Morgunblaðið - 20.03.2004, Síða 76
ÍÞRÓTTIR
76 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
RÚNAR Alexandersson verður ekki á meðal keppenda á
Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem hefst í dag kl. 15 í
Laugardalshöll þar sem keppt verður í fjölþraut. Búist er
við því að úrslit í fjölþraut verði til reiðu kl. 17. Á morgun,
sunnudag, er keppt til úrslita á einstökum áhöldum, en 6
keppendur komast í úrslit á hverju áhaldi og ráðast úrslit
um kl. 16 á sunnudag.
Á vefsvæðinu fimleikar.is spáir Jón Finnbogason í spilin
og telur hann að Viktor Kristmannsson úr Íþróttafélaginu
Gerplu verði með nokkra yfirburði í karlaflokki og
Jónas Valgeirsson og Anton Heiðar Þórólfsson úr Ár-
manni verði í næstu sætum þar á eftir, en baráttan verði
hörð þeirra á milli.
Jón segir ennfremur að keppnin í kvennaflokki verði
harðari en áður. Sif Pálsdóttir úr Gróttu hefur sigrað
undanfarin fjögur ár og er líkleg til afreka að nýju ásamt
stöllu sinni úr Gróttu, Snædísi Hauksdóttur. Inga Rós
Gunnarsdóttir og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Íþrótta-
félaginu Gerplu munu einnig blanda sér í baráttuna um Ís-
landsmeistaratitilinn.
Sif gerir atlögu að
fimmta titlinum í röð
BJÖRN Birgisson, kylfingur úr Golfklúbbi
Grindavíkur, fór holu í höggi á 4. braut
Húsatóftavallar í Grindavík í fyrradag þeg-
ar hann var þar að leik með félögum sínum,
en sú braut er 180 metrar - erfið par þrjú
hola. Þetta er fráleitt í fyrsta sinn sem Björn
fer holu í höggi á Húsatóftarvelli því hinn 1.
október í haust lék Björn sama leikinn á 8.
braut vallarins, fyrstur manna í sögu vall-
arins „Það er alltaf gaman að brjóta ísinn og
ekki síst á þessari braut sem svolítið erfið,“
sagði Björn í samtali við Morgunblaðið.
Björn hóf að leika golf árið 1999 og er
með 17 í forgjöf. Hann segir að menn hafi
leikið golf á Húsatóftarvelli í allan vetur
þegar veður hefur leyft. „Völlurinn er frek-
ar þurr og því ekkert mál að fara og spila á
honum þegar vel viðrar og því hafa menn
verið þar að leik í allan vetur þegar færi
hefur gefist,“ sagði Björn.
Björn fór
holu í höggi
SAMKVÆMT úttekt spark-
spekinga á sænska blaðinu
Aftonbladet er Auðun
Helgason einn af fimm bestu
bakvörðum í sænsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu,
Allsvenskan.
Í umsögn blaðsins um
Auðun segir: „Auðun er
sterkur leikmaður bæði í
vörn og sókn. Hann getur
sent langar nákvæmar send-
ingar innfyrir varnir and-
stæðinganna og er fjölhæfur
og reynslumikill landsliðsmaður.“
Auðun gekk í raðir Landskrona í jan-
úar á síðasta ári eftir að hafa fengið sig
lausan undan samningi við Lokeren í
Belgíu. Auðun samdi við Landskrona til
tveggja ára og var fastamaður í liðinu á
síðustu leiktíð, spilaði 23 af
26 leikjum liðsins í úrvals-
deildinni, alla í byrjunarlið-
inu, og skoraði tvö mörk.
Hann var valinn í íslenska
landsliðshópinn í nóvember
eftir 26 mánaða fjarveru og
lék leikinn gegn Mexíkó
sem endaði með markalausu
jafntefli. Það var hans 28.
landsleikur.
Auðun hefur átt við
meiðsli að stríða á undir-
búningstímabilinu en lék
sinn fyrsta leik á árinu í fyrrakvöld
gegn Bröndby og hann ætti því að
verða klár í slaginn þegar flautað verð-
ur til leiks í Allsvenskan 3. apríl en þá
mætir Landskrona nágrannaliðinu
Helsingborg.
