Morgunblaðið - 20.01.2004, Blaðsíða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 19
Vatnsmýrin | Flugmálastjórn hefur fengið leyfi til að
rífa gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli, en Ár-
bæjarsafn hefur lagst gegn niðurrifi turnsins og telur
hann hafa sögulegt gildi.
„Það er ekki bara flugturninn heldur líka braggar í
kringum hann og flugskýli Flugmálastjórnar sem þarf
að rífa,“ segir Heimir Már Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Flugmálastjórnar. Flugturninn er inni á örygg-
issvæði flugbrautar, en nýjar kröfur um öryggissvæði
þýða að hann verður að fara. Hann er einnig fyrir
stærri vélum eins og fokker á akbraut við flugbrautina
svo það er óumdeilt að rífa þurfi turninn segir Heimir.
Skipulags- og byggingarnefnd tók ákvörðun um að
leyfa niðurrif á turninum á fundi sínum 17. desember
sl., og var sú ákvörðun staðfest í borgarstjórn 15. jan-
úar, og gildir leyfið í eitt ár.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörður
segir að þegar niðurrif turnsins kom fyrst til umfjöll-
unar, í júlí 2001, hafi borgarminjavörður lagst ein-
dregið gegn niðurrifi hússins. Hún segir að húsið hafi
menningarsögulegt gildi og telur að það ætti að varð-
veita.
Ekki hægt að flytja turninn
Flugturninn er talinn hafa minjagildi, og lagðist Ár-
bæjarsafn gegn niðurrifi turnsins þegar það kom til
tals árið 2001. Magnús Sædal, byggingafulltrúi Reykja-
víkurborgar, segir að ekki sé hægt að flytja turninn,
heldur þyrfti að rífa hann og byggja aftur ef ætti að
hlífa honum við niðurrifi. „Þar með er þetta farið að
hlaupa á tugum milljóna og Reykjavíkurborg er ekki
tilbúin að setja þá fjármuni í þetta verk. Einnig er
varðveislugildi turnsins mest á upprunalegum stað svo
ef hann er fluttur missir hann gildi sitt.“
Morgunblaðið/Ásdís
Rifinn á árinu: Fengist hefur leyfi fyrir því að rífa gamla flugturninn, þrátt fyrir menningarsögulegt gildi hans.
Gamli flugturninn rifinn
Laugardalur | Ákveðið hefur verið
að taka tilboði Eyktar í smíði íþrótta-
og sýningarhallar í Laugardal, og
endurbyggingu hluta Laugardals-
hallar, og verður skrifað undir sam-
komulag um það í dag. Verklok eru
áætluð í júlí 2005.
Tilboð Eyktar hljóðaði upp á tæp-
an 1,1 milljarð, en heildarkostnaður
við bygginguna verður um 1,5 millj-
arðar, segir Sigfús Jónsson, stjórn-
arfomaður Íþrótta- og sýningarhall-
arinnar ehf., sem er félag sem
stofnað var af Reykjavíkurborg og
Samtökum iðnaðarins til að standa
að verkefninu.
Nýja húsið verður tæplega 9.000
fermetrar og verður húsið ásamt
Laugardalshöllinni samtals um
15.000 fermetrar.
Vinna við smíði byggingarinnar
hefst þegar veður og snjóafar leyfir,
og næsta vetur verður farið í end-
urbætur á Laugardalshöllinni sjálfri.
Sigfús segir að reynt verði að halda
þannig á spöðunum að ekki þurfi að
loka íþróttavellinum sjálfum nema
mjög takmarkað.
Samið um byggingu
ráðstefnuhallar
Kópavogur | Íþrótta- og tómstunda-
ráð Kópavogs (ÍTK) bauð til sam-
sætis í tilefni af afhendingu styrkja
úr afrekssjóði ÍTK árið 2004 í Gerð-
arsafni, Listasafni Kópavogs síðast-
liðinn sunnudag. Til úthlutunar voru
2,5 milljónir króna og samþykkti
ÍTK að veita 29 íþróttamönnum
styrki að þessu sinni.
Sjö hlutu A-styrk að upphæð 170
þúsund kr. en þeir eru: Arnar Sig-
urðsson tennis (TFK), Magnús Aron
Hallgrímsson, Sigurbjörg Ólafsdótt-
ir og Jón Arnar Magnússon frjálsar
íþróttir (Breiðablik), Birgir Leifur
Hafþórsson golf (GKG), Inga Rós
Gunnarsdóttir og Rúnar Alexand-
ersson fimleikar (Gerplu).
Ellefu hlutu B-styrk að upphæð 90
þúsund kr. og aðrir 11 hlutu C-styrk
að upphæð 25 þúsund kr.
Afhending styrkja
úr Afrekssjóði ÍTK
Fengu styrk: Alls fengu 29 íþrótta-
menn styrk úr afrekssjóði ÍTK.