Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 20.03.2004, Blaðsíða 77
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 77 TVÍSÝNT er hvort David James, landsliðsmarkvörður Englands, getur leikið í marki Manchester City á mánudagskvöldið kemur þegar lið hans sækir Leeds heim í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu. James skarst illa á hné í leiknum gegn Manchester United um síðustu helgi, sárið er á versta stað, á miðju hnénu, og var saumað saman, og hann hefur ekkert getað æft í vikunni. Fari svo að James geti ekki spilað, fær Árni Gautur Arason sitt fyrsta tækifæri í úrvals- deildinni. Hann lék sem kunnugt er tvo bikarleiki með City fyrir skömmu þegar James mátti ekki spila með liðinu í þeirri keppni. Árni Gautur í marki City gegn Leeds? ÍSLANDSMEISTARALIÐ Kefla- víkur í körfuknattleik kvenna stóð í ströngu gegn Grindavík í oddaleik liðanna í undanúrslitum 1. deildar í gær en meistaraliðið hafði betur, 66:62, eftir að hafa verið undir í hálfleik, 39:34. Það gekk mikið á hjá Keflvík- ingum í aðdraganda leiksins þar sem Hjörtur Harðarson, þjálfari liðsins, sagði upp störfum vegna ágreinings um starfsaðferðir hans og leikmanna. Sigurður Ingimund- arson hljóp í skarðið fyrir Hjört með stuttum fyrirvara og stýrði landsliðsþjálfari íslenska karlaliðs- ins skútunni í höfn í sínum fyrsta leik í vetur. Keflavík mætir ÍS í úr- slitum Íslandsmótsins en í þeirri rimmu þurfa liðin að vinna þrjá leiki til þess að verða Íslandsmeist- ari en í undanúrslitunum nægði að vinna tvo leiki. „Við náðum að leika vörnina vel en sóknarleikurinn hefur ekki verið upp á það allra besta að und- anförnu,“ sagði Erla Þorsteins- dóttir, fyrirliði Keflavíkur. Hún vildi ekki tjá sig um þjálfaramál liðsins en sagði að leikmenn liðsins ætluðu sér að verja Íslandsmeist- aratitilinn. „Það er mikill hugur í okkur og þetta mál sem dundi yfir okkur daginn fyrir leikinn gegn Grinda- vík er búið af okkar hálfu. Við ætl- um að einbeita okkur að framtíð- inni og Sigurður Ingimundarson er þjálfarinn okkar í dag. Meira er ekki um málið að segja,“ sagði Erla. Meistararnir mæta Stúdínum í úrslitum FÓLK  LÁRA Hrund Bjargardóttir, SH, var aðeins 58/100 úr sekúndu frá eigin Íslandsmeti í 200 m fjórsundi á bandaríska háskólameistaramótinu í sundi sem hófst í fyrrinótt að ís- lenskum tíma í College Station í Texas. Lára synti á 2.17,89 mínút- um en Íslandsmet hennar er 2.17,31– sett á Innanhússmeistara- mótinu í Eyjum fyrir þremur árum.  LÁRA Hrund, sem stundar nám við University of California, Irvine (UCI), hafnaði í 56. sæti í undanrás- unum af 69 keppendum. Hún spreytir sig einnig í 400 m fjórsundi og 200 m bringusundi á mótinu.  ÍSLENSKA landsliðið í snóker tekur þátt í Evrópubikarkeppni landsliða í Lettlandi í næstu viku. Landsliðið er skipað þeim Ásgeiri Ásgeirssyni, Jóhannesi B. Jóhann- essyni og Sumarliða Gústafssyni. Samhliða mótinu verður haldin liða- keppni öldunga, 40 ára og eldri og þar keppa fyrir Íslands hönd þeir Gylfi Ingason og Sigfús Helgason.  NENAD Perunicic, serbíska stór- skyttan hjá handknattleiksliðið Magdeburg, reiknar með að leika á ný með félaginu gegn Wallau Mas- senheim 5. apríl nk. Perunicic hefur verið frá keppni síðan í október vegna meiðsla í öxl og þurfti hann m.a. að fara í uppskurð vegna þessa.  KNATTSPYRNUSAMBAND Evrópu, UEFA, vísað í dag frá kæru knattspyrnusambands Wales um að rússneska landsliðinu verði meinað að taka þátt í Evrópumeist- aramótinu í knattspyrnu sem fram fer í Portúgal í sumar. Wales krafð- ist þess að Rússum yrði vísað úr keppni þar sem einn leikmaður Rússa féll á lyfjaprófi eftir fyrri leik þjóðanna um sæti í keppninni í haust. UEFA segir í rökstuðningi sínum að ekki sé hægt að láta heilt lið líða fyrir gjörðir eins manns og því verði rússneska landsliðinu ekki vísað úr EM.  