Morgunblaðið - 20.01.2004, Qupperneq 24
DAGLEGT LÍF
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TÖK stendur fyrir
„Tölvuökuskírteini” –
European Computer
Driving License (ECDL)
og er alþjóðleg viður-
kenning á tölvufærni
viðkomandi, útgefið af
Skýrslutæknifélagi
Íslands.
Hagnýtt og skemmtileg tölvunámskeið fyrir
byrjendur og þá sem vilja öðlast haldgóða og
markvissa tölvuþekkingu. Boðið er bæði upp á
60 stunda hægferðarnámskeið og 90 stunda
TÖK – námskeið þar sem nemendum gefst
kostur á að taka TÖK próf og öðlast þar með
alþjóðlega viðurkenningu á tölvukunnáttu sinni.
Stgr.verð: 60 stundir kr. 37.050 eða
90 stundir kr. 61.275. Boðið er uppá
bæði morgun- og kvöldnámskeið.
Grunnatriði upplýsingatækni
Windows stýrikerfið
Ritvinnsla með Word
Excel töflureiknir
Tölvupóstur og Internetið
Access gagnagrunnur (TÖK)
Power Point glærugerð (TÖK)
Námsgreinar
eða yfirmenn þurfa á að halda,“ segir
í umræddri frétt.
Hópur rannsakenda við Gold-
smiths College í Lundúnaháskóla
annaðist rannsóknina og svöruðu ná-
lega 200 yfirmenn í þekktum banka
og alþjóðlegu tölvufyrirtæki spurn-
ingum um viðhorf til starfsmanna.
Röktu þátttakendur góða frammi-
stöðu karla í vinnu til náttúrulegra
eiginleika þeirra, en góðan árangur
kvenna í starfi til þess að þær hefðu
lagt sérstaklega mikið á sig, segir
ennfremur.
Rannsóknin var kynnt í kjölfar
skýrslu jafnréttisnefndar í Bretlandi
sem sýnir að einungis 9% breskra
kvenna séu í hópi æðstu stjórnenda
fyrirtækja. Hjá 100 stærstu fyr-
irtækjum sem mynda FTSE-
Konur komast ekki til æðstumetorða því karlkyns vinnu-veitendur eru þeirrar skoð-
unar innst inni, að þær séu ekki jafn-
hæfar og karlar. Þetta kemur fram á
vef Lundúnablaðsins Evening Stand-
ard. Vitnað er í niðurstöður skýrslu
sem kynnt var félagi breskra sál-
fræðinga á dögunum. Þar segir að
þótt vitund um kynjamisrétti hafi
aukist séu karlstjórnendur enn þeirr-
ar skoðunar að konur hafi ekki það
sem til þarf til þess að ná langt.
„Rannsóknin sýnir að meirihluti
vinnuveitenda telur að konur séu
mildari og umhyggjusamari frá nátt-
úrunnar hendi en karlar og að þær
skorti þá ásækni sem góðir leiðtogar
vísitöluna er hlutfallið enn minna, eða
6,5%.
Hneyksli á landsvísu
Jo Silvester, prófessor við Gold-
smiths-háskóla, segir að svo virðist
sem konur séu álitnar viðnæmari,
það er líklegri til þess bregðast við
aðstæðum en að sækja fram til sig-
urs.
„Karlar eru hins vegar frekar tald-
ir eiga góðan árangur sjálfum sér að
þakka. Svo virðist sem konur séu
álitnar skorta það sem til þarf til að
ná árangri, að þær séu ekki gott leið-
togaefni,“ segir hún.
Þá segir að niðurstöðurnar séu í
samræmi við eldri kannanir sem sýni
að karlar séu almennt taldir ásæknir
og óragir við að taka áhættu. „Skortur á konum í æðstu stjórn-
um breskra fyrirtækja er ekkert
annað en hneyksli á landsvísu,“ segir
Jo Silvester.
Maxine Benson, einn stofnenda
Everywoman, stuðningshóps fyrir
konur í viðskiptum, tekur undir
þetta. „Síðustu þrjá áratugina hafa
ekki orðið nógu miklar breytingar
svo þessar niðurstöður koma því mið-
ur ekki á óvart. Það er daglegt brauð
að konur leggja helmingi meira á sig
og fá helmingi minni viðurkenningu
fyrir hæfileika sína,“ segir hún.
