Englands. Þar rekur Atlanta viðhalds- fyrirtækið Avia Services, sem er með 50-60 manns í vinnu, þar af nokkra Íslendinga. Upphaflega átti þetta að vera meginviðhalds- stöð félagsins en uppbygging eigenda flug- vallarins í Manston hefur ekki gengið eftir og lítil framþróun orðið. Avia Services er með aðstöðu á sex stöðum við völlinn og að sögn Hafþórs koma um 40% af tekjunum af við- skiptum við önnur flugfélög. Ágætis hagnaður hafi verið af þessum rekstri eftir sem áður, og ekki standi til að hætta honum. Ánægja með kaup Atlanta Morgunblaðið skoðaði höfuðstöðvar Shann- on MRO í gær og ræddi m.a. við fram- kvæmdastjórann, John O’Loughlin. Hann lýsti yfir ánægju með aðkomu Íslendinga að fyrirtækinu og batt miklar vonir við áform nýrra eigenda. Sagði hann starfsmennina hafa tekið tíðindunum vel en aðaleigandi Atl- anta, Magnús Þorsteinsson, hélt fund með þeim í upphafi ársins. John O’Loughlin sagði að með því að bæta við fleiri flugvélategundum sköpuðust tæki- færi til markaðssóknar í Evrópu. Átti hann þar við Boeing vélar af gerðinni 747, 757 og 767. Einnig hefðu fleiri tækifæri skapast nú þegar fréttist nýlega af áformum stærsta við- haldsfyrirtækis Íra, FLS, um samdrátt og lokun nokkurra starfsstöðva. ,,Ég hefði ekki samþykkt að vera áfram við stjórnvölinn nema að vera ánægður með hvernig Atlanta hugsar sér þessa fjárfest- ingu. Við þekkjum ágætlega vel til Atlanta og stjórnenda þar og erum bjartsýnir á framtíð- ina. Shannon MRO hefur á sér gott orð fyrir góða þjónustu, stuttan viðgerðatíma og hag- stætt verð, og við ætlum að halda áfram að starfa eftir því,“ sagði O’Loughlin. Kevin O’Sullivan, fjármálastjóri Shannon MRO, sagði spennandi tíma framundan. Nýj- um eigendum væri vel tekið á svæðinu. Sagði hann áform uppi um að auka veltuna úr 11 milljónum evra á síðasta ári í 17 milljónir evra á þessu ári, eða um 1,5 milljarða króna. Eftir það væri ætlunin að auka veltuna um 10% ár- lega, eða þar til að 400 þúsund útseldum vinnustundum væri náð í flugskýlinu á ári. Stefnt væri að því að ná því fyrir árslok 2006. Atlanta kaupir viðhalds- fyrirtæki á Írlandi Auka á veltuna um 500 milljónir á þessu ári Morgunblaðið/Björn Jóhann Alls starfa um 150 manns hjá Shannon MRO á samnefndum flugvelli á Írlandi. Er Morgun- blaðið var á staðnum í gær var verið að þrífa verkstæðisgólfið undir einni Boeing-vél. John O’Loughlin, forstjóri Shannon MRO, og Kevin O’Sullivan fjármálastjóri, með vél- arnar, sem voru í viðgerð í gær, í bakgrunni. UM 300 Íslendingar pöntuðu flug til Króatíu á vegum Heimsferða í gær og segir Andri Már Ingólfs- son, forstjóri ferðaskrifstofunnar, að það hafi komið skemmtilega á óvart hvað fólk sé spennt fyrir þessum nýja áfangastað. Þetta er í fyrsta sinn sem Heimsferðir bjóða uppá beint flug til Króatíu og verður flogið viku- lega í sumar. Andri segir um 2.000 sæti í boði og salan í gær sýni hvað fólk er opið fyrir nýjungum. Það sé tímabært að opna nýja áfangastaði fyrir Íslendingum, sem geri jafnframt þá kröfu að einfalt sé að komast þangað. Andri segir að mikið af barna- fólki hafi pantað sér far í gær og eins sé mikið um hjón sem vilji kanna töfra