ÚTVARPSSTÖÐ í Berlín hefur heitið þeim leikmanni Bayern Münc- hen sem skorar sjálfsmark í leikn- um við Herthu Berlin í dag 1 milljón evra sem jafngildir um 87 milljónum króna. Forkólfar þýsku 1. deildar- innar eru mjög ósáttir við þetta framtak útvarpsstöðvarinnar en það var kynnt á forsíðu þýska blaðsins Bild í gær. Gestirnir hófu leikinn mun beturen heimamenn. Leikmenn Snæfells voru dálítið lengi í gang, eins og þeir hafa oft verið í vetur. Þegar leið á fyrsta leikhluta komu Sigurður Þor- valdsson og Edward Dotson með góðan kafla og Snæfell náði frumkvæðinu í lok leikhlutans. Í upphafi annars fjórðungs fékk Dondrell Whitmore, einn sterkasti leikmaður Snæfells undanfarið, sína þriðju villu, en hann hafði til þessa leikið á hálfum hraða vegna meiðsla sem hann hlaut í leik við Hamar á laugardaginn. „Ég ákvað að láta Dondrell byrja leikinn og sjá hvort veiki fóturinn hitnaði ekki, en það gekk ekki svo ég lét hann lítið spila eftir fyrsta fjórðung, enda lenti hann einnig í villuvandræðum,“ sagði Bárður Eyþórsson, þjálfari Snæ- fells. Heimamenn höfðu áhyggjur af því hvað gerðist þegar Dondrell var orðinn óleikhæfur. Það kom ekki mikið að sök því aðrir leikmenn stóðu upp og léku prýðilega og heimamenn fögnuðu sætum sigri. Í liði Snæfells léku margir mjög vel, þó hallar ekki á neinn þegar Hlynur Bæringsson er nefndur fyrstur, hann átti frábæran leik, í einu orði sagt, tók alls 24 fráköst, skoraði 19 stig og hvatti sína menn duglega áfram. Sigurður Á. Þor- valdsson lék einn sinn besta leik í langan tíma, en hann og Hafþór Ingi Gunnarsson stóðu sig virkilega vel nú þegar lykilmenn skiluðu ekki sínu. Edward Dotson stóð sig mjög vel, þegar hann stekkur þá stekkur hann hátt, ver bolta í háloftunum í vörninni og treður með tilþrifum í sókninni. Corey Dickerson fór vel af stað, datt síðan niður en kom sterkur inn í síðari hálfleik. Dondrell og Lýð- ur Vignisson gengu ekki heilir til skógar og léku lítið. Hjá Njarðvík bar Brenton Birm- ingham af og er hann greinilega að ná sínum fyrri styrk. Brandon Woustra skilaði sínu ágætlega, góð skytta þar á ferð. Friðrik Stefánsson var sterkur að vanda en mátti sín lít- ils gegn sterkum varnarmönnum Snæfells. Ekki virtist vera mikill styrkur fyrir Njarðvík að nýja leik- manninum Williams Chavis, ef eitt- hvað er þá tekur hann frá öðrum. Læknar telja líklegt að ástæðablóðtappans sé áverkinn sem ég fékk á kálfann í leiknum. Skoski leik- maðurinn bókstaf- lega vafði sig utan um kálfann á mér og í framhaldinu gaf krossbandið sig, höggið leiddi síðan til blóðtappa sem uppgötvast tveimur dögum síðar,“ sagði Ásthildur í samtali við Morg- unblaðið í gær en hún er enn hér heima, hefur ekki fengið fararleyfi til Svíþjóðar þar sem hún býr um þess- ar mundir og leggur stund á mast- ersnám í verkfræði við háskólann í Lundi jafnframt því sem hún leikur knattspyrnu með Malmö FF. „Blóðtappinn uppgötvaðist á mánudaginn en þá hafði ég haft mikla verki í kálfanum. Tappinn kom í ljós þegar ég fór í skoðun hjá lækni og var ég undir eins sett á blóðþynn- andi lyf. Það var ágætt að þetta kom fljótlega í ljós áður en það dró frek- ari dilk á eftir sér,“ segir Ásthildur sem sér fram á langt frí frá knatt- spyrnuiðkun. „Það fer ábyggilega ár í að ná bata,“ segir Ásthildur sem sá fram á spennandi og skemmtilegt ár með félagsliði sínu Malmö FF og ís- lenska landsliðinu. Malmö er eitt sterkasta félagslið Evrópu og leikur í undanúrslitum UEFA-keppninnar í knattspyrnu í lok þessa mánaðar og í byrjun apríl auk þess sem stór verkefni eru framundan hjá íslenska landsliðinu í knattspyrnu sem á ágæta möguleika á að komast áfram í Evrópukeppni landsliða. Sem fyrr segir er Ásthildur á mála hjá Malmö FF og er tryggð hjá fé- laginu. Hún reiknar ekki með að það skipti neinu máli gagnvart félaginu og tryggingunum að hún meiddist svo illa í landsleik. „Annars hef ég lítið kannað þá hlið mála en vona að það verði ekki neitt mál.