Morgunblaðið - 20.03.2004, Side 79
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 79
Stjarnan kom á óvart fyrir jól með því að komast íúrvalsdeildina og lofaði góðu í fyrstu leikjum
hennar. Virtist þá til alls líkleg. En nú er ævintýrið
úti og úr þessu verður áttunda og síð-
asta sætið án efa hlutskipti Garðbæ-
inga. Þrír af lykilmönnunum voru ekki
með, Arnar Jón Agnarsson er hættur,
að sögn Sigurðar Bjarnasonar þjálf-
ara, og þeir Gunnar Ingi Jóhannsson og David Kek-
elia léku ekki í gærkvöld vegna meiðsla. Fyrir
skömmu lagði Gústaf Bjarnason skóna á hilluna og
Sigurður getur ekki spilað sjálfur þar sem hann er
meiddur. Að auki er Vilhjálmur Halldórsson hand-
arbrotinn þó hann harki af sér og taki þátt í sókn-
arleik liðsins.
„Það er lítið hægt að gera í svona stöðu en ég tek
að sjálfsögðu á mig alla ábyrgð,“ sagði Sigurður
Bjarnason við Morgunblaðið. Hann reyndi ýmislegt
til að halda aftur af Haukunum, tók leikhlé eftir fjór-
ar mínútur þegar staðan var 4:0 og prófaði „maður á
mann“-vörn í fyrri hálfleik, en allt kom fyrir ekki.
Guðmundur Guðmundsson var bestur Stjörnumanna,
sýndi góða takta í síðari hálfleik, og markverðirnir
náðu að verja 20 skot þrátt fyrir allt.
Þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson, Robertas Pauzuolis,
Birkir Ívar Guðmundsson, Vignir Svavarsson og Þor-
kell Magnússon voru aðeins með fyrstu 20 mínútur
leiksins en varamenn þeirra juku forskotið jafnt og
þétt. Andri Stefan var sá eini úr byrjunarliðinu sem
kom við sögu að ráði í seinni hálfleik. Haukarnir
skoruðu úr 17 hraðaupphlaupum, fengu 13 vítaköst,
og allir 12 útileikmenn þeirra skoruðu. Síðastur til
þess varð Aliaksandr Shamkuts úr vítakasti á loka-
mínútu leiksins.
Leikur liðanna verður seint talinn eftirminnilegur enþrátt fyrir að vera ekki sérlega vel leikinn var hann
ágætis skemmtun; enda mikil barátta og jafnt á með lið-
unum lengst af. Grótta/KR byrjaði bet-
ur, vörnin náði að loka vel á helstu vopn
KA í sókninni, þá Arnór og Andrius, en
til að vega upp á móti því skoraði Jón-
atan Magnússon fjögur góð mörk í fyrri
hluta hálfleiksins. Um miðjan hálfleikinn fór að losna um
áðurnefnda Arnór og Andrius og þá komust heimamenn
yfir. Náðu mest þriggja marka forskoti en í leikhléi var
staðan 18:16 KA í vil. Konráð Olavsson kom inn á í liði
Gróttu/KR undir lok fyrri hálfleiks og skoraði tvö góð
mörk. Hann hélt uppteknum hætti eftir hlé og var lang-
besti leikmaður gestanna. Skoraði átta mörk í hálfleikn-
um og náði með klókindum sínum að vaða gegnum göt-
ótta vörn heimamanna nánast eins og honum sýndist.
Forysta KA var lengst af 3–4 mörk en nokkur spenna
hljóp í leikinn í lokin þegar fámennt var orðið í liðum
vegna brottvísana. Sigur KA var aldrei í hættu og
Grótta/KR minnkaði muninn í 1 mark á lokasekúndunni.
Arnór Atlason var atkvæðamestur KA-manna í leikn-
um en skotnýting hans hefur oftast verið betri. Það sýnir
þó hvað í hann er spunnið að hann lagði ekki árar í bát
þótt nokkur skot færu forgörðum, hélt sínu striki og kom
sterkur inn í lokin. Einar Logi Friðjónsson skoraði mik-
ilvæg mörk, þrátt fyrir að lítið færi fyrir honum lengst af,
en Jónatan Magnússon sást ekki í seinni hálfleik eftir að
hafa dregið vagninn í þeim fyrri.
Áður hefur verið minnst á frammistöðu Konráðs
Olavssonar í liði gestanna en auk hans voru Brynjar
Hreinsson og Kristinn Björgúlfsson atkvæðamiklir í
fyrri hálfleik. Konráð var ekki alls kostar sáttur við leik
Gróttu/KR í leiknum og sagði að þeir hefðu lagt upp með
að spila sterkan varnarleik, ná góðri markvörslu og
hraðaupphlaupum. „Við gerðum þetta bara aldrei í dag,
því miður,“ sagði Konráð.
„Okkur gekk alveg bölvanlega að ná tökum á vörninni
allan leikinn og þrátt fyrir að við spiluðum ágætlega í
sókninni þá héldum við þeim inni í leiknum með þessari
lélegu vörn. En ég er gríðarlega ánægður með að hafa
náð þessum stigum, Grótta/KR er með hörkulið og síst
lakari en ÍR og Haukar.Ég yrði mjög hissa ef þeir kæm-
ust ekki í úrslitakeppnina,“ sagði Jóhannes þjálfari KA.
