Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 31
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 31
HVERAGERÐI - DYNSKÓGAR
Vorum að fá í einkasölu lítið en snoturt
einbýlishús á einni hæð. Húsið hefur verið
mikið endurnýjað þ.m.t. þak og klæðning að
utan. Húsið skiptist í skála, með uppteknu
lofti, herbergi, bað, lítið eldhús, geymslu og
þvottahús. Lóðin er mjög stór og falleg með
verönd, heitum potti og góðri útiaðstöðu.
Verð 11,4 milljónir.
GIMLI HVERAGERÐI
Allar upplýsingar um eignir í Hveragerði veitir Kristinn, sölumaður
okkar í síma 483 5900. GSM eftir lokun skrifstofu 892 9330.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur lögg.fasteignasali
Af hverju
fá þau ekki vinnu?
Ráðstefna um stöðu ungs fólks í atvinnuleit
á Hótel KEA þriðjudaginn 23. mars kl. 13.00-16.45.
Markmið ráðstefnunnar er að ræða stöðu
16-24 ára atvinnuleitenda og möguleika þeirra
á að finna nám og störf við hæfi.
Dagskrá:
13:00-13:05 Ráðstefnan sett.
13:05-14:30 Helena Karlsdóttir, forstöðumaður SVM, „Þróun og staða atvinnuleysis.“
Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA,
„Hvers vegna hætta nemendur í framhaldsskóla?“
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri „Akureyrarbær og störf ungs fólks.“
Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
„Atvinnulíf á krossgötum - hvernig eru þarfir atvinnulífsins að þróast?“
Erindi ungs atvinnuleitanda um reynslu hans af atvinnuleit.
14:30-14:45 Kaffihlé.
14:45-15:15 Bryndís Símonardóttir, fjölskylduráðgjafi Hlíðarskóla, „Tenging grunnskóla og
atvinnulífs?“
15:15-16:15 Þorbjörn Jensson, forstöðumaðurkynnir Fjölsmiðjuna í Kópavogi.
16:15-16:45 Ásgeir Magnússon, forstöðumaður Skrifstofu atvinnulífsins á Norðurlandi.
„Atvinnumálin í nútíð og framtíð – samantekt. “
16:45 Ráðstefnuslit.
Fundarstjóri: Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður svæðisráðs SVM.
ALLIR VELKOMNIR MEÐAN HÚSRÚM LEYFIR.
Svæðisvinnumiðlun
norðurlands eystra
Keflavík | „Við höfum báðar reynslu
af því að starfa í heimahúsi og í þessu
leiguhúsnæði hér og við erum sam-
mála um að þetta húsnæði henti mun
betur í daggæslu heldur en heimili
okkar,“ sögðu dagmæðurnar Fjóla
Hilmarsdóttir og Ragnhildur Ævars-
dóttir þegar Morgunblaðið heimsótti
þær á Ásabrautarróló í Keflavík.
Miklar og heitar umræður hafa átt
sér stað um nýja reglugerð félags-
málaráðherra um daggæslu í heima-
húsum og á röddum daggæslufólks
má heyra að reglugerðin nýja tekur
lítið tillit til foreldra og þeirrar góðu
reynslu sem daggæsla í leiguhúsnæði
hefur. Viðmælendur Morgunblaðsins,
þær Fjóla Hilmarsdóttir og Ragn-
hildur Ævarsdóttir, forystumenn
Dagmæðrafélags Suðurnesja, voru
meðal þeirra dagforeldra sem sóttu
fjölmennan fund dagforeldra í Gerðu-
bergi fyrr í þessum mánuði, þar sem
253 dagforeldrar skrifuðu undir mót-
mælalista. Nú hafa um 100 nöfn bæst
við og þær vonast til að ná 400 áður
en næsta vika er öll. „Þessar undir-
skriftir hafa greinilega skilað ein-
hverjum árangri því við lásum það í
Morgunblaðinu að búið væri að skipa
nefnd um nýju reglugerðina, þar sem
m.a. sitja fulltrúar dagforeldra og að
reglugerðin verði ekki sett á fyrr en í
haust. Með því að hafa fengið fulltrúa
okkar inn, þá eru meiri líkur á því að
sjónarmið okkar nái fram að ganga.“
Þær stöllur segja ekki síður mik-
ilvægt að líta á málið út frá hags-
munum foreldra, nú þegar tillögur
gera ráð fyrir fækkun barna úr fimm
í fjögur. „Eins og búið er að benda á
munu að öllum líkindum margir dag-
foreldrar hætta störfum nái reglu-
gerðin fram að ganga og gjöld hækka
hjá þeim sem vilja starfa áfram til að
vega á móti tekjuskerðingu. Og hvar
á að koma öllum börnunum fyrir þeg-
ar plássum og dagforeldrum fækkar?
