Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 26
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Endurvakning | Tónlistarfélags Reykja-
nesbæjar hefur verið mikil lyftistöng fyrir
tónlistarlífið í bæjarfélaginu. Ekki það að
það hafi ekki verið blómlegt fyrir, en miðað
við þá góðu aðsókn sem tónlistarviðburðir á
vegum félagsins hafa fengið, eru íbúar
svæðisins greinilega mjög móttækilegir
fyrir nýjum straumum. Fyrst var það
Kammersveit Reykjavíkur, þá Tríó Reyka-
víkur og síðast gafst tónlistarunnendum
færi á súpu fyrir sálina í hádeginu með há-
degistónleikum frá Íslensku óperunni, sem
hafa slegið í gegn þar, og nú hér. Davíð
Ólafsson heillaði gesti með negrasálmum
og auk þess að hlusta á djúpu tóna Davíðs
fannst blaðamanni ekki síður skemmtilegt
að heyra í því unga og upprennandi tónlist-
arfólki sem lék undir á hljóðfæri.
Þrátt fyrir að tónleikaframboðið hafi ver-
ið nægt er fyrsta eiginlega verkefni félags-
ins nú í vinnslu, þ.e.a.s. tónleikar sem félag-
ið sjálft skipuleggur frá upphafi: Bassarnir
þrír! Áðurnefndur Davíð, Bjarni Thor
Kristinsson og Jóhann Smári Sævarsson,
allir Suðurnesjamenn, ætla að syngja sam-
an í fyrsta sinn. Tónleikarnir eru fyrirhug-
aðir um miðjan apríl og munu eflaust fá
mikla athygli.
Hið nýja | Listasafn Reykjanesbæjar hef-
ur ekki síst skapað möguleika fyrir aukið
tónleikahald. Þeir segja mér það kunnugir
að gott sé að syngja þar. Svo er á framtíð-
aráætlun bæjarfélagsins undirbúningur að
tónlistar- og ráðstefnumiðstöð, þar sem
m.a. er gert ráð fyrir tónleikasal og þá
verða möguleikarnir enn fleiri. Þá þarf Sin-
fóníuhljómsveit Íslands ekki að spila í
Íþróttamiðstöðinni hér í bæ eins og forðum
þegar vinsælustu verk Trúbrots voru flutt í
blandi við klassískan undirleik.
Tilkoma listasafnsins hefur ekki síður
verið mikil lyftistöng fyrir listalífið í heild.
Auk allra tónleikanna eru haldnar þar
myndlistarsýningar og sögu- og bók-
menntakynningar í samstarfi við bóka- og
byggðasafn bæjarins.
Gryfjan er nýjasta viðbótin við listasali
Reykjanesbæjar. Eftir að sýningu Árna
Johnsens lýkur verður endurbótum við
húsnæðið haldið áfram en á 25 ára afmæli
byggðasafnsins í sumar verður sett upp
byggðasafnssýning, sem mun standa yfir í
eitt ár.
Úr
bæjarlífinu
REYKJANESBÆR
EFTIR SVANHILDI EIRÍKSDÓTTUR
Ákveðið hefur veriðað stofna samtökHólmara á höf-
uðborgarsvæðinu. Til-
gangurinn er að efla
tengslin við gamla
heimabæinn, Stykkishólm.
Á undanförnum mán-
uðum hefur verið rætt um
að gagnlegt væri og gam-
an, ef brottfluttir Hólm-
arar ættu sér formlegan
samstarfsvettvang og fé-
lagsskap. Slíkt félag hefði
að markmiði að tengja
saman Hólmara um allt
land og gefa þeim tæki-
færi til þess að vera virkir
í ýmsum verkefnum sem
eru til heilla og eflingar
þeirra gamla heimabæ.
Nú hefur verið ákveðið
að stofna samtök Hólm-
ara. Stofnfundurinn verð-
ur haldinn sunnudaginn
21, mars kl. 16.30 í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14 í
Reykjavík
Á fundinum verða kynnt
drög að samþykktum, val-
ið nafn og kosið í stjórn.
Samtök Hólmara
Húsavík | Hin árlega
upplestrarhátíð var
haldin á dögunum í
Safnahúsinu á Húsavík.
Þar öttu kappi tíu nem-
ar úr sjöunda bekk
grunnskólanna í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Keppendur lásu upp í
þrem umferðum og þeg-
ar upp var staðið var
sigurvegari Halldóra
Kristín Bjarnadóttir,
Hafralækjarskóla, sem
er fyrir miðju á mynd-
inni, annar var Hrólfur
Hjörleifsson, Grunn-
skóla Skútustaðahrepps,
og þriðja Ásrún Ás-
mundsdóttir, Borg-
arhólsskóla.
Fjölmenni var á Upp-
lestrarhátíðinni og til
skemmtunar á milli um-
ferða voru tónlistar-
atriði flutt af nemendum
úr tónlistarskólunum á
Húsavík og Hafralæk.
Morgunblaðið/Hafþór
Sigruðu í upplestri
Íkvöld verður hagyrð-ingakvöld í Íþrótta-höllinni á Húsavík,
þar sem aflað er fjár til
kaupa á Hjartaþolpróf-
unartæki fyrir Heilbrigð-
isstofnun Þingeyinga.
Kveðandi, félag þing-
eyskra hagyrðinga, kem-
ur fram, og einnig Einar
Georg Einarsson, Friðrik
Steingrímsson, Hákon
Aðalsteinsson og Hjálmar
Freysteinsson.
Undir stjórn Ólafs G.
