Morgunblaðið - 20.01.2004, Qupperneq 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Að kaupa eð’ekki kaupa – árskort í skíða-
svæðið í Hlíðarfjall. Það er spurning sem
brennur á mörgum bæjarbúanum þessa
dagana. Undirritaður splæsti í árskort síð-
astliðinn vetur (í fyrsta skipti á ævinni) og
notfærði sér það einu sinni, núna á milli jóla
og nýárs. En vart er hægt að búast við því
að moldarbrún gil blasi við fólki í fjallinu að
vetri til strax aftur. Í augnablikinu er a.m.k.
nægur snjór í fjallinu og fullmikill í bænum,
þannig að líklega borgar það sig að fjárfesta
í öðru árskorti. Sjö, níu, þrettán...
Þá er ljóst að KEA-merkið verður ekki
málað á húsnæði Útgerðarfélags Akureyr-
inga. A.m.k. ekki á næstunni. En það er svo
sem aldrei að vita nema Kaupfélagið eignist
ÚA einhvern tíma; eða kannski ég, ef ég
varð duglegur að safna. Þegar frjáls við-
skipti eru annars vegar getur allt gerst.
Akureyringar eru reiðir, margir hverjir,
yfir því að utanbæjarmenn skuli hafa eign-
ast fyrirtækið en hafa ber í huga – eins og
raunar hefur þegar verið bent á einhvers
staðar annars staðar – að Útgerðarfélagið
hefur ekki verið í eigu „heimamanna“ í
nokkurn tíma. Kaupin gerast þannig á Eyr-
inni núorðið að sá sem ræður yfir nægu fjár-
magni (og „á“ ekki of mikinn kvóta) getur
keypt sér sjávarútvegsfyrirtæki, svo fremi
eigandinn vilji selja. Og nýi eigandinn getur
auðvitað flutt starfsemi fyrirtækisins hvert
á land sem er, detti honum það í hug. Þetta
er bara blákaldur veruleikinn.
Með þessu er ég ekki að segja að nýir eig-
endur ÚA flytji starfsemina úr bænum, alls
ekki, en einhvern tíma í framtíðinni gæti það
gerst. Fólk verður einfaldlega að gera sér
grein fyrir því. Eina leiðin til að tryggja að
fyrirtæki verði til eilífðar í ákveðnu bæj-
arfélagi hlýtur að vera sú að bæjarfélagið
sjálft eigi það. Eða er það ekki?
Allt annað mál er hvernig staðið var að
sölunni og hugsanlegt að reiði í garð Lands-
bankans og/eða Eimskips sé eðlileg. Það var
að minnsta kosti dramatískt sjónvarpsefni
þegar Andri Teitsson, framkvæmdastjóri
KEA, gekk yfir Ráðhústorgið, inn í Lands-
bankann og tilkynnti Sigurgeiri útibús-
stjóra, sem eins og fyrir einskæra tilviljun
var staddur niðri í afgreiðslu, að hann hygð-
ist taka allt út af bankareikningi númer 5.
Ekki síður þegar hann gekk út á torgið aft-
ur, suður Skipagötu og snaraði sér inn í af-
reiðslu Sparisjóðsins, þar sem Jón spari-
sjóðsstjóri var líka staddur eins og fyrir
algjöra tilviljun og tók brosandi við því sem
Andri var nýbúinn að taka út úr Landsbank-
anum.
Úr
bæjarlífinu
skapti@mbl.is
AKUREYRI
EFTIR SKAPTA HALLGRÍMSSON
BLAÐAMANN
Nemendur í fjar-námi við Háskól-ann á Akureyri
sem stundað hafa nám sitt
hjá Miðstöð símenntunar
á Suðurnesjum munu út-
skrifast í Reykjanesbæ 17.
júní 2004. Kom þetta fram
á síðasta fundi bæjarráðs
og var því sérstaklega
fagnað.
Liðlega 90 fjarnemar,
flestir við Háskólann á
Akureyri, höfðu í haust
aðstöðu hjá Miðstöð sí-
menntunar á Suð-
urnesjum og hafði fjöldinn
nærri því tvöfaldast frá
árinu áður. Í vor verða út-
skrifaðir fjarnemar í
hjúkrunarfræði og við-
skiptafræði. Háskólinn á
Akureyri hefur nú ákveðið
að útskrifa þá í Reykja-
nesbæ 17. júní.
Útskrifast heima
Í safnbók skagfirskskveðskapar semBjarni Stefán Kon-
ráðsson frá Frostastöðum
tók saman kennir margra
grasa. Í þætti Kristjáns
Runólfssonar frá Brú-
arlandi eru m.a. þrjár vís-
ur undir bragarhættinum
„ljóðaþvaga“, sem lesa má
eins og krossgátu.
Lagið góða gefur þungann
góða kvæðið þokka veitir
Gefur þokka þekking Braga
Þungann veitir Braga kynning.
Skáldin efla Óðins glæður
efla kraftinn geislar loga.
Óðins geislar glitra víða,
glæður loga víða heitar.
Tíminn geymir gleymdar bögur
geymir sagan borgir týndar
Gleymdar borgir bráðum finnast
bögur týndar finnast aftur.
Helgi Zimsen lagði orð í
belg:
Ljóða þvögu þegnar greina
þvögu bögu glímu iðka
þegnar glímu gegnir reyna
greina iðka reyna liðka.
