Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 50
UMRÆÐAN
50 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
G. VALDIMAR Valdemarsson,
formaður málefnanefndar mið-
stjórnar Framsóknarflokksins,
skrifaði grein um Laxármálið í
Morgunblaðið miðvikudaginn 10.
mars sl. og notar það til að koma
flokkspólitísku höggi á Samfylk-
inguna. Það er rangt að reyna að
gera þetta mikilvæga
mál að bitbeini stjórn-
málaflokka og þau
rök sem G. Valdimar
ber fram eru rökleys-
ur einar.
Í fyrsta lagi horfir
hann framhjá því að
lögin um vernd Laxár
og Mývatns frá 1974
ganga lengra en sam-
komulag landeigenda
og virkjunar frá árinu
1973 vegna þess að
þetta svæði er miklu
mikilvægara en svo
að þar þurfi ekki aðrir um að véla
en landeigendur og eigendur virkj-
unar á hverjum tíma. Það nýtur
mestu náttúruverndar sem hægt
er á Íslandi, bæði með íslenskum
lögum og alþjóðlegum sam-
þykktum sem Ísland er aðili að, og
þar með létta lögin alveg þeim
þrýstingi af landeigendum sem
Landsvirkjun reynir
nú að beita með hót-
unum um atvinnu-
missi í héraði og
tekjutap fyrir Að-
aldæli ef ekki verði
látið að kröfum
Landsvirkjunar um að
mynda 2 kílómetra
langt lón í Laxárdal.
Það nær því engri átt,
eins og G. Valdimar
gerir, að reyna að
halda því fram að það
sé einhvers konar
réttlætismál að færa
lögin að hinu eldra samkomulagi
sem opnaði fyrir möguleika á
breytingu á vatnsborði árinnar ef
landeigendur féllust á hana. Slík
afturför væri ekkert minna en
stórfellt umhverfisslys. Lögin eru
svo afdráttarlaus að þau banna all-
ar slíkar breytingar nema til
verndunar og ræktunar – og er
þar ekki átt við þá vélaverndun
sem Landsvirkjun hefur nú í huga.
Lögin kveða einnig á um að brot
varði sektum eða fangelsi allt að 2
árum.
Í öðru lagi er það rangt hjá G.
Valdimar að láta í veðri vaka að
umhverfismat með gögnum frá
Landsvirkjun sé eitthvert sérstakt
rannsóknarferli sem geti ekki farið
af stað eftir öðrum leiðum. Skv.
gildandi lögum um verndun Laxár
og Mývatns á einmitt að reka nátt-
úrurannsóknarstöð við Mývatn
sem er alveg óháð orkufyr-
irtækjum. Sú rannsóknarstöð var
nýlega í fréttum vegna þess að
ráðherra umhverfismála hafði sett
formann stjórnarinnar af – en sá
hefur verið kunnur af áhuga sínum
á umhverfismálum en minni áhuga
á virkjunum og mannvirkjum í
friðlandi Laxár og Mývatns. Eðli-
legast væri að stjórnvöld og fjöl-
miðlar leituðu sér upplýsinga og
þekkingar hjá þeim vísindamönn-
um sem unnið hafa að rannsóknum
á þessu svæði til þess að átta sig á
þeim sögusögnum sem eru á
sveimi um sandburð í ánni og leið-
ir Landsvirkjunar til að stöðva
hann eins og þar sé um nýtt fyr-
irbæri í lífríki árinnar að ræða.
Eins og flestum ætti að vera kunn-
ugt eru helstu breytingarnar sem
hafa orðið á umhverfi Laxár og
Mývatns á undanförnum áratugum
af manna völdum. Verði menn var-
ir við óeðlilegar breytingar á lífríki
árinnar er því ekki úr vegi að leita
skýringa á þeim breytingum í um-
svifum mannsins frekar en því
náttúrulega ástandi árinnar sem
hefur lítið breyst síðustu aldirnar.
G. Valdimar Valdemarsson gerir
Framsóknarflokknum og nátt-
úruvernd í landinu mikinn grikk ef
hann ætlar að reyna að keyra Lax-
árdeiluna niður í átök milli stjórn-
málaflokka á alþingi. Að sjálfsögðu
verða fulltrúar okkar þar að beita
sér til að forða þeim glæp sem nú
er í undirbúningi en í þessu máli
eiga þeir að hlusta betur á rödd
eigin samvisku en á flokkstilskip-
anir. Eða hver þarf sérstakt um-
hverfismat til að meta áhrif þess
að sökkva Þingvöllum, sprengja
Gullfoss, malbika yfir Geysissvæð-
ið og sjóða lím úr Konungsbók
eddukvæða?
Laxá rennur ekki eftir flokkalínum
Gísli Sigurðsson svarar G.
Valdimar Valdemarssyni ’Slík afturför væri ekk-ert minna en stórfellt
umhverfisslys.‘
Gísli Sigurðsson
Höfundur er vísindamaður á
Stofnun Árna Magnússonar.
Laxárdalur fyrir.
Laxárdalur eftir.
ÞAÐ VAR mér pína að lesa pist-
il nafna míns Hersveins um mynd
Mel Gibson „The Passion of the
Christ.“ Ég verð að
segja að trúartilfinn-
ing mín var særð
djúpu sári er Her-
sveinn hellti úr skál-
um reiði sinnar (eða
einhverjum öðrum
skálum) yfir þessa
mögnuðu kvikmynd.
