Morgunblaðið - 03.04.2004, Síða 16
ÚR VERINU
16 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VILTU EIGA FRÁBÆR AUGNABLIK?
ALVÖRU SAMSUNG DIGITAL VIDEOVÉL VP-D20
Stærð 58,5x90x156mm
Mini DV með LCD skjá 2,5 Zoom 10/800
0 Lux og hristivörn (Bild stabillisator)
FireWire og einnig DV út
Ljósmyndir á DV spóluna
Verð: 54.990
DVD-E232 með EQ
Myndbreytir (16:9/4:3) einn takki framan á tækinu
Spilar DVD-R, +RW, -RW, JPEG & MP3
Spilar diska frá öllum svæðum
Vandaður spilari fyrir Digital ljósmyndir
EQ og myndin passar á öll sjónvörp
Verð: 14.990
CW-29M66V
29“ 100Hz með flötum myndlampa
2x20W magnari og textavarp
2 scart ásamt videóvélatengi
Alveg flatur myndlampi
Verð: 89.900
ALVEG FLATUR SKJÁR OG ÓTRÚLEGT VERÐ SJÓNVARP TX-20P14X
20“ sjónvarp með Mono videó
NTSC afspilun
RCA að framan. Scart tengi. Sjálfv. stöðval.
Vandað 20“ sjónvarp og video
og verðið það skemmir ekki
Verð: 34.990
FRÁBÆR TILBOÐ VELDU GÆÐI, VELDU
Eico Skútuvogi 6 s: 570 4700 • Keflavík: Ljósboginn s: 421 1535 • Akranes: Model s: 431 3333 Hljómsýn s: 430 2500
Ísafjörður: Straumur s: 456 3321 • Sauðárkrókur: Rafsjá s. 453 5381 • Siglufjörður: S.R. Byggingavörur s: 467 1559
Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar s: 464 1234 • Eskifjörður: H.S. Raf s: 476 1170
Selfoss: Árvirkinn s: 480 1160 • Vestmannaeyjar: Eyjaradio s: 481 2182
HT-DB120
Heimabíó 5x30W + 50RMS W bassabox
DVD spilari og útvarp
Spilar DVD-R, +RW, -RW, RAM, JPEG & MP3
Spilar diska frá öllum svæðum
Myndbreytir og vinnslur fyrir Digital ljósm.
Verð: 39.900
ALVÖRU SAMSUNG HEIMABÍÓ SV-DVD40
DVD spilari og 6 hausa Nicam Stereo video
Videovélatengi að framan og hljóðútgangur
2 Scart tengi og sjálfvirk stöðvaleitun
DVD spilari sem spilar allt
EQ myndbreytir (16:9/4:3)
Topp video og DVD spilari á frábæru verði
Verð: 29.990
og Vísis haf lengi talað saman og rætt
um samstarf, en segja má að salan á
starfsemi Festar frá Djúpavogi hafi
flýtt fyrir þeirri nánu samvinnu, sem
nú er að verða að veruleika, því með
henni var grunninum kippt undan
starfsemi Vísis þar. Félagar Péturs í
Vísi, S-hópurinn svokallaði, með Ker í
fararbroddi kom nokkuð aftan að
Pétri við þessi viðskipti og verður það
vafalítið til þess að tengslin við SÍF
trosni að minnsta kosti.
Ýmsir kostir
Vísir er með starfsemi á Þingeyri,
Fiskvinnsluna Fjölni hf, á Húsavík í
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur og Íshafi,
Búlandstind á Djúpavogi auk höfuð-
stöðvanna í Grindavík. Samherji er á
Akureyri, Dalvík, Þórshöfn (tæplega
50% í Hraðfrystistöð Þórshafnar),
Stöðvarfirði og Grindavík, auk starf-
semi tengdri fiskeldi. Fyrir utan sam-
MARKMIÐ Samherja við sölu afurða
sinna hefur alla tíð verið einfalt. Að
fara þá leið sem bezt gefur, frekar en
að binda sitt trúss við einn ákveðinn
aðila. Það er auðvitað markmið allra
framleiðenda að fá sem mest út úr
vinnslunni og með það að markmiði
hefur Vísir verið bundinn SÍF sterk-
um tengslum afar lengi, og meðal
annars sat Pétur H. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vísis, í stjórn SÍF í
rúman áratug.
