Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 24
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞEGAR hún Jane Blake svaraði spurningu
prestsins játandi með skjálfandi röddu, var ekki
alveg ljóst hvort hún skalf af ástarþrá eða var
beinlínis að deyja úr kulda.
Hvorki brúðarkjóllinn né flauelssláin gátu
hlíft Blake við nístandi kuldanum í brúðkaupinu
en mannsefninu hennar, Miles Wakefield, leið
öllu betur í sérstaklega þykkum smókingnum.
Undir lokin var hann samt orðinn hálfblár á vör-
unum.
Þau Blake og Wakefield komu frá Essex á
Englandi til sænska smábæjarins Jukkasjärvi,
200 km fyrir norðan heimskautsbaug, og þar
voru þau gefin saman í ískirkju ásamt þremur
öðrum pörum. Brúðkaupsnóttinni eyddu þau síð-
an á hinu fræga Íshóteli í bænum.
„Í Englandi eru Karíbahafseyjarnar ekki leng-
ur í tísku og fræga fólkið er búið að eyðileggja
Las Vegas,“ segir Wakefield en þau Blake lang-
aði til að gera hjónavígsluna dálítið eft-
irminnilega.
Í Jukkasjärvi eru ískirkjan og Íshótelið orðin
að heilmiklum iðnaði en kirkjan er 15 metra löng
og er með sæti fyrir 40 manns. Er hún á mjög
áberandi stað í „klaka- og snjóþorpinu“ en þar er
nú einnig að finna eftirlíkingu af leikhúsi Shake-
speares, Globe Theater. Presturinn, hann Jan-
Erik Kuokso, prédikar á sænsku en syngur á
samísku og hefur stundum túlk sér til aðstoðar.
Heilagt vatn á hitaflösku
Gefur hann oft saman þrjú eða fjögur pör á
dag og vill ekki hafa þau fleiri svo fyrirtækið fái
ekki á sig of mikinn Las Vegas-brag. Hefst gift-
ingartíðin á öðrum degi jóla og stendur fram í
apríl.
Það kostar raunar sitt að láta gifta sig í kuld-
anum, um 61.000 ísl. kr., en innifalin er gisting
og ýmislegt annað, til dæmis ferð um nágrennið
á skíðum eða á snjó- eða hundasleða.
Kuokso skírir einnig börn í ískirkjunni og þá
kemur hann með hið heilaga vatn á hitaflösku
svo börnunum verði ekki meint af. Útfarir vill
Kuokso hins vegar ekki annast í klakakirkjunni.
AP
Jane Blake og Miles Wakefield fyrir altarinu í klakakirkjunni í Jukkasjärvi.
Að minnsta kosti fjórar aðrar ískirkjur er að finna í Finnlandi, Kanada og Alaska.
Skjálfandi „já“ í klakakirkju
Jukkasjärvi. AP.
Áður en bandarísk alríkisyfir-völd frystu allar eigur Jeffr-eys Skillings, fyrrverandi yf-
irframkvæmdastjóra orkusölu-
fyrirtækisins Enron, afhenti hann
lögfræðingum sínum 23 milljónir
dollara, eða sem svarar rúmum 1,6
milljörðum króna, sem greiðslu fyrir
væntanlega vörn í máli yfirvalda
gegn honum vegna gjaldþrots Enron
fyrir tveim árum.
Að viðbættum tryggingagreiðsl-
um, sem sumar koma úr sjóðum
Enron, dugar þetta til að greiða laun
lögfræðingaherdeildar Skillings í
marga mánuði og jafnvel ár, að því er
The Houston Chronicle greinir frá.
„Ef til vill eru lögfræðingarnir
hans bara að tryggja að glæpir borgi
sig ekki,“ segir Philip Hilder, lög-
maður í Houston í Texas, í viðtali við
blaðið fyrr í vikunni. Hilder er fyrr-
verandi alríkissaksóknari og núver-
andi lögmaður nokkurra vitna í máli
yfirvalda gegn Enron. „Ég er viss
um að rekstur Enron-rannsóknar-
hópsins alls kostar ekki svona mik-
ið.“
Ákæran gegn Skilling er í 35 lið-
um, og hljóðar meðal annars upp á
samsæri um fjársvik, verðbréfa-
svindl, lygar við skattrannsóknar-
menn og innherjaviðskipti. En auk
þess kann hann að verða sóttur til
saka í um það bil eitt hundrað einka-
málum og þá hefur bandaríska Verð-
bréfa- og verslunarráðið höfðað mál
á hendur honum og bandaríska þing-
ið er þar að auki að rannsaka fram-
ferði hans.
„Svimandi upphæð“
„Milljónir er skiljanlegt. En 23
milljónir eru svimandi upphæð,“
sagði Gillian Hadfield, prófessor í
lögum við Háskólann í Suður-Kali-
forníu, og sérfræðingur í lögfræði-
kostnaði. Hún tjáði Houston Chron-
icle að þessi háa upphæð sýndi, að
Skilling byggist við langri og
strangri baráttu. Og dómskerfið
finni leiðir til að nota hvern einasta
dollara sem málsaðili sé tilbúinn til
að reiða fram.
Sumir verjendur telja milljónirnar
23 ekki óeðlilega upphæð í ljósi allra
þeirra dómsmála sem Skilling sé
flæktur í, hversu langan tíma það
muni taka að ljúka öllum þessum
málum, og hversu víðtækar ákær-
urnar gegn honum eru.
„Við fyrstu sýn virðist þetta mikið.
En í ljósi þess hvað ákærurnar á
hendur Skilling eru margar þarf
þetta ekki að vera svo óskaplegt,“
segir Kent Schaffer, lögmaður í
Houston, við blaðið. „Maður getur
rétt ímyndað sér þau ógrynni af
skjölum sem þetta krefst. Einhver
verður að lesa þau öll, og það gerir
enginn sér til skemmtunar.“
Margföld laun „draumaliðsins“
The Houston Chronicle segir lög-
fræðinga ekki reka minni til að nokk-
urt dómsmál hafi verið jafn um-
fangsmikið og málið gegn Skilling
muni verða. Verjendur Timothys
McVeighs, sem dæmdur var til
dauða fyrir að verða fjölda manns að
bana í sprengjutilræði í Oklahóma,
munu hafa haft upp um 14 milljónir
dollara, eða sem svarar tæplega
milljarði króna, en varnarkostnaður
McVeighs var greiddur af hinu op-
inbera. „Draumaliðið“ sem varði
1,6 milljarðar króna
í varnarkostnað
Bandaríska lögspekinga greinir á um hvort varnarkostnaður Jeffreys
Skillings, fyrrverandi yfirframkvæmdastjóra Enron-stórfyrirtækisins, sé
óhóflegur, og benda sumir á, að málin á hendur honum séu fjölmörg, og ein-
hver þau flóknustu og umfangsmestu sem um getur í Bandaríkjunum.