Maxine Benson segir skilgrein-
inguna á leiðtogahæfileikum byggða
á körlum, þar sem þeir hafi aðallega
gegnt slíkum hlutverkum hingað til.
Því þurfi að beina sjónum að konum
sem stjórni stöndugum fyrirtækjum
og skoða hvaða hæfileikum þær séu
gæddar. „Konur búa yfir ýmiss kon-
ar færni sem karla skortir almennt.
Þær eru til að mynda meira fyrir að
leita eftir almennu samkomulagi,
sem er mikill kostur í stórfyrirtæki.“
Segir hún nauðsynlegt að meta
ólíkan stjórnunarstíl karla og kvenna
að verðleikum og að fólk átti sig á því
að eiginleikar hvors kyns fyrir sig
séu mikils virði.
SÁLFRÆÐI
Telja að konur skorti leiðtogahæfileika
Reuters
Vinnuveitendur: Meirihluti þeirra
telur að konur séu mildari og um-
hyggjusamari frá náttúrunnar
hendi en karlar.
að margir af sínum viðskiptavinum
notfæri sér reglulega vefinn
www.anaestugrosum.is, sem nýlega
hefur verið uppfærður. Þar er hægt
að kíkja á daglega matseðla og verð
auk þess sem þar er að finna póst-
lista, sem fólk getur skráð sig á, og
fær þá tilkynningar um uppákomur
og tilboð af ýmsu tagi.
Sæmundur var beðinn um að gefa
lesendum smá nasasjón af fæðinu
sem hann ætlar að bjóða upp á.
Hann brást vel við því og fyrir valinu
varð súpa, salat og baka.
Lauksúpa með linsum
(fyrir fimm)
200 g laukur, sneiddur (2 meðal
laukar)
3 hvítlauksgeirar, saxaðir
Sæmundur Kristjánsson, eig-andi veitingastaðarins Ánæstu grösum á Laugavegi20b, opnar á morgun útibú
að Suðurlandsbraut 52. Að sögn Sæ-
mundar verður lögð áhersla á „taka
með“ sem þýðir að menn koma inn
og velja sér mat og fara síðan með
hann út og borða annars staðar, en
nokkur sæti munu vera inni, vilji
menn setjast niður og snæða holl-
ustubitann á staðnum.
Sæmundur, sem rekið hefur Á
næstu grösum við Laugaveg und-
anfarin fimm ár, segist hafa gengið
með þennan draum í maganum í tvö
ár þar sem honum hafi þótt vanta
hollustu í veitingahúsaflóruna á
svæðinu við Faxa- og Fákafen, en
útibúið er við hliðina á McDonalds
og ekki fjarri Kentucky Fried Chic-
ken. „Ég legg upp með að bjóða upp
á hollan skyndibita úr jurtaríkinu og
hægt verður að velja úr fjölda rétta í
þrjár stærðir af bökkum, allt eftir
því hvort vinnandi fólk vill fá sér bita
eða taka heim máltíð fyrir fjölskyld-
una. Skammtarnir koma til með að
kosta frá 500 krónum og upp í 1.300
krónur. Það eru ekki bílalúgur, en
fólk kemur inn og velur sér heitan
eða kaldan mat úr borði og fær mat-
inn afgreiddan nánast strax. Úrvalið
verður auk þess mun meira í nýja
útibúinu en við Laugaveg, en með
þessu vonast ég til að fólk fagni
þessum nýja hollustuvalkosti í ört
stækkandi flóru skyndibitastaða í
borginni. Við komum til með að hafa
fastan matseðil svo að fólk geti
gengið að hlutunum vísum, en svo
munum við líka bjóða upp á rétt
dagsins sem verður breytilegur frá
degi til dags.“
Frá morgni til kvölds
Sæmundur hefur að undanförnu
verið að innrétta húsnæðið undir
nýja staðinn, sem hann tók á leigu,
með hjálp arkitektanna Ólafar Örv-
arsdóttur og Ingunnar Hafstað. „Ég
er mjög ánægður með útkomuna, en
við lögum áherslu á einfaldleika og
hreinleika. Opið verður á virkum
dögum frá klukkan 10 á morgnana
til 20 á kvöldin. Það verður byrjað á
því að bjóða upp á morgunverð, sem
samanstendur m.a. af chiabatta-
grillbrauði, nýkreistum safa, nær-
ingarríkum orkudrykkjum og góðu
kaffi. Hádegismaturinn kemur svo
rétt fyrir hádegi. Aðalatriðið er þó
það að þetta á að ganga hratt fyrir
sig,“ segir Sæmundur og bætir við
skorið í teninga
1 kg sætar kartöflur, skrældar og
skornar í teninga
laukar, skornir í sneiðar
3 hvítlauksrif, söxuð
1 dós kókosmjólk
salt
svartur pipar
tímjan
1 búnt steinselja, söxuð
5 egg
1–2 blöð smjördeig af þykkustu
gerð
Laukurinn er hitaður í potti ásamt
piparnum, tímjaninu og hvítlaukn-
um.
