Morgunblaðið - 24.02.2004, Síða 53
STEFNUMÓTAMYND ársins –
hingað til – er klárlega 50 fyrstu
stefnumótin, nýjasta gamanmynd
Adams Sandlers.
Það er náttúrlega deginum
ljósara þegar sá spaugari er ann-
ars vegar að annaðhvort elskar
fólk hann eða hatar og þeir sem
elska hann eru greinilega alveg
að fara á límingunum yfir þessari
nýjustu mynd hans.
Þarna leikur hann líka á móti
eftirlætis mótleikkonu sinni,
henni Drew Barrymore, sem
heillaði ekki bara hann upp úr
skónum heldur flesta aðra í The
Wedding Singer. 50 fyrstu stefnu-
mótin rauk á toppinn um síðustu
helgi og var sú eina sem gerði
góða hluti um þessa helgi. Þannig
fór hún líka létt með að standast
áhlaup nýrra mynda sem ollu
flestar vænum vonbrigðum.
Unglingamyndin Játningar
dramadrottingar (Confessions of
a Teenage Drama Queen) með
Lindsay Lohan úr Freaky Friday
gekk þó skást af nýju myndunum
og fór í annað sætið.
Pólitíska grínmyndin Velkomin
til Elghafnar (Welcome to Moose-
port) er með Ray Romano úr All-
ir elska Raymond og Gene Hack-
man komst ekki nema í fjórða
sætið, unglingamyndin Evr-
ópureisa (Eurotrip) fór í fimmta
og Ein í hringnum (Against the
Robes) hnefaleikagamanmynd
með Meg Ryan ekki ofar en í átt-
unda sæti.
Kraftaverkið (Miracles) er ís-
hokkí-mynd frá Disney með Kurt
Russell sem hefur merkilegt nokk
hlotið hreint aldeilis fína dóma,
þvert yfir línuna, og heldur góð-
um velli í þriðja sæti eftir þrjár
vikur á lista.
Píslarsaga Krists verður frum-
sýnd á öskudag vestra og bíða
menn mjög spenntir eftir því
hvernig viðtökur hún fær hjá al-
menningi en hún verður frum-
sýnd í fleiri kvikmyndahúsum en
dæmi eru um nokkra aðra mynd
af trúarlegu tagi.
Að auki hefur mynd á annarri
tungu en ensku aldrei verið frum-
sýnd jafn víða.
! "#$
#
"
%&# # '
()
*)
+)
,)
-)-
-).
.)(
.)
)*
)+
,).
*)
)
,)
-)-
.)
,*)
.)
.)(
.-()(
Sandler í
algleymingi
skarpi@mbl.is
Á hverjum degi gleymir hin minnislausa
Drew Barrymore að hún sé með Adam
Sandler í 50 fyrstu stefnumótunum.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2004 53
21.02. 2004
8
2 8 6 6 5
4 0 8 5 7
15 22 24 30
26
18.02. 2004
8 14 16
38 43 47
17 26
EINFALDUR
1. VINNINGUR
Í NÆSTU VIKU!
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4507-4300-0029-4578
4741-5200-0002-5562
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
ÁLFABAKKI
kl. 3.45. Ísl. tal.
KRINGLAN
kl. 4. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 4 og 6
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Kvikmyndir.com
Diane Keaton tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni
HJ MBL
„Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S. Fréttablaðið
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás 2
i i .i
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
KRINGLAN
kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
kl. 4, 7 og 10.
AKUREYRI
kl. 8.
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.15.
Stórbrotin
ogmargverðlaunað
stórmynd með
Óskarsverðlaunahafanum,
Nicole Kidman, Golden
Globe og BAFTA
verðlaunahafanum Renée
Zellweger og Jude Law. Kvikmyndir.com
B.i. 16 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 7 og 10. b.i. 14 .
