Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Framtalsaðstoð
Annast framtalsaðstoð
fyrir einstaklinga
með og án reksturs.
Annast einnig
frestbeiðnir.
Pantið tímanlega
í síma 511 2828 eða með
tölvupósti bergur@fiton.is
Skattaþjónustan ehf.
Bergur Guðnason hdl.
Garðastræti 37 – Sími 511 2828
SORG Í FINNLANDI
Mannskæðasta umferðarslys í
sögu Finnlands varð í fyrrinótt er
stór flutningabíll með tengivagn og
rútubifreið lentu í árekstri í hálku á
vegi í Mið-Finnlandi. Fórust 24, að-
allega ungmenni frá Helsinki á leið
í skíðaferðalag. Rann flutningabíll-
inn til á veginum og lenti tengi-
vagninn, sem var fullur af 700 kílóa
pappírsrúllum, framan á rútunni.
Þjóðarsorg er í Finnlandi og sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, sendi-
herra Íslands í Helsinki, að fólk
væri harmi slegið. Sagði hann jafn-
framt, að þessir miklu flutningar á
finnskum vegum væru stórhættu-
legir.
Prestur í rannsókn
Lögreglan í Reykjavík rannsakar
nú mál tveggja manna sem grun-
aðir eru um kynferðisafbrot gegn
börnum. Annar mannanna hefur
starfað sem prestur í afleysingum.
Biskupsstofa hefur sent frá sér yf-
irlýsingu þar sem það er harmað að
þetta mál skuli hafa komið upp.
Mansal gæti náð fótfestu
Utanríkisráðherra segir ýmislegt
benda til þess að mansal gæti náð
fótfestu hérlendis. Hann sagði
virka löggæslu og aukna vitund al-
mennings um þess konar glæpa-
starfsemi mikilvæga. Þrjú mansals-
mál komu upp hér á landi á síðasta
ári.
Nýtt nafn Eimskipafélags
Eimskipafélagið heitir nú Burð-
arás, en nafni félagsins var breytt á
aðalfundi í gær. Jafnframt var nafni
dótturfélagsins Eimskips breytt í
Eimskipafélag Íslands. Björgólfur
Thor Björgólfsson var kjörinn
stjórnarformaður Burðaráss.
Hvatt t i l samstöðu
George W. Bush Bandaríkja-
forseti minntist þess í gær, að ár er
liðið frá Íraksinnrás, og hvatti til
samstöðu gegn hryðjuverkum. Við-
urkenndi hann, að mikill ágrein-
ingur væri um Íraksstríðið með
„góðum vinum“, en sagði það heil-
aga skyldu að berjast gegn „ofbeldi
hinna fáu“. Í yfirlýsingu 26 kunnra
manna í Bandaríkjunum og Evrópu
segir, að samskipti Bandaríkjanna
og Evrópu hafi ekki áður verið
verri, og er það rakið til Íraks-
stríðsins.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 48
Viðskipti 13/18 Minningar 53/60
Erlent 22/25 Umræðan 48/52
Höfuðborgin 27/28 Kirkjustarf 60/62
Akureyri 29/30 Staksteinar 74
Suðurnes 31 Myndasögur 73
Landið 32 Bréf 72
Árborg 33 Dagbók 74/75
Listir 34/35 Leikhús 80
Úr Vesturheimi 36 Fólk 80/85
Neytendur 38 Bíó 83/85
Heilsa 39 Ljósvakamiðlar 86
Forystugrein 44 Veður 87
* * *
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra lagði
í gær fram kröfu fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur um gæsluvarðhald til
loka apríl nk. yfir mönnunum þremur
sem grunaðir eru um að hafa komið
líki Litháans Vaidas Jucevicius í höfn-
ina í Neskaupstað. Var það talið nauð-
synlegt vegna almannahagsmuna þar
sem ætla megi að þeir eigi yfir höfði
sér „þunga dóma og aðferðir þeirra
voru óvenjulega harkalegar“, eins og
ríkislögreglustjóri segir í tilkynningu
sem hann sendi frá sér í gær.
