Morgunblaðið - 10.03.2004, Blaðsíða 15
800 7000 - siminn.is
Frábær þráðlaus
ISDN sími.
1.980
Léttkaupsútborgun
Swissvoice Eurit 525
og 1.000 kr. á mán.
í 12 mán.
Verð aðeins: 13.980 kr.
980
Léttkaupsútborgun
Panasonic 410
og 750 kr. á mán.
í 12 mán.
Verð aðeins: 9.980 kr.
• Drægni 50 til 300 metrar.
• Rafhlaða: Allt að 8 klst. í tali/
80 klst. í bið.
• Allt að 5 notendur á einum síma (MSN).
• Númerabirting, endurval og símaskrá.
• Styður alla helstu ISDN sérþjónustu.
• Tengja má allt að 5 aukahandtæki
við hverja móðurstöð.
• Hægt að hringja innanhús á milli handtækja.
• Rafhlaða: Allt að 20 klst. í tali/160 klst. í bið.
• Númerabirting, endurval, símaskrá og skammval.
• Skrá má allt að 6 handtæki við hverja móðurstöð.
• Innanhússímtal milli handtækja mögulegt.
• 20 mismunandi hringitónar.
• Pólýtónar.
• Stilla má hljóðstyrkinn í hlust á þrenna vegu.
• Stilla má styrk hringingar í handtækinu í 6 vegu.
• Fjórar mögulegar stillingar á hringistyrk móðurstöðvar.
ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR
á frábæru verði
50% afsláttur af stofngjöldum og fleiri fríðindi
•50% afsláttur af stofngjaldi heimasíma; aðeins 1.950 kr. í stað 3.900 kr.
• 50% afsláttur af stofngjaldi ISDN heimasíma; aðeins 3.450 kr. í stað 6.900 kr.
• Frítt að breyta úr venjulegum heimasíma í ISDN; 0 kr. í stað 3.900 kr.
•Allir viðskiptavinir Símans fá Þína hringingu og aukanúmer frítt í 6 mánuði.
Tilboðin gilda til 31. mars.
50% AFSLÁTTUR
af stofngjaldi heimasíma
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 15
NORÐMENN eru nú að reisa nýtt
óperuhús í Ósló sem verður dýr-
asta og glæsilegasta mannvirki á
sviði menningarmála sem þeir hafa
nokkru sinni ráðist í. Húsið verður
rétt við höfnina og á að kosta um
3,4 milljarða norskra króna, um 34
milljarða ísl. kr., að sögn danska
blaðsins Berlingske Tidende og á
að verða lyftistöng fyrir hverfi sem
nú heitir Bjørvika en mun í fram-
tíðinni verða nefnt Fjordbyen.
Einnig er ætlunin að verja rúm-
um fjórum milljörðum n.kr. í að
leggja mestu umferðargötu lands-
ins, E-18 og fjölmörg járnbraut-
arspor við byggingarsvæðið í stokk
til að fá pláss fyrir mannvirkið og
aðgang að því og höfninni.
Á hrakhólum í upphafi
Ópera hefur starfað í Noregi frá
1958 en hún fékk ekki eigin sal fyrr
en ári síðar. Stefnt er að því að
vígja óperuhúsið árið 2008 á 50 ára
afmælinu en líkur eru á að um-
ræddur stokkur fyrir samgöngu-
æðarnar verði ekki tilbúinn fyrr en
tveim eða þrem árum síðar. Norsk-
ir fjölmiðlar hafa rætt um að seink-
unin geti orðið enn meiri, jafnvel til
2014. „Ef stokkurinn verður að
veruleika ...,“ segir óperustjórinn
Bjørn Simensen og þorir varla að
klára hugsunina. „Við höfum bund-
ið okkur við mastrið og einbeitum
okkur að sjálfri óperunni. Við get-
um ekki hugsað um allt samtímis.“
Búið er að fjarlægja jarðveg af
byggingarsvæðinu og hafin vinna
við að bora fyrir undirstöðunum að
óperuhúsinu sem eiga að ná 40
metra niður í klöppina, sums stað-
ar enn lengra. Einnig verður búinn
til öflugur varnargarður neð-
ansjávar til að koma í veg fyrir að
skip sigli óvart á óperuhúsið.
Teikningin að húsinu er umdeild
eins og oft er reyndin og líkir
danska blaðið henni við sambland
af skíðastökkpalli og jeppa. Og það
á að kosta sem svarar rúmlega tíu
milljörðum ísl. kr. meira en nýja
óperuhúsið í Kaupmannahöfn sem
einkaaðilar byggðu. Stærri sal-
urinn á að taka 1.400 manns í sæti,
sá minni 400. Verður varið hundr-
uðum milljóna ísl. kr. í skreytingar.
Húsið á að verða sjálfstætt lista-
verk þar sem leikið er með and-
stæður ljóss og skugga. Fyr-
irhugað er að óperurnar tvær í
Ósló og Kaupmannahöfn eigi með
sér mikið samstarf. Deilt er um
það hvort banna eigi reykingar að-
eins innandyra, sumir vilja ganga
lengra og banna þær einnig við
húsið.
