Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 60
KIRKJUSTARF 60 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Suðræn sveifla í Fríkirkjunni í Hafnarfirði ÞAÐ verður mikill léttleiki yfir guðsþjónustu sunnudagsins í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði en guðs- þjónustan hefst kl. 13. Að þessu sinni verða sungnir bjartir, fal- legir og fjörlegir sálmar frá suð- rænum löndum, Suður-Ameríku, Afríku og Spáni. Það er að venju Örn Arnarson sem leiðir tónlist og söng ásamt kór og hljómsveit kirkjunnar. Þá mun Erna Blöndal söngkona syngja einn af þessum fallegu sálmum. Þessir suðrænu sálmar vöktu mikla athygli er þeir voru fluttir við guðsþjónustu í Frí- kirkjunni fyrir rúmu ári. Að lokinni guðsþjónustu hefst svo hinn árlegi basar kvenfélags- ins og verður hann haldinn í safn- aðarheimili kirkjunnar. Allur ágóði af basarnum rennur að sjálf- sögðu til kirkjustarfsins. Það er von okkar að safnaðarfólk fjöl- menni og styrki þannig safnaðar- starfið. Björn Bjarnason kirkjumálaráðherra flytur hugvekju í Seltjarnarneskirkju Á MORGUN, sunnudaginn 21. mars, mun Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, flytja hug- vekju í messu sem hefst í Seltjarn- arneskirkju kl. 11 fh. Björn Bjarnason hefur ekki að- eins verið virkur þátttakandi í stjórnmálalífi þjóðarinnar heldur og verið mikill áhugamaður um trúmál og sýnt þjóðkirkjunni mikla rækt í störfum sínum bæði fyrr og nú. Það er mikill fengur fyrir Seltjarnarnessókn að fá kirkjumálaráðherra til að flytja hugvekju í messunni á morgun og eru Seltirningar og aðrir hvattir til að fjölmenna. Selkórinn mun flytja messu eftir Dvorák í D-dúr. Stjórnandi er Jón Karl Einarsson og orgelleikari er Pavel Manasek. Prestur verður séra Sigurður Grétar Helgason. Að lokinni messu verður boðið upp á molasopa í safnaðarheimili kirkjunnar. Allir velkomnir. Seltjarnarneskirkja. Æðruleysismessa í Dómkirkjunni ÆÐRULEYSISMESSA, tileinkuð fólki sem leitar bata eftir tólf spora leiðinni verður í Dómkirkj- unni sunnudaginn 21. mars kl. 20. Einhver mun segja þar af reynslu sinni úr baráttunni við áfengissýkina. Anna Sigríður Helgadóttir, Hjörleifur Valsson, Birgir og Hörður Bragasynir sjá um stemmningsríka tónlist. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur hugleiðingu. Sr. Anna Sig- ríður Pálsdóttir leiðir samkomuna og sr. Hjálmar Jónsson leiðir fyrirbæn. Kyrrðardagar fyrir þá sem eru að styrkja vitundarsamband sitt við Guð verða undir leiðsögn sr. Jakobs í Skálholti 26.–28. mars og tekur skrifstofa skólans við innrit- unum í síma 486 8870. Sjá heima- síðu Dómkirkjunnar www.dom- kirkjan.is Barna- og unglinga- kórar Bústaðakirkju í messu og foreldra- félagið býður í messukaffi BARNA- og unglingakórar kirkj- unnar syngja og spila á bjöllur í guðsþjónustunni sunnudaginn 21. mars kl. 14. Stjórnandi kóranna er Jóhanna Þórhallsdóttir og organ- isti Guðmundur Sigurðsson. Eftir messuna býður foreldra- félag kóranna öllum kirkjugestum upp á kirkjukaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. Barna- og unglingakórastarfið er kraftmikið starf í kirkjunni og eru þessir kórar skipaðir unga fólkinu í sókninni, alls