Þegar krafan var lögð fram var
henni mótmælt af lögmönnum þre-
menninganna. Héraðsdómari féllst
svo á kröfu lögreglunnar í gærkvöldi
um varðhald til 30. apríl nk. og ákváðu
lögmenn sakborninga að kæra niður-
stöðuna til Hæstaréttar. Hefði hér-
aðsdómari ekki fallist á kröfuna hefðu
mennirnir losnað úr varðhaldi þó að
það eigi ekki að renna formlega út
fyrr en 24. mars nk. Sveinn Andri
Sveinsson, lögmaður eins sakborn-
inga, segir það athyglisvert að þegar
lögreglan hafi lagt fram kröfuna hafi
ekki verið vitnað í álit réttarmeina-
fræðings, sem síðar hafi verið gert í
fréttatilkynningu ríkislögreglustjóra,
um að Vaidas hafi látist af völdum
stíflu í mjógirni vegna fíkniefna-
hylkja.
Sveinn segir þetta skipta máli um
hvaða grein hegningarlaga er stuðst
við og hvort hinir grunuðu hafi stuðl-
að að andláti manns með lyfjagjöf eða
ekki komið honum til bjargar. Sveinn
segir lögmennina hafa farið fram á
eintak af krufningarskýrslu réttar-
meinafræðings til að reifa málið betur
í Hæstarétti.
Enn beðið eftir
rannsóknum sýna
Arnar Jensson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn, sem stjórnað hefur rann-
sókn málsins, segir í samtali við
Morgunblaðið að þótt rannsóknin sé á
lokastigi eigi enn eftir að hnýta
nokkra lausa enda. Meðal annars er
beðið eftir rannsóknum á blóðsýnum,
sem send voru utan, og öðrum tækni-
legum niðurstöðum. Voru blóðsýni
m.a. tekin í bíl eins sakborninga, sem
reyndust vera úr hinum látna og eig-
anda bílsins.
Þá er uppi grunur um fleiri vitorðs-
menn, bæði hér á landi og í Litháen.
Hefur rannsóknin m.a. beinst að því
að upplýsa hvort um einstakt tilvik er
að ræða eða hvort sakborningarnir
hafi tengst eða staðið að fleiri fíkni-
efnamálum.
Ríkislögreglustjóri mun senda rík-
issaksóknara rannsóknargögn máls-
ins til ákvörðunar innan skamms, að
því er segir í tilkynningu ríkislög-
reglustjóra. Lögregla telur rannsókn-
arhagsmuni ekki kalla lengur á ein-
angrun mannanna þriggja og segir
Arnar að af þeim sökum hafi verið
óskað eftir „opnu varðhaldi“, þ.e. að
þeir megi hafa samskipti við annað
fólk og tala saman. Arnar telur að fyr-
ir lok apríl verði rannsókn lokið og
ríkissaksóknari búinn að taka ákvörð-
un um ákæru eða ekki. Farið hafi ver-
ið fram á svo langt varðhald þar sem
hegningarlagabrotin, sem mennirnir
eru grunaðir um, geti varðað 10 ára
fangelsi eða meira.
Spurður hvað átt sé við með
„óvenjulega harkalegum“ aðferðum
mannanna segir Arnar að lögreglan
telji þá hafa gerst seka um alvarleg
fíkniefnabrot, sem geti varðað allt að
12 ára fangelsi. Framan af rannsókn
hafi mennirnir verið grunaðir um
manndráp en það hafi breyst á síðari
stigum og þeir nú m.a. grunaðir um
brot á 220. gr. alm. hegningarlaga,
sem er á þá leið að ef manni er komið í
það ástand að það leiði til dauða þá
geti það varðað allt að átta ára fang-
elsi.
Arnar segir miskunnarleysi ein-
kenna þær aðferðir sem hafi verið
beitt og það rökstyðji kröfu um lengra
varðhald vegna almannahagsmuna.
Lést af völdum stíflu í mjógirni
Ríkislögreglustjóri staðfestir að
tveir sakborningar í málinu af þremur
hafi við yfirheyrslur játað aðild að
málinu og gefið ítarlegar skýrslur
sem rannsóknurum hafi tekist að
staðreyna með ýmsum sönnunar-
gögnum. Einn mannanna hafi hins
vegar staðfastlega neitað sök.
Fyrir liggi að Vaidas hafi komið til
landsins 2. febrúar með um 400
grömm af ætluðu amfetamíni í um
það bil 60 plasthylkjum sem hann
hafði gleypt. Hinir þrír grunuðu tóku
á móti honum og sinntu honum í íbúð
eins þeirra allt þar til hann lést
snemma að morgni 6. febrúar. Vaidas
hafi veikst fljótlega eftir að hann kom
til landsins af völdum hylkjanna sem
hann bar innvortis. Upplýst er að frá
3. til 6. febrúar voru honum útveguð
ýmis hægðalosandi lyf, sem hann tók
inn. Þá er einnig upplýst að Vaidas
hafi verið gefið morfíntengda lyfið
Contalgin síðustu einn til tvo sólar-
hringana sem hann lifði.
