Morgunblaðið - 24.02.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.landsbanki.is
sími 560 6000
Varðan - alhliða fjármálaþjónusta
Nokkrir punktar um
beinharða peninga!
Vor í París 14. - 17. maí
Yndisleg vorferð til Parísar þar sem gist verður á 3ja stjörnu
hótelinu Home Plazza Bastille í þrjár nætur. Íslenskur
fararstjóri er Laufey Helgadóttir, listfræðingur.
Verð: 36.475 kr. á mann í tvíbýli auk 10 þús. ferðapunkta.
Innifalið: Flugvallarskattar og þjónustugjöld. Nánari upplýsingar fyrir ofangreind tilboð hjá
Icelandair í hópadeild, sími 505 0406 eða sendið tölvupóst á groups@icelandair.is ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
23
72
2
02
/2
00
4
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur
fyrir hönd ríkisins afhent óbyggða-
nefnd kröfur sína um þjóðlendur á
Suðvesturlandi, þ.e. áður Gull-
bringu- og Kjósarsýslu og syðri
hluta Árnessýslu. Meðal þeirra
svæða sem ríkið gerir kröfur í er
efsti hluti Esjunnar og hlutar Botns-
súlna, Hellisheiðar, Þrengsla, Jós-
efsdals, Bláfjalla og Hengilsins. Síð-
an eru engar þjóðlendukröfur í
Árnessýslu, ef sveitarfélagið Ölfus
er undanskilið, í landi Kolviðarhóls
og hjá sveitarfélögunum Árborg,
Gaulverjabæjarhreppi, Reykja-
nesbæ, Sandgerðisbæ og Garði.
Hertaka frekar en landnám?
Ekki náðist í Ólaf Sigurgeirsson
hrl., sem er lögmaður ríkisins í þess-
um málum, en í kröfulýsingum sín-
um vitnar ríkið mikið til gamalla
landamerkjabréfa og ekki síður til
Landnámu þar sem dregið er í efa að
um landnám hafi verið að ræða á
þessu svæði heldur frekar „hertöku“
eða „yfirráðatöku“.
Vitnar ríkið til Landnámu þar sem
segir um landnám Ingólfs Arnarson-
ar: „En Ingólfur nam land milli Ölf-
usár ok Hvalfjarðar fyrir utan
Brynjudalsá, milli ok Öxarár ok öll
nes út.“ Landnám hans hafi því náð
yfir alla Gullbringu- og Kjósarsýslu,
að undanskilinni sneið þeirri af Kjós-
arsýslu er liggur milli Brynjudalsár
og Botnsár, og Árnessýslu vestan
Ölfusár. Takmörkin séu nokkurn
veginn glögg á alla vegu. Segir enn-
fremur í kröfulýsingum ríkisins að
landnám Ingólfs beri „brag af her-
töku eða yfirráðatöku lands frekar
en námi“ og því nemi aðrir einstök
svæði í landnámi Ingólfs.
Aðrar kröfur berist innan
þriggja mánaða
Í tilkynningu frá óbyggðanefnd
segir að ríkið kynni nú kröfur sínar í
þeim tilgangi að ná til þeirra sem
kunna að eiga öndverðra hagsmuna
að gæta. Verða kröfurnar auglýstar
með formlegum hætti í Lögbirtinga-
blaðinu og fleiri fjölmiðlum í byrjun
næsta mánaðar. Þar verður skorað á
þá er telja til eignarréttinda á því
landsvæði sem fellur innan kröfu-
svæðis ríkisins að lýsa kröfum sínum
skriflega fyrir óbyggðanefnd innan
næstu þriggja mánaða.
Þetta er fjórða landsvæðið sem
óbyggðanefnd tekur til meðferðar en
nefndin hefur það hlutverk að kanna
og skera úr um hvaða land telst til
þjóðlendna og hver séu mörk þeirra
og eignarlanda. Nefndinni er einnig
ætlað að skera úr um mörk þess
hluta þjóðlendu sem nýttur er sem
afréttur og úrskurða um eignarrétt-
indi innan þjóðlendu. Að loknum áð-
urgreindum þriggja mánaða fresti til
að lýsa kröfum um eignarréttindi á
kröfusvæði ríkisins fer fram opinber
kynning á heildarkröfum og stendur
í einn mánuð. Eftir það er svæðinu
skipt í mál og boðað til fyrstu fyr-
irtöku. Síðan fer fram aðalmeðferð
fyrir nefndinni og loks kveðnir upp
úrskurðir. Nánari upplýsingar um
kröfugerðina er hægt að nálgast á
vef óbyggðanefndar. Ljósrit allra
gagna verða einnig send skrifstofum
viðkomandi sveitarfélaga og sýslu-
mannsembætta á næstunni.
Ríkið setur fram kröfur um mörk þjóðlendna á Suðvesturlandi
Krafist hluta af Esjunni,
Botnssúlum og Hellisheiði
Morgunblaðið/Þorkell
Ríkið vitnar mikið til Landnámu í kröfulýsingum sínum.
TENGLAR
..............................................
www.obyggdanefnd.is
ÍSLENSKA ríkið, þ.e. fjármála-
ráðherra fyrir hönd þess, gerir
eftirtaldar þjóðlendukröfur á Suð-
vesturlandi, en svæðin sjást nánar á
meðfylgjandi korti:
Hluti Botnssúlna við Hvalfjörð
og að Há-Kili.
Efsti hluti Esjunnar og megin-
hluti Blikadals.