Auðun einn af fimm bestu
bakvörðunum í Svíþjóð
Auðun
PAUL Burgess, yfirvallarhirðir á Highbury, heimavelli Arsenal í
London, hefur verið í Portúgal undanfarna daga. Burgess, sem hefur
oft komið hingað til lands og átt gott samstarf við Jóhann G. Krist-
insson, vallarstjóra Laugardalsvallarins, var sendur til Portúgals á
vegum Knattspyrnusambands Evrópu. Þar hefur hann verið að vega
og meta knattspyrnuvellina sem notaðir verða þegar Evrópukeppni
landsliða fer fram í Portúgal í sumar. Burgess á stóran þátt í að gras-
flöturinn á Highbury-vellinum hefur fengið viðurkenningar mörg
undanfarin ár, sem besti knattspyrnuvöllurinn á Englandi.
Kannar velli í Portúgal
GUÐMUNDUR E. Stephensen
fagnaði norska meistaratitlinum í
borðtennis í fyrradag ásamt félögum
sínum í B-72 frá Ósló í norsku úrvals-
deildinni. Í úrslitaleiknum lagði B-72
lið Lakesvag, 5:2 , en Guðmundur
vann báða einliðaleiki sína 3:0 og í
tvíliðaleiknum í úrslitarimmunni lék
Guðmundur með Zhang Mio og þeir
unnu andstæðinga sína 3:0.
CARLO Cudicini, markvörður
Chelsea, mun ekki geta leikið leikina
gegn Arsenal í Meistaradeild Evr-
ópu, vegna meiðsla á hendi – bein
brákaðist á æfingu og hefur hann
farið í aðgerð. Cudicini verður ekki
tilbúinn í slaginn eftir fjórar vikur.
CHARLES Oakley hefur gert 10
daga samning við NBA-liðið Hou-
ston Rockets en þjálfari liðsins Jeff
Van Gundy var áður þjálfari Oakley
er hann lék með New York Knicks.
VAN Gundy segir að Oakley muni
gera mikið gagn þrátt fyrir að hann
hafi ekkert leikið í vetur en fram-
herjinn er fertugur að aldri og lék
síðast með Washington Wizards
ásamt fyrrverandi félaga sínum frá
Chicago Bulls, Michael Jordan.
Oakley lék í áratug með Knicks, í
þrjú ár með Toronto Raptors og nú
síðast með Wizards. Það eru fleiri
leikmenn úr Knicks sem eru í her-
búðum Rockets, Patrick Ewing er
aðstoðarþjálfari liðsins og leikstjórn-
andinn Mark Jackson samdi við liðið
fyrr í vetur.
ALESSANDRO Nesta varnarmað-
ur Evrópumeistaraliðs AC Milan frá
Ítalíu er meiddur á fæti og verður frá
keppni í 2-3 vikur. Nesta missir af
deildarleik gegn Parma um helgina
og fyrri leik liðsins í átta liða úrslit-
um Meistaradeildarinnar gegn De-
portivo la Coruna frá Spáni. Nesta
fór af leikvelli eftir 11 mínútur gegn
Juventus s.l. sunnudag þar sem Mil-
an hafði betur, 3:1.
SIR Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, getur ekki
teflt fram sjö af leikmönnum sínum
gegn Tottenham á Old Trafford.
Roy Keane, Louis Saha, Cristiano
Ronaldo, Eric Djemba-Djemba og
Kleberson eru meiddir og Gary Ne-
ville og Rio Ferdinand eru í leik-
banni. Þá er óljóst hvort Mikael
Silvestre er orðinn góður eftir
meiðsli á hné.
MEIÐSLI og veikindi hrjá Liver-
pool. Óvíst er hvort að fyrirliðinn
Steven Gerrard geti leikið með lið-
inu gegn Wolves vegna flensu, en
nokkrir leikmenn eru úti vegna
meiðsla – Steve Finnan, Florent Sin-
ama-Pongolle, Anthony Le Tallec,
Vladimir Smicer, Chris Kirkland og
Salif Diao.
