Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 63
EINNIG var haldin keppni fyrir þá sem keppa í dansi með grunn- aðferð. Alls voru skráð 114 pör til keppni auk þess sem 62 pör úr hópi byrjenda sýndu dans. Keppnin hófst á keppni í yngstu flokkunum auk þess sem sýningarhóparnir döns- uðu. Síðan fór fram innmars með fánahyllingu. Í setningarathöfninni var höfð stutt minningarathöfn um Jón Stefni Hilmarsson sem var margfaldur Íslandsmeistari seniora í samkvæmisdansi en hann lést 2. mars. Það voru fjórir aldurshópar sem kepptu til Íslandsmeistaratitils í 10 dönsum en elsti hópurinn, hópur seniora, keppti í hvorri greininni fyrir sig. Yngsti hópurinn sem keppti var hópurinn unglingar I (12–13 ára). Þau kepptu í 8 dönsum en döns- unum fjölgar í 10 í næsta aldurs- flokki fyrir ofan. Það var einungis eitt par sem keppti í þessum flokki. Það voru þau Magnús Arnar Kjart- ansson og Ragna Björk Bernburg frá Dansíþróttafélagi Kópavogs. Þau eru bæði mjög efnilegir dans- arar og dönsuðu vel. Í standard- dönsunum eru þau með góða yf- irferð og mjög mjúk. Mér fannst þau stundum vera með haldið held- ur hátt og það mest áberandi í vín- arvalsi. Það er alltaf miður að hafa ekki fleiri en eitt par í keppni. Þau dönsuðu að vísu með eldri hópi en þau vantaði samkeppnina. Vonandi fjölgar í þessum hópi áður en langt um líður. Næsti hópur var hópur unglinga II (14–15 ára). Þar voru skráð til keppni átta pör. Í fyrsta sæti voru þau Eyþór Smári Þórbjörnsson og Hanna Rún Óladóttir frá Dans- íþróttafélaginu Hvönn. Þau byrjuðu að dansa saman á síðastliðnu ári og virðast ætla að gera góða hluti. Mér finnst þau reyndar vera sterkari í standard-dönsunum. Þau hafa yfir- vegaða áferð og ná að vinna vel saman. Í suður-amerísku dönsunum fannst mér þau vera búin að bæta sig frá því að ég sá þau síðast. Ey- þór þarf að klára betur hendur og línur til þess að vera sterkari á gólf- inu. Í öðru sæti voru þau Aðalsteinn Kjartansson og Edda Guðrún Gísla- dóttir frá Dansdeild ÍR. Öfugt við sigurvegarana þá eru suður-amer- ísku dansarnir þeirra sterkari grein. Mér finnst vanta meiri samvinnu hjá þeim í standard-dönsunum og það myndast stundum of mikið bil á milli þeirra. Í suður-amerísku döns- unum hefur Aðalsteinn sér til tekna að hann er með þeim stærstu á gólf- inu og þroskaðastur í líkamsburði. Þau mættu ákveðin til leiks og sýndu meiri stjórn á dansinum en þau hafa gert áður. Í þriðja sæti höfnuðu Haukur Freyr Hafsteins- son og Denise Margrét Yaghi frá Dansíþróttafélaginu Hvönn. Þau eru bæði mjög góðir dansarar. Þau hafa bætt dansstöðuna í standard- dönsunum frá því á síðasta móti. Þau eru bæði lífleg á gólfinu og er mikið „show“ í Hauki. Nú var veittur í fyrsta sinn bikar í flokki Unglinga II sem núverandi heimsmeistarar atvinnumanna í 10 dönsum, þau Adam Reeve og Karen Björk Björgvinsdóttir, gáfu. Þetta er farandbikar sem keppt verður um áfram. Hópur ungmenna (16–18 ára) keppti næst. Þar mættu til leiks fjögur pör. Íslandsmeistarar í þess- um flokki voru þau Jónatan Arnar Örlygsson og Hólmfríður Björns- dóttir frá Dansíþróttafélaginu Gull- toppi. Mér fannst þau mjög örugg í þessari keppni og dansa létt. Mér finnst stundum að þau mættu gefa sér meiri tíma til þess að klára línur og hreyfingar betur og þá sérstak- lega í suður-amerísku dönsunum. Í öðru sæti voru þau Þorleifur Ein- arsson og Ásta Bjarnadóttir frá Dansdeild