Morgunblaðið - 20.03.2004, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 11
Námsstefna: Gæði og umönnun á
hjúkrunarheimilum
Notkun gæðavísa og matslykla RAI mælitækisins í starfi
Hótel Loftleiðum 24. marz 2004
Dagskrá
12:45-13:15 Skráning
13:15-13:25 Setning: Hrafn Pálsson, deildarstjóri í heilbrigðisráðu-
neytinu.
13:25-14:15 Skilgreiningar á gæðavísum, matslyklum og kvörðum í
RAI mælitækinu:
Hlíf Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjúkrunar.
14:15-14:45 Notkun matslykila: Pálmi V. Jónsson, öldrunarlæknir.
14:45-15:15 Kaffi
15:15-16:00 Gæðavísar og matslyklar notaðir til að þróa hjúkrun og
bæta líðan. Raunveruleg dæmi tekin um byltur, verki og
lyfjanotkun:
Anna Birna Jensdóttir, forstjóri Sóltúns.
16:00-16:30 Helstu spurningar um RAI mælitækið:
Sigríður Egilsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Landlæknis-
embættinu.
16:30-17:00 Umræður
Vinsamlega skráið þátttöku hjá heilbrigðisráðuneytinu
í síma 545 8700
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
DAVÍÐ Bjarnason, stunda-
kennari við Háskóla Íslands og
doktorsnemi í mannfræði,
fjallaði um farsímatæknina og
þá miklu útbreiðslu sem far-
síminn hefur náð á síðustu ár-
um á málstofu um Samskipti í
netheimum, á ráðstefnu um
tækni í samfélaginu í HÍ í gær.
Sagði hann að farsímatækn-
in hefði fundið sér leið inn í
samfélagið eftir því sem nútím-
inn hefði mótast af meiri hraða,
kröfum um hagkvæmni og að
fólk nýtti tíma sinn betur. Eitt
þekktasta dæmið um breyttan
samskiptamáta fyrir tilstuðlan
farsíma væru sms-skilaboð.
„Þessi tækni var í raun sett inn
í farsímana án þess að fram-
leiðendur hefðu sérstaka sýn á
að þetta yrði samskiptamáti.
Þetta hefur síðan þróast yfir í
að verða aðalsamskiptamáti
margra hópa, einkum ung-
linga.“
Davíð benti á að farsíminn
hefði fyrst verið kynntur til
sögunnar sem tæki sem kæmi
að góðu gagni í viðskiptalífinu.
Í dag væri notendasviðið mikl-
um mun víðara eins og dæmin
sönnuðu.
Davíð sagði mikilvægt að
notendur farsíma á ólíkum
sviðum tækju þátt í að móta
farsímatæknina þegar fram
liðu stundir. „Við megum ekki
festa okkur í tæknilegri nauð-
hyggju um að síminn muni
gera hitt og þetta heldur hugsa
um okkur sem virka gerendur
þar sem við höfum áhrif á mót-
un tækninnar.“
Farsímatækni
framtíðarinnar
„Megum
ekki fest-
ast í tækni-
legri nauð-
hyggju“
SIGURÐUR Örn Hektorsson geð-
læknir mun kynna nýjungar á fyr-
irkomulagi þjónustu við geðsjúka
utan sjúkrahúsa, á fræðslufundi
Geðhjálpar sem haldinn verður í
dag.
Sigurður Örn starfaði í eitt ár
sem geðlæknir í bænum Modesto í
Kaliforníu og kynntist þar fyr-
irkomulagi sem þróað hefur verið
á svæðisbundnum þjónustustöðv-
um fyrir geðsjúka. Að sögn hans
er áhersla þar lögð á að sérstakir
þjónustu- eða stuðningsfulltrúar
haldi utan um alla þjónustuna sem
sjúklingurinn fær. Þarna hefur
hver sjúklingur sinn stuðnings-
fulltrúa sem aðstoðar sjúklinginn
með margvíslegum hætti og veitir
honum m.a. liðsinni við að fá þjón-
ustu sem hann þarf á að halda í
samskiptum við félagsþjónustu,
húsnæðiskerfið, menntakerfið og
heilsugæsluna, að sögn hans.
Hefur gefið góða raun
Sigurður Örn segir þetta fyr-
irkomulag hafa gefið góða raun.
„Í þeim þrengingum sem heil-
brigðisþjónusta í Bandaríkjunum
hefur verið að ganga í gegnum,
og þá sérstaklega geðheilbrigð-
isþjónustan, þar sem sífellt minni
fjármunir eru fyrir hendi til þess
að veita þjónustu, tel ég að þetta
fyrirkomulag sé mjög hjálplegt,“
segir hann.
