Morgunblaðið - 20.03.2004, Qupperneq 13
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 13
„ÁRIÐ 2003 var viðburðaríkt hjá SÍF eins og
svo oft áður. En um leið var það erfitt þar sem
afkoman varð ekki í samræmi við þær vænt-
ingar sem gerðar voru til rekstursins á árinu.
Niðurstaðan veldur talsverðum vonbrigðum
þar sem afkoman varð langt undir því sem
ásættanlegt getur talist.
Meginástæða þess að afkoma félagsins varð
ekki í samræmi við væntingar er slök afkoma
starfseminnar á Íslandi, í Frakklandi og Kan-
ada,“ sagði Ólafur Ólafsson um starfsemi SÍF á
aðalfundi félagsins í gær.
„Afkoma SÍF hf. á Íslandi olli vonbrigðum.
Það eru einkum tvær meginskýringar á því að
afkoman varð undir væntingum en undanfarin
ár hefur afkoman á Íslandi verið með ágætum.
Í fyrsta lagi vó lækkandi afurðaverð al-
mennt, sem og samdráttur í sölu saltfisks, mest
í frávikum félagsins. Því til viðbótar var geng-
isþróunin óhagstæð fyrir félagið. Söluverð-
mæti afurða lækkaði um tæp 16% milli ára.
Í öðru lagi átti SÍF við tiltekin birgðavanda-
mál í saltfiski að glíma. Þau tókst að leysa fyrir
lok ársins en nokkur hluti vörubrigða félagsins
var seldur með tapi.
Sölustarfsemi SÍF hf. á Íslandi er á margan
hátt mjög ólík þeirri starfsemi sem á sér stað
hjá dótturfélögum SÍF sem eru í fullvinnslu af-
urða, þ.e. í Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi,
Frakklandi og á Spáni. Þótt stunduð séu við-
skipti með sjávarafurðir er virðisaukinn annar,
kaupendur oftast aðrir og oft önnur lögmál
sem gilda í viðskiptunum.
Þess vegna var farið af stað með þá vinnu í
lok sl. árs að greina SÍF í tvær megineiningar,
annars vegar magnsöluviðskipti og hins vegar
virðisaukandi vinnslu. Með þessu er verið að
skýra línur og skerpa áherslur í starfseminni
enn frekar. SÍF hf. á Íslandi mun leggja meg-
ináherslu á sölu sjávarafurða frá Íslandi sem
fara ekki í frekari vinnslu á vegum SÍF en eru
seldar áfram í óbreyttu formi frá framleið-
endum á Íslandi. Hér gildir að hafa mikið og
náið samstarf við útgerðar- og fiskvinnslufyr-
irtæki á Íslandi og dótturfélögin sem munu
annast sölu afurðanna á hinum ólíku mörk-
uðum.
Við gerum okkur vonir um að þessi breytta
áhersla muni skila sér í bættri afkomu sem og
betri þjónustu við viðskipavini félagsins á Ís-
landi.
Rekstur Tross ehf. og Saltkaupa hf,, sem
bæði starfa á Íslandi, gekk með ágætum á síð-
astliðnu ári. Gert er ráð fyrir að þessi félög efl-
ist enn frekar á komandi árum.“
Vonbrigði í Frakklandi
„Afkoma SÍF France olli vonbrigðum enn
eitt árið. Tap varð af rekstrinum og mikil frá-
vik frá þeim áætlunum sem félagið vann eftir.
Mjög miklir fjármunir hafa verið lagðir í
rekstur SIF France á síðustu árum. Þannig
hefur verið fjárfest fyrir um 26 milljónir evra í
rekstrinum í Frakklandi á síðustu fjórum ár-
um. Því miður hafa þessar fjárfestingar ekki
skilað tilætluðum árangri. Þó er rétt að leggja
áherslu á að nú á félagið og rekur fjórar verk-
smiðjur sem flestar eru vel í stakk búnar til að
takast á við þá miklu samkeppni sem ríkir á
markaðnum.
Á síðasta ári voru gerðar umtalsverðar
breytingar á stjórnunarlegri uppbygginu SIF
France þannig að sjálfstæði hverrar rekstr-
areiningar var aukið til muna svo og eftirlit
með reksti.
Um áramót var fyrirtækinu skipt upp í fjór-
ar einingar; frystisvið, saltfisksvið, ferskfisk-
svið og kælisvið.
Nú nýverið lét Birgir Sævar Jóhannsson af
störfum sem forstjóri félagsins en hann hafði
verið forstjóri félagsins um margra ára skeið.
Stjórn SÍF þakkar Birgi fyrir störf sín í þágu
félagsins.
Forstjóri hefur ekki verið ráðinn í hans stað.