Slagurinn um staðsetninguna
stóð í 15 ár og beitti Verka-
mannaflokkurinn sér af alefli fyrir
umræddu hverfi. Upphafleg kostn-
aðarhugmynd hefur ekki staðist,
húsið er rúmlega 10 milljörðum
ísl.kr. dýrara en til stóð. Framfara-
flokkurinn, sem er lengt til hægri í
norskri pólitík, er á móti fram-
kvæmdinni. Hann hefur krafist
skýringa á auknum kostnaði og vill
frekar verja fénu í bætta heilbrigð-
isþjónustu, til dæmis fleiri heyrn-
artæki og skurðaðgerðir. En hann
er einn um andstöðuna á þingi. Í
skoðanakönnunum kemur fram að
um 60% landsmanna styðja óp-
eruhúsið.
Tölvugerð mynd af væntanlegu óperuhúsi í Ósló.
Nýtt óperuhús reist í Ósló
Á að kosta sem svar-
ar 34 milljörðum ísl.
kr. og verða tilbúið
árið 2008
Fást í verslunum um land allt
H. Blöndal ehf.
Sími 517 2121
www.hblondal.com
Purga-T sjálfvirku
slökkvitækin fyrir
sjónvörp
• Alltaf á vakt
• Slekkur eldinn strax
• Fullkomlega öruggt
SIR David Attenborough, sem er
heimsþekktur fyrir heimildarmyndir
sínar og bækur um lífríki og náttúru,
hefur snúist á sveif
með dýraverndun-
arsamtökum sem
berjast gegn hval-
veiðum.
Attenborough
ritaði formála að
skýrslu sem sam-
tök um 140 dýra-
verndarhreyfinga í
55 löndum, Whale-
watch, gáfu út á
þriðjudag. Í skýrslunni segir að ekki
séu til neinar mannúðlegar aðferðir
til að veiða hvali, til að mynda drepist
hvalir að jafnaði um tveimur mínút-
um eftir að þeir verða fyrir sprengi-
skutlum en sumir kveljist í rúma
klukkustund. Þá er Alþjóðahvalveiði-
ráðið gagnrýnt fyrir að hafa ekki sett
reglur um hve mörgum skutlum og
kúlum skjóta megi á hval, hversu
lengi megi elta hann og hversu langur
tími megi líða þar til hvalirnir drepist.
Háþróuð dýr
Í formálanum segir Attenborough
að í skýrslunni séu órækar og vísinda-
legar sannanir fyrir því að ekki sé
unnt að drepa hval á sjó á mannúðleg-
an hátt.
„Hvalir eru háþróuð dýr og afar
næm,“ skrifar Attenborough. „Fé-
lagslíf þeirra er flókið. Þeir kallast á
um langan veg í sjónum. Þeir eru
stærstu skepnur sem nokkru sinni
hafa verið á jörðinni, mun stærri en
nokkur risaeðla.
Í hvalskrokknum, sem við nýtum,
er ekkert sem við getum ekki fundið
annars staðar.“
Attenbor-
ough leggst
gegn hval-
veiðum
Sir David
Attenborough
LEIFAR skipahafnar frá víkinga-
tíma hafa fundist við Fånestanga á
Frosta í Þrændalögum. Segja forn-
leifafræðingar þetta í fyrsta sinn
sem slíkar leifar finnast í Noregi.
„Þetta er alveg einstakur forn-
leifafundur,“ sagði Lars Forseth,
héraðsfornleifafræðingur í Norður-
Þrændalögum. Leifarnar uppgötv-
uðust er landeigendur hugðust hefja
framkvæmdir við byggingu smá-
bátahafnar á þessum stað. Reyndust
þeir hafa valið nákvæmlega sama
stað og forfeðurnir 1.000 árum fyrr.
Heimamenn höfðu áður tekið eftir
timburstaurum í sjónum á þessum
stað, en höfðu talið að þær væru leif-
ar af bryggju sem væri ekki eldri en
frá síðari hluta 19. aldar, að sögn
Forseths. En er sýni var tekið og
sent til aldursgreiningar kom í ljós
að þetta voru leifar af þúsund ára
gömlu mannvirki. Oyvind Ödegaard,
sérfræðingur við Náttúru- og forn-
leifasafn Noregs, segir fundinn ein-
stakan þar sem mjög fá hafnarmann-
virki frá víkingatíma hafi fundizt á
Norðurlöndum og þetta sé eini slíki
fundurinn sem vitað sé til í Noregi.
Víkingahöfn
finnst í Noregi
Ósló. AP.
DÓMARI í Virginíu staðfesti í gær
dauðadóm yfir John Allen Muhamm-
ad, annarri leyniskyttunni, en saman
urðu þær tíu manns að bana haustið
2002.
LeRoy F. Millette dómari hafnaði
ósk verjenda Muhammads um að lífi
hans yrði þyrmt og ákvað, að hann
yrði tekinn af lífi 14. október í haust.
Búist er við, að sökunautur Mu-
hammads, Lee Malvo, sem var að-
eins unglingur er hann framdi glæp-
ina, verði dæmdur í lífstíðarfangelsi í
dag.
Dauðadómur
staðfestur
Manassas. AP, AFP.