Framarar höfðu undirtökin allantímann. Þeir náðu fljótlega í síð-
ari hálfleik tíu marka forskoti en þá
var eins og Valsmenn
vöknuðu af vondum
draumi. Framarar
gerðust værukærir
og hugsuðu fyrst og
fremst um að verja forskot sitt en
Valsarar tóku sig taki og þá sérstak-
lega í vörninni. Þeir tóku tvo leik-
menn Fram úr umferð og við það
hrökk sóknarleikur Framara í baklás
og það færðu Hlíðarendapiltar sér í
nyt. Þeir söxuðu jafnt og þétt á for-
skotið og náðu að hleypa óvæntri
spennu í leikinn þegar þeim tókst að
minnka muninn niður í þrjú mörk,
24:21, sjö mínútum fyrir leikslok.
Nær komust Valsmenn hins vegar
ekki og Framarar fögnuðu góðum
sigri á grönnum sínum.
„Þetta var feikilega mikilvægur
sigur og þó svo að ég hafi ekki verið
fyllilega sáttur við hversu menn slök-
uðu mikið á í síðari hálfleik þá get ég
ekki verið annað en ánægður. Það
sem gerðist í síðari hálfleik var að við
vorum oft og iðulega manni færri og
strákarnir hættu nánast að horfa á
markið og ætluðu greinilega að verja
forskotið. Það bíður hins vegar bara
hættunni heim en sem betur fer héld-
um við haus í lokin. Það hefur verið
fínn gangur á liðinu eftir bikarúrslita-
leikinn og nú er bara að fylgja þessu
gegn Haukum á sunnudaginn,“ sagði
Heimir Ríkarðsson, þjálfari Fram.
Sterkur varnarleikur og góð mark-
varsla Egidijusar Petkivicius lagði
öðru fremur grunninn að sigri Fram-
ara. Þeir bláklæddu léku agaðan og
sóknarleik í fyrri hálfleik og framan
af síðari þar sem Valdimar Þórsson
var í lykilhlutverki en síðustu 20 mín-
úturnar voru slakar af hálfu Framara
og ef ekki hefði komið til góð mark-
varsla Litháans þá hefði Valur jafnvel
getað saumað enn frekar að Fröm-
urum.
Valsmenn voru mjög daufir í 40
mínútur en í vonlausri stöðu gyrtu
þeir sig í brók og björguðu þar með
andlitinu. Sóknarleikur Valsvar slak-
ur – byggðist upp á gegnumbrotum
og tilviljanakenndum leik en baráttan
í vörninni skilaði því að þeim tókst að
gera leikinn spennandi á lokamínút-
unum. Enginn stóð upp úr í Hlíðar-
endaliðinu, sem saknaði sárt Mark-
úsar Mána sem er handlama, og þá
eru Bjarki Sigurðsson og Roland
Eradze enn frá vegna meiðsla.
BRYNJAR Björn Gunnarsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu, er
kominn á nýjan leik í herbúðir
Stoke City. Hann komst að sam-
komulagi við forráðamenn Forest
síðsdegis í gær um að fara til Stoke
að láni í einn mánuð og Stoke hefur
síðan möguleika á að framlengja
dvöl Brynjars út leiktíðina. Brynjar
verður í leikmannahópi Stoke í dag
sem tekur á móti WBA en Stoke er í
tólfta sæti 1. deildarinnar og á enn
möguleika á að komast í auka-
keppni fjögurra liða um laust sæti í
úrvalsdeildinni.
Brynjar yfirgaf Stoke síðastliðið
vor eftir þriggja og hálfs árs dvöl
hjá félaginu og gerði árs samning
við Forest. Hann var í byrjunarlið-
inu til að byrja með en undanfarna
mánuði hefur hann lítið fengið að
spreyta sig og fékk í það heila að-
eins að spreyta sig í 14 leikjum liðs-
ins, þar af tíu sinnum í byrjunarlið-
inu. „Ég er feginn að vera laus frá
Forest og að vera kominn aftur á
fornar slóðir. Tíminn undir það síð-
asta hjá Forest var ansi erfiður en
núna vona ég að bjartari tímar séu
framundan. Ég þekki vel til hjá
Stoke og vonandi næ ég að vinna
mér sæti í liðinu sem allra fyrst og
spila vel þá leiki sem eftir eru,“
sagði Brynjar Björn við Morg-
unblaðið í gær en Brynjar var feiki-
lega vinsæll hjá stuðningsmönnum
Stoke þegar hann lék með því.
Brynjar var keyptur til Stoke fyrir
metfé, 600.000 pund, árið 1999 og
lék 131 leik með félaginu og skor-
aði í þeim 16 mörk áður en hann
skipti yfir til Forest.