Það verður að hugsa málið til enda.“
Húsnæðið fellur að kröfum
Fjóla og Ragnhildur tóku Ása-
brautarróló á leigu sl. haust, líkt og
margar dagmæður í Reykjanesbæ
hafa gert. Þær segjast hafa verið
fljótar að stökkva á húsnæðið þegar
það losnaði, enda finnist þeim mikill
hagur í því og mun ákjósanlegra
heldur en að gæta barnanna á sínu
eigin heimili. „Þetta húsnæði er al-
gjörlega sniðið að þörfum barnanna
og hér inni er ekkert sem ekki á hér
heima. Heima hjá okkur er hins veg-
ar alls kyns glingur og dót sem getur
verið hættulegt börnum og það er
varla raunhæft að ætla að maður um-
bylti heimili sínu, þó að mann langi til
að starfa sem dagforeldri. Fjöl-
skyldu- og félagsþjónusta Reykjanes-
bæjar hefur líka mælt með þessu
leiguhúsnæði og það segir nú kannski
allt sem segja þarf. Okkur ber t.d. að
hafa góðan útileikvöll á jarðhæð og
hér eru aðstæður eins og best verður
á kosið.“
Fjóla og Ragnhildur sögðu að for-
eldrar væru mjög ánægðir með alla
aðstöðu á Ásabrautarróló en margir
hefðu jafnframt lýst yfir áhyggjum af
yfirvofandi ástandi. „Við höfum hitt
marga foreldra og auðvitað líka aðra
daggæsluforeldra og allir eru mjög
uggandi vegna þeirra aðstæðna sem
kunna að skapast ef nýja reglugerðin
nær fram að ganga. Auk þessa undir-
skriftalista sem fór af stað á fund-
inum í Gerðubergi eru margir aðrir
að ganga, m.a. foreldralisti sem síðan
mun afhentur félagsmálaráðherra,“
sögðu Fjóla og Ragnhildur að lokum,
staðráðnar í að halda baráttunni
áfram.
Tvær dagmæður leigja róluvöll
Leiguhúsnæði hentar
betur en heimilin
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Á Ásabrautarróló: Ragnhildur Ævarsdóttir og Fjóla Hilmarsdóttir með
átta af daggæslubörnum sínum sem hér sitja að morgunsnæðingi.
Reykjanesbær |
„Þetta er einhvers-
konar persónuleg yf-
irlitssýning. Ég er að
líta yfir farinn veg og
tengja það svo verk-
um með alveg nýrri
myndbyggingu,“ seg-
ir Kristján Jónsson
listmálari en sýning á
verkum hans verður
opnuð í sýningarsal
Listasafns Reykja-
nesbæjar í Duus-
húsum klukkan 15 í
dag.
Á sýningunni eru verk unnin
með blandaðri tækni á striga og
mdf-plötur. Kristjáns segir að í
eldri verkum sínum hafi hann ver-
ið með tilvísanir í manngerða hluti
og mikið pælt í tímaeyðslu. Hann
sé að færa sig meira frá hlut-
bundnum myndverkum yfir í hina
óhlutbundnu myndbyggingu. Í
nýju myndunum sé minni gassa-
gangur og þótt nýju myndirnar
séu kyrrlátari og myndbyggingin
einfaldari segi þær ekki minni
sögu. Vonast hann til að einfald-
ara verði fyrir áhorfandann að
komast að kjarna málsins en jafn-
mikill galdur yrði eft-
ir sem áður að komast
að einhverri nið-
urstöðu.
