Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 59
hvað hann var alltaf ljúfur og góður við okkur. Þær eru annars svo margar minn- ingarnar okkar frá Syðri-Á. Þangað höfum við komið á hverju einasta sumri frá fæðingu. Varið lengri og skemmri tíma á ættaróðalinu í sam- býli við Nonna og Öbbu. Þessum ferðum hefur fjölgað með tímanum og nú er einnig farið norður um páska, á haustin og jafnvel yfir ára- mót. Það er eitthvað svo ótrúlega sterkt sem tengir okkur við Kleif- arnar. Nonni á stóran hlut í því. Og við höldum áfram að venja komur okkar á Syðri-Á því þar verður Nonni frændi okkar alltaf nálægur. Senn mun bjalla kveldsins kalla, kyssir fjallablærinn rótt. Degi hallar, daggir falla, dreymir alla – góða nótt. (Jón Árnason.) Við biðjum góðan Guð að styrkja elsku Öbbu okkar á þessum erfiðu tímamótum. Hugur okkar er hjá henni. Árni Sigurður, Signý og Helgi Þór. Ég var aðeins nokkurra ára gam- all þegar ég kynntist þeim Jóni og Öbbu á Syðri-Á. Það leið ekki á löngu þangað til að ég var orðinn eins kon- ar heimalningur þar á bæ, enda varla hægt að hugsa sér betra fólk og betri stað fyrir strákpjakk sem var að vaxa úr grasi. Hjónin á Syðri-Á vildu allt fyrir mig gera og dekruðu við mig eins og um prins væri að ræða og aldrei kom það til að mér leiddist. Ef þau höfðu minnsta grun um að mér leiddist þá var fundið upp á einhverju sem gladdi strákinn. Jón fór ófáar sleða- ferðirnar með mig, það var kallað að fá sér „salibunu“. Kleifarnar og lífið á Syðri-Á bauð upp á margt skemmtilegt enda í nógu að snúast, vitja um silunganet, hirða um búfén- að, leika við hundana, brasa í vél- unum, vélsleðaferðirnar og ekki síst byssurnar en Jón átti margar byssur sem ég gat horft á aðdáunaraugum langtímum saman. Allt þetta og hið fallega umhverfi gerði það að verk- um að Kleifarnar voru í raun paradís á jörðu. Vélsleða- og byssuáhuga minn á ég Jóni að þakka. En árin líða og eftir að ég fluttist 15 ára gamall til Akureyrar fækkaði ferðunum á Kleifarnar en þó héldum við sambandi og í nokkur skipti kom ég með börnin mín á Kleifarnar og ósjaldan hef ég sagt þeim frá Jóni og Öbbu og því sem ég upplifði á Syðri-Á. Það var áfall þegar ég heyrði að Jón ætti í baráttu við erfiðan sjúk- dóm. Einhvern veginn hélt ég sjálf- sagt að það breyttist ekkert á Kleif- unum og að ég gæti alltaf komið þangað og notið hlýjunnar þar. Nú þegar komið er að kveðjustund vil ég þakka Jóni fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman og ég bý enn að. Öbbu og aðstandendum votta ég samúð mína. Kveðja, Sigurður Bjarnason. Þú hvarfst sem draumsjón fyrir dagsins brá, dimmir skuggar fylltu huga minn. Þessar línur úr ljóði eftir Nonna frænda eiga vel við og lýsa því hvern- ig okkur líður. Það er mjög erfitt að ætla að skrifa minningargrein um Nonna frænda, þar sem dauða hans bar fremur brátt að og við bjugg- umst við að hann yrði með okkur mun lengur þrátt fyrir veikindi hans. Það var alltaf gott og gaman að koma á Syðri-Á til Öbbu og Nonna, þó svo að heimsóknirnar hafi ekki verið jafn tíðar nú og þegar við vor- um yngri. Þá fórum við nánast á hverjum degi út á Kleifar og vorum þar langt fram á kvöld. Hlustuðum við á Nonna spila á píanóið og nikk- una á meðan Abba spilaði við okkur. Það skipti ekki máli hvenær við kom- um, það var alltaf nægur tími til að leika við okkur og snúast í kringum okkur. Það var alveg sama hvort það var vetur eða sumar, það var alltaf nóg við að vera á Kleifunum. Sér- staklega var gaman á veturna þegar Nonni fór með okkur á vélsleðann. Margar minningar koma upp í hugann frá þessum tíma. Til dæmis þegar Jóna var á sleðanum með Nonna. Sleðinn hallaði örlítið og hún hélt að þau myndu velta. Helgi sagði að það mætti ekki segja mömmu og pabba frá því, af því að þá fengi hún aldrei að fara aftur á sleðann með Nonna. Auðvitað var hann bara að hræða en aldrei var sagt frá þessu því það var svo gaman að fara eina bunu upp á Hlass. Helgi á Nonna að þakka að kunna að keyra snjósleða þar sem það