Hann byrjar á því að
fara rangt með heiti
myndarinnar og í
beinu framhaldi af því
afhjúpar hann að sjálf
yfirskrift mynd-
arinnar hefur farið
framhjá honum, en hún er fengin
úr Jesaja spádómsbók og er þessi:
„En hann var særður vegna vorra
synda og kraminn vegna vorra
misgjörða. Hegningin, sem vér
höfðum til unnið, kom niður á hon-
um, og fyrir hans benjar urðum
vér heilbrigðir.“ Það er ekki með
nokkrum hætti hægt að leggja mat
á þessa mynd nema að hafa þetta
til hliðsjónar.
Hersveinn segir að
myndin „sé ekki um
Jesús Krist heldur um
illskuna. Hún er ekki
um kærleikann, held-
ur um myrkrið.“ Gerir
hann sér ekki grein
fyrir því að synd, mis-
gjörð og hegning er
illska, sem hefur alla
tíð verið manninum
fjötur? Ranglæt-
isfjötur illskunnar
hefur fjötrað manninn
við eymd sína? Það
myrkur, sem myndin sýnir með
svo glöggum hætti og maðurinn
getur ekki losað sig undan af eigin
mætti, er sigrað með fórnandi
kærleika Jesús Krists. Hann kom
til að kveikja ljós. Hann gekk á
hólm við myrkrið og vann sigur.
Myndin fjallar um þessa hólm-
göngu ljóss og myrkurs, dauða og
lífs. Jesús kom til að leysa mann-
inn undan glötun, undan dimmu
myrkursins. Slíkt var eingöngu
gert með guðlegum kærleika sem
setur engin skilyrði og gengur á
ystu nöf mannlegrar þjáningar.
Jesús var fórnarlamb Guðs sem
ber í burt synd þessa heims. Það
er viðfangsefni myndarinnar.
Gibson reynir að bregða upp
mynd af ólýsanlegri þjáningu og
lægingu mannsins, en einnig af
sigri kærleikans yfir illskunni.
Hersveinn segir í pistli sínum:
„Þessi viðburður (Jesús hratt um
borðum víxlaranna og borðum
dúfnasalanna) er ekki sýndur í
myndinni þótt hann sé höf-
uðástæða þess að Jesús var hand-
tekinn.“ Þetta er ekki rétt hjá
Hersveini. Handtaka Jesús var til
að uppfylla eilífan tilgang Guðs frá
því fyrir grundvöllun verald-
arinnar. Svikamylla pólitískra og
trúarlegra afla er ekki hin eig-
inlegi gerandi í þessari atburðarás.
Gunnar Hersveinn sér Maríurn-
ar sem fegurðina í myndinni.
Hann sér ekki fegurðina í ótrú-
legri pínu og kvöl til lausnar fölln-
um manni undan ofurvaldi synd-
arinnar. Hann sér ekki fegurðina í
því að maður deyr fyrir vin sinn.
Hann sér ekki fegurð þessa sam-
hengis vegna þess hve kvölin er
ótrúlega mikil, grimmdin skefja-
laus. Hann sér ekki skóginn fyrir
trjánum. Hann sér ekki þá fegurð
sem Hallgrímur Pétursson sá og
þjóðin hefur ornað sér við í myrkri
aldanna. Hann sér ekki þá fegurð
sem kirkjan hefur lofsungið og
hefur verið hennar ær og kýr.
Hann skynjar ekki grunn end-
urlausnarinnar sem allt hvílir á
vegna þess að verkið sem þurfti að
vinna var drifið blóði, stígurinn
sem þurfti að ganga var kvalanna
braut.
Gunnar Hersveinn segir einnig:
„Áhugi höfundarins er á písl-
arsögu holdsins – en ekki andans.“
Ég er ekki sammála Hersveini.
Túlkun Gibson í þessari mynd er
túlkun þess manns sem mikið er
fyrirgefið og elskar því mikið. Gib-
son gerir sér grein fyrir því að líf-
ið er í blóðinu og það kemst ber-
lega til skila. Öllum er ljóst sem
sjá þetta verk að kvöl sálar og
anda er stórum meiri en hinar
holdlegu kvalir. Það var ekki hold-
lega pína er olli því að hjarta
Drottins brast á krossinum. En
það er erfitt að útmála slíkt á
hvíta tjaldinu. Myndin gerir þá
kröfu að menn skynji það sem
ekki er hægt að sjá.
Gibson nær að túlka kvöl föð-
urhjartans yfir blæðandi syni sem
hafinn er upp nakinn milli himins
og jarðar með snilldarlegum hætti
í einni af lokasenum myndarinnar.
„Niðurstaða mín er að túlkun
Gibsons standi með kvölinni, pínu
Krists, en ekki með kærleikanum
og lífinu,“ segir Gunnar Hersveinn
í niðurlagi pistils síns.
Slík er ekki niðurstaða mín.
Myndinni lýkur með upprisunni.
Sigrinum yfir dauðanum. Kærleik-
urinn deyddi dauðann. Maðurinn
er frjáls. Frelsarinn opinberast í
dýrð.
Mel Gibson hefur náð því marki
að gera mynd sem hefur meiri
dýpt, er gædd meiri kærleika og
þrungin meiri tilfinningu en ég átti
von á. Þessi mynd lætur engan
ósnortinn og þeim tíma sem menn
verja til að sjá hana er vel varið.
Pína
Gunnar Þorsteinsson skrifar
um kvikmynd Mel Gibsons ’Mel Gibson hefur náðþví marki að gera mynd
sem hefur meiri dýpt, er
gædd meiri kærleika og
þrungin meiri tilfinn-
ingu en ég átti von á. ‘
Gunnar Þorsteinsson
Höfundur er forstöðumaður
í Krossinum í Kópavogi.www.thjodmenning.is
tryggvagata 16
sími 551 1808
www.mamimo.is
fallegar
fe rminga rg ja f i r