Brynjar Björn er aftur
kominn til Stoke
ÍBV náði í gær samkomulagi við
Bandaríkjamanninn Mark Schulte
um að hann leiki með Eyjamönnum í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í sum-
ar. Schulte var til reynslu hjá ÍBV á
dögunum og þótti hann standa sig
það vel að Eyjamenn gerðu honum
tilboð sem hann svaraði jákvætt í
gær. Schulte er 26 ára gamall hávax-
inn varnarmaður sem leikið hefur
með Minnesota Thunder í heima-
landi sínu.
IAN Jeffs, enski miðjumaðurinn
sem lék með ÍBV á síðustu leiktíð og
er á mála hjá Crewe, verður með
Eyjamönnum í sumar. Jeffs lék 16
leiki með ÍBV-liðinu á síðustu leiktíð
og skoraði 3 mörk.
TOM Betts, sem eins og Jeffs var í
láni hjá ÍBV frá Crewe á síðustu
leiktíð, hefur ekki gert upp hug sinn
hvort hann komi aftur en Eyjamenn
vilja fá hann aftur í sínar raðir. Betts
lék alla 18 leiki ÍBV í stöðu miðvarð-
ar síðasta sumar og skoraði 1 mark.
GUNNAR Heiðar Þorvaldsson
framherji ÍBV í knattspyrnu fer ekki
til reynslu til norska úrvalsdeildar-
liðsins Sogndal í næstu viku eins og
til stóð. Sogndal hefur tilkynnt ÍBV
að það hafi fengið annan sóknar-
menn til liðs við sig.
SARA Jónsdóttir féll úr leik í 1.
umferð í einliðaleik á opna franska
meistaramótinu í gær. Sara mætti
Brendu Beenhakker frá Hollandi og
tapaði, 3:11, 13:10 og 6:11.
ERLA Dögg Haraldsdóttir úr ÍRB
setti stúlknamet í 200 metra fjór-
sundi á Innanhússmeistaramótinu í
sundi í Vestmannaeyjum sem hófst í
gær. Erla synti vegalengdina á
2.20.02 mínútum og bætti met Kol-
brúnar Ýrar Kristjánsdóttur. Tími
Erlu er undir lágmarki á Evrópu-
mótið í 50 metra laug sem haldið
verður í Madríd í maí en samkvæmt
reglum Sundsambands Íslands er
hún of ung til að keppa á því móti.
ÖRN Arnarson, ÍRB, og Kolbrún
Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, unnu bæði til
tvennra gullverðlauna í gær. Örn
sigraði í 50 m flugsundi og 50 m
skriðsundi og Kolbrún vann sömu
greinar hjá konunum.
SINDRI Már Pálsson, skíðamaður
úr Breiðabliki, varð í 21. sæti af 107
keppendum á stigamótið í risasvigi í
Noregi í gær. Björgvin Björgvins-
son, Kristinn Ingi Valsson, báðir frá
Dalvík og Kristján Uni Óskarsson,
Ólafsfirði, kepptu einnig á mótinu en
tókst ekki að ljúka keppni. Þá varð
Guðrún Jóna Arinbjarnardóttir,
Víkingi, í 24. sæti af 45 keppendum í
risasvigi kvenna.
ÍTALSKI hjólreiðarmaðurinn
Marco Pantani sem lést á hótelher-
bergi á Rímíní 14. febrúar síðastlið-
iðinn lést af af völdum notkunar á
kókaíni. Krufning leiddi þetta í ljós.
FÓLK
Fáheyrðir
yfirburðir
Hauka
VÆNGBROTIÐ Stjörnulið hafði ekkert í hend-
urnar á Haukum að gera þegar liðin mættust í Ás-
garði í gærkvöld. Haukar komust í 13:1 og 21:3 í
fyrri hálfleiknum, staðan í hléi var 25:6, og loka-
tölur urðu 46:20. Stærstu tölur sem sést hafa í
efstu deild í manna minnum, og að sjálfsögðu
margfalt met í hinni nýju úrvalsdeild. Samt kipptu
Haukar byrjunarliðinu af velli nokkru áður en fyrri
hálfleikur var úti og Páll Ólafsson þjálfari þeirra
leyfði hinum að spreyta sig leikinn á enda.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
Fram á
siglingu
FRAMARAR eru á góðri siglingu
í úrvalsdeildinni í handknattleik
en sigur þeirra á Val, 27:23, var
sá fimmti í síðustu sex leikjum
og með honum nánast gull-
tryggði Safamýrarliðið sér sæti í
úrslitakeppninni. Valsmenn
halda þó enn toppsætinum,
hafa stigi meira en KA en Fram-
arar sigla lygnan sjó.
Morgunblaðið/Sverrir
Hafsteinn Anton Ingason, góður leikmaður Fram, hefur brotið sér leið í gegnum vörn Vals.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
KA styrkti stöðu sína í efri hluta úrvalsdeild-
arinnar í handbolta með naumum sigri á Gróttu/
KR á Akureyri í gærkvöld. Leikurinn var í járnum
lengst af, KA þó nánast alltaf með yfirhöndina en
gekk illa að hrista gestina af sér. Lokatölur urðu
33:32 KA í vil og Grótta/KR verður þar með enn
að berjast fyrir sæti í úrslitakeppninni.
Valur
Sæmundsson
skrifar
KA-sigur