Morgunblaðið - 24.02.2004, Page 52
Eldmóður dansar sigurdansinn í hópdansi á Íslandsmeistarakeppninni.
Á SUNNUDAGINN var hin árlega dans-
keppni sem kennd er við Tónabæ og kallast
Freestyle eða frjáls aðferð, haldin í tutt-
ugasta og þriðja sinn og fór fram í Laug-
ardalshöllinni við mikinn fögnuð viðstaddra.
Í sjálfri keppninni taka aðeins þátt krakkar
sem eru á aldrinum 13–16 ára og er bæði
hóp– og einstaklingskeppni. Áður kepptu
líka 10–12 ára krakkar en nú hefur orðið sú
breyting að þeim stendur til boða að taka þátt
í sérstakri freestylesýningu og er það gert til
að hvetja unga og áhugasama dansara til að
taka þátt í danssýningu án þess að vera undir
keppnisálagi og einnig til að gefa þeim tæki-
færi til að þjálfa sig upp í að sýna fyrir fullum
sal af fólki.
Aðeins einn strákur tók þátt í keppninni að
þessu sinni og náði þeim góða árangri að
verða í þriðja sæti í Íslandsmeistarakeppni
einstaklinga. Þessi hugrakki drengur heitir
Aron Magnússen og er nýfluttur frá Fær-
eyjum til Sandgerðis. Húrra fyrir honum,
hugrekki hans og að standa sig svona vel í öll-
um þessum kvennafansi!
Aldrei lært dans
Annars urðu helstu úrslit þau að Inga
Birna Friðjónsdóttir hreppti fyrsta sætið í Ís-
landsmeistarakeppni í einstaklingsdansi.
Inga Birna er frá Sauðárkróki en býr núna á
heimavistinni á Akureyri því hún er í MA.
„Ég hef aldrei lært dans en alltaf verið
dansandi inni í stofu heima hjá mér, ýmist ein
eða með vinkonum mínum á meðan foreldr-
arnir drekka kaffi,“ segir Inga Birna sem er
mikil áhugamanneskja um dans en hún æfir
fótbolta og var líka í frjálsum íþróttum. Hún
segist hafa verið í tvær vikur að semja og æfa
dansinn og fékk vin sinn til að mixa tónlist
með U2 og Missy Elliot, við dansverkið. „Ég
fékk m.a. í verðlaun að fara á dansnámskeið
hjá Darrin Henson sem kemur til Íslands um
næstu helgi og hann hefur kennt bæði Brit-
ney Spears og Justin Timberlake að dansa,
þannig að það verður frábært tækifæri og ég
er til í allt ef eitthvað býðst í dansinum, en
annars gengur fótboltinn hjá mér mjög vel og
metnaðurinn liggur þar.“
Sömdu dansinn sjálfar
Íslandsmeistarar í hópdansi urðu Eld-
móður, sex stelpur úr Reykjavík, þær Hug-
rún, Hildur Jakobína, Eva Dögg, Heiða
Björk, Ólöf og Nanna. Hugrún tjáði sig um
málið fyrir hönd hópsins. „Við sömdum dans-
inn sjálfar en danskennararnir okkar, Birna
og Guðfinna Björnsdætur, fóru yfir þetta
með okkur í lokin og fínpússuðu með okkur,“
segir Hugrún og bætir við að þær hafi allar
stundað freestyle-dansnám í Dansskóla Birnu
Björnsdóttur síðastliðin fimm ár.
„Auðvitað langar alla að vinna, en það kom
okkur dálítið á óvart, því við vorum alveg
vissar um að Helía myndi vinna, þær sem
voru í öðru sæti, en ein í þeim hóp er vinkona
mín.“
Hugrún segir að þær stelpurnar í Eldmóði
hafi strax fengið ýmis tilboð um að sýna dans
og það sé mikill heiður fyrir þær að þeim var
boðið að dansa með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í mars og apríl við tónverkið Nótt á
Nornagnípu. „Svo er líka búið að panta okkur
til að dansa á öskudaginn í Valhúsaskóla,
þannig að þetta er bara gaman.“
Helía urðu í öðru sæti í hópdansi Íslandsmeistara.
Morgunblaðið/Eggert
Inga Birna Friðjónsdóttir Íslands-
meistari í einstaklingsflokki.
Íslandsmeistarar frá Sauðarkróki og Reykjavík
khk@mbl.is
Freestyle–danskeppni Tónabæjar
52 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.20.
AKUREYRI
kl. 6. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
kl. 4 og 6. Ísl tal.
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
Frá
bæ
r g
am
an
my
nd
me
ð f
ráb
ær
ri t
ón
lis
t.
Með hinni efnilegu Beyoncé Knowles,
fimmföldum Grammy verðlaunahafa og
Óskarsverðlaunahafanum Cuba Gooding Jr.
