Morgunblaðið - 20.01.2004, Qupperneq 56
)
*
E!
$B
FFFG
H $
I
I
9 9####+!9
9 9####+!9
9 9##+!9
J
E J
EK=
JLEM=
" $N
2
O E
2
2
2
MJÖG hefur dregið úr hækkun
íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu á
undanförnum mánuðum, ef marka
má vísitölu íbúðaverðs í fjölbýli á
höfuðborgarsvæðinu, sem Fast-
eignamat ríkisins birtir mánaðar-
lega, en vísitalan lækkaði um hálft
prósentustig í desembermánuði frá
mánuðinum á undan.
Þetta kemur skýrt fram þegar
verðlagsþróun á húsnæði er skoðuð
lengra aftur í tímann. Þannig hefur
verðið hækkað um 0,2% síðustu þrjá
mánuðina, samkvæmt vísitölunni,
og verðhækkunin nemur 0,7% þegar
horft er til síðustu sex mánaða eða
síðari hluta síðasta árs, ársins 2003.
Önnur mynd blasir hins vegar við
þegar verðþróun á húsnæði er skoð-
uð lengra aftur í tímann, því síðustu
tólf mánuði hefur verð á íbúðarhús-
næði í fjölbýli á höfuðborgarsvæð-
inu hækkað um 8,5% samkvæmt
vísitölu Fasteignamatsins.
110 þúsund fasteigna-
matsseðlar sendir út
Vísitalan var 149,5 í desember
fyrir ári, en er 162,2 nú, sem jafn-
gildir 8,5% hækkun. Sambærileg
hækkun varð á vísitölunni á árinu
2002, en þá hækkaði verð á húsnæði
í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu um
rúm 8%. Hækkunin á árinu 2001 var
hins vegar mun minni eða 3,5%.
Fasteignamat íbúðar- og atvinnu-
húsnæðis í landinu er endurskoðað
árlega og er nú verið að senda út
seðla með nýju fasteignamati sem
gildir í ár. Alls eru sendir út um 110
þúsund seðlar til eigenda fasteigna
um allt land, en fasteignamat á að
endurspegla gangverð fasteignar
umreiknað til staðgreiðslu, sem
ætla má að eignin hafi í kaupum og
sölu. Hækkun matsins nú milli ára
er almennt 10%, en þó er hún nokk-
uð mismunandi eftir sveitarfélög-
um. Þannig hækkar fasteignamatið
mest um 20% á Egilsstöðum, í
Hveragerði og í þéttbýli í Fjarða-
byggð.
Mikið hefur dregið úr hækkun
íbúðaverðs að undanförnu
Verð á fasteignum hækkaði um
0,2% á seinustu þremur mánuðum
FJÖLMARGIR erlendir gestir komu til lands-
ins til að vera við opnun sýningar Ólafs Elías-
sonar um helgina, og notuðu tímann hér á
landi til að kynna sér aðra íslenska myndlist.
Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Lista-
safnsins, segir að erlendu gestirnir hafi verið
mjög ánægðir með það sem þeir sáu af ís-
lenskri myndlist, en eftir eigi að koma í ljós
hverju heimsóknin skili til lengri tíma litið.
Edda Jónsdóttir, galleristi í i8 og umboðs-
maður Ólafs hér á landi, segir að um helgina
hafi galleríið fyllst af áhugaverðu fólki, sem
komið var til að skoða og kaupa íslenska
myndlist.
Gestir Ólafs
keyptu verk
Erlendir/26
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 20. JANÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Samúræjasverð
gerð upptæk
LÖGREGLAN á Sauðárkróki lagði á laugar-
dagskvöld hald á tvö samúræjasverð og eitt
heimasmíðað sverð í heimahúsi í bænum. Að
sögn lögreglu var óskað aðstoðar vegna heim-
iliserja og fékk lögregla upplýsingar um að
vopn væru í húsinu og að þeim kynni að verða
beitt.
Vopnin voru gerð upptæk mótþróalaust en
þess má geta að blöðin á sverðunum eru um
metra löng, flugbeitt og oddhvöss. Hafði lög-
reglumaður á orði að sér hefði brugðið mjög
þegar hann dró sverðin úr slíðrum og sá
hversu beitt eggin var.
BÚRHVAL rak á land í Trékyllisvík í Árnes-
hreppi rétt neðan við bæinn Mela í fyrrinótt
og var hann dauður þegar bóndinn á Melum,
Björn G. Torfason, kom að honum í gær-
morgun í fjörunni. Um er að ræða karldýr,
14,5 m að lengd.