Kartöflunum og graskerinu er
bætt út í. Smá vatn er sett í pottinn
ásamt kókosmjólkinni. Látið malla
við miðlungshita þar til kartöflurnar
eru mjúkar. Tekið af hita og látið
kólna eilítið. Kryddað til með salti og
pipar.
Smjördeigið er flatt út þannig að
brúnirnar skarist vel og þeki í 28 cm
smelliform.
Steinseljunni og eggjunum er
hrært út í graskersblönduna og öllu
hellt í formið.
Bakað við 150°C í 30-40 mín. eða
þar til bakan er stíf.
VEITINGAHÚS| Á næstu grösum opnar útibú
Sæmundur Kristjáns-
son er mikill áhugamað-
ur um hollmeti og er nú
um þessar mundir að
opna skyndibitastað.
join@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Jurtafæði: Hægt verður að velja úr fjölda rétta, segir Sæmundur Krist-
jánsson sem opnar á morgun skyndibitastað með grænmetisréttum.
½ tsk.
þurrkað
tímjan
2 lárviðarlauf
svartur pipar
100 g rauðar linsur,
ósoðnar
100 g tómatmauk
1,5 lítrar vatn
salt
Laukurinn er hitaður í potti ásamt
kryddinu og hvítlauknum. Þegar
hann er orðinn glær er vatninu, lins-
unum og tómatmaukinu bætt út í.
Soðið í um 30 mín. Smakkað til með
salti.
Kartöflusalat með
klettasalati
(meðlæti fyrir 4–6)
½ kg kartöflur, skornar í teninga
70 g sólþurrkaðir tómatar
70 g ólífur í olíu
70 g klettasalt
½ rauðlaukur
salt
pipar
Kartöflurnar eru skrældar, skorn-
ar í teninga og velt upp úr smá olíu,
salti og pipar og bakaðar í ofni við
150°C í 25 mín. (fer eftir stærð ten-
inganna).
Allt hitt er skorið smátt og bland-
að saman við kartöfluteningana.
Kryddað til eftir smekk.
Þetta er líka kjörið að gera deg-
inum áður, þá taka kartöflurnar bet-
ur í sig bragðið
Baka með sætum
kartöflum og graskeri
(Ein stór baka fyrir 8–12 manns)
600 g grasker, butternut, skrælt og
Áhersla á hollan skyndibita
sóknin sem þar var fjallað um náði
til 66 karla frá 20 til 57 ára. Eftir því
sem karlarnir voru eldri, því meira
af sæðisfrumum þeirra voru með
gallað DNA. Sæðisfrumur eldri karl-
anna voru einnig æ ólíklegri til að
eyðast af sjálfsdáðum, eins og þekkt
er, eftir því sem þeir voru eldri.
Rannsóknin sem um ræðir kemur
í kjölfar nýlegrar rannsóknar
franskra vísindamanna sem leiddi í
ljós að karlmenn yfir fertugu eru
þrisvar sinnum líklegri til að geta
börn með Downs-heilkennið heldur
en yngri karlar.
Það eru ekki aðeins konur semgeta síður eignast börn erlífsklukkan tifar inn á miðjan
aldur. Tvær nýlegar rannsóknir
þykja taka af allan vafa um að það
sama eigi við um karla.
Fyrst er að nefna rannsókn sem
niðurstöður voru birtar úr í tímarit-
inu Fertility and Sterility. Rann-
Lífsklukka karla tifar
HEILSA