“ Ásthildur segir að eðlilega hafi verið mikil vonbrigði hjá forráða- mönnum Malmö FF þegar þeir fengu fregnir af meiðslum hennar en liðið hefur búið sig af kappi undir undanúrslitaleikina við Frankfurt í UEFA-keppninni. Liðið hafi æft átta sinnum í viku í vetur og hún sjálf í betri æfingu en nokkru sinni fyrr og sá hún fram á einhverja stærstu leiki á sínum ferli. „Lið Frankfurt er uppistaðan í þýska landsliðinu um þessar mundir,“ segir Ásthildur en Þjóðverjar eru núverandi heims- meistarar í knattspyrnu kvenna. „Svona eru íþróttirnar, það getur verið stutt á milli. Fyrir meiðslin var ég í góðum málum og sá fram á spennandi tíma, nú er útlit fyrir að ég verði frá keppni í eitt ár,“ segir Ásthildur Helgadóttir, knattspyrnu- kona og landsleikjahæsti og marka- hæsti leikmaður íslenska landsliðs- ins. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í knatt- spyrnu, hefur verið lykilmaður liðsins undanfarin ár. Blóðtappi í kálfa tefur fyrir bata hjá Ásthildi Helgadóttur knattspyrnukonu ÓLÁNIÐ eltir knattspyrnukonuna Ásthildi Helgadóttur um þessar mundir. Á síðasta laugardag slitnaði krossband í hægra hné hennar í landsleik gegn Skotum og tveimur dögum síðar fékk hún blóð- tappa í hægri kálfann sem leiðir til þess að fresta verður aðgerð vegna slitna krossbandsins fram á sumar. Þá verður hún að taka blóðþynningarlyf næstu mánuði til þess að ráða niðurlögum blóð- tappans og koma í veg fyrir að hann geri vart við sig að nýju. Þetta samanlagt gerir að verkum að Ásthildur verður örugglega eitt ár frá keppni en framundan var spennandi ár hjá henni á vellinum. Eftir Ívar Benediktsson Snæfell lagði Njarðvík GEYSILEG gleði braust út í Stykkishólmi í gærkvöldi þegar lið Snæ- fells lagði sterkt lið Njarðvíkinga í fyrstu viðureign liðanna í undan- úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik, 97:87. Stemn- ingin var mikil fyrir leikinn og ekki spillti að leikurinn í Stykkishólmi var sýndur beint í sjónvarpi í fyrsta sinn – á Sýn. Umgjörðin í kring- um leikinn var frábær, ljósin slökkt í salnum þegar lið Snæfells var kynnt og myndum af leikmönnum liðsins varpað upp á risastórt tjald um leið og þeir voru kynntir. Áhorfendur voru vel með á nót- unum og öll stemningin hjálpaði heimamönnum. Ríkharður Hrafnkelsson skrifar Aðgerð dregst fram á sumar „ÞAÐ er styrkleiki hjá okkur hvað við höfum oft haldið góðri einbeit- ingu í lok leikja í vetur – og oftar en ekki unnið leikina með góðum leik í fjórða fjórðungi. Við erum sterkir á endasprettinum – aðal styrkleiki Snæfells hefur oft á tíðum verið varnarleikurinn, eins og kom í ljós á lokakaflanum í leiknum gegn Njarðvík,“ sagði Bárður Eyþórs- son, þjálfari Snæfells. Á þessum kafla var vörnin hjá Snæfelli mjög góð og gekk gestunum illa að kom- ast í gegnum hana, nema Brenton Birmingham, en við hann réðu heimamenn ekki neitt. Í síðar hálf- leik var eins og samherjar Brentons hefðu mestu ánægjuna af því að horfa á hann í sókninni. „Þá er fyrsta skrefinu lokið og það næsta bíður okkar á sunnudag- inn í Njarðvík. Stemmningin hér í Hólminum er frábær, öll umgjörðin í kringum körfuboltann er stórkost- leg og það er frábært að vera þátt- takandi í þessu,“ sagði glaðbeittur þjálfari Snæfells. „Erum sterkir á endasprettinum“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.