Morgunblaðið - 10.03.2004, Blaðsíða 9
HARALDUR Bendiktsson, ný-
kjörinn formaður Bænda-
samtaka Íslands, er kúa- og
kornbóndi að Vestri-Reynum,
fæddur þar og uppalinn.
Hann lauk prófi frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri 1984
og hefur stundað búskap síð-
an. Hann er í augnablikinu
með um 30 kýr, og um
120.000 lítra mjólkurrétt,
ásamt því að vera með korn á
um 12 hekturum.
Haraldur hefur verið í
stjórn Búnaðarsamtaka Vest-
urlands frá 1999 og formaður
frá 2002, og sat í stjórn Bún-
aðarsambands Borgarfjarðar
á árunum 1995–2001. Hann
hefur verið búnaðarþings-
fulltrúi frá 2001. Haraldur er
stjórnarformaður Búhöldurs
ehf. og stjórnarmaður í Mjólk-
urfélagi Reykjavíkur.
Bærinn Vestri-Reynir er
sennilega þekktastur vegna
eins af fyrri ábúendum bæj-
arins, Jóns Hreggviðssonar úr
Íslandsklukku Halldórs Kilj-
ans Laxness. Bærinn hét
reyndar Rein í Íslandsklukk-
unni, en það er afbökun Hall-
dórs á Reynum, bærinn er sá
sami, segir Haraldur.
Haraldur segir að honum
hafi svo sem ekki mikið verið
líkt við Jón Hreggviðsson fyrr
en hann stofnaði einkahluta-
félagið Jón Hreggviðsson
ehf., til að kaupa aðra jörð.
„Svo ég vitni nú bara í Örnólf,
útibússtjóra Búnaðarbankans
á Akranesi, þegar ég bað um
lán til að kaupa þessa jörð þá
bað hann bara um snæri sem
veð. Þannig að Jón Hregg-
viðsson hefur miklu frekar
verið okkur til framdráttar
heldur en hitt. Enda lifa menn
nú miklu lengur á misjöfnu
orðspori en góðu,“ segir Har-
aldur kíminn.
Bærinn
tengdur
Jóni Hregg-
viðssyni
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 9
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Mikið úrval af
DOMINIQUE vörum
Afmælistilboð
Höfðabakka 1, sími 587 5070
kr./kg
Ýsuflök399
Skötuselur................................ 990 kr./kg
Stórlúðusneiðar............................... 990 kr./kg
Ótrúleg tilboð alla vikuna
Laugavegi 63, sími 551-4422
Sumarkápur
með eða án hettu.
Verð frá kr. 14.900.
Lithimnulestur
Með David Calvillo
fimmtudag og
föstudag
Lithimnulestur er gömul fræðigrein þar sem
upplýsingar um heilsufar, mataræði og
bætiefni eru lesnar úr lithimnu augans.
Á fimmtudag og föstudag mun David Calvillo
vera með lithimnulestur í Heilsubúðinni, Góð
heilsa gulli betri. Njálsgötu 1, uppl. og tímapantanir í s:561-5250.
Fyrirtæki
Erum að endurnýja söluskrána.
Vantar mikið af góðum fyrirtækjum á skrá.
Höfum sterka kaupendur sem geta keypt fyrirtæki upp í
3 milljarða. Hafið samband - fullur trúnaður.
fyrirtaeki.is
Öll fyrirtækjaskráin okkar er nú á netinu í mjög aðgengilegu
formi. Skoðið síðurnar okkar og hafið samband.
Einar Örn Reynisson, lögg. fasteignasali.
HARALDUR Benediktsson var kjör-
inn formaður Bændasamtaka Íslands
til næstu þriggja ára á Búnaðarþingi í
gær, og hlaut hann 30 atkvæði af 49.
Mótframbjóðandi hans, Þórólfur
Sveinsson, formaður Landssambands
kúabænda, hlaut 19 atkvæði.
