Morgunblaðið - 24.02.2004, Page 1
Mótamálin
í skoðun
Auðveldara að fjölga liðum í 1.
deild knattspyrnunnar | Íþróttir
Samvinna
listgreina
Tvær ungar konur ljá Listahátíð
andlit með verkum sínum | Listir
Gamalt úr
geymslunni
Fólki kennt að gera upp gamla
hluti á námskeiði | Daglegt líf
STOFNAÐ 1913 54. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
AÐ frumkvæði framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins, ESB, og að höfðu samráði við
aðildarríkin verður á næstunni gengist fyrir
sérstakri rannsókn á ofurlaunum margra
stjórnenda. Hafa upplýsingar um þau vakið
mikla athygli og gremju meðal almennings.
Stefnt er að því að leggja fram í september
ákveðnar tillögur um hvernig aðildarríkin
skuli taka á þessum málum.
Frits Bolkestein, sem fer með málefni innra
markaðarins í ESB, sagði í yfirlýsingu, að góð
skipan á þessum málum myndi hafa hvetjandi
áhrif á stjórnendur og greiða fyrir því, að
þeim yrði umbunað, sem það ættu skilið. Yrði
ekkert aðhafst, myndi það kynda undir vax-
andi óánægju hluthafa og almennings, skaða
orðstír fyrirtækjanna og síðan einnig frammi-
stöðu þeirra.
Óánægja með himinhá laun stjórnenda hef-
ur farið vaxandi og þá ekki síður með æv-
intýralega starfslokasamninga.
Framkvæmdastjórnin leggur áherslu á, að
hún ætli sér ekki að skipta sér af viðskipta-
ákvörðunum fyrirtækja en óhjákvæmilegt sé
að huga að reglum um laun stjórnenda, til
dæmis hvaða upplýsingar verði að leggja fyr-
ir hluthafa. Kannað verður hvort tillögurnar
eigi aðeins að ná til skráðra fyrirtækja eða
einnig til óskráðra og reynt verður að skil-
greina betur en nú hugtakið „stjórnandi“.
Ætla að rann-
saka ofurlaun
stjórnenda
Brussel. AFP.
KYNNT hefur verið fyrir borgar-
stjóra og menntamálaráðherra
hugmynd um að reisa í miðborg
Reykjavíkur 7 til 15 þúsund fer-
metra verslunar- og þjónustumið-
stöð norðan við Lækjartorg sem
tengjast myndi fyrirhuguðu tón-
listar- og ráðstefnuhúsi á hafnar-
svæðinu. Hugmyndin er frá hópi
fjárfesta og athafnamanna, sem
m.a. eiga tvær stærstu verslunar-
miðstöðvar landsins, Kringluna og
Smáralind.
Gengur hugmynd þeirra út á að
sjá um allan undirbúning, upp-
byggingu, eignarhald og rekstur á
mannvirkjunum öllum, þ.e. tónlist-
ar- og ráðstefnuhúsi auk hótels og
hinnar nýju verslunarmiðstöðvar,
og að ná víðtækri samstöðu ríkis
og borgar og annarra sem hags-
muna eiga að gæta á þessu svæði.
Fjárfestarnir sem um ræðir eru
Norvík hf., sem er í eigu Jóns
Helga Guðmundssonar, Þyrping
hf., sem er þróunarfélag í eigu
Baugs Group, Saxhóll ehf., eign-
arhaldsfélag Nóatúnsfjölskyld-
unnar, og Bygg ehf., bygginga-
félag Gunnars og Gylfa. Jafnframt
hefur verið rætt um að Lands-
bankinn verði hluti af hópnum og
að hann annist lánsfjármögnun
náist samningar þar um.
Pálmi Kristinsson, verkfræð-
ingur og framkvæmdastjóri
Smáralindar, er í forsvari fyrir
hópinn og segir hann áætlaðan
kostnað á bilinu 20 til 30 milljarða
króna. Hann taldi raunhæfan
framkvæmdatíma geta verið um
þrjú ár og væri gert ráð fyrir að
vinna verkið í einum áfanga. Pálmi
segir hópinn sannfærðan um að
með þessari hugmynd megi snúa
við þeirri öfugþróun sem verið hafi
í miðborginni síðustu árin. „Hér
væri um einstakt tækifæri að ræða
sem aldrei kæmi aftur ef það verð-
ur ekki nýtt núna,“ segir Pálmi en
kveðst ekki vilja tjá sig frekar um
hugmyndina.