Samkvæmt áliti réttarmeinafræð-
ings sem krufði og rannsakaði líkið
lést Vaidas af völdum stíflu í mjógirni
vegna fíkniefnapakkninga. Lík hans
var sett í plastpoka, vafið inn í teppi
og tveir sakborninganna fluttu það
þannig í bílaleigubíl til Neskaupstað-
ar þar sem þriðji sakborningurinn
beið þeirra.
Segir ennfremur í tilkynningu rík-
islögreglustjóra að mennirnir þrír
hafi um miðnætti sunnudaginn 8.
febrúar losað líkið úr teppinu á neta-
gerðarbryggjunni í Neskaupstað,
fergt það, stungið á það fimm göt með
hnífi til að hleypa úr því lofti og sökkt
því síðan við bryggjusporðinn.
Lögmenn sakborninganna þriggja í líkfundarmálinu hafa ákveðið að kæra
til Hæstaréttar framlengingu gæsluvarðhalds þeirra til 30. apríl nk.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglumenn frá embætti ríkislögreglustjórans og tæknideild lögregl-
unnar í Reykjavík við vettvangsrannsókn í líkfundarmálinu.
Rannsókn á lokastigi en
fleiri liggja undir grun
FJÖRUTÍU til fimmtíu ný störf
gætu orðið til í Járnblendiverk-
smiðjunni á Grundartanga gangi
áætlanir eftir um framleiðslu þar
á magnesíumjárnblendi, en það
er mun mannaflafrekari starf-
semi en sú sem fyrir er.
Þetta kom fram hjá Sigtryggi
Bragasyni, rekstrarstjóra hjá Ís-
lenska járnblendifélaginu, á mál-
þingi um stóriðju og samfélag á
Vesturlandi sem haldið var á
Akranesi í gær.
Sigtryggur sagði að málið væri
skammt á veg komið. Væntanlega
yrði ákvörðun um hvort af þessu
yrði tekin í ár og yrði það gert
með haustinu gæti framleiðsla á
magnesíumjárnblendi hafist seint
á næsta ári. Starfsmennirnir
væru spenntir fyrir þessu og full-
ir bjartsýni um að þessar fyr-
irætlanir gengju eftir.
Ánægjuleg tíðindi
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi, sagði að þetta væru af-
skaplega ánægjuleg tíðindi.
Lengi hefði verið beðið eftir að
Járnblendiverksmiðjan rétti úr
kútnum, því hún hefði gengið í
gegnum breytingar. „Þetta er
auðvitað gleðileg viðbót og von-
andi að vel takist til,“ sagði Gísli
ennfremur.
Fram kom að um væri að ræða
mun sérhæfðari framleiðslu en á
venjulegu kísiljárni sem flutt er í
heilum skipsförmum til kaupenda
erlendis. Elkem, hinn norski eig-
andi Íslenska járnblendifélagsins,
framleiddi um 60 þúsund tonn af
magnesíumjárnblendi árlega,
sem væri um þriðjungur af árs-
framleiðslunni. Markaðurinn
væri mjög stöðugur hvað varðaði
kaupendur, verð og annað og
væri þess vegna mjög áhugaverð-
ur og að þessu leyti ólíkur mark-
aðnum með kísiljárn, sem væri
mjög sveiflukenndur.
Einnig kom fram að flutningur
framleiðslunnar hingað til lands
tengdist því að verið væri að
leggja niður verksmiðju í Noregi
sem hefði séð um þessa fram-
leiðslu. Um væri að ræða á annað
hundrað vörutegundir, sem væru
ólíkar hvað varðaði efnafræði og
stærð, og mikil handavinna væri
tengd framleiðslu og pökkun vör-
unnar áður en hún væri afhent
kaupendum. Þess vegna væri
starfsemin mannaflafrek.
Framleiðsla á magnesíumjárn-
blendi í athugun á Grundartanga
Fjörutíu til
fimmtíu ný störf
gætu skapast
Morgunblaðinu í dag fylgir blað
Evrópuárs fatlaðra.