Að sögn Björns leggur litla lykt af skepn-
unni sem bendir til þess að hún hafi ekki ver-
ið dauð lengi. Hafrannsóknastofnun hefur
verið gert viðvart um hvalrekann og stendur
til að senda sýni úr hvalnum suður til Reykja-
víkur.
Samkvæmt upplýsingum frá Hafrann-
sóknastofnun rekur árlega um 5–10 stórhveli
á land á Íslandi en það sem af er þessu ári
hefur tvo búrhvali rekið á fjöru hér á landi.
Fyrr í þessum mánuði rak búrhvalskálf á
Landeyjafjöru í Vestur-Landeyjum.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Búrhval rak á land í Trékyllisvík
NÚ liggur fyrir að alls verður ársverkum á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi fækkað um
180, samkvæmt upplýsingum Jóhannesar
Gunnarssonar, lækningaforstjóra LSH. Dreif-
ist niðurskurðurinn á allar starfsgreinar og öll
svið sjúkrahússins. Jóhannes segir að 50
manns verði sagt upp um næstu mánaðamót,
en að mestu leyti verði ársverkunum fækkað
með eðlilegri starfsmannaveltu, endurskoðun
á starfshlutfalli og eins verði vaktakerfi end-
urskipulögð og bakvöktum fækkað. Alls verður
ársverkum lækna fækkað um 25 og ársverkum
hjúkrunarfræðinga um 22. Segir Jóhannes töl-
una eitthvað lægri fyrir sjúkraliða.
Að mati Bandalags háskólamanna munu
sparnaðaraðgerðirnar snerta í heildina um 500
manns. Halldóra Friðjónsdóttir, formaður
BHM, segir að beinar uppsagnir muni koma
niður á átján félögum í aðildarfélögum banda-
lagsins, en í gær fundaði yfirstjórn spítalans
með trúnaðarmönnum þriggja stéttarfélaga.
Telur Halldóra að aðrar breytingar snerti um
250 félagsmenn, en í heild hafi aðgerðirnar
áhrif á störf og kjör um 500 einstaklinga.
Langflestar uppsagnir verða á endur-
hæfingarsviðinu, en því tilheyra stoðstéttir
eins og sálfræðingar, prestar og sjúkraþjálf-
arar sem starfa á öllum deildum. Í upphafi var
stefnt að því að fækka ársverkum á endur-
hæfingarsviði um 75, en Jóhannes segir að í
raun verði ekki fækkað um svo mörg störf.
Við niðurskurðinn hafi verið reynt að varð-
veita bráðastarfsemi sjúkrahússins, eins mikið
og kostur var, sem og störf sem aðrir fást ekki
við. Þannig hafi verið reynt að láta niðurskurð-
inn hafa sem minnst áhrif þótt Jóhannes segi
að áhrifin séu slæm alls staðar þar sem nið-
urskurði sé beitt.
Stefnt er að því að spara 900 milljónir króna.
Segir Jóhannes að uppsagnarbréf verði send
út fyrir mánaðamót og á morgun verði end-
anlega kynnt hvar niðurskurðarhnífnum verði
beitt.
Niðurskurður á LSH snertir rúmlega 500 starfsmenn að mati BHM
50 verður sagt upp
Aðgerðir/10
Laumufar-
þegar með
Skógafossi
ÞRÍR laumufarþegar voru um borð í
Skógafossi Eimskipafélagsins sem
lagðist að bryggju í hafnarbænum
Argentia á Nýfundnalandi um
helgina, samkvæmt frétt frá kanad-
íska ríkisútvarpinu. Tveimur þeirra
tókst að flýja frá borði en þeir náðust
fljótt og sá þriðji var handsamaður
um borð.
Mennirnir eru í vörslu yfirvalda
og munu vera frá Erítreu í Afríku,
Írak og Íran. Vísbendingar eru um
að Írakinn hafi yfirgefið land sitt í
maí í fyrra en ekki er ljóst hvenær
mennirnir fóru um borð í skipið.
Mennirnir höfðust við í vélarrúm-
inu á leiðinni yfir Atlantshafið og
gátu náð sér í vatn með því að sleikja
rakann af veggjum vélarrúmsins,
samkvæmt kanadíska útvarpinu.
Lausir úr
gæsluvarðhaldi
TVEIR menn sem grunaðir eru um vopnað
bankarán í útibúi SPRON við Hátún hinn 9.
janúar voru leystir úr gæsluvarðhaldi í gær.
Lögreglan í Reykjavík, sem rannsakar málið,
fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald
yfir þeim. Beðið er niðurstöðu DNA-rannsókn-
ar í Noregi á ýmsum sönnunargögnum, þar á
meðal nælonsokk sem talinn er hafa verið not-
aður sem andlitsgríma í ráninu.
♦♦♦
♦♦♦