Hann segir einnig athyglisvert
að oft á tíðum búi þjónustufull-
trúarnir að svipaðri reynslu og
skjólstæðingarnir sjálfir. Þeir
komi úr ýmsum áttum, séu ekki
nauðsynlega fagmenntaðir heil-
brigðisstarfsmenn en eigi það
sameiginlegt að hafa reynslu af
mannlífinu.
Fræðslufundurinn verður hald-
inn að Túngötu 7 og hefst kl. 14.
Fjallað um ný meðferðarúrræði vegna geðsjúkra
á fræðslufundi Geðhjálpar
Stuðningsfulltrúar aðstoða
sjúklinga utan sjúkrahúsa
UPPLÝSINGATÆKNI á heilbrigis-
sviði, heilsufar í greipum tækni og
samskipti í netheimum voru meðal
umfjöllunarefna í málstofum á þver-
faglegri ráðstefnu; Tæknin í sam-
félaginu, samfélagið í tækninni, sem
lauk í Háskóla Íslands í gær.
Gísli Pálsson, prófessor í mann-
fræði við HÍ, fjallaði um gagna-
grunna af ýmsum toga og minnti
áheyrendur á að þeir væru langt í frá
nýir af nálinni hér á landi.
Árið 1974 hefði gagnagrunnur
erfðafræðinefndar Háskóla Íslands
verið settur á laggirnar en megin-
hlutverk hans var að safna á einn stað
ýmsum erfðafræðilegum upplýsing-
um um Íslendinga. Gert var ráð fyrir
að nýta mætti upplýsingarnar til ým-
issa erfðafræðilegra, ættfræðilegra,
félagsfræðilegra og læknisfræðilegra
rannsókna. „Þetta var ekkert annað
en samræmdur gagnagrunnur á heil-
brigðissviði,“ sagði Gísli.
Nýr samræmdur gagnagrunnur
„sofnaður, í dvala eða dáinn“?
Sem dæmi um aðra gagnagrunna
nefndi Gísli Dungalsafn frá 1917 sem
hefur að geyma lífssýni úr sjúkingum
á íslenskum sjúkrahúsum, Blóðbank-
ann, Krabbameinsskrána, Hjarta-
vernd auk gagnagrunns erfðafræði-
nefndar HÍ. Gísli sagði að flestir
virtust gera ráð fyrir í bili að nýr sam-
ræmdur gagnagrunnur á heilbrigðis-
sviði væri „sofnaður, í dvala eða dá-
inn“ en afar merkileg hliðarverkun
væri fyrir hendi eftir sem áður og það
væri Íslendingabók á Netinu.
Fram kom í máli Gísla að þegar Ís-
lendingabók fór á Netið í janúar í
fyrra hefðu 18 þúsund innskráningar
verið á Íslendingabók á dag en hefði
fækkað síðan og væru nú nokkuð inn-
an við 2.000 á dag.
Notkunin væri meiri á virkum dög-
um en um helgar og mest snemma á
morgnana.
„Það er mjög greinilegt að Íslend-
ingar nota sér þessa þjónustu,“ sagði
Gísli. Fram kom í máli hans að á
bilinu 50–60 þúsund ábendingar hafa
borist forvígismanni Íslendingabók-
ar, Friðriki Skúlasyni, og Íslenskri
erfðagreiningu frá því grunnurinn fór
á Netið, bæði varðandi rangfærslur
og þakkir fyrir það sem vel hefur tek-
ist. Gísli sagði að þessi fjöldi ábend-
inga væri í raun gluggi inn í íslenskt
sifjakerfi og út af fyrir sig spennandi
rannsóknarefni fyrir mannfræðinga.
Um 144.500 manns eru skráðir not-
endur Íslendingabókar.
Stefán Hjörleifsson, starfandi
heimilislæknir í Björgvin í Noregi,
fjallaði um mismunandi skoðanir sér-
fræðinga á sjúkdómsvæðingu og
fjallaði í því sambandi meðal annars
um „klínískar aukaverkanir“.
Læknisfræðilegar
aukaverkanir algengar
Vísaði hann í umfjöllun Ivans Ill-
ich, höfundar bókarinnar Medical
Nemesis: Expropriation of health,
sem út kom árið 1975 en í henni færir
höfundur rök fyrir því að heilsufari
jarðarbúa stafi beinlínis ógn af
tækninni. Rauði þráðurinn í gagnrýni
hans var að vestræn samfélög treystu
um of á tæknina til að leysa alls kyns
vandamál, m.a. á sviði samgangna,
menntunar og lækninga sem um leið
væri sífellt að verða flóknari.