Gert er ráð fyrir að ýmsir helstu
ráðgjafar sem unnu við uppbygg-
ingu Smáralindar verði þátttak-
endur en alls tóku um 100 innlend
og erlend ráðgjafarfyrirtæki þátt í
Smáralindar-verkefninu á sínum
tíma.
Hugmynd um 20–30 milljarða uppbyggingu í miðborginni á fáum árum
Verslunarmiðstöð verði
tengd tónlistarhúsi
Vilja reisa/28
BÚRFELL í Mýrdal stendur eitt sér og sést vel af þjóðveginum. All-
hvasst var í gær og víða vindský á himni. Þá hafði myndast þetta sér-
kennilega ský yfir fjallinu og engu var líkara en risastór, fljúgjandi disk-
ur hefði stansað þarna til að geimverurnar gætu skoðað fjallið. Að sögn
Trausta Jónssonar veðurfræðings myndast þessi ský vegna fjallabylgna,
þegar loftið þvingast upp af fjöllum, og eru mjög stöðug. Eru þau þá í
bylgjutoppi í loftinu. Er stundum talað um þau sem vindskafin netjuský,
oddaský eða linsuský.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fjallabylgjur skapa ský
NÝJAR hugmyndir að skipulagi
Austurhafnar Reykjavíkur-
hafnar voru lagðar fram á
kynningarfundi Skipulags- og
byggingasviðs Reykjavíkur-
borgar í gær. Gömul miðborg,
höfn í fullri notkun og tón-
listar- og ráðstefnuhús – sem
verður nýtt kennileiti borgar-
innar, verða þrír hornsteinar
hugmyndanna, en þær gera ráð
fyrir allt að sjötíu og átta þús-
und fermetra uppbyggingu í
áföngum í miðborg Reykjavík-
ur, nyrst í Kvosinni og á Mið-
bakka.
Hugmyndirnar verða kynntar
almenningi á borgarafundi í
Ráðhúsi Reykjavíkur í dag
klukkan 17.
!"
#$ Nýjar hug-
myndir um
skipulag
Austurhafnar
Byggt í takt/18
LÖGREGLAN í Lundúnum ætlar að losa sig
við og selja meira en 100 gamlar stöðvar og
koma liðinu þess í stað fyrir í búðarbásum í
stórmörkuðum og annars staðar.
Lundúnalögreglan, sem er sú fjölmennasta
í Bretlandi, tilkynnti þetta í gær en fyrir utan
stöðvarnar í stórmörkuðunum verður komið
upp stærri stöðvum í iðnaðarhverfum og
venjulegt skrifstofuhúsnæði leigt að auki.
Lögreglan er nú með meira en 600 stöðvar
en rúmlega þriðjungurinn er í húsnæði frá því
fyrir 1935 og er hann talinn úreltur auk þess
sem viðhaldskostnaðurinn er mjög mikill.
Lögreglan flyst
í stórmarkaði
London. AFP.
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráðherra
segir að ekki eigi að byggja mjólkufram-
leiðslu í landinu á aðkeyptu vinnuafli og vél-
mennum heldur
eigi mjólkurbúin
að vera rekin af
fjölskyldum í
sveitum landsins.
Hann er tilbúinn
að beita sér fyrir
því að setja reglur
um hámarksstærð
búa sem njóta op-
inberra styrkja.
Þórólfur Sveins-
son, formaður
Landssambands kúabænda, er ekki sammála
því að setja eigi slíkar reglur í pólitískum til-
gangi. Af öryggisástæðum geti það verið
réttlætanlegt til dæmis til að viðhalda viss-
um fjölda búa víðs vegar um landið. Þá skipti
öllu máli við hvaða stærð sé miðað og hafa
verði í huga að kúabændur hafi fjárfest mik-
ið undanfarin ár í ráðherratíð Guðna. For-
sendur þeirra fjárfestinga verði að halda. /4
Fjölskyldurnar
framleiði mjólkina