Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 22
Reuters
Chen Shui-bian, forseti Taívans, særðist á maga þegar skotið var á hann.
FORSETI og varaforseti Taívans
lifðu af skotárás í gær, daginn fyrir
forsetakosningar og eftir mjög harð-
vítuga kosningabaráttu. Ákveðið var
að fresta ekki kosningunum þrátt
fyrir tilræðið.
Chen Shui-bian forseti og Annette
Lu varaforseti særðust í skotárásinni
sem var gerð þegar þeim var ekið um
götur borgarinnar Tainan á sunnan-
verðri eyjunni í þaklausum jeppa á
síðasta degi kosningabaráttunnar.
Þau voru flutt á sjúkrahús í borginni
en reyndust ekki hafa særst lífs-
hættulega.
Chen forseti fékk ellefu sentimetra
langt sár á magann og var það saum-
að saman með fjórtán sporum. Ann-
ette Lu særðist á hné. Þau fóru af
sjúkrahúsinu síðar um daginn.
Bæði fullvissuðu þau þjóðina um að
vera heil á húfi í sjónvarpsávarpi í
gærkvöld.
Yu Shyi-kun, forsætisráðherra
Taívans, sagði að stjórnin hefði komið
á fót sérsveit sem ætti að rannsaka
árásina. „Við hvetjum fólk til að halda
ró sinni, taka þátt í kosningunum
með friðsamlegum og eðlilegum
hætti, til að styrkja lýðræði lands-
ins.“
Enginn lýsti árásinni á hendur sér
og ekki var skýrt frá neinum hand-
tökum vegna málsins. Fréttaskýr-
endur sögðu að hún yki sigurlíkur
Chens forseta vegna samúðar kjós-
enda, en hann var með jafnmikið fylgi
og forsetaefni stjórnarandstöðunnar,
Lien Chan, samkvæmt skoðanakönn-
unum sem gerðar voru fyrir viku.
Kosningafundum aflýst
Lien fordæmdi árásina og hvatti til
þess að hún yrði rannsökuð til hlítar
áður en kosningarnar færu fram.
„Þjóðin á rétt á því að vita hvers
vegna þetta gerðist svo skömmu fyrir
kosningar.“
Þjóðaröryggisráð Taívans fyrir-
skipaði lögreglunni að veita Lien
aukna vernd. Báðir frambjóðendurn-
ir aflýstu síðustu kosningafundum
sínum sem áttu að fara fram í gær-
kvöldi.
Forseti og vara-
forseti Taívans
lifa skotárás af
Tainan. AFP.
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VERÐUR Taívan einhvern tíma
sjálfstætt lýðveldi? Þótt spurningin
verði ekki lögð fyrir íbúana í for-
setakosningunum í dag, laugardag,
er hún ofarlega í hugum margra og
liðsmenn núverandi forseta, Chen
Shui-bian, hafa viðrað tillögur um
að hún verði lögð fyrir kjósendur í
þjóðaratkvæði árið 2008. Þá verða
Ólympíuleikar í Peking og ljóst að
Kínastjórn yrði milli tveggja elda;
hernaðarárás á Taívan gæti eyði-
lagt allan áróðurshagnað af leik-
unum. En stjórn kommúnista í
Peking lítur á Taívan sem „hérað í
einu, óskiptu Kína“ en ekki ríki.
Jafnir í könnunum
Pekingstjórnin hefur margsinnis
hótað því að leysa deilurnar um
stöðu Taívans með hervaldi. Og
jafnt Bandaríkin sem Vestur-Evr-
ópuríkin og Japan hvetja Taívana
ákaft til að forðast allt sem geti
orðið til að skerist í odda.
„Við erum áhyggjufull og finnum
fyrir angist í hjarta okkar,“ segir
Yang Guoqing sem situr í einni af
mikilvægustu nefndum kínverska
þingsins. „Landar okkar á Taívan
eiga sér hefðir ættjarðarástar en
fyrr eða síðar munu þeir átta sig á
því hve mikið tjón yrði af því að Ta-
ívan yrði sjálfstætt.“
Chen forseti, sem er 53 ára, og
helsti andstæðingur hans, hinn 67
ára gamli Lien Chan, voru báðir
með um 36–37% fylgi í síðustu
könnunum sem gerðar voru fyrir
tæpri viku. Ógerlegt þótti með öllu
í gær að segja fyrir um hver áhrif
tilræðið við forsetann í gærmorgun
kæmi til með að hafa. Margir voru
enn óákveðnir ef marka má skoð-
anakannanir.