Miðjarðarhafsins. Uppbygging í Króatíu sé búin að vera mikil, aðstaða fyrir ferða- menn nýleg og umgjörðin öll fal- leg. Þarna sé hægt að finna gamla Miðjarðarhafsstemmningu í bæj- um og fallegar vogskornar strend- ur. 300 pöntuðu far til Króatíu EDDA Rós Karlsdóttir, for- stöðumaður greiningardeildar Landsbankans og fyrrverandi hagfræðingur ASÍ, segir í blaði Samiðnaðar að laun sem hlutfall af landsframleiðslu séu nú í sögulegu hámarki, en það þýði að kaup- máttur á næstu árum verði að koma frá framleiðniaukningu. Hún segir að framleiðniaukning sé almennt talin 1,5% á ári, en líkleg- ast sé að þjóðarbúið standi undir um 2% kaupmáttaraukningu á ári. Möguleg skattalækkun kunni síð- an að auka við kaupmátt ráðstöf- unartekna. Edda Rós segir að almenn launahækkun í síðustu kjarasamn- ingum hafi verið 13% yfir fjögurra ára tímabil. Mikil verðbólga á árinu 2002, sem mældist 9,4%, hafi því komið illa við þann hóp launafólks sem einungis hafi fengið umsamdar hækkanir og ekk- ert launaskrið. Verðbólgan komi verst við þá sem minnstar hækkanir hafi fengið. Edda Rós segir vísbendingar um að sú uppsveifla í efnahagsmálum sem nú sé að hefjast verði ólík síðustu upp- sveiflu, bæði hvað varðar kaupmátt og atvinnuleysi. Hún bendir á að stutt sé frá síðustu uppsveiflu og því hafi ekki safnast upp neysluþörf hjá almenningi eins og var tilfellið árið 1996. Þörf fyr- irtækja til fjárfestinga sé heldur ekki mikil næstu 2–3 árin. Kjarabætur tæplega teknar af hagnaði fyrirtækja „Laun sem hlutfall af landsfram- leiðslu (launahlutfallið) eru nú í sögu- legu hámarki. Þetta þýðir að hagnaðarhlutfallið er í sögulegu lágmarki og því er ljóst að kjarabætur verða tæplega teknar af hagnaði fyrirtækjanna. Aukinn kaupmáttur verður því að koma frá fram- leiðniaukningu. Í upphafi fyrri sveiflna hefur launahlutfallið verið mun lægra en það er nú, enda langt tímabil kaupmáttarskerðingar að baki. Á mælikvarða launahlutfallsins er svigrúm fyr- irtækjanna til að hækka laun því minna en áður. Á móti kemur að möguleikarnir á framleiðsluaukn- ingu eru sennilega meiri en oft áður,“ segir Edda Rós í grein sinni. Edda Rós minnir á að erlent vinnuafl flæði nú inn í landið með stækkun Evrópusambandsins. Þetta þýði að atvinnurekendur þurfi ekki í sama mæli og áður að hækka laun til að ná til sín fólki frá öðrum fyrirtækjum. Þeir einfaldlega flytji vinnuafl til landsins þegar eftirspurn eftir vinnu- afli er hvað mest. Edda Rós segir að áhrif stóriðjuframkvæmda á hálendinu séu m.a. þau að gjaldeyrir streymi inn í landið sem leiði til þess að gengi krónunnar styrk- ist. Við þetta lækki verð á innfluttum vörum en jafnframt versni staða útflutningsfyrirtækja. Þetta geti aftur leitt til samdráttar hjá fyr- irtækjum og fækkunar starfsfólks. