Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þeir sem fylgdust með um-ræðum á Alþingi í upphafivikunnar fengu smáinnsýní störf alþingismanna á al- þjóðavettvangi. Þingmenn gáfu nefnilega þá skýrslur um störf sín hjá hinum ýmsu alþjóðanefndum Al- þingis á liðnu ári. Þessar þing- nefndir eru alls níu talsins og heita m.a. Íslandsdeild um norrænt sam- starf, Íslandsdeild þingmanna- nefndar EFTA, Íslandsdeild VES- þingsins, Íslandsdeild ÖSE- þingsins, Íslandsdeild Evrópuráðs- þingsins, Íslandsdeild NATO-þingsins, Íslandsdeild Vest- norræna ráðsins og Íslandsdeild Al- þjóðaþingmannasambandsins, svo dæmi séu nefnd. Ef marka má innihald skýrsln- anna er nóg að gera hjá mörgum af þingmönnum okkar á erlendum vettvangi. Ekki urðu þó miklar um- ræður um skýrslurnar eftir að for- menn Íslandsdeildanna höfðu gert grein fyrir þeim enda gaf efni þeirra kannski ekki tilefni til þess; skýrsl- urnar eru að mestu fremur þurr upptalning á starfinu sem fram fór á liðnu ári, þ.e. fundunum í hinum og þessum löndum, ráðstefnunum, álitamálunum og markmiðunum. Umræður um grundvallarsjónarmið í utanríkismálum fóru því varla fram – enda væntanlega ekki ætlunin. Ummæli Sólveigar Pétursdóttur, formanns utanríkismálanefndar Al- þingis, vöktu þó athygli fjölmiðla, en hún sagði, eftir að hefa gert grein fyrir sinni skýrslu, að í ljósi ódæð- isverkanna í Madríd á Spáni í síð- ustu viku væri ekki ólíklegt að hlut- verk og áherslur Bandaríkjanna kynnu að breytast á næstu miss- erum. „Og kann það að hafa jákvæð áhrif á viðræður okkar og Banda- ríkjamanna um framtíð varnarstöðv- arinnar í Keflavík,“ sagði hún. Þessi ummæli virtust þó ekki vekja athygli á þingi því engar umræður hlutust um þau í kjölfarið.    Annars var nýliðin þingvika aðmörgu leyti hefðbundin ogróleg. Fátt var um átakamál. Mælt var fyrir þingmálum og stjórn- arfrumvörpum og ráðherrar voru spurðir út í ýmis mál í fyrirspurn- artímum, s.s. um framleiðslu sjón- varpsefnis, hættumat fyrir sum- arhúsabyggð og speglunaraðgerðir í hnjám. Þá fóru fram tvær eða þrjár utan- dagskrárumræður. Í þeim um- ræðum skiptust þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu í tvær fylk- ingar, eins og oft vill verða. Í einni umræðu í vikunni var þó eins og þessar tvær fylkingar byggju ekki í sama landi, að minnsta kosti ef tekið er mið af fullyrðingum Össurar Skarphéðinssonar, for- manns Samfylkingarinnar, og Árna Magnússonar félagsmálaráðherra. Verið var að ræða þróun atvinnu- leysis og sagði Össur útlitið í þeim málum því miður „ekki nægilega gott“, eins og hann orðaði það, en ráðherra sagði „bjart framundan hjá okkur Íslendingum“, svo einnig sé vitnað beint í orð hans. Í ljósi þessa er undirrituð ekki undrandi á því að þeir sem fylgjast með umræðum á Alþingi verði stundum ringlaðir á mismunandi yf- irlýsingum stjórnar og stjórnarand- stöðu. Ekki ætlar undirrituð að gera tilraun til að útskýra þessar ólíku fullyrðingar, nema minna á að í póli- tík reyna þeir sem eru í stjórnarand- stöðu að benda á það sem miður fer en þeir sem eru í stjórn að benda á það sem gott er.    En að öðru. Stjórnarfrumvarpum raforkulög var aðmargra mati eitt stærsta mál vikunnar á Alþingi, en það geng- ur í stuttu máli út á breytingar á flutningskerfi raforku. Frumvarpið byggist á meirihlutaáliti nítján manna nefndar um þessi mál og er yfirleitt talað um „nítján manna nefndina“ þegar vitnað er til hennar. Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra mælti fyrir frumvarp- inu á fimmtudag en athygli vakti að í umræðunni sagði hún gjarnan „átján manna nefndin“ í stað „nítján manna nefndin“. Í fyrstu kölluðu einstakir þingmenn utan úr sal: „nítján“ þegar ráðherra hafði nýlok- ið við að segja „átján manna nefnd- in“. Allt kom þó fyrir ekki, ráðherra hélt áfram að tala um „átján manna nefndina“ út alla umræðuna. Ein- hverjir hafa velt þessum ruglingi ráðherra fyrir sér. Meðal annars er spurt hvort hún sé ósátt við einhvern einstakan í nefndinni. Eða hefur hún einfaldlega gleymt einum? Kannski týnt honum? Og ef svo er: Hvað varð um þann nítjánda?      