Lien hefur sakað Chen um að
sýna ábyrgðarleysi með því að ögra
Kínastjórn og höfða til hættulegrar
tilfinningasemi. Lien styður sam-
einingu við Kína þegar aðstæður
leyfi og segist vilja fara í friðarferð
til meginlandsins. Einnig segist
hann vilja fá Bandaríkjamenn til að
taka þátt í framtíðarviðræðum við
ráðamenn í Peking. En bent hefur
verið á að litlar líkur séu á því að
Kínastjórn samþykki ferð Liens
þar sem hún viðurkennir ekki rétt
hans eða annarra til að kalla sig
forseta.
Fyrstu áratugina eftir sigur
kommúnista á meginlandinu 1949
urðu Taívanar að sætta sig við lítt
dulbúið flokkseinræði flokks þjóð-
ernissinna sem áður réð öllu Kína.
En frjálsar kosningar voru síðan
haldnar 1996 og fór ekki milli mála
að stjórnvöld í Peking óttuðust
bæði niðurstöðuna og fordæmið,
lýðræðisskipulag á eyju sem hún
gerði tilkall til. Kínverjar efndu þá
til mikilla heræfinga á meginland-
inu og skutu eldflaugum í tilrauna-
skyni yfir taívanskt hafsvæði.
Bandaríkjamenn minntu þá á að
þeir ábyrgðust öryggi Taívana og
tvö flugmóðurskip þeirra sigldu til
eyríkisins. Ofbeldi yrði ekki liðið,
voru skilaboðin.
Á meginlandinu andspænis Taív-
an eru um 500 eldflaugar í skot-
stöðu. Auk þess að kjósa forseta
geta Taívanar nú tekið þátt í tvö-
faldri þjóðaratkvæðagreiðslu á
laugardag þar sem spurt verður
annars vegar hvort efla beri varnir
gegn hugsanlegri árás Kínverja og
hins vegar hvort gera eigi tilraun
til að hefja beinar viðræður við
kommúnistastjórnina.
Vandi lýðræðisríkja er ekki síst
að noti Taívanar sér lýðræðislegan
rétt til að verða sjálfstæðir verður
erfitt að finna rök gegn þeirri
ákvörðun. Á að styðja einræðið
gegn lýðræðinu? Og er ekki hætta
á að ráðamenn í Peking mistúlki
stöðuna, álíti að Vesturlönd muni
taka vaxandi viðskiptahagsmuni
fram yfir stuðning við smáþjóðina?
Þess vegna sé núna hægt að beita
hervaldi?
Ekki fer milli mála í yfirlýsingum
frá Peking að Chen er enn verri
kostur en Lien. Hins ber að geta að
viðbrögð Taívana hafa, frá því að
raunverulegu lýðræði var komið á
fyrir nær átta árum, ávallt verið
þau í kosningum að velja þann eða
þá sem Kínastjórn beitti sér helst
gegn, eins og bent er á í grein í
International Herald Tribune.
Pekingstjórnin segir að ríkið
megi ekki klofna og þess vegna sé
ólíðandi að Taívan lýsi yfir sjálf-
stæði. Á bak við er einnig óttinn við
að kúgaðar minnihlutaþjóðir í Tíbet
og Xinjiang, sem vilja losna við kín-
versk yfirráð, verði enn djarfari ef
Taívanar slíta formlega tengslin.
Taívan komst ekki undir kínversk
yfirráð fyrr en á 17. öld og 1895
tóku Japanar eyjuna, þeir héldu
henni þar til 1945. Jonathan Fenby,
sem skrifað hefur um sögu Kína,
segir í tímaritinu Prospect að í
Peking óttist sumir að Taívan verði
aftur japönsk hjálenda ef ekki verði
gripið í taumana.