fimm kórar. Englakórinn er fyrir þau yngstu, en þau börn eru 5–6 ára, þá eru Barna- og Bjöllukórinn sem eru börn á aldrinum 7–10 ára. Í Stúlknakórnum eru stúlkur á aldr- inum 10–12 ára og í Kammer- kórnum eru 16 ára krakkar. Kórarnir eru þessa dagana að undirbúa vordagskrána en elstu kórarnir æfa Abba-prógramm sem þau flytja í vor og yngstu kórarnir æfa söngleik. Fjölmennum í kirkjuna okkar og hlustum á raddir framtíðar- innar. Bústaðakirkja. Kvöldmessa í Grensáskirkju ANNAÐ kvöld, sunnudagskvöldið 21. mars, verður kvöldmessa í Grensáskirkju og hefst hún kl. 20. Form kvöldmessunnar er afar einfalt með áherslu á létta söngva, fyrirbæn og lofgjörð. Altaris- ganga er í messunni en töluðu máli stillt í hóf. Kirkjukórinn leið- ir söng en organistinn, Árni Arin- bjarnarson, leikur undir á píanó. Að þessu sinni syngur Stúlkna- kór Grensáskirkju einnig í kvöld- messunni undir stjórn Ástríðar Haraldsdóttur. Eftir messuna sel- ur stúlknakórinn kaffi og meðlæti og ágóði af sölunni rennur í ferða- sjóð kórsins en förinni er heitið til Ítalíu í vor. Eldri fermingarbörn heimsækja Hafnarfjarðarkirkju 51, 61 og 71 árs fermingarbörn Hafnarfjarðarkirkju munu sækja messu kl. 11, sunnudaginn 21. mars nk. Þau fermdust árin 1933, 1943 og 1953, en komu ekki saman í kirkjunni í fyrra vegna þess að sóknarprestur hennar, sr. Gunn- þór Þ. Ingason, var þá fjarverandi í námsleyfi erlendis, en hann messar nú. Aðalheiður Elín Pét- ursdóttir messósópran syngur ein- söng í messunni. Eftir hana halda fermingar- börnin samkvæmi í Hásölum Strandbergs, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. 50, 60 og 70 ára fermingarbörn kirkjunnar stefna að því að sækja messu á bænadegi Þjóðkirkjunnar á vori komanda. Kvöldmessa í Hallgrímskirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 21. mars kl. 20 verður kvöldmessa í Hall- grímskirkju. Schola cantorum mun syngja kórala úr passíum undir stjórn Harðar Áskelssonar og séra Sig- urður Pálsson mun leiða íhugun tengda píslarsögu Jesú Krists. Messunni lýkur síðan að venju með bænastund og altarisgöngu. Það er vaxandi fjöldi fólks sem kýs að sækja þessar einföldu og kyrrlátu helgistundir í rökkvaðri kirkjunni áður en erill nýrrar viku hefst. Ráðstefna hjá Veginum RÁÐSTEFNA verður í dag frá kl. 10:00 til 16:00 með Thomasi Jons- syni kennara á Biblíuskólanum hjá Livets Ord í Svíþjóð. Ráðstefnan er öllum opin. Samkoma kl. 20:00 þar sem hann predikar einnig. Athugið að á sunnudagskvöld mun Thomas einnig predika. Nán- ari upplýsingar eru á www.vegur- inn.is Hans klaufi í Lindasókn Í LINDASÓKN í Kópavogi verður fjölskylduguðsþjónusta á sunnu- daginn kl. 11. Auk hefðbundinna liða guðsþjónustunnar mun Stopp- leikhópurinn sýna leikritið um Hans klaufa, sem byggt er á sam- nefndu ævintýri H.C. Andersen. Leikarar eru Katrín Þorkelsdóttir og Eggert Kaaber. Allir velkomnir. Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar AÐALSAFNAÐARFUNDUR Garðasóknar verður haldinn í safnaðarheimili Vídalínskirkju við Kirkjuhvol sunnudaginn 21. mars, að lokinni guðsþjónustu sem hefst kl. 11. Venjuleg aðalfundarstörf. Léttur málsverður í umsjá Lions- fólks, í boði Garðasóknar á sama tíma í safnaðarheimilinu. Mikilvægt er að mæta vel til guðsþjónustu og til aðalsafnaðar- fundar til að láta okkur skipta hið kraftmikla og líflega starf sem fram fer í kirkjunni. F.h., sóknarnefnar Garðasókn- ar. Hans Markús Hafsteinsson, sóknarprestur. Yfir 40.000 manns í Hafnarfjarðar- kirkju á einu ári Á AÐALFUNDI Hafnarfjarðar- sóknar sem haldinn var fyrir skömmu voru lagðar fram tölur yfir fjölda gesta í Hafnarfjarð- arkirkju og safnaðarheimili henn- ar árið 2003. Í ljós kom að yfir 40.000 manns höfðu sótt kirkjuna heim samkvæmt talningu. Eru þá ekki taldir með allir þeir sem tek- ið hafa þátt í námskeiðum á veg- um kirkjunnar á árinu, brúð- kaupum eða skírnarathöfnum. Ekki heldur eru taldir með kórar sem æfa við safnaðarheimilið, æskulýðsstarf kirkjunnar, ferm- ingarfræðsla né aðrir fastir fé- lagslegir starfsþættir. Eru þátt- takendur í slíku starfi þó mörg hundruð í hverri viku. Sem dæmi má nefna að yfir 6.000 manns hafa sótt hjónanámskeið kirkjunnar. Sr. Þórhallur Heimisson, Hafnarfjarðarkirkju. Morgunblaðið/ÁsdísFríkirkjan í Hafnarfirði. MINNINGAR ✝ Lárus JóhannÓlafur Jóhanns- son fæddist í Hvammi í Þistilfirði 2. október 1924. Hann lést á Dvalar- heimilinu Nausti á Þórshöfn 8. mars síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jóhann Ólafur Jónsson frá Hávarðsstöðum og Kristín Sigfúsdóttir frá Hvammi í Þistil- firði. Hann var fjórði í röð átta systkina og enn eru þrjú þeirra á lífi. Lárus ólst upp með foreldrum og systkinum til átta ára aldurs er hann fór að Laxárdal og dvaldi þar til fullorðinsára. Lárus kvæntist 1958 eftirlif- andi eiginkonu sinni; Aðalbjörgu Jónasdóttur frá Dalshúsum í Bakkafirði. Þau eignuðust fjóra syni; Jónas, Jóhann Ólaf, Sigurð og Kristin. Lárus stundaði nám á Laugum í Reykjadal í tvo vetur en árið 1947 flutti hann til Akureyrar og gerð- ist leigubílstjóri hjá B.S.A. Þar var hann til ársins 1953 en flutti þá til Þórs- hafnar og gerðist vörubílstjóri og verkstjóri hjá Vega- gerðinni í nokkur sumur. Þau Aðal- björg bjuggu í Dals- húsum í Bakkafirði til ársins 1966 en keyptu þá jörð- ina Hallgilsstaði á Langanesi og bjuggu þar síðan en Lárus stund- aði jafnframt vörubílaakstur með búskapnum. Útför Lárusar fer fram frá Þórshafnarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Svalbarðskirkjugarði. Föðurbróðir minn Lárus Jóhanns- son bóndi og vörubifreiðastjóri á Hallgilsstöðum á Langanesi er lát- inn. Lárus bjó við vanheilsu en gott atlæti á dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn síðustu árin. Ljómi leikur um fyrstu minningar mínar tengdar Lárusi frænda. Hann var glæsimenni og hafði þar á ofan verið leigubifreiðastjóri á Akureyri og kom austur í sveitir á fínum drossíum. Sagan segir að afa í Hvammi og fleiri gömlum bændum og lítt ökutækjavönum hafi hætt við bílveiki þegar Lárus bauð þeim í bíl- túr í dúnmjúkum eðalvögnum. Eftir að Lárus flutti austur á nýjan leik var hann m.a. verkstjóri hjá vega- gerðinni, fékkst við ökukennslu og var með vörubílaútgerð eins og löngum síðan. Lárus byggði sér reisulegt hús á Þórshöfn í félagi við Kristin bróður sinn á sjötta áratugn- um og þar bjuggu afi og amma eftir að