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans Svigrúm fyrirtækja til launahækkana minna en áður Edda Rós Karlsdóttir SHANNON MRO hefur verið starfandi við flugvöllinn allt frá árinu 1959, en með nokkrum nafna- og eigendabreytingum. Lengst af átti írska ríkisflugfélagið Air Lingus fyrirtækið, eða frá 1967 til ársins 1999. Viðræður Atlanta við eigendur frá þeim tíma, hraðflutningafyrirtækið Unit- ed Parcel Services (UPS), hafa staðið yfir undanfarna mánuði og er stefnt að undir- skrift samninga í byrjun febrúar, með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleika- kannana og fleiri þátta. Í apríl verður nafni fyrirtækisins svo breytt í Air Atl- anta Engineering Ltd., eða þegar leyfi hefur fengist frá írsku flugmálastjórn- inni fyrir viðgerð á fleiri tegundum. Var lengi í eigu Air Lingus ÞRETTÁN portúgalskir og ítalskir starfsmenn Impregilo við Kárahnjúka sem voru á leið til landsins með Flugleiðavél frá London sl. föstu- dagskvöld fengu ekki að fara frá borði á Egils- stöðum, þar sem ekki var hægt að tollafgreiða vélina þegar hún lenti á Egilsstaðaflugvelli sök- um manneklu. Vélin var á leið til Keflavíkur en varð að lenda á Egilsstöðum vegna veðurskilyrða í Keflavík og bíða af sér veðrið. Að sögn Ómars R. Valdimars- sonar, talsmanns Impregilo, var óskað eftir því við Flugleiðir að mennirnir fengju að fara frá borði þar eð þeir væru á leið til Egilsstaða. Ekki hafi verið hægt að verða við því þar sem enginn starfsmaður á vegum tollgæslunnar var á staðn- um. Starfsmennirnir flugu áfram með vélinni til Keflavíkur í býtið á laugarsdagsmorgun og flugu til Egilsstaða á laugardagskvöld. Að sögn Ómars hefur Impregilo fullan skilning á þessu atviki og eru engin eftirmál af því. Þær upplýsingar fengust hjá tollgæslunni á Seyðisfirði að alvanalegt væri að flugvélar milli- lentu á Egilsstaðaflugvelli, t.d. vegna slæmra veðurskilyrða í Keflavík. Erfitt væri hins vegar um vik að tollafgreiða farangur einstakra far- þega í stórum vélum sem vildu komast frá borði. Vél frá London millilenti á Egilsstöðum vegna veðurs Ekki unnt að toll- afgreiða starfs- menn Impregilo FORYSTUSVEIT Heilsugæslunnar á höfuð- borgarsvæðinu hefur óskað eftir fundi með Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra í kjölfar frétta í Morgunblaðinu um að í heilbrigðisráðu- neytinu sé í athugun hvort fósturskimun eigi að vera skilgreind sem hluti af mæðravernd. „Okkar tillaga er fyrst og fremst að fóstur- skimun eigi að vera valkostur kvenna en ekki hluti af kerfisbundinni mæðravernd, nema fyrir konur sem eru í aukinni áhættu [hvað litninga- galla varðar],“ segir Lúðvík Ólafsson, lækninga- forstjóri Heilsugæslunnar, en Heilsugæslan hefur umsjón með mæðravernd. Fósturskimun miðar að því að finna litninga- galla snemma á meðgöngu og er án áhættu fyrir fóstrið. Lúðvík segist telja ákvörðunina hvort fósturskimun eigi að falla undir mæðravernd eða ekki í raun ekki flokkast undir heilbrigð- ismál. „Ákvörðunin sem slík höfðar til annarra og miklu víðtækari gilda en eingöngu heilbrigðis- mála. Það er hægt að gera ýmislegt og nota tækni heilbrigðiskerfisins til þess, en við getum spurt okkur að því hvort það sé eitthvað sem við viljum gera eða ekki,“ segir Lúðvík. Telur hann að það eigi að gefa foreldrum val á fósturskimun en hún eigi ekki að vera hluti af kerfisbundinni mæðravernd. Það eigi ekki að þvinga neinn til að gangast undir fósturskimun. Telja að fóstur- skimun eigi að vera valkostur ♦♦♦ Shannon. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.