Haraldur er 38 ára gamall, fæddur
23. janúar 1966. Hann er kvæntur
Lilju Guðrúnu Eyþórsdóttur frá
Kaldaðarnesi í Flóa og er tveggja
barna faðir. Hann hefur stundað bú-
skap frá 1984.
Haraldur þakkaði mótframbjóð-
anda sínum drengilega baráttu og
sagðist vonast eftir góðu samstarfi við
hann á komandi árum. Haraldur segir
að með því að kjósa sig sem formann
Bændasamtakanna hafi menn
kannski verið að endurnýja forystu
samtakanna almennilega og hleypa
inn fersku blóði, en Þórólfur er hluti
af gamalli forystu bænda. „Þórólfur
hefur verið afskaplega farsæll félags-
málamaður en víst að úr því að menn
vildu endurnýja á annað borð ákváðu
þeir að stíga stóra skrefið en ekki
taka þetta stutta,“ segir Haraldur.
Nokkuð hefur verið rætt um að
kúabændur myndu kljúfa sig úr
Bændasamtökunum ef Þórólfur yrði
ekki kjörinn formaður Bændasam-
takanna. Haraldur segist vissulega
hafa áhyggjur af öllu tali um að kúa-
bændur kljúfi sig úr samtökunum, en
segir mikið velta á því sem eftir er af
Búnaðarþinginu, enda stjórnarkjörið
eftir. Hann segist ekki verða var við
áhuga á klofningi hjá grasrótinni,
bændunum sjálfum, heldur frekar hjá
forystumönnum þeirra.
Ekki æskilegur
„Ég fékk sterk skilaboð um að ég
væri ekki æskilegur í þeirra augum.
Það hefur verið áherslumunur á því
hvernig við sjáum framtíð atvinnu-
greinarinnar. Ég gef mig út fyrir að
vera forystumaður fyrir alla bændur,
ekki bara eina búgrein, og við verðum
að gæta þess að horfa vítt yfir sviðið
og skoða hagsmuni heildarinnar. Þeir
hafa verið með óþarfa áhyggjur af því
að ég muni reynast mjólkurfram-
leiðslunni illa, sem ég vona og veit að
er mjög rangt hjá þeim,“ segir Har-
aldur.
Þórólfur segir að ekki standi til að
kúabændur kljúfi sig frá Bændasam-
tökunum. „Almennt séð er afar erfitt
[fyrir Landssamband kúabænda] að
standa utan heildarsamtakanna,
landbúnaðarlöggjöfin gerir tæpast
ráð fyrir því fyrir það fyrsta. Það er
vandséð hvaða hag búgreinafélög eða
búgreinasamtök hefðu af því að
standa utan heildarsamtakanna. Ég
sé ekki alveg til hvers það væri,“ segir
Þórólfur. Hann segir Landssamband
kúabænda hafa verið aðila að Bænda-
samtökunum frá stofnun Landssam-
bandsins. Hann segir samstarfið
ágætt og sér ekki fyrir sér breytingu
á því.
Spurður um stefnubreytingar und-
ir forystu hans segir Haraldur að ekki
verði um stór stökk að ræða, heldur
þurfi þetta að þróast áfram. „Ég hef
áhuga á því að Bændasamtökin virki
sem stéttarfélag bændanna, og að við
snúum okkur meira að því að spá í
umhverfið í kringum okkur, alþjóða-
umhverfið. Einnig að við reynum
meira að spá um framtíðina í stað
þess að vera alltaf að bisast við að tak-
ast á við fortíðarvandann,“ segir Har-
aldur.
Haraldur Benediktsson var kjörinn formaður Bændasamtaka Íslands
„Verð forystumaður
fyrir alla bændur“
Morgunblaðið/Ásdís
Atkvæði greidd: Haraldur Benediktsson fékk 30 atkvæði af 49 í formannskjörinu á Búnaðarþingi í gær.