Kristján er fæddur
í Reykjavík árið 1960.
Eftir BA nám í aug-
lýsingadeild Univers-
ity of South Florida
árið 1984 sótti Krist-
ján námskeið í teikn-
ingu, bæði í Reykja-
vík og Barcelona. Á
árunum 1989 til 1993
stundaði hann nám í
grafík og listmálun við listaskól-
anum Massana í Barcelona. Krist-
ján hefur síðan tekið þátt í ýmsum
verkefnum, m.a. samstarfsverk-
efninu Námur undir umsjón Guð-
mundar Emilssonar og einnig sá
hann um rekstur Höfðaborg-
arinnar, leikhúss og gallerís í
Hafnarhúsinu í Reykjavík. Hann
starfar nú jöfnum höndum við
myndlist og auglýsingagerð.
Sýningin í Listasafni Reykja-
nesbæjar er níunda einkasýning
Kristjáns Jónssonar.
Sýningin er opin alla daga frá
klukkan 13 til 17 og stendur til 2.
maí.
Kristján Jónsson opnar sýningu
í Listasafni Reykjanesbæjar
Persónuleg
yfirlitssýning
Kristján Jónsson
Keflavík | Sýningu Árna Johnsen,
Grjótið í Grundarfirði, í Gryfj-
unni í Duushúsum lýkur á sunnu-
dagskvöld með opinni kvöldvöku.
Tæplega 4 þúsund manns hafa
komið og skoðað sýninguna og er
það einsdæmi að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá menn-
ingarfulltrúa Reykjanesbæjar.
Í dag verður sýningin opin frá
kl. 13 til 18.
Dagskrá kvöldvökunnar annað
kvöld hefst klukkan 21. Árni
verður sjálfur á staðnum með gít-
arinn og von er á góðum gestum,
meðal annars Gretti Björnssyni
harmonikkuleikara, Halldóri
Blöndal forseta Alþingis, séra
Hjálmari Jónssyni dómkirkju-
presti, Rósu B. Blöndals skáldi,
Rúnari Júlíussyni hljómlist-
armanni, Jóhönnu Ósk Valsdóttur
söngkonu, Inga Hans Jónssyni úr
Grundafirði, félögum úr Kven-
félaginu Ósk í Reykjanesbæ og
Elíasi Bjarnhéðinssyni El Puerkó.
Kvöldvakan er öllum opin.
Sýningu Árna
Johnsen lýkur
með kvöldvöku
Reykjanesbær | Bæjarstjórinn í
Reykjanesbæ boðar til fram-
kvæmdaþings næstkomandi mánu-
dag, klukkan 16 til 19. Þingið verð-
ur haldið á veitingahúsinu Ránni
við Hafnargötu 19a og er öllum op-
ið.
Á þinginu verða kynntar helstu
verkframkvæmdir sem fyrirhug-
aðar eru á árinu í landi Reykjanes-
bæjar og á Keflavíkurflugvelli.
Auk Reykjanesbæjar og aðila
tengds honum, eins og Reykjanes-
hafnar og Fasteignar hf., verða
kynntar framkvæmdir vegna al-
þjóðaflugvallar á Keflavík-
urflugvelli, varnarliðsins og virkj-
unar á vegum Hitaveitu
Suðurnesja. Þá hefur helstu verk-
tökum á svæðinu verið boðið að
kynna eigin framkvæmdir, segir í
frétt frá bæjarstjóra.
Kynning á framkvæmdum
Fyrsta skóflustungan | Fram-
kvæmdir við byggingu nýs grunn-
skóla í Innri-Njarðvík hefjast í dag.
Tvö sjö ára börn, væntanlegir nem-
endur við skólann, taka fyrstu
skóflustunguna klukkan 14 og njóta
við það verk aðstoðar bæjarstjórans.
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.,
sem Reykjanesbær er aðili að, bygg-
ir skólann. Áætlað er að skólastarf á
vegum Reykjanesbæjar hefjist í
húsnæðinu haustið 2005.
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122