Morgunblaðið - 24.02.2004, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 43
DAGBÓK
Lífrænt ræktaðar vörur
Kárastíg 1, 101 Reykjavík, sími 562 4082.
SÍMI 530 1500
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert opin/n og gefandi og
leggur svo mikið upp úr vel-
ferð heildarinnar að þú átt
það jafnvel til að ganga fram
af sjálfri/sjálfum þér.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Farðu varlega í að eyða pen-
ingum í dag. Það er hætt við að
gerðir þínar þjóni ekki tilgangi
sínum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að forðast átök við for-
eldra þína og yfirmenn í dag.
Það er hætt við að þú verðir
misskilin/n og að gerðir þínar
verði mistúlkaðar. Bíddu til
morguns með að standa fyrir
máli þínu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það hefur ekkert upp á sig að
rökræða um skoðanir þínar í
trú- og stjórnmálum í dag.
Jafnvel þótt þú reynir að tala
skýrt muntu verða misskilin/n.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta er ekki rétti dagurinn til
að fá eitthvað að láni. Það er
mikil hætta á einhvers konar
ruglingi eða misskilningi og
vinir þínir munu jafnvel efast
um heilindi þín.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er hætt við að yfirmenn
þínir, foreldrar eða nánir vinir
mistúlki gerðir þínar í dag.
Reyndu að tala skýrt og vertu
á verði gagnvart óheilindum
annarra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ekki falla í þá gryfju að reyna
að stytta þér leið í vinnunni í
dag. Þig langar mest til að
stinga skylduverkunum undir
stól en það eru miklar líkur á
að það komi þér í vandræði.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er freistandi að grípa til
ósanninda í dag, sérstaklega í
samskiptum við börn og í
vinnu sem tengist íþróttum
eða skemmtanaiðnaðinum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er líklegt að einhvers kon-
ar ruglingur komi upp í sam-
skiptum þínum við aðra í fjöl-
skyldunni í dag. Fólk talar
ekki af heilindum og það skap-
ar óvissu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Gættu vel að því hvað þú borð-
ar og drekkur í dag. Láttu
ekkert vafasamt inn fyrir þín-
ar varir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Reyndu að taka sem minnsta
áhættu í dag. Sköpunargáfa
þín er hins vegar upp á sitt
besta þannig að þú ættir að
einbeita þér að skapandi tján-
ingu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gætir freistast til að grípa
til lyginngar til að forðast
óþægindi á heimilinu. Mundu
að það tekur langan tíma að
byggja upp traust en skamm-
an tíma að brjóta það niður.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Farðu varlega í umferðinni í
dag hvort sem þú ert gang-
andi, akandi eða á hjóli. Þú ert
viðkvæm/ur fyrir truflunum og
því er þér hættara við slysum
en venjulega.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
KONAN MEÐ HUNDINN
Í borginni við fjallið
eru grænir pálmagarðar
og gamlir minnisvarðar,
sem rísa yfir sænum.
Þar sat ég oft á daginn,
er sólin skein sem heitast
og sál mín tók að þreytast
á umferðinni í bænum.
En daglega í sama mund
og sólin skein í vestur,
þá settist annar gestur,
á bekkinn með sitt nesti.
Það var ævagömul kona
í afargömlum frakka,
með ofurlítinn rakka
í perluhvítri festi.
– – –
Tómas Guðmundsson
LJÓÐABROT
HLUTAVELTA
NEMENDUR í 4. til 8. bekk í Grunnskólanum á Hólum
tóku sig til nú í febrúar og söfnuðu peningaupphæð, sem
afhent var fulltrúa Skagafjarðardeildar Rauða kross Ís-
lands og skal söfnunarféð renna til uppbyggingarstarfs á
jarðskjálftasvæðunum í Íran. Söfnunin fór þannig fram að
heimili nemendanna lögðu til hráefni sem komið var með í
skólann, en síðan voru með aðstoð heimilisfræðikennara
bakaðar kökur og kaffibrauð sem selt var í Hólaskóla og
varð afraksturinn þrettán þúsund krónur. Ásta K. Guð-
jónsdóttir heimilisfræðikennari aðstoðaði nemendur við
framkvæmdina sem er liður í lífsleikninámi þeirra.
LOKAUMFERÐIRNAR í
tvímenningi Bridshátíðar
voru æsispennandi, enda
mörg pör í baráttunni og
umskipti tíð á toppnum.
Þegar mótið var blásið af
eftir 92 spil stóðu Ásmundur
Pálsson og Guðm. P. Arn-
arson uppi sem sigurveg-
arar með 809 stig yfir með-
alskor (56,7% skor). Daninn
Lars Blakset og Svíinn Pet-
er Fredin urðu í öðru sæti
með 797 stig (56,6%), en í
þriðja sætið kom í hlut
þeirra frænda og nafna,
Helga Jónssonar og Helga
Sigurðssonar (696 stig).
Jafnir þeim, en þó fjórðu
vegna innbyrðis við-
ureignar, urðu bræðurnir
Hermann og Ólafur Lár-
ussynir.
Peter Fredin er sannkall-
aður villimaður við spila-
borðið og er þá átt við sagn-
irnar en ekki framkomuna,
sem er óaðfinnanleg. Tvö
efstu pörin mættust í þriðju
síðustu umferð og höfðu
hinir sænsk-dönsku vinn-
inginn, ekki síst fyrir ótrú-
legt útspilsdobl Fredins í
þessu spili:
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠10873
♥D9
♦KD5
♣KG109
Vestur Austur
♠ÁD9 ♠KG62
♥KG86 ♥43
♦10943 ♦G76
♣53 ♣8764
Suður
♠54
♥Á10752
♦Á82
♣ÁD2
Vestur Norður Austur Suður
Blakset Ásmundur Fredin Guðm.