Einarssonar troða upp
núverandi þingmenn og
ráðherrar, Halldór Blön-
dal, Hjálmar Jónsson,
Jón Kristjánsson, Ólafur
G. Einarsson og Stein-
grímur J. Sigfússon.
Eitt sinn voru þingmenn-
irnir Ólafur G. Einarsson
og Lárus Jónsson að
veiðum í Sandá í Þist-
ilfirði, en illa gekk. Þá
bar að Halldór Blöndal
og skrifaði hann limru í
gestabókina þegar hann
fór:
Sandá er gruggug af surgi
og sargi frá Ólafi durgi
og líkast til var
hann Lárus minn þar
en laxarnir, – þeir voru hvurgi.
Veisla hagyrðinga
Keflavík | Ævintýri voru við-
fangsefni nemenda sem fram
komu á árshátíð Holtaskóla.
Árshátíðin var haldin í Íþrótta-
húsi Keflavíkur við Sunnubraut
og var fjölmenni.
Nemendur í bekkjum með
slétta tölu, það er að segja í 2.,
4., 6., 8. og 10. bekk sáu um
árshátíðina. Dagskráin var æv-
intýraleg enda höfðu nemend-
urnir valið sér ævintýri sem
þema hátíðarinnar. Mikið var
leikið. Nemendur 4. bekkjar
voru í skemmtilegum búningum
þegar þeir léku Litlu gulu hæn-
una, eins og sést á myndinni.
Að árshátíð lokinni var opið
kaffihús í Holtaskóla. Árshátíð-
argestir komu þar við að
skemmtiatriðum loknum og
gæddu sér á veitingum sem
nemendurnir höfðu með sér í
skólann af þessu tilefni.
Ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Litla gula hænan
Ævintýri
Akranes | Fritz H. Berndsen hefur verið
fastráðinn yfirlæknir á handlækningadeild
Sjúkrahúss Akraness, SHA. Tekur hann
við starfi Magnúsar E.
Kolbeinssonar en stað-
an var auglýst laus til
umsóknar í lok desem-
ber s.l. Frá þessu er
greint á vefsíðu SHA.
Fritz er fæddur í
Reykjavík 1965 og lauk
cand. med. námi frá Há-
skóla Íslands 1991.
Hann lauk sérfræði-
námi í almennum
skurðlækningum frá Svíþjóð 1997 og starf-
aði nokkur ár við Háskólasjúkrahúsið í
Malmö þar sem hann sérhæfði sig í kvið-
sjáraðgerðum. Hann lauk doktorsnámi
sumarið 2003 og fjallaði doktorsverkefnið
um nárakviðslitsaðgerðir með aðaláherslu
á kviðsjáraðgerðir.
Kona hans er Jóhanna Dagbjört Magn-
úsdóttir garðyrkjufræðingur og nemi og
eiga þau þrjú börn. Fritz var kandidat við
SHA á árunum 1991 – 1992 og hefur starf-
að sem settur yfirlæknir á SHA frá haust-
inu 2002.
Fritz nýr
yfirlæknir
á SHA
Fritz H. Berndsen
AÐGERÐIR til sparnaðar sem nú er unnið
að á Veðurstofu Íslands hafa ekki áhrif á
fyrirætlanir um að setja á fót miðstöð snjó-
flóðarannsókna á Ísafirði.
Þetta er haft eftir Magn-
úsi Jónssyni veðurstofu-
stjóra á fréttavef BB á
Ísafirði.
„Þessi starfsemi er með
sérstaka fjárveitingu á
fjárlögum og því verður
engin breyting þar á. Við stefnum að því að
starfsemi stöðvarinnar hefjist síðla sum-
ars,“ sagði Magnús við BB. Starfsmaður-
inn sem mun verða á stöðinni á Ísafirði er
við nám og lýkur því í vor.
Stofnun miðstöðvarinnar hefur lengi
verið baráttumál bæjaryfirvalda í Ísafjarð-
arbæ.
Óbreytt áform
um snjóflóða-
miðstöð
♦♦♦
TILKYNNING FRÁ FÉLAGI FASTEIGNASALA
Námskeið í fasteignaviðskiptum verður haldið á vegum
Félags fasteignasala nú í mars.
Námskeiðið er ætlað starfsfólki á fasteignasölum, bankastarfs-
fólki, starfsfólki lífeyrissjóða og annarra lánastofnana sem á einn
eða annan hátt koma að fasteignaviðskiptum, t.d. í formi lán-
veitinga og greiðslumatsgerða.
Öllum öðrum áhugasömum er að sjálfsögðu einnig velkomið að
sækja þetta námskeið.
Námskeiðið verður haldið
dagana 22.-24. mars næstkomandi frá kl. 18:15-21:30.
Þriðjudaginn 22. mars verður fjallað um fjöleignarhúsalögin og
teknir fyrir þeir þættir, sem kunna þarf skil á við sölu íbúða í
fjöleignarhúsum. Kennari er Guðfinna Jóhanna Guðmunds-
dóttir hdl.
Miðvikudag og fimmtudag, 24. og 25. mars, verður farið í
skjalavinnslu í fasteignakaupum og mikilvægi réttra vinnubragða
við skjalafrágang. Kennari er Björn Þorri Viktorsson, löggiltur
fasteignasali og formaður Félags fasteignasala.
Kennt verður í húsakynnum Lögbergs í Háskóla Íslands,
stofu nr. 101.
Verð námskeiðsins er 28.000 kr.
Umsjónarmaður námskeiðsins er Ólafur B. Blöndal.
Skráning á námskeiðið er á namskeid@torg.is .
Skráningarfrestur er til 19. mars og um að gera að skrá sig
sem fyrst. Í fyrra komust færri að en vildu.
pebl@mbl.is