ÍR. Mér fannst þau dansa suður-amerísku dansana mjög vel eins og á síðasta móti en það var eins og það vantaði smá neista hjá þeim. Standard- dansana dönsuðu þau ekki eins vel og þá og fannst mér Þorleif- ur fara svolítið í gamla farið með danshaldið. Í þriðja sæti voru þau Björn Einar Björnsson og Sóley Emilsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Hvönn. Standard-dansarnir eru þeirra sterkari grein. Björn Einar þarf að klára vinduna í gegnum líkamann betur með höfðinu og passa að opna stöðuna ekki of mikið í „promen- ade“-stöðu. Í suður-amerísku döns- unum er Björn Einar mjög herra- legur og sýnir mjög hreinar línur og hreyfingar en þar vantar þau aðeins uppá til að ná hinum pörunum sem voru fyrir ofan þau. Næstelsti hópurinn er flokkur fullorðinna (19–35 ára). Í þeim flokki geta ungmenni einnig keppt. Það fór svo að þau tóku öll þátt í þeirri keppni og við bætt- ist eitt par, þau Ísak Halldórsson Nguyen og Helga Dögg Helgadóttir. Þau fóru með sigur af hólmi. Þau eru elst í hópnum og með mikla reynslu að baki. Þau sýndu mestan þroska í hreyfingum og vinna vel saman. Þau hafa að undanförnu dansað ýmist ein á keppnum hér heima eða með eitt par á móti sér. Því er ég viss um að það hefur verið skemmtilegt fyrir þau að fá yngri pörin til keppni á móti þeim og það verið þeim hvatning á gólfinu. Röðun hinna paranna var síðan eins og í þeirra flokki. Elsti flokkurinn kallast seniorar (35 ára og eldri). Þar var keppt í hvorri greininni fyrir sig. Í standard-dönsum keppti eitt par, þau Jón Eiríksson og Ragnhildur Sandholt frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Þau dönsuðu ein á gólfinu og var þetta því meira danssýning hjá þeim en keppni. Þau dönsuðu ljómandi vel og eru greinilega í góðu formi. Í suður-amerískum dönsum bættust við tvö pör. Það voru þau Haukur J. Eiríksson og Lizy Steinsdóttir frá Dansíþrótta- félagi Hafnarfjarðar og Eggert Claessen og Sigrún Kjartansdóttir frá Dansdeild ÍR. Sigurvegarar voru þau Haukur og Lizy. Mér fannst þau dansa betur en í síðustu keppni og voru hreyfingar Hauks mýkri og léttari en áður. Í öðru sæti höfnuðu Eggert og Sigrún. Þau dönsuðu af mikilli innlifun og sýndu meira öryggi en þau hafa gert áður. Það voru síðan Jón og Ragnhildur sem enduðu í þriðja sæti í þessum hópi. Þau skiluðu sínum dansi vel en þau leggja meiri áherslu á standard- dansana. Mótið, sem fór fram um síðast- liðna helgi, fór vel og hnökralaust fram. Dómarar voru fimm og það voru þau Wendy Herbert Riber frá Noregi, Charles Flood frá Englandi, Peter Grimm frá Þýskalandi, Gord- an Darskovic frá Svíþjóð og Richard Wiennecke frá Danmörku. Vel heppnað dansmót í Höllinni DANS Laugardalshöll ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í 10 DÖNSUM 2004 Íslandsmótið í 10 dönsum með frjálsri að- ferð fór fram sunndaginn 14. mars sl. Í samkvæmisdönsum er keppt í tveimur greinum, þ.e. suður-amerískum dönsum og standard-dönsum, og eru fimm dansar í hvorri grein. Í keppni í 10 dönsum er lagður saman árangur í þeim báðum. Kara Arngrímsdóttir Ísak og Helga Dögg, Íslandsmeistarar fullorðinna. Jónatan Arnar og Hólmfríður, Íslandsmeistarar ungmenna.Magnús og Ragna, Íslandsmeistarar unglinga I. Eyþór og Hanna Rún, Íslandsmeistarar unglinga II. Íslandsmeistarar seniora í stand- arddönsum. M or gu nb la ði ð/ Jó n Sv av ar ss on MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.