DENNIS Bergkamp og Fredrik
Ljungberg eru á ný komnir í leik-
mannahóp Arsenal, sem mætir Bolt-
on á Highbury.
FÓLK
Við ætlum að gera eins gott úrþessu í samvinnu við Siglfirð-
inga og kostur er úr því sem komið
er,“ segir Jónas sem ráðgerir að
senda 20 manna sveit til Siglufjarðar
til þess að vinna við mótshaldið þar.
Jónas segir að í hlýindunum á dög-
unum hafi nær því allan snjó tekið
upp á skíðasvæðinu í Tungudal og nú
sé svo komið að autt er við tvær
neðstu lyfturnar en örlítill snjór við
þá þriðju og efstu. „Það er mjög
skellótt við efstu lyftuna og alveg
ógjörningur að halda keppni við þær
aðstæður,“ segir Jónas sem segir að
nægur snjór sé enn á Seljalandsdal
til þess að halda göngukeppnina, en
Seljalandsdalur liggur hærra en
svæðið í Tungudal.
„Það er nægur snjór á Siglufirði nú
um stundir og fín aðstaða og því ríkir
ánægja með að samkomulag náðist
við félaga okkar þar um að taka að
sér alpagreinahluta Skíðamótsins. Í
Siglufirði er víst mun meiri snjór um
þessar mundir en á Dalvík og í Ólafs-
firði,“ sagði Jónas sem ætlar að hefja
Skíðamótið á Ísafirði og afmælis-
veisluna sem sprettgöngu í miðbæ
Ísafjarðar miðvikudaginn 31. mars.
Hann segir vandalaust að keppa í
sprettgöngu í bænum með enda-
marki á Silfurtorgi þótt þar sé sem
marautt sem á sumardegi væri. „Við
ætlum að flytja snjó ofan af heiði og
niður í bæ auk þess sem við notum ís
sem undirlag. Við reyndum þetta í
fyrra og það tókst vel til og því teljum
við vandalaust að endurtaka leikinn
nú,“ segir Jónas. Keppni í hefð-
bundnum göngugreinum hefst síðan
daginn eftir á Seljalandsdal í alpa-
greinum á Siglufirði. Mótinu lýkur
laugardaginn 3. apríl.
Norski skíðagöngumaðurinn
Thomas Alsgaard hefur þegið boð
Skíðafélags Ísafjarðar að keppa sem
gestur á mótinu, en Alsgaard er
sannkallaður hvalreki fyrir íslenska
skíðagöngumenn enda einn þekktasti
skíðagöngumaður heims á síðustu ár-
um. Alsgaard skaut upp á stjörnu-
himininn fyrir tíu árum þegar hann
vann gullverðlaun í 30 km göngu á
Vetrarólympíuleikunum í Lilleham-
mer, þá aðeins 22 ára gamall. Alls
vann hann til átta verðlauna á heims-
meistaramótum og Ólympíuleikum
áður en hann hætti keppni í fremstu
röð eftir HM í fyrra. Jónas sagði
mikla ánægju ríkja með komu Alsga-
ard og hún yrði til að gera gott mót
betra. „Við stefnum að því að halda
sannkallaða gönguveislu á Ísafirði
um mánaðamótin og vonum að sem
flestir hafi gaman af,“ sagði Jónas.
Ísfirðingar og Siglfirðingar skipta á milli sín Skíðamóti Íslands vegna snjóleysis
Ógjörningur að renna
sér á skíðum í Tungudal
VEGNA snjóleysis á skíðasvæði Ísfirðinga í Tungudal hefur verið
ákveðið að flytja alpagreinahluta Skíðamóts Íslands til Siglufjarðar,
þar sem aðstæður eru betri nú um stundir til að stunda þær greinar.
Áfram er stefnt að því að keppni í göngu fari fram fyrir vestan, nánar
tiltekið á Seljalandsdal. „Ég er ánægður með að málin séu nú í höfn
þannig að við getum farið að undirbúa sjálft mótið,“ sagði Jónas
Gunnlaugsson, formaður Skíðafélags Ísafjarðar, en félagið fagnar
70 ára afmæli á þessu ári er mótið á að vera hluti hátíðarhaldanna.