Mikil viðkiptatengsl
Sumir stjórnmálaskýrendur
segja að tíminn muni leysa deiluna,
innan fárra áratuga muni Kína
verða nægilega lýðræðislegt til
þess að Taívanar sætti sig við frið-
samlega sameiningu. Þótt opinber-
lega geisi oft kalt stríð milli Kína
og Taívan eru viðskiptalegu tengsl-
in geysimikil. Minnst hundrað þús-
und Taívanar búa í borgum og hér-
uðum andspænis Taívan og annars
staðar á strandlengjunni þar sem
efnahagslegur uppgangur hefur
verið mestur í Kína og starfa þeir í
útibúum taívanskra fyrirtækja. Taí-
vönsk fyrirtæki fjárfesta fyrir
milljarða dollara árlega í Kína og
notfæra sér eins og mörg vestræn
fyrirtæki hvað vinnuaflið er ódýrt.
En fari menn óvarlega er ekki
víst að peningahagsmunirnir dugi
til að koma í veg fyrir árekstra sem
gætu undið upp á sig með afleið-
ingum sem gætu stefnt friði í allri
Austur-Asíu í voða.
Kínastjórn storkað á ný?
Þrátt fyrir tilræðið við Chen Shui-bian fara for-
setakosningar fram á Taívan í dag. Kannanir gefa
til kynna að mjótt verði á mununum.
’Vandi lýðræðis-ríkja er ekki síst að
noti Taívanar sér
lýðræðislegan rétt
til að verða sjálf-
stæðir verður erfitt
að finna rök gegn
þeirri ákvörðun.‘
kjon@mbl.is
„Spænska
stjórnin
laug ekki“
Brussel, Madríd. AFP.
ANGEL Acebes, innanríkisráð-
herra fráfarandi ríkisstjórnar
Spánar, sagði í gær að hún hefði
ekki logið þeg-
ar hún kenndi
aðskilnaðar-
samtökum
Baska, ETA,
um hryðju-
verkin í Madr-
íd í vikunni
sem leið.
„Spænska
stjórnin laug
ekki að nein-
um, hvorki Spánverjum né öðr-
um þjóðum,“ sagði Acebes við
fréttamenn í Brussel þar sem
hann sat skyndifund innanrík-
isráðherra Evrópusambandsins
sem boðaður var vegna hryðju-
verkanna í Madríd.
„Fram hafa komið margar
rangar ásakanir,“ sagði Acebes
þegar hann var spurður um um-
mæli innanríkisráðherra Þýska-
lands sem kvartaði yfir því að
spænsk yfirvöld hefðu verið
sein að láta þýsku stjórninni í té
upplýsingar sem bentu til þess
að hryðjuverkasamtökin al-
Qaeda væru viðriðin hryðju-
verkin í Madríd.
Leynd létt af skjölum
Spænsk stjórnvöld hafa létt
leynd af tveimur skjölum þar
sem rakin eru samskipti leyni-
þjónustunnar og stjórnvalda
daginn sem ódæðisverkið var
framið. Kemur fram í þeim að
leyniþjónustan taldi á upphafs-
stigum málsins að ETA-hreyf-
ingin hefði verið að verki og
tóku ráðamenn og talsmenn rík-
isstjórnarinar mið af því mati í
yfirlýsingum sínum á fyrstu
klukkustundunum eftir ódæðið.
Um kvöldið bárust síðan vís-
bendingar um að íslamskir
hryðjuverkamenn hefðu hugs-
anlega verið að verki og greindi
talsmaður stjórnarinnar þá frá
því.
Neita sakargiftum
Hæstaréttardómari í Madríd
úrskurðaði í gær þrjá Marokkó-
menn og tvo Indverja í gæslu-
varðhald og einangrun vegna
gruns um að þeir hefðu átt aðild
að hryðjuverkunum. Þeir neita
sakargiftunum og segjast ekki
tengjast al-Qaeda eða öðrum
hryðjuverkasamtökum.
Mennirnir hafa ekki enn ver-
ið ákærðir formlega. Þeir eiga
yfir höfði sér allt að 40 ára fang-
elsisvist verði þeir fundnir sek-
ir.
Angel Acebes