Frábær gamanmynd frá höfundi
Meet the Parents
KRINGLAN
kl. 4. Ísl tal. / kl. 6. Enskt tal.EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6, 8 og 10.
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
6
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
m.a. besta mynd ársins
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Heimur fa rfuglanna
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 8 OG 10.30. B.i. 14 ára.
Mögnuð mynd með
Óskarsverðlaunahöfunum Ben Kingsley og
Jennifer Connelly
Tilnefningar til
óskarsverðlauna3
Sýnd kl. 5.50. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.30, 8, 9.15 og 10.30.
Kvikmyndir.com
HJ MBL „Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S.
Fréttablaðið
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Jack Nicholson, Diane Keaton, Keanu Reevesog Amanda Peet í Rómantískri
Gamanmynd frá Nancy Myers, leikstjóra „What Women Want“.
Roger Ebert
HJ MBL
ÓHT Rás2
ÓHT Rás2
VG DV
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.20.
Stórbrotin ogmargverðlaunað
stórmynd með
Óskarsverðlaunahafanum, Nicole
Kidman, Golden Globe og BAFTA
verðlaunahafanum Renée
Zellweger og Jude Law. Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16.
Sýnd kl. 7.05 og 8.10
Kynnir
SV MBL
SV MBL
HJ. MBL
ATH!
Aukasýning
kl. 9.15
RÚNAR Júlíusson er alltaf að og dælir út
plötunum eða svo gott sem. Um páskana kem-
ur út ný skífa, trúarleg plata er nefnist Trú-
brotin 13.
„Ég er að verða búinn með hana,“ segir
rokkarinn síungi í spjalli við blaðamann.
„Platan kemur svo út í byrjun apríl. Þetta
eru 13 trúarleg lög, bæði þá tónlistarlega og
textalega séð. Þetta er gospel frá sjónarhorni
rokks, popps og kántrís. Mikið um raddaðan
söng og slíkt.“
Að baki þessari útgáfu er sérstök ástæða en
Rúnar gefur plötuna út í minningu foreldra
sinna. Móðir hans söng í kirkjukór í 45 ár og
pabbi hans hefði orðið 100 ára á þessu ári.
Plötuna gerir hans svo með sonum sínum og
segir hann að öll fjölskyldan komi að þessu á
einn eða annan hátt, auk fjölda hljóðfæraleik-
ara og söngvara.
„Ég þurfti að fresta plötunni út af Hljóma-
fárinu,“ segir Rúnar og kímir. „Ég stefndi
upprunalega að útgáfu um síðustu jól en pásk-
arnir eru auðvitað mjög fínn tími líka fyrir
svona plötu.“
Rúnar segist vera búinn að vinna að plöt-
unni með öðru í um eitt ár.
„Slatti af lögunum er frumsaminn en svo
eru þarna líka klassískir sálmar. Allt er þetta
samt sungið með mínu nefi að sjálfsögðu
(hlær). Að þessu loknu er það svo önnur
Hljómaplata en það er önnur saga…“
Rúnar Júlíusson gefur út trúarlega plötu
Í minningu foreldra sinna
arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Trúbrotin 13 eru gerð í minningu
foreldra Rúnars Júlíussonar.
NIC Harcourt er tónlistarstjóri útvarps-
stöðvarinnar KCRW í Kaliforníu og stýrir
þar hinum daglega þætti Morning Becomes
Eclectic (í lauslegri þýðingu: Hinn margræði
morgunn). Í nýlegu hefti New York Times
er spilunarlisti hans birtur og nefnir hann
þar sjö sveitir og listamenn úr hinum og
þessum áttum. Þarna eru t.d. Franz Ferdin-
and, skoska nýbylgjusveitin sem er afskap-
lega „heit“ um þessar mundir, og rafsveitin
Zero 7 sem fylgir hinni vinsælu Simple
Things frá 2001 eftir í mars næstkomandi.
Þá eru á listanum stjörnur morgundagsins
eins og ný-sálartónlistarmaðurinn Van Hunt
og rómanska tilraunapoppsöngkonan Julieta
Venegas.
Að síðustu nefnir hann svo Ske þar sem
hann segir að svo virðist sem fleiri hljóm-
sveitir séu á fermílu á Íslandi en í nokkru
öðru landi. Harcourt segir Ske fylgja í fót-
spor Bjarkar, Gus Gus og Sigur Rósar og
segir að frumburður sveitarinnar, Life,
Death, Happiness & Stuff, sé sannfærandi
verk sem innihaldi tilraunakennt, jaðarskot-
ið melódískt popp. Hann klykkir út með því
að segja að veturinn hafi hlýnað er hann
heyrði plötuna. Life, Death, Happiness &
Stuff kom út í október 2002 og lifir greini-
lega enn góðu lífi.
Ske á spilunarlista virts plötusnúðs í Bandaríkjunum
Gera veturinn hlýrri
www.kcrw.com
www.ske.is
Ske.