Nú er hafin víðtæk samvinna þess-
ara tveggja fyrirtæka, sem nær yfir
allt sviðið frá veiðum til vinnslu og
markaðsfærslu. Fyrirtækin eru þeg-
ar farin að vinna saman við nýtingu
veiðiheimilda þeirra, og mesta breyt-
ingin verður líklega þegar skip Sam-
herja taka að veiða síldarkvóta Vísis,
en þeir voru áður nýttir í samvinnu
við Festi hf., sem verið er að selja til
þriggja aðila. Stjórnendur Samherja
nýtingu veiðiheimilda, eru miklir
möguleikar í sérhæfingu og samvinnu
í vinslunni. Þannig má hugsa sér í
stórum dráttum að vinnsla á þorski,
bæði ferskum og frystum yrði á Dal-
vík, ýsa yrði unnin á Húsavík, aðrar
tegundir á Stöðvarfirði og síldin síðan
fryst og söltuð á Djúpavogi auk bol-
fiskvinnslu. Þá má búast við sam-
vinnu á ýmsum sviðum í Grindavík,
en þar yrði þorskurinn saltaður og þá
líklega valinn til þess stærsti og verð-
mætasti fiskurinn. Einnig kæmi þar
til greina samvinna við vinnslu á upp-
sjávarfiski til manneldis.
Breytingar framundan
Eins og áður sagði hefur Vísir verið
bundinn SÍF traustum böndum. SÍF
hefur selt nánast allar afurður félags-
ins, nema þann ferska fisk, sem verið
hefur unnin í vaxandi mæli. Dóttur-
fyrirtæki Samherja, Seagold í Bret-
landi, hefur selt þann freska fisk, sem
þangað hefur farið, en Kambanes
ferska fiskinn sem hefur farið vestur
um haf. Á þessu kunna að verða ein-
hverjar breytingar. Ljóst virðist að
vinnsla á ferskum fiski aukist og hann
fari þá í gegnum Seagold að stærstum
hluta.
Vísir á öll þau fyrirtæki sem hann
kemur að, að öllu eða nánast öllu leyti
nema Íshaf á Húsavík, sem er í
rækjuvinnslu. Þar á Vísir 40%. Þrátt
fyrir að Samherji sé í rækjusölu, með-
al annars til Bretlands, eru meiri líkur
en minni á því að rækja Íshafs verði
áfram seld í gegnum SÍF. Öðru vísi
kann að fara með landfrystu afurð-
irnar, líklegt má teljast að þær fari í
gegnum núverandi sölukerfi Sam-
herja, einkum síldin. Saltfiskurinn
verður líklega áfram hjá SÍF til að
byrja með, hvað sem verða kann.
Samherji selur megnið af sínum af-
urðum sjálfur, en hefur þó átt og á
samstarf við stóru fyrirtækin tvö, SH
og SÍF. Samherji selur alla frysta síld
og loðnu í samvinnu við Síldarvinnsl-
una. SR Mjöl selur mjölið og lýsið
enda sterk eignartengsl milli fyrir-
tækjanna, Nes hf. selur allar afurðir
Samherja til Austurlanda og Seagold
selur það sem fer til Bretlands, bæði
ferskt og fryst. Í rækjunni hefur
Samherji svo verið í samvinnu við
Royal Greenland. Samherji hefur selt
mjög lítið af fiskafurðum til Banda-
ríkjanna, en þær hafa ýmist verið
seldar af fyrirtækinu sjálfu eða farið í
gegnum SÍF.
Verulegur akkur
Báðum fyrirtækjunum er veruleg-
ur akkur af samstarfinu. Saman
standa þau betur uppi í hárinu á hin-
um geysiöflugu kaupendum ytra og
geta verið í milliliðalausum viðskipt-
um við verzlunarkeðjurnar. Saman
eru þau með nánast allar sjávarafurð-
ir, sem framleiddar eru á Íslandi og
allar fisktegundir nema humar. Það
er líka mikill kostur fyrir sölukerfi
Samherja að fá inn til sín öflugustu
línuútgerð landsins, þar sem stjórn-
endur margra stórmarkaðanna telja
línufiskinn afar góða söluvöru, enda
sé fiskurinn veiddur á vistvænan hátt
og hráefnið frábært. Í stað þess að
Samherji færi út í útgerð línuskipa til
að sinna spurn eftir línufiski, er málið
leyst með samvinnu við þá sem kunna
bezt til verka. Þá má leiða að því lík-
um að breytingar á skipastól fyrir-
tækjanna gætu orðið einhverjar í tím-
ans rás.
Það er alveg ljóst að þessi sam-
vinna styrkir fyrirtækin og greiðir
þeim leið inn á markaðina án kostn-
aðarsamra milliliða. Samvinna af
þessu tagi á líklega eftir að sjást víðar
í íslenzkum sjávarútvegi, en frekari
sameiningar stórra fyrirtækja verða
líklega sjaldséðari í nánustu framtíð.