SV MBL
ALLT frá því að Orson Welles setti
Bandaríkin á annan endann árið
1938, með sögufrægri útsendingu út-
varpsleikrits sem hann byggði á Inn-
rásinni frá Mars, hafa gestakomur
utan úr geimnum verið vinsælt um-
fjöllunarefni í skemmtanaiðnaðin-
um, ekki síst kvikmyndum. Dýrateg-
undir hafa þó verið afar fátíðar í
röðum geimvera, eina tilfellið er
Howard the Duck, fokdýr skellur
sem kvikmyndaiðnaðurinn vill helst
af öllu gleyma.
Innrásir utan úr geimnum
Allt frá því að Jules Verne lyfti
sjónum sínum til tunglsins á 19.
öld, hafa rithöfundar verið iðnir
við að semja skáldsögur um geim-
ferðir og geimverur af öllum
stærðum og gerðum. H.G. Wells,
Jack Finney, Ray Bradbury,
Stephen King, svo nokkur skáld
séu nefnd sem hafa heillast af
efninu.
Fjöldi þessara ritverka hefur
endað á hvíta tjaldinu, allt frá því
að Frakkar kvikmynduðu Ferðina
til tunglsins – De la Terre à la
Lune, undir nafninu Le Voyage dans
la lune, árið 1902. Japanar hafa verið
stórtækir í gerð B-mynda um geim-
verur, í þann flokk skipuðust einnig
flestar bandarískar geimmyndir
langt fram eftir síðustu öld.
Framleiðslan var frekar óburðug
yfir höfuð og gjarnan sýnd sem
aukasnarl með betra verki á meðan
sá háttur tíðkaðist.
Mynd-
irnar báru gjarnan nöfn eins og It
Came From Outer Space, Invaders
From Mars, jafnvel Termites From
Mars, uns vegur þeirra fór vaxandi
um og eftir miðja, síðustu öld.
Invasion of the Body Snatchers,
eftir Don Siegel, var tímamótamynd
er hún kom á markaðinn árið 1956.
Segir af geimverum sem taka sér
bólfestu í líkömum manna án þess að
þeir breytist í útliti. Myndin er
byggð á sögu Jacks Finney sem var
gjarnan túlkuð sem gagnrýni á
nornaveiðar McCarthys, sem sá
kommúnista í öðrum hverjum lista-
manni vestra á þessum tíma. Því hef-
ur líka verið haldið fram að bókin sé
líkingasaga um hættuna af komm-
únismanum sem sannarlega gróf
um sig um á þessum döpru tímum.
Endurgerð Philips Kaufman frá 8.
áratugnum er einnig vönduð og at-
hyglisverð afþreying.
Glæsilegasta og skemmtilegasta
innrásarmyndin af þeim öllum er
Independence Day, sem varð ein
vinsælasta mynd allra tíma er hún
kom á markaðinn á síðasta tug 20.
aldar. Í rauninni er hún byggð á
gömlu B-mynda formúlunni, aðeins
sett í dýran og vandaðan búning,
krydduð frábærum brellum og góðu
gríni. Mars Attacks, Dreamcatcher
og Signs eru á hinn bóginn nýleg
dæmi um dýrar og vandaðar geim-
veruheimsóknir sem hafa ekki staðið
undir væntingum.
Þá má ekki gleyma Star Trek:
First Contact, þessi besta mynd
bálksins er einmitt um heimsókn
geimvera til móður jarðar. Myndin
er ein af mörgum kvikmyndaút-
færslum sjónvarpsþátta, en sá miðill
hefur lagt mikið af mörkum af slíku
efni. Eftirminnilegastir af þeim toga
eru þættir sem heita því stutta og
laggóða nafni, V.
Fjölskyldumyndin Hundalíf eða Good Boy! er komin í bíó
Geimhundurinn eignast góðan vin á
Jörðinni í myndinni Hundalíf!
Eru gæludýr geimverur?
saebjorn@mbl.is
Öndin Hávar gerði enga frægðarför úr
geimnum því myndin kolféll.