Nokkrir erlendir aðilar með víðtæka reynslu
úr atvinnugreininni koma til greina sem vænt-
anlegur forstjóri en ekki verður unnt að greina
frá niðurstöðu í leit að nýjum forstjóra fyrr en
að nokkrum tíma liðnum.“
Slæm afkoma í Kanada
„Afkoman hjá SIF Canada var slæm síðast-
liðið ár. Afkoma SIF Canada hefur verið undir
væntingum allar götur frá því að félagið var
keypt árið 1997. Nýir stjórnendur, sem komu
að félaginu fyrir rúmu ári, hafa verið að finna
félaginu nýjan farveg í því breytilega og snúna
umhverfi þar sem félagið starfar. Það er ljóst
að framtíð SIF Canada, sem kann að vera á
margan hátt mjög áhugaverð, fellur ekki að
framtíðarsýn SÍF. Í ljósi þess mun SÍF endur-
skoða eignarhald sitt á SÍF Canada á árinu.
Þótt gefið hafi á bátinn í starfseminni í
Frakklandi og Kanada er ástæða til að gleðjast
yfir velgengni dótturfélaga SÍF í Bandaríkj-
unum og Bretlandi.“
Gengur vel í Bandaríkjunum
„Rekstur Iceland Seafood Corporation í
Bandaríkjunum gekk vel á árinu, en ársveltan
var um 140 milljónir dollara eða um 10,7 millj-
arðar íslenskra króna. Fyrirtækið hefur sterka
stöðu í dreifingu fullunninna sjávarafurða til
veitingahúsa og mötuneyta í Bandaríkjunum
og þar jókst sala fyrirtækisins um 3,5% í dölum
talið.
Þær miklu breytingar sem orðið hafa á
rekstri Iceland Seafood Corp. í Bandaríkunum
síðustu ár eru í senn mjög ánægjulegar og at-
hyglisverðar. Bandaríkjamarkaður er þekktur
fyrir að vera erfiður og kröfuharður. Því er af-
ar ánægjulegt að stjórnendum félagsins skuli
hafa tekist að snúa rekstrinum við af jafn mikl-
um myndugleika og raun ber vitni. Eins og
Frank Sinatra söng í laginu um New York; „if
you can make it here, you make it every-
where“. Við vonum að í þeim texta leynist
sannleikskorn.
Ég tel rétt að benda hluthöfum á að í lok
þessa árs verður félagið búið að greiða að fullu
samninga vegna véla og áhalda í verksmiðjunni
en þær greiðslur hafa numið um 2,8 milljónum
dollara á ári. Í framhaldi af því mun afkoman
og greiðsluflæðið batna sem því nemur.“
Góður gangur hjá Lyon’s
„Á síðasta ári keypt SÍF Lyon’s Seafood í
Bretlandi. Rekstur Lyon’s gekk vel á sl. ári en
SÍF tók við rekstrinum um miðjan júlí 2003.
Með kaupunum á Lyon’s Seafood tókst SÍF
að koma sér vel fyrir á ákaflega mikilvægum
hluta markaðarins með sjávarafurðir í Bret-
landi, þ.e. á kælda markaðnum. Það er ljóst að
á þeim hluta markaðarins verður áframhald-
andi mikill vöxtur og þar eigum við eftir að
leita frekari tækifæra til vaxtar.
Það er ekki síður í ljósi mikilla umbreytinga
á viðskipum með sjávararfurðir almennt, sem
ég kem betur inn á hér síðar, að kaup okkar á
Lyon’s eru mikilvæg.
Lyon’s Seafood er með eitt stærsta vöru-
merkið í kældum sjávarafurðum á breskum
markaði og hefur einnig sterka markaðsstöðu í
frystum skelfiskafurðum. Ársvelta Lyon’s Sea-
food var um 7,7 milljarðar íslenskra króna á
árs grundvelli. Heildarvelta SÍF-samstæð-
unnar á breska markaðnum eftir kaup á Lyon’s
Seafood er um 110 milljónir punda eða um 14
milljarðar íslenskra króna,“ sagði Ólafur Ólafs-
son.
Viðburðaríkt
en erfitt ár
Slök afkoma starfseminnar á Íslandi, í Frakk-
landi og Kanada leiddi til lakrar afkomu SÍF-
samstæðunnar á síðasta ári
Morgunblaðið/Hjörtur
Erfiðleikar Tap varð af rekstri starfsemi
SÍF í Frakklandi. Hér er lax unninn í reyk-
ingarverksmiðju SÍF í Frakklandi.
SAMANLAGÐAR tekjur
stærstu sjávarútvegsfyrir-
tækja í Kauphöll Íslands
lækkuðu á síðasta ári um 12%.
Í Morgunkorni Íslandsbanka
kemur fram að samanlagðar
tekjur fyrirtækjanna voru 57,1
ma.kr. á árinu 2003 (Brim
meðtalið, áætlun fyrir Þor-
björn Fiskanes og samanlagð-
ar tekjur SVN og SR-mjöls)
en samtals höfðu þessi fyr-
irtæki yfir að ráða um 45%
aflaheimilda við Ísland á liðnu
ári.