Margvísleg hagræðing af
samstarfi Vísis og Samherja
Ljósmynd/HG
Flökin Fersk flök skipa æ stærri
sess í útflutningi Samherja og Vísis.
Fréttaskýring | Samherji og Vísir kynntu í
vikunni náið samstarf félaganna á öllum
sviðum starfseminnar. Hjörtur Gíslason
kannaði í hverju slík samvinna gæti verið
fólgin og er niðurstaðan sú að fjölþætt sam-
vinna muni styrkja stöðu þeirra verulega.
GRÁSLEPPUVEIÐAR máttu hefj-
ast í Faxaflóa og í utanverðum
Breiðafirði um mánaðamót en
slæmt veður hamlaði því að grá-
sleppukarlar legðu net sín fyrsta
daginn. Landssamband smábátaeig-
enda og sjávarútvegsráðuneytið
hafa hvatt veiðimenn til að taka tillit
til æðarfugls við veiðar sínar.
Á undanförnum árum hefur Æð-
arræktarfélag Íslands haft nokkrar
áhyggjur af því að æðarfugl flækist
í grásleppunet og drepist. Á síðasta
ári hófust grásleppuveiðar í Faxa-
flóa 1. apríl eða þremur vikum fyrr
en árin þar á undan. Í samræmi við
tillögur Landssambands smábáta-
eigenda hafði ráðherra ákveðið, að
upphafsdagur vertíðarinnar yrði
hinn sami í ár.
Eftir að sú ákvörðun lá fyrir kom
fram áskorun frá Æðarræktarfélagi
Íslands um að upphafi veiðitíma fyr-
ir grásleppuveiðar yrði breytt aftur
til sama tíma og verið hafði á fyrri
vertíðum. Telja æðarræktendur að
það, ásamt ýmsum náttúrulegum
þáttum, hafi haft þau áhrif að færri
æðarkollur skiluðu sér til varps
heldur en búast mátti við. Ráðu-
neytið hafnaði þeirri tillögu á þeim
forsendum, að ekki væri ástæða til
að takmarka grásleppuveiðar í öll-
um Faxaflóa til verndar æðarfugli,
auk þess sem ráðuneytið hafði þeg-
ar tilkynnt ákvörðun sína um upp-
hafstíma. Í framhaldi af þessu urðu
nokkrar umræður um hvort unnt
yrði að takmarka veiðar til 1. maí á
innanverðum Faxaflóa en á þeim
stutta tíma sem til stefnu var náðist
ekki að finna þá lausn sem báðir að-
ilar gætu fallist á.
Á vef Landssambands smábáta-
eiegnda kemur fram að grásleppu-
veiðimenn hafi reynt með ýmsum
hætti að hindra að æðarfugl flækist
í grásleppunet, en þrátt fyrir það
slæðist alltaf einn og einn fugl í net-
in, veiðimönnum til sárrar gremju
þar sem veiðanleiki þeirra minnkar
þegar slíkt hendir. Á vefnum segir
að grásleppuveiðimenn taki undir
hinar náttúrulegu aðstæður og
benda m.a. á mikla aukningu á
veiðibjöllu sem sé mjög aðgangs-
hörð við kolluna. Aftur á móti segja
þeir að færsla veiðitímans á sl. ári
hafi ekki orðið til þess að fleiri æð-
arkollur flæktust í grásleppunet.
Veiðimenn hafi hins vegar fullan
skilning á áhyggjum æðarræktenda
og vilja ýmislegt á sig leggja til að
koma til móts við þá. Þeir telja það
hins vegar ekki koma til greina að
verða við tillögum þeirra að hefja
ekki veiðar fyrr en 1. maí.
Í framhaldi af þessu hafa Lands-
samband smábátaeigenda og sjáv-
arútvegsráðuneytið sent tilmæli til
allra grásleppuveiðimanna sem
leyfi hafa til veiða í Faxaflóa þar
sem grásleppuveiðimenn eru ein-
dregið hvattir til að leggja ekki net
sín nær landi en 250 metra og ekki
nær friðlýstu æðarvarpi en 300
metra, miðað við stórstraumsfjöru-
borð, eins og kveðið er á um í lög-
um. Þá er skorað á grásleppu-
veiðimenn að kynna sér aðstæður
allar og taka tillit til hagsmuna
þeirra aðila sem æðarrækt stunda.
Verður fylgst með því hvernig þess-
um tilmælum verður fylgt og tekið
tillit til þess við skipan grá-
sleppuveiða á næsta ári.
Morgunblaðið/RAX
Kollan Snemma vors gengur æðurin á land í auknum mæli og vill þá stund-
um flækjast í netum. Grásleppukarlarnir reyna nú að sporna við því.
Grásleppukarlar
gæti að æðarfugli