Illich flokkar læknisfræðilegar
aukaverkanir eftir því á hvaða sviðum
aukaverkanirnar birtast, að sögn
Stefáns. Ein flokkunin, „klínískar
aukaverkanir“ væru þannig afleiðing-
ar af læknisverkum sem bitna á þeim
sem gangast undir lækningar, s.s.
eins og eituráhrif vegna lyfjagjafa,
rangar sjúkdómsgreiningar og
gagnslitlar og hættulegar skurðað-
gerðir.
Stefán tók nærtæk dæmi, m.a. af
börnum sem var oftar gefin sýklalyf
við eyrnabólgum og kvefi hér á landi
en annars staðar. Aukaverkanir af
sýklalyfjum væru þekktar og mikil
sýklalyfjanotkun stuðlaði að því að
bakteríur yrðu ónæmar fyrir lyfjun-
um. Þá væru skiptar skoðanir um
gagnsemi hormónameðferðar fyrir
konur um miðjan aldur og rannsóknir
bentu ef til vill til að þær yllu meiri
skaða en hitt. Sagði Stefán að 1,7
milljónir sjúklinga í Bandaríkjunum
yrðu fyrir læknisfræðilegum auka-
verkunum á ári.
Stefán benti á að Illich hefði fullyrt
að þegar tæknileg sýn á manninn yrði
allsráðandi myndum við glata hæfi-
leikanum til að greina skaðlegar af-
leiðingar af þeirri sýn. Áhrif tækninn-
ar væru í raun svo ísmeygileg að
mennirnir myndu glata hæfileikanum
til að verða varir við tjónið sem af
hlýst.
„Erum við háðir sérfræðingum
þegar eitthvað bjátar á í lífinu? Erum
við að glata hæfileikanum til að
greina á milli þess sem hægt er að
bregðast við með tæknilegum leiðum,
og hins vegar annarra vandamála
sem jafnvel ágerast og verða þrálát-
ari sé reynt að leysa þau með tækni-
legum aðgerðum, og ef svo er, hvaða
leiðir eru okkur færar til að gera okk-
ur grein fyrir slíku tjóni og bregðast
við því?“ spurði Stefán og vísaði þar í
skrif Illich.
Flestir mótfallnir
erfðabreyttum matvælum
Agnes Allansdóttir, félagsfræðing-
ur við Háskólann í Siena á Ítalíu,
fjallaði um viðhorfskannanir á af-
stöðu Evrópubúa til ýmissa álita-
mála, svonefndar Eurobarometer-
kannanir, sem Evrópusambandið
hefur staðið fyrir frá árinu 1991. Þeg-
ar spurt er um viðhorf til líftækni
kemur í ljós að flestir eru mótfallnir
erfðabreyttum mat en flestir styðja
erfðafræðirannsóknir í læknisfræði-
legum tilgangi. Þegar spurt var hver
ætti að hafa aðgang að erfðafræði-
upplýsingum nefndu flestir lækna og
lögreglu en flestir voru mótfallnir því
að slíkar upplýsingar lentu í höndum
tryggingafélaga. Athyglisvert var að
stuðningur almennings við líftækni
rokkaði nokkuð eftir því hvenær var
spurt. Framan af síðasta áratug var
stuðningur nokkuð óbreyttur en þeg-
ar umfjöllun um ána Dollý, fyrsta
spendýrið sem var einræktað út frá
fullorðnu dýri, komst í hámæli féll
stuðningurinn en hefur nú aftur náð
sér á strik.
Sagði Agnes að rætt væri um sk.
„Dolly-effect“ í þessu sambandi.
Nokkurs tvískinnungs virtist gæta í
afstöðu Evrópubúa til erfðabreyttra
matvæla annars vegar og plantna
hins vegar en færri virðast hafa á
móti því að plöntur séu erfðabreyttar
en fleiri eru á móti erfðabreyttum
matvælum.
Upplýsingatækni í samfélaginu og heilsufar í greipum tækni rætt á málþingi í HÍ
Gagnagrunnar langt
í frá nýir af nálinni
Morgunblaðið/Ásdís
Fjölmargar málstofur voru haldnar á málþinginu Tæknin í samfélaginu, samfélagið
í tækninni, sem lauk í gær í Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Ásdís
Stefán Hjörleifsson, heim-
ilislæknir í Noregi.