Morgunblaðið átti stutt spjall viðPatrick og talið barst að gervi-
grasi, sem hefur þróast ört síðustu
ár. „Nú er að koma
þriðja og fjórða kyn-
slóð af gervigrasi,
sem er komin með
frábæra eiginleika
en í Englandi getum við bara borið
það saman við gamla plast-gervi-
grasið, sem var í Preston, Oldham og
QPR svo að mynd okkar af gervi-
grasi er mjög slæm,“ sagði Patrick
en hann skoðaði gervigrasið í Egils-
höll. „Það er frábært og í Englandi
æfum við líka á slíkum völlum með
yngri flokka en leikmenn í efstu deild
vilja ekki æfa á þeim, þó að við hjá
Blackburn eigum sjálfir svona völl.
Það er líklega vegna þess að þeir eru
aldir upp á alvöru grasi en þeir sem
byrja ungir að æfa á svona grasi eru
líklegri til að vilja síðar æfa og spila á
gervigrasi – það gætum við séð ger-
ast á næstu fimm árum. Við þessir
gömlu vallarstarfsmenn teljum okk-
ur hinsvegar geta framleitt alvöru
gras, sem stenst samanburð við
besta gervigrasið. Ef við höldum
okkur rækilega á tánum og aukum á
þekkingu okkar ættum við að geta
boðið eins mikil gæði og á þriðju og
fjórðu kynslóð af gervigrasi. Mér
sýnist áhorfendur líka vilja sjá menn
spila á alvöru grasi,“ sagði Patrik.
Dumferline í Skotlandi er að sögn
Patrick eina úrvalsdeildarliðið, sem
hefur komið sér upp gervigrasi en
það hefur ekki verið nógu gott.
„Hinsvegar teljum við að stóru al-
þjóðaknattspyrnusamböndin vilji
staðla leiki sem mest, til dæmis að
boltinn skoppi allsstaðar jafn mikið,
sama hvar sem er í veröldinni og við
teljum það ekki endilega betra fyrir
íþróttina,“ sagði Patrick og benti á
aðrar leiðir. Ein hugmynd er að bæta
velli með því að blanda saman alvöru
grasi og gervigrasi. „Í Englandi
skiptum við um torfur á ónýtum
svæðum, oft vítateigum, en það er
líka verið að nota gervigras með al-
vöru grasi. Það er aðeins notað á tvö
prósent af öllum vellinum, þá er
gerviefni stungið niður í grasið til að
styðja við ræturnar. Það getur hjálp-
að á sumum stöðum en við gerum það
ekki hjá Blackburn þó að hjá sumum
klúbbum gangi það upp. Það á enn
eftir að sanna og er enn verið læra
hvernig á að fara með þessa tækni.“
Hann skoðaði nokkra velli hér
landi og fannst ekki góðir. „Mér sýn-
ist vellirnir í slæmu ásigkomulagi og
grasið ekki líklegt til að ná sér á strik
strax. Það er hægt að nota yfir-
breiðslur en það þarf að fara mjög
varlega með það. Margir vellir í Eng-
landi eru með hita í vellinum og oft
erum við með yfirbreiðslur þar sem
hægt er að blása heitu lofti til að
halda kuldanum í burtu. Það eru líka
til margar tegundir af grasi, sem
henta mismunandi aðstæðum.“
Menn vilja
alvöru gras
Morgunblaðið/Jim Smart
Örn Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Fylkis, Steve Patrick og
Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallarins.
KNATTSPYRNUVELLIR á Íslandi koma misvel undan vetri svo að
vallarstarfsmenn hafa í nógu að snúast við að gera þá klára fyrir
átök sumarvertíðar og halda þeim við. Þetta var í umræðu á árs-
fundi SÍGÍ, Samtökum íþrótta- og golfvallastarfsmanna á Íslandi,
íLeirunni í gær. Þar hélt erindi Steve Patrick, sem hefur í 16 ár haft
umsjón með grasvöllum enska úrvalsdeildarliðsins Blackburn.
Stefán
Stefánsson
skrifar