Mosfellsheiði, Hengillinn,
Skarðsmýrarfjall og hluti Hellis-
heiðar. Sá hluti Hellisheiðar,
sem er utan kröfugerðar, er
austan við Orrustuhól við
Hengladalsá beina línu í hæsta
punkt Reykjafells, sem er ofan
Skíðaskálans í Hveradölum.
Utan kröfugerðar er land Kol-
viðarhóls.
Hluti Þrengsla, Jósefsdals,
Heiðarinnar há, Bláfjalla og alls
lands ofan Heiðmerkur að Blá-
fjöllum.
Land ofan Helgafells og Húsfells
og hrauns upp af Straumsvík, en
hluti þess svæðis er Almennings-
skógar Álftaneshrepps hins
forna og hluti Suðurnesjaal-
menninga.
Selsvellir, Höskuldarvellir og
Geldingarhraun upp af Hvassa-
hrauni.
Land Vilborgarkots fyrir norð-
an Hólmsá.
!!"
#
!
%&
!
"
Þjóðlendukröfur ríkisins
MAÐUR hlaut umtalsverða áverka
er hann féll af vinnupalli við Ingunn-
arskóla í Grafarholti um kl. 13 í gær.
Maðurinn liggur á gjörgæsludeild
þar sem hann er undir eftirliti.
Að sögn vakthafandi læknis hlaut
hann einhver útlimabrot, auk þess
sem hann slasaðist talsvert á höfði.
Líðan hans var eftir atvikum í gær-
kvöldi en hann er ekki í lífshættu.
Tildrög slyssins eru ókunn.
Féll af vinnu-
palli við
nýbyggingu
FÉLAGSMÁLARÁÐ Reykjavíkur-
borgar samþykkti fyrir helgina nýj-
ar reglur um félagslegt leiguhús-
næði og sérstakar húsaleigubætur
sem taka eiga gildi hinn 1. mars
næstkomandi.
Sérstakar húsaleigubætur eru
ætlaðar þeim sem hvað verst eru
settir fjárhagslega á húsnæðismark-
aðnum og munu þeir sem eru í leigu-
húsnæði á almennum markaði eftir-
leiðis geta sótt um að fá samsvarandi
niðurgreiðslu og þeir sem búa í íbúð
á vegum Félagsbústaða.
Reiknað er með að 3–400 einstak-
lingar og fjölskyldur muni notfæra
sér sérstakar húsaleigubætur þegar
þær koma til framkvæmda.
Í tilkynningu frá félagsmálaráði
segir að skilyrði fyrir veitingu sé að
umsækjandi hafi ekki möguleika á að
kaupa eigin húsnæði, hann eigi lög-
heimili í Reykjavík og hafi átt a.m.k.
síðustu 3 ár, meðaltal tekna sé innan
við ákveðin tekju- og eignamörk,
umsækjandi búi við erfiðar fé-
lagslegar aðstæður og eigi í húsnæð-
iserfiðleikum og uppfylli skilyrði til
almennra húsaleigubóta.
Geta ekki farið yfir 75%
af leigufjárhæðinni
Sérstakar húsaleigubætur eru
reiknaðar sem hlutfall af húsaleigu-
bótum. Fyrir hverjar 1.000 kr. fær
leigjandi 1.300 kr.
Þó geta húsaleigubætur og sér-
stakar húsaleigubætur aldrei verið
meiri en 50.000 á mánuði né farið yfir
75% af leigufjárhæð.
Hægt verður að sækja um bæt-
urnar á þjónustuskrifstofum Fé-
lagsþjónustunnar, í Vesturgarði eða
Miðgarði.
Sérstakar húsa-
leigubætur samþykktar
í félagsmálaráði
Hámarks-
bótafjár-
hæð 50
þúsund kr.
ÝMSIR fleiri landnámsmenn
en Ingólfur Arnarson eru
nefndir til sögunnar á ein-
stökum landsvæðum í kröfulýs-
ingum ríkisins.
Eru þetta Ásbjörn Özurar-
son, bróðursonur Ingólfs, og
Þórður skeggi Hrappsson á því
svæði sem kallað er „Stór-
Reykjavíkursvæðið“, Ormur
hinn gamli Eyvindarson jarl,
Álfur hinn egzki og Þórir haust-
myrkur í Ölfushreppi, Steinunn
hin gamla, frændkona Ingólfs, í
Vatnsleysustrandarhreppi,
Helgi bjóla Ketilsson flatnefs á
Kjalarnesi, Svartkell hinn kat-
neski, Valþjófur Örlygsson
hinn gamli, Hvamm-Þórir og
Þorsteinn Sölmundarson í Kjós
og í landi Grindavíkur eru
nefndir Molda-Gnúpssynir,
Hafur-Björn, Gnúpur, Þor-
steinn hrungnir og Þórður leg-
gjaldi. Í Þingvallasveit og
Grafningi eru nefndir Hjörleif-
ur Einarsson barnakarl, Stein-
röður sonur Melpatrix af Ír-
landi og Þorgrímur bíldur
Úlfsson, auk fyrrnefnds Orms
Eyvindarsonar jarls.
Ýmsir land-
námsmenn
nefndir
KONAN sem lést á gjörgæsludeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss
síðastliðinn föstudag eftir umferðar-
slys við Blönduós hét Margrét Þóra
Sæmundsdóttir, fædd 1959. Margrét
Þóra var til heimilis á Hringbraut 26
í Reykjavík. Hún lætur eftir sig þrjú
börn og unnusta.
Lést eftir
bílslys
♦♦♦