-- Pass Pass 1 hjarta
Pass 1 spaði Pass 1 grand
Pass 2 grönd Pass 3 grönd
Pass Pass Dobl ! Allir pass
Það þarf töluvert áræði
og hugmyndaflug til að láta
sér detta í hug að dobla á
spil austurs. Hann á 5
punkta og makker hefur
ekkert blandað sér í sagnir.
En sagnir NS hafa verið
upplýsandi. Styrkurinn er
augljóslega knappur og þar
með er útreiknanlegt að
vestur á töluverð spil. Og
doblið hefur þann meg-
inkost að biðja um spaða út
– lit blinds.
Blakset lagði niður spaða-
ásinn í byrjun og vörnin
fékk fjóra fyrstu slagina á
spaða. Fimmti slagurinn
hlaut að koma á hjartakóng
og Fredin uppskar 123 stig
af 132 mögulegum fyrir do-
blið.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 d6
4. h3 Bd7 5. O-O Rf6 6. d3 h6
7. Be3 a6 8. Ba4 Be7 9. Rc3
O-O 10. Re2 Rd4 11. Bxd7
Rxf3+ 12. gxf3 Dxd7 13.
Kh2 c6 14. Rg3 d5
15. Rf5 d4
Staðan kom upp í
Meistaramóti Tafl-
félagsins Hellis sem
lýkur innan tíðar.
Stefán Freyr Guð-
mundsson (1920)
hafði hvítt gegn Elsu
Maríu Þorfinns-
dóttur. 16. Bxh6!
gxh6 17. Hg1+ Kh7
18. Dd2 Rg8 19.
Hg7+ Kh8 20.
Hxg8+ Kxg8 21.
Hg1+ Kh7 22.
Dxh6#. Hörð bar-
átta um meistaramótstit-
ilinn stendur á milli Sig-
urðar Daða Sigfússonar og
Björns Þorfinnssonar og
verður hún útkljáð í síðustu
umferð sem fram fer á
morgun, miðvikudaginn 25.
febrúar.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu við versl-
unarmiðstöðina Sunnuhlíð á Akureyri og söfnuðu 3.840
krónum til styrktar Rauða krossinum. Stelpurnar heita,
talið frá vinstri: Alexandra Ýr Thorarensen, Pála Sigríður
Tryggvadóttir, Sandra Marín Sigurðardóttir, Ester Ósk-
arsdóttir og Alma Skaptadóttir.
FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ
hefur sent frá sér eftirfarandi
ályktun: Fyrir Alþingi liggur
frumvarp til laga um erfðafjár-
skatt. Frumvarpið felur í sér
ýmsar jákvæðar breytingar á
núgildandi lögum, svo sem ein-
földun skattheimtunnar, lækkun
skatthlutfalls og skattleysis-
marka, svo og afnám stighækk-
andi skatthlutfalls. Í athuga-
semdum við frumvarpið er gert
ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af
erfðafjárskatti muni minnka úr
um 800 milljónum í um 400
milljónir á ári vegna breyting-
anna.
Frjálshyggjufélagið leggur til
að frumvarpið verði endurskoð-
að með það í huga að stíga til
fulls skrefið til afnáms þeirrar
óréttlátu skattheimtu sem erfða-
fjárskattur er. Háir skattar eru
lagðir á tekjur einstaklinga þeg-
ar þeirra er aflað. Sá hluti tekn-
anna sem ekki er varið til neyslu
myndar eign þeirra. Öllum ætti
að vera frjálst að ráðstafa þess-
ari eign sinni að vild. Þar með
talið við eigið andlát.
Að mati Frjálshyggjufélags-
ins er mikið um óréttláta skatt-
heimtu ríkisins. Telst erfðafjár-
skattur tvímælalaust til hennar.
Notum nú tækifærið. Afnemum
erfðafjárskatt.
Erfðarfjárskattur
óréttlátur
ÚT er komin bókin Krakkarnir í
Kátugötu eftir Sigrúnu Eddu
Björnsdóttur rithöfund og Jean
Posocco teiknara. Bókin er sú
fyrsta í nýjum bókaflokki sem höf-
undarnir vinna fyrir umferð-
arskólann Unga vegfarendur en
alls verða bækurnar sex.
Nýi bókaflokkurinn mun smátt
og smátt leysa af hólmi eldri um-
ferðarfræðslubækur sem eru bún-
ar að þjóna hlutverki sínu í um
áratug. Líkt og fyrri bókum um-
ferðarskólans verður þeim dreift
endurgjaldslaust til allra 3–7 ára
barna á landinu. Fyrstu tvær bæk-
urnar fá þau þegar þau eru
þriggja ára, en síðustu verkefn-
unum er dreift til sjö ára barna.
Í þessari fyrstu bók fá lesendur
að kynnast aðalsöguhetjunum
Matthildi, Dodda og innipúkanum
sem þurfa að takast á við ýmis
vandamál í umferðinni. Meðal þess
sem fjallað er um er mikilvægi
þess að börn leiki sér á öruggum
leiksvæðum, hvernig þeim beri að
haga sér á gangstétt og hvernig
eigi að fara yfir gangbraut. Bók-
unum er ætlað að vekja börnin til
umhugsunar á jákvæðan og
skemmtilegan hátt um umferðina
og þær hættur sem henni fylgja.
Mælt er með því að foreldrar gefi
sér góðan tíma til að lesa sög-
urnar fyrir börnin og ræða um
efni þeirra.
Nýtt fræðslurit
umferðarskólans
ATVINNA mbl.is