Morgunblaðið - 20.03.2004, Page 42
G
isting býðst nú á einu
fínasta hóteli í heimi
við glæsileik sem vart
hefur fyrr sést. Nýja
hótelið Burj Al Arab
rís, að því er sýnist undir seglum
þöndum, skammt frá landi í borg-
inni Dubai í Sádi-Arabíu. Í gæða-
flokki er það talið 7 stjörnu hótel.
Heimildamaður okkar, sem gisti
þar þegar aðalfundur Alþjóðabank-
ans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
stóð yfir í Dubai sl. haust, vildi
ekki einu sinni segja frá því hvað
næturgistingin hefði kostað, enda
verð mismunandi eftir aðstæðum
og kröfum. Hann kvaðst aldrei
hafa séð annað eins, „allt í gulli
innanstokks“, eins og hann orðaði
það og varla hægt að lýsa flottheit-
unum. Arabísku olíufurstana á
þessum slóðum skortir vísast ekki
fé þegar þeir eru að leggja út í
stóráform um að lyfta upp ferða-
mannaiðnaði til tekjudreifingar í
framtíðinni og til að fá mótvægi
við hina einhæfu olíuvinnslu sína,
að því er krónprins Dubai, Shaikh
Mohammed Bin sagði er hann af-
hjúpaði sl. haust fyrsta líkanið með
þessum stórtæku áformum.
Burj Al Arab hótelið er reist á
lítilli eyju úti fyrir Dubai-borg. Rís
þar yfir hafflötinn upp í yfir 320
metra. Það er hannað eins og þan-
ið segl á skútu. Á kvöldin er það
baðað í glæsilegri ljósasýningu.
Hótelið er skammt frá landi og
engin umferð farartækja leyfð þar.
Á einhvern hátt eru gestir samt
fluttir til innritunar í Rolls Royce
með bílstjóra að einkamóttöku-
borði, sem er á hverri hæð, þar
sem heill her af þjálfuðum brytum
tekur gesti í sína umsjá allan sól-
arhringinn. Hver íbúð er búin öllu
því besta sem heimurinn hefur upp
á að bjóða, að því er lofað er. Ekki
verður farið nánar út í það, menn
geta látið hugmyndaflugið um að
fylla í eyðurnar, og upplýsingar
má finna á vefnum. Um auðugan
garð er að gresja, m.a. vísað á 367
greinar, fréttir, bækur og umsagn-
ir.
Hótel Burj Al Arab er hluti og
fyrsti fullbúni áfanginn af áætlun,
sem samanstendur af því að
byggja upp af sjávarbotni á 11-17
m dýpi úti fyrir borginni 250 sér-
hannaðar eyjar, sem hver um sig
hefur form eins lands eða eyjar í
heiminum. Verða þannig tákn fyrir
heimsmyndina. Stutt verður á milli
eyjanna í þessum eyjaklasa heims-
ins. Gert ráð fyrir aðkomu af sjó
og ekkert vegasamband er út í
hverja einstaka eyju.
Ekkert er verið að tvínóna við
hlutina. Í haust þegar okkar mað-
ur var þar á ferð voru tvær eyjar í
hraðri uppbyggingu, ein nærri
tilbúin í formi pálmatrjáa, sem á
að hýsa annað hótel, og önnur þar
sem á að rísa hæsta bygging
heims.
Glæsieyjan Ísland
Landi okkar spurði hvort ein af
þessum glæsieyjum yrði kannski í
laginu eins og Ísland og var sagt
að það væri með í myndinni. Og
mikið rétt, á heimskortinu sem
notað er í kynningu á þessum
áætlunum má raunar glöggt sjá út-
línur þessa bletts norður í höfum
sem nefnist Ísland. Hversu mikið
sem leggja má upp úr þeim upp-
lýsingum.
Þetta er okkar framtíðarsýn fyr-
ir Dubai, sagði hans hátign araba-
furstinn. Þetta er í fyrsta sinn sem
eyjaáætlun af þessari stærð-
argráðu og mikilleik er hleypt af
stokkunum. Fyrsti áfanginn, land-
vinnsla og landmótun, er talið að
muni kosta 1,8 milljarða dollara og
áætlað að uppbygging eyjanna 250
taki tvö ár. Síðan er ætlunin að
fjárfestar taki við, og verði með í
að móta byggingarnar sjálfar eftir
sínu höfði og hlutverki. Ekki er þó
gert ráð fyrir hótelum einum sam-
an, heldur koma til greina afþrey-
ingarstaðir eða ráðstefnu- og við-
skiptahallir. Hver eyja hefur sitt
hlutverk. En þar sem aðeins 250
byggingarlóðir verða þannig til
sölu, verða fjárfestar valdir af mik-
illi kostgæfni. Utan um þróunina á
þessari „byggingu heimsins“ held-
ur byggingarfyrirtækið Nakheel í
Dubai. En Jumeirah International
um hótel- og ferðamennsku-
uppbygginguna.
Í hugmyndunum má sjá að
reikna megi með að margir fjár-
festanna þrói eyjuna sína með
þema sem endurspegli landið sem
hún líkist, m.a. með minn-
ismerkjum eða táknum fyrir það
tiltekna land. Hvernig ætli Ísland
kæmi þá út? Nokkrir fjárfestar,
innlendir og erlendir, munu þegar
hafa tryggt sér land. Skyldu þar í
hópi vera nokkrir sem ásælast
eyju í Íslandslíki?
Hvað um það. Í landi þar sem
verið er að veðja á ferðamenn
framtíðarinnar eins og hér og þá
gjarnan þá sem vel leggja með sér
er forvitnilegt að sjá hvernig kröf-
ur og framboð fyrir þá sem ekki
vita aura sinna tal taka sífellt á sig
nýja og umfangsmeiri mynd. Ef-
laust er þar erfitt að halda í við ol-
íufurstana.
DUBAI|Gestir eru sóttir á Rolls Royce til innritunar á sjö stjörnu hótelið í Sádi-Arabíu
Glæsihótel
undir seglum
þöndum
Gull: Íslendingur sem gisti á hótelinu sl. haust kvaðst aldrei hafa séð annað eins, allt væri í gulli innanstokks.
Ótrúlegt: Hótelið er fyrsti hluti af áætlun sem krónprins Dubai, Shaikh Mohammed Bin, hefur um að byggja upp af
sjávarbotni 250 eyjar sem hver um sig hefur form eins og land eða eyja í heiminum. Ísland er ein fyrirmyndanna.
www.propertyworldme.com/
content/html/135.asp
www.jumeirahinternat-
ional.com/baa/burjal-
arabhighres.pdf
http://www.dubaicity-
guide.com/tourism/hot-
els.asp
epa@mbl.is
Glæsileiki: Burj Al Arab í Dubai er 7 stjörnu og eitt fínasta hótel í heimi.
FERÐALÖG
42 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Fréttasíminn
904 1100