þau fluttu frá Hvammi. Lárus kvæntist Aðalbjörgu Jónasdóttur, eða Lillu, eftirlifandi eiginkonu sinni og stoð og styttu frá Dalhúsum á Langanesströnd árið 1958 og þar stofnuðu þau sitt fyrsta heimili. Þau festu kaup á jörðinni Hallgilsstöðum I árið 1966 og fluttu þangað í vetr- arbyrjun það ár. Þá hófust kynni mín af Lárusi frænda fyrir alvöru. Ég var hálfgildings ráðsmaður í hey- skapnum á Hallgilsstöðum þetta sumar. Þau Lárus og Lilla bjuggu ennþá austur á Dalhúsum, en þar sem flutningarnir stóðu fyrir dyrum var heyjað af kappi á Hallgilsstöðum og legið þar við á köflum. Lárus ræddi við mig um heyskapinn eins og fullorðinn mann og hlustaði á mín sjónarmið þótt auðvitað réði hann ferðinni. Þetta var mér 11 ára strákpjakknun nokkurt nýnæmi og hef ég ugglaust fundið meira til bæði sjálfs mín og ábyrgðar minnar fyrir vikið. Ekki verður hér sagt meira af ráðsmennskunni á Hallgilsstöðum þetta sumar eða í þeim tilvikum öðr- um sem ég átti eftir að grípa þar í verk. Stutt er á milli bæjanna Hall- gilsstaða og Gunnarsstaða og mikill samgangur og samvinna var milli þeirra bræðra Lárusar og föður míns og okkar krakkanna. Ekki get ég svarið fyrir að hafa þarna um sumarið 1966 og á árunum þar á eftir stjórnað vélum eða ökutækjum sem ég hafði strangt tekið ekki aldur til. Jafnvel kann ég að hafa brugðið mér í hlutverk kennarans og kennt þeim ungu frændum mínum á Hallgils- stöðum eitthvað í fræðunum. Þessir góðu dagar voru einnig löngu, löngu fyrir þann tíma sem fregnir af vinnu- tímatilskipunum Evrópusambands- ins bárust norður í byggðarlagið við Þistilfjörð. Ungir sem aldnir lögðu sitt af mörkum hver eftir sinni getu og kröftum og uppskáru samveru án kynslóðabils. Lárus frændi minn var einstak- lega hlýr maður, grandvar og góður í viðkynningu. Hann var vandvirkur og mikið snyrtimenni í allri um- gengni. Þannig báru bílar hans yf- irleitt af fyrir góða umhirðu og end- ingu. Seinna áttum við eftir að vinna saman sem vörubifreiðastjórar í vegavinnu og þar var Lárus í essinu sínu. Hann var lista ökumaður og gamli-Ford og seinna Bensarnir jafnan gljábónaðir. Þannig sé ég hann nú fyrir mér á kveðjustund, hýran á svip undir stýri eða í kaffi- tíma í hópi okkar bílstjóranna með gamanyrði á vörum. Var þá ekki verra ef við stráklingarnir eða ær- ingjarnir í hópnum, eins og ég eða Níels Þóroddsson, höfðum gefið til- efni til umræðna með aksturslagi okkar eða öðru hátterni. Þá gat Lár- us átt það til að skella sér á lær og segja: ja hvað er þetta. Lárusi er hvíldin góð eftir mikla vanheilsu síðustu árin. Erfitt var að sjá þessum hrausta manni hverfa heimurinn en mikil huggun í að vita að hann bjó við gott atlæti og ástúð og umhyggju sinna nánustu. Blessuð sé minning hans. Steingrímur J. Sigfússon. LÁRUS J.Ó. JÓHANNSSON MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endurgjalds- laust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að til- greina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morg- unblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum grein- um. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstu- degi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.