Hvað varð um nítjánda manninn? EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is um sinn,“ segir í greinargerð. „Mikilvægt er að varðveita kirkjugarðinn fyrir komandi kyn- slóðir. Það er jafnframt þýðingar- mikið fyrir sögu Íslands og menn- ingu.“ Undir lok greinargerðarinnar segir að vel væri við hæfi að samþykkja tillögu sem þessa á 100 ára afmæli heima- stjórnar „í ljósi þess sögulega mik- ilvægis sem garðurinn gegnir, en þar hvíla ýmsir af helstu baráttu- mönnum og sjálfstæðishetjum Ís- lendinga, svo sem Jón Sigurðsson forseti og Hannes Hafstein, fyrsti ráðherra Íslands, auk ýmissa ann- arra framámanna þjóðarinnar.“ LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um að rík- isstjórninni verði falið að skipa nefnd til að vinna að því að tryggja varðveislu og uppbyggingu og kynningu á þeim menningarsögu- legu verðmætum sem fólgin eru í kirkjugarðinum við Suðurgötu í Reykjavík, Hólavallakirkjugarði. Nefndin skuli einnig huga að því að fá garðinn viðurkenndan sem „Evrópuminjar“ í ljósi þess hve ein- stakur hann er í Evrópu. Flutnings- menn tillögunnar eru þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi. Fyrsti flutningsmaður er Ásta R. Jóhann- esdóttir, þingmaður Samfylkingar- innar. Í greinargerð segir að Hólavalla- kirkjugarður sé að mati Björns Th. Björnssonar listfræðings stærsta og elsta minjasafn Reykjavíkur. „Suð- urgötugarður var aðalkirkjugarður Reykjavíkur frá árinu 1838 en árið 1932 var búið að úthluta öllum leið- um í garðinum og hafin ný úthlutun í Fossvogsgarði. Enn er þó jarðsett í frátekin leiði í Suðurgötugarði og er fyrirsjáanlegt að svo verði enn Hólavallakirkjugarð- ur verði varðveittur ÞINGMENN Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs gagnrýndu harðlega frumvarp um raforkulög sem iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, mælti fyrir á Alþingi í vikunni. Í frumvarpinu er lögð til breyting á fyrirkomulagi flutnings og dreifingar raforku um landið. Ráðherra mælti jafnframt fyrir tveimur öðrum frumvörpum í vik- unni sem tengjast raforkulaga- frumvarpinu. Í öðru þeirra er lagt til að stofnað verði hlutafélagið Landsnet sem yrði í eigu ríkisins og hefði það hlutverk að annast flutning raforku og kerfisstjórnun í raforkukerfinu. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði m.a. að hann liti svo á að raforka væri hluti af sam- félagslegri þjónustu. „Ef stefnir fram eins og nú er gert á að einka- væða raforkukerfið og innan nokk- urs tíma að setja það á almennan fjármagnsmarkað og því erum við í Vinstrihreyfingunni – grænu fram- boði algjörlega á móti. Þetta er al- mannaþjónusta og við eigum að búa henni lagalega umgjörð sem slíkri.“ Ráðherra var ekki á sama máli og þingmaðurinn. „Hann talar um þetta út frá félagslegri þjónustu í raun, rafmagnið, og það má þá velta því fyrir sér hvort matvöru- sala sé þá kannski félagsleg þjón- usta líka og þar fram eftir göt- unum,“ sagði hún. Aðrir þingmenn Vinstri grænna gagnrýndu frum- varpið einnig harðlega. Það sama gerðu þeir þingmenn Frjálslynda flokksins, sem þátt tóku í um- ræðunni. Fram kom í máli ráðherra að stefnt væri að því að afgreiða frumvarpið frá Alþingi á þessu vor- þingi. Miðað er við að ákvæði lag- anna, verði þau samþykkt, taki gildi 1. janúar 2005. Fyrsta umræða um raforkulögin Vinstri grænir gagnrýna frum- varpið harðlega STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir að við einkavæðingu ríkisviðskiptabank- anna hafi völdum aðilum verið af- hent meirihlutaeign í bönkunum strax í byrjun. Með því hafi þeir orðið tæki í höndum eins aðila; nokkurra einstaklinga eða við- skiptablokkar. Þetta hafi haft gríð- arlegar breytingar í för með sér á mjög skömmum tíma. „Landsbankinn hefur þarna leitt hópinn og menn tala um það í dag að hann sé orðinn áhættustofnun,“ segir Steingrímur og bankinn hafi umpólast frá því sem var þegar hann var í ríkiseigu. „Hann tekur mikla áhættu í þágu eigenda sinna, aftur og aftur, til þess að reyna að hámarka gróða þeirra á skömmum tíma og er notaður miskunnarlaust sem tæki í þeirra valdabaráttu og brölti í landinu.