Sterk króna
Lækkun tekna skýrist ann-
ars vegar af styrkingu ís-
lensku krónunnar, sem stuðlar
að lækkun tekna í krónum, og
ekki síður af lækkun afurða-
verðs. Ekkert fyrirtæki jók
tekjur sínar milli ára en
minnst lækkuðu tekjur Sam-
herja en mest lækkuðu tekjur
Síldarvinnslunnar, Granda og
Eskju. Undanfarin fimm ár
hafa samanlagðar tekjur þess-
ara sjávarútvegsfyrirtækja
hækkað um 8% á ári og hefur
sá vöxtur einna helst orðið
vegna samruna í greininni.
Norskur sjávarútvegur virð-
ist hins vegar vera að rétta úr
kútnum um þessar mundir eft-
ir nokkur mögur ár. Gengis-
lækkun norsku krónunnar
veldur þar miklu en afurða-
verð á þessu ári hefur einnig
hækkað í erlendum myntum.
Tekjur
lækkuðu
um 12% á
milli ára
ÓLAFUR Ólafsson, stjórn-
arformaður SÍF, segir að stjórn
SÍF telji mikilvægt að íslensku fyr-
irtækin, SÍF og SH, standi saman
um að tryggja samkeppnisstöðu
sína á erlendri grund og að sölu-
starf á íslenskum sjávarafurðum
verði sem mest á forræði Íslend-
inga. Þetta kom fram í ræðu hans á
aðalfundi SÍF í gær.
„SÍF hefur ekki aðhyllst full-
komlega skoðanir annarra um
heildarsameiningu félaganna en
við bentum hins vegar á það þegar
í september að mikil sóknarfæri
fælust í sameiningu á sviði full-
vinnslu. Við teljum það geta orkað
tvímælis að sameina sölukerfin hér
á Íslandi sem og þær skrifstofur
sem nær eingöngu versla með ís-
lenskan fisk. Það er hætta á því að
við það finnist íslensku framleið-
endunum valkostum þeirra hafa
fækkað um of og samkeppni ekki
nægjanlega virk. Við höfum því
ekki lagt á það áherslu að félögin
verði sameinuð sem slík,“ sagði
Ólafur. Hann benti einnig á að stór-
ir hluthafar innan Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hefðu lengi sýnt
áhuga á að selja hlutabréf sín í fé-
laginu. Með kaupunum í SH vildi
stjórn SÍF leggja áherslu á áhuga
og væntingar um að hluthafar fé-
laganna taki höndum saman um að
efla stöðu íslenskra sjávarútvegs-
fyrirtækja enn frekar á erlendri
grundu.
Á fundinum var samþykkt tillaga
um að í stjórn félagsins yrðu sjö
menn og einn varamaður. Stjórn
félagsins var áður skipuð níu
mönnum. Tillaga um stjórn SÍF var
borin upp og hún samþykkt. Nýja
stjórn SÍF skipa nú: Ólafur Ólafs-
son, Aðalsteinn Ingólfsson, Gunnar
Tómasson, Guðmundur Ásgeirsson,
Guðmundur Hjaltason, Jón Eðvald
Friðriksson og Jón Kristjánsson.
Magnús Gauti Gautason var kosinn
varamaður í stjórn en hann var áð-
ur aðalmaður. Fyrir fundinn hafði
Pétur Hafsteinn Pálsson lýst því yf-
ir að hann gæfi ekki kost á sér til
áframhaldandi stjórnarsetu.
Á stjórnarfundi í kjölfar aðal-
fundarins skipti stjórnin með sér
verkum með sama hætti og áður.
Þannig er Ólafur Ólafsson stjórn-
arfomaður, Aðalsteinn Ingólfsson
varaformaður stjórnar og Gunnar
Tómasson ritari.
Samþykkt var tillaga um að
stjórn félagsins væri heimilt að
auka hlutafé félagsins um allt að
300 milljónir króna með sölu nýrra
hluta. Heimildina skal stjórnin nýta
innan þriggja ára. Samkvæmt til-
lögunni falla hluthafar frá for-
kaupsrétti en stjórnin ákveður út-
boðsgengi hluta og sölureglur í
samræmi við hlutafélagalög.
Samþykkt var tillaga stjórnar
um að heimila félagsstjórn að
kaupa hlutabréf í SÍF hf. allt að
10% að nafnvirði á næstu 18 mán-
uðum. Kaupverð bréfanna má vera
allt að 20% yfir meðalsöluverði
hlutabréfa í félaginu á tveggja
vikna tímabili áður en kaupin eru
gerð.
Ekki verður greiddur arður af
hlutafé fyrir síðasta ár.
Kaup í SH
til marks
um áhuga á
samvinnu
Ljósmynd/Sigurður Jökull
Stjórnin Nýja stjórn SÍF skipa nú: Ólafur Ólafsson formaður, Aðalsteinn Ingólfsson varaformaður, Gunnar Tóm-
asson ritari, Guðmundur Ásgeirsson, Guðmundur Hjaltason, Jón Eðvald Friðriksson og Jón Kristjánsson. Magnús
Gauti Gautason var kosinn varamaður í stjórn en hann var áður aðalmaður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Formaðurinn Ólafur Ólafsson, formaður stjórnar SÍF, vill samvinnu SH og
SÍF í Bandaríkjunum og Evrópu eftir atvikum en ekki sameiningu félaganna.