var hann sem leyfði honum að keyra fyrst, ekki nema átta ára gömlum. Það voru farnir ófáir hringirnir á túninu við Syðri-Á líkt og enn þann dag í dag. Þolinmæði Nonna í okkar garð var hreint með ólíkindum, þar sem öll sú vitleysa sem okkur datt í hug féll æv- inlega í góðan jarðveg. Eitt sinn kom Helgi t.d. með fimmtán gæsarunga og ætlaði að verða gæsabóndi. Þegar ekki voru nema tveir eftir í lok fyrsta dags hjá gæsabóndanum, tóku þau hjón við búskapnum og ólu þær upp. Helga datt líka í hug að gerast skot- veiðimaður og eyddi Nonni löngum tíma í að kenna honum hvernig bera ætti sig að við veiðarnar og smíða alls kyns vopn sem virkuðu misvel. Það var sama hvenær komið var í Syðri-Á, alltaf var verið að spila og syngja. Ætli það sé ekki óhætt að þakka Nonna fyrir það hvað við höf- um gaman af tónlist og að við skulum geta haldið lagi. Það eru ótalmargar góðar minningar um Nonna frænda sem við geymum með okkur. Viljum við þakka honum allar stundirnar og allt það sem hann var okkur. Við eig- um eftir að sakna hans mjög mikið og það verður skrítið að hafa hann ekki hjá okkur, þar sem hann var okkur sem afi. Þá viljum við líka þakka Öbbu allt og vottum henni okkar innilegustu samúð. Jóna Björg og Helgi Reynir. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 59 Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta Við þökkum af alhug fyrir hlýju og vinsemd við andlát eiginmanns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, EGGERTS SIGURMUNDSSONAR skipstjóra, Sílatjörn 4, Selfossi. Sérstakar þakkir viljum við færa Guðrúnu Gunnarsdóttur, forstöðukonu Dagvistar aldraðra, og starfsfólki Ljós- heima, Selfossi, fyrir góða umönnun. Unnur Benediktsdóttir, synir og fjölskyldur þeirra. Hlýjar þakkir og kveðjur til allra þeirra sem heiðruðu minningu og önnuðust elskaða eigin- konu, móður og systur okkar, GERÐI EBBADÓTTUR leikskólakennara og safnvörð, Blönduhlíð 20, Reykjavík. Benedikt Óskar Sveinsson, Sveinn Rúnar Benediktsson, Bergur Ebbi Benediktsson, Lind Ebbadóttir, Sigurveig Ebbadóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURPÁLS AÐALGEIRSSONAR, Baðsvöllum 19, Grindavík. Sérstakar þakkir til Vigdísar Ámundardóttur. Ólafur Sigurpálsson, Rúnar Geir Sigurpálsson, Ingunn Sigurpálsdóttir, Fernando Sabido, Erla Sigurpálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, VIGDÍSAR JÓNSDÓTTUR, elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi, áður Austurgötu 7, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Jón Vignir Karlsson, Hjördís Edda Ingvarsdóttir, Auðunn Karlsson, Þorbjörg Símonardóttir, Níels Karlsson, Jóhanna Pétursdóttir, Sigurður Karlsson, Jóhanna Sigríður Ingadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður míns, tengdaföður, afa og lang- afa, STEFÁNS B. ÓLAFSSONAR, Ólafsvegi 2, Ólafsfirði. Sóley Stefánsdóttir, Guðmundur Oddsson, Stefanía Guðmundsdóttir, Þorsteinn Geirsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Sunna Guðmundsdóttir, Ívar Sigurjónsson og langafabörn. Alúðarþakkir færum við öllum þeim, sem auðsýndu hlýhug og samúð við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu minnar, móður minnar og ömmu okkar, SVÖVU JAKOBSDÓTTUR, Einarsnesi 32, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Land- spítala háskólasjúkrahúss, Fossvogi. Jón Hnefill Aðalsteinsson, Jakob S. Jónsson, Katja Öz, Jón Hnefill Jakobsson, Svava Jakobsdóttir, Anton Freyr Jakobsson, Ásta María Jakobsdóttir. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HOLGER P. GÍSLASON rafvirkjameistari, lést þriðjudaginn 16. mars. Kveðjuathöfn fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 26. mars kl. 13:30. Jarðsett verður í Vík í Mýrdal. Gísli Holgersson, Sæmundur Holgersson, Ida Christiansen, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Holger Gísli Gíslason, Pétur Snær Sæmundsson, Sigríður Dóra Gísladóttir, Guðmundur Ágúst Sæmundsson, Erik Hermann Gíslason, Holger Páll Sæmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.