“ Þetta kom fram í ræðu formanns VG við upphaf flokksráðsfundar á Hótel Loftleiðum í gær, sem kjörn- ir fulltrúar og trúnaðarmenn sækja nú um helgina. Gaf hann tóninn fyrir stjórnmálabaráttuna næstu mánuðina og sagði flokks- menn ætla að gera flokkinn miklu fjölmennari og sterkari en hann væri nú. Jarðvegurinn væri fyrir hendi, það sýndu skoðanakannan- ir, en þau atkvæði þyrftu að koma upp úr kjörkössunum. „Við skulum heita því að nota tímann vel,“ sagði hann og minnti á að aðeins rúm tvö ár væru í næstu sveitarstjórnar- kosningar. Fjármálastofnanir glannalegar Steingrímur sagði erlendar skuldir þjóðarbúsins gríðarlegt áhyggjuefni og væru ávísun á erf- iðari stöðu á komandi tímum. Áhætta gagnvart breytingum á vöxtum, lánskjörum eða gengi krónunnar væri gríðarleg. Tugir milljónir króna gætu færst yfir á gjaldahliðina í einum vetfangi ef breytingar yrðu til hins verra í þessum efnum. Hann sagði að fjármálastofnanir hefðu siglt mjög glannalega síð- ustu misserin og nefndi breytingar á eignarhaldi sjávarútvegsfyrir- tækja í því samhengi. „Á örfáum mánuðum þá eru teknir á milli 25 og 30 milljarðar að láni erlendis. Og þeir sem kaupa aðilana út skuldsetja sig sem þessu nemur og verða að ná þeim peningum til baka í formi arðs eða eignasölu úr fyrirtækjunum á komandi árum. Hinir fara með peningana sína burt. Hvert? Jú, væntanlega til út- landa.“ Þetta séu þessir rómuðu útrás- araðilar. „Er það þá gott, að ís- lenski sjávarútvegurinn skuldsetji sig fyrir 25–30 milljarða á örfáum vikum og fjármunir sem því nema streymi á móti úr landi, t.d. til þess að kaupa búlgarska símann?“ Lagði hann þó áherslu á að ýmsar fjárfestingar ábyrgra fyrirtækja erlendis væru af hinu góða og nefndi Marel og Össur sérstaklega. Steingrímur sagði að mennta- og heilbrigðismál yrðu helstu baráttu- málin á þessu kjörtímabili. Þessum málaflokkum væri haldið í póli- tískri spennitreyju og svelti. Mót- staðan gegn aukinni gjaldtöku af fólki minnkaði, sem neyddi þá sem stjórnuðu til að fara leið ríkis- stjórnarinnar og óska eftir t.d. skólagjöldum. Þessu yrði að vinna gegn. „Ég hélt að menn ætluðu sér að reisa metnaðarfyllri kröfur og standa á þeim, hvað varðaði það að styrkja meira hin almennu lífeyr- isréttindi, t.d. að ríkið kæmi að því að greiða örorkulífeyri. Það vekur í raun og veru fyrst og fremst at- hygli mína þegar upp er staðið hversu rýrt framlagið er. Það er nánast ekki neitt sem ríkið ætlar þarna að leggja af mörkum,“ sagði Steingrímur þegar hann ræddi um nýlegt samkomulag um kjara- samninga. Varla hefði verið minnst á skattleysismörkin í þessum við- ræðum og þó hefði hluti ríkis- stjórnarinnar verið búinn að bjóða upp á slíka skoðun. Í því máli hefði Framsóknarflokkurinn gefist al- gjörlega upp. Hann sagði að hækkaði verð- bólgan eitthvað umfram verð- bólgumarkmið Seðlabankans, 2,5%, þá myndi ávinningur launa- manna af þessum samningum gufa upp í hvínandi hvelli. Yrði verð- bólgan 3,5–4% á ári árið 2006, sem Seðlabankinn léti að liggja í nýj- ustu spám og hún gæti strax farið yfir viðmiðunarmörkin á síðari helmingi næsta árs, þá byrji þessar litlu launahækkanir að étast upp. Tal Davíðs með ólíkindum Steingrími fannst með ólíkind- um hvernig Davíð Oddsson for- sætisráðherra hefði tjáð sig um nýja ríkisstjórn Spánar og sagt hana jafnvel sitja í umboði hryðju- verkamanna og léti undan þeim. Af þeim sökum stjórni hryðjuverka- mennirnir. Hann sagðist velta því fyrir sér hvort ummæli Davíðs hefðu borist til Spánar, þýdd á góða spænsku. „Ég spái því að það myndu þykja tíðindi, að þjóðhöfðingi eða ráða- maður í einu landi talaði með þess- um ósköpum um lýðræðislega og réttkjörinn þingmeirihluta í lýð- ræðisríki.“ Formaður Vinstri grænna á flokksráðsfundi Fjármálastofnanir hafa siglt mjög glannalega Morgunblaðið/Sverrir Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sagði afdrifaríka tíma fram- undan næstu tvö árin á flokkráðsfundi á Hótel Loftleiðum í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.