Í ljóðaþvögu
pebl@mbl.is
Grímsey | Vetur konungur
minnti rækilega á sig hér norð-
anlands á fyrstu dögum ársins
nýja. Ekki fengum við stærsta
skammtinn hér í Grímsey en
góðan skammt þó. Uppi á fasta-
landinu moka menn kringum
bíla sína en hér í okkar sjó-
mannasamfélagi er mokað upp
úr bátunum svo daglega lífið
komist í gang. Það var bjart yfir
áhöfninni á Þorleifi EA 88 við
mokstur í vetrarríkinu við
Grímseyjarhöfn. Enda „of-
urmenn“ að störfum eins og
segir svo skemmtilega í ljóðinu
um Suðurnesjamenn. Jólafríið
er orðið langt hjá sjómönnunum
okkar, netabátar hafa t.d. ekki
getað dregið net sín nema fjór-
um sinnum, það sem af er jan-
úar. Þess má geta að þrátt fyrir
fannfergið er gleðin hér við
völd, yfir 90% Grímseyinga
mættu á Idolkvöld ferðanefndar
Kvenfélagsins Baugs í Félags-
heimilinu Múla. Fylgst var með
keppninni á nýjum risaskjá fé-
lagsheimilisins og poppstjarna
ársins 2004 valin.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Nóg að gera um borð: Áhöfn Þorleifs EA 88, frá vinstri til hægri eru Gylfi Gunnarsson skipstjóri, sem
mundar hamarinn, Sigfús Jóhannesson sem spúlar og Óttar Jóhannsson sem mokar af krafti.
Mokað upp úr bátunum
Veturinn
Húsavík | Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra var á ferðinni á Húsavík á dögunum
og notaði m.a. ferðina til að afhenda að-
standendum endurhæfingar- og útivistar-
svæðisins Garðshorns styrktarloforð upp á
allt að 1.100.000 krónur. Styrkurinn kemur
frá Framkvæmdasjóði fatlaðra, en árið
2003 og fram til mars 2004 er tileinkað fötl-
uðum.
Sigríður Jónsdóttir, aðaldriffjöður þess
að ráðist var í gerð Garðshorns, veitti
styrknum viðtöku, sagði hann koma að
góðum notum og stuðla að því að unnt verði
að setja rafdrifna hurð út í Garðshorn frá
tengigangi. Með því verður aðgengi fatl-
aðra að Garðshorni orðið eins og best verð-
ur á kosið.
Garðshorn er eins og áður segir endur-
hæfingar- og útivistarsvæði og er staðsett
við Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og
Dvalarheimilið Hvamm.
Morgunblaðið/Hafþór
Ráðherra afhendir Sigríði Jónsdóttur
styrktarloforðið. Friðfinnur Hermanns-
son, framkvæmdastjóri HÞ, í miðjunni.
Garðshorn
fékk styrk úr
Framkvæmda-
sjóði fatlaðra
BIFREIÐ valt á Laugarvatnsvegi skammt
ofan við Laugarvatn á sunnudagskvöld. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi þurfti að kalla
til tækjabíl til að losa farþega og ökumann
þar sem þeir komust ekki út af sjálfsdáð-
um. Meiðsl mannanna voru ekki teljandi.
Alls voru sjö ökumenn kærðir fyrir of
hraðan akstur um helgina samkvæmt dag-
bók lögreglunnar á Selfossi og tveir fyrir
að aka undir áfengisáhrifum.
53 kærur vegna óskoðaðra bíla
Þá fengu umráðamenn 53 ökutækja
kæru fyrir að hafa vanrækt að mæta með
ökutæki sín til skoðunar. Alls var tilkynnt
um átta umferðaróhöpp í umdæmi lögregl-
unnar í síðustu viku.
Bílvelta á Laug-
arvatnsvegi
♦♦♦
Búðardalur | Þrátt fyrir frost og snjó í Dölunum er eng-
an bilbug að finna á hestamönnum og eru tamningar
stundaðar af krafti. Skjöldur Orri Skjaldarson og kona
hans Caroline og sonurinn Andri Óttar búa á Hamra-
endum í Miðdölum.
Þar rekur hann tamningastöð ásamt því að hafa
sauðfé og endur. Það er mikill hugur í þeim enda
Landsmót hestamanna á sumri komanda og að mörg-
um verðlaunum að keppa.
Morgunblaðið/Helga Ágústsdóttir
Fjölskyldan á Hamraendum ásamt Hlyni tamninga-
manni og Sigurði á Vatni í hesthúsinu.
Tamningamenn í Dölum
GRUNNSKÓLANEMAR og há-
skólanemar skemmtu sér hið besta
saman í keilu á óvissudegi hjá men-
torverkefninu Vináttu, og var alls
150 nemendum á höfuðborgarsvæð-
inu boðið í hamborgaraveislu og
keilu á eftir.
Mentorsverkefnið Vinátta gengur
út á að háskólastúdentar og mennta-
skólanemar veiti grunnskólabörnum
stuðning og hvatningu, segir Elín
Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri men-
torsverkefnisins Vináttu. Paraðir
eru saman einn eldri nemandi og
einn grunnskólanemandi á aldrinum
7 til 10 ára og hittast þeir reglulega í
eitt ár. Pörin hittast þrisvar í viku,
og er áherslan lögð á gagnkvæman
ávinning svo og hagsmuni sam-
félagsins í heild af því að börn og
ungmenni kynnist og læri hvert af
aðstæðum annars.
Morgunblaðið/Eggert
Vinátta, stuðningur og hvatning: Guðrún Sigríður Þórhallsdóttir (t.v.) og
Eva Margrét Mona Sigurðardóttir skemmtu sér vel í keilunni.
Óvissudagur hjá Vináttu