Morgunblaðið - 03.04.2004, Qupperneq 20
ERLENT
20 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLÆRBLÓM•BLÓMLAUKAR•MATJURTIR•TYRFING•SÁNING
Garðyrkjumeistarinn ehf., útgáfa og ráðgjöf
„Allt sagt í bókinni.
Garðyrkjubiblían mín.”
Rannveig Þorsteinsdóttir
garðyrkjuáhugakona.
U
P
P
E
L
D
I
•
Á
B
U
R
Ð
U
R
•
J
A
R
Ð
V
E
G
U
R
•
V
Ö
K
V
U
N
•
L
ÍF
R
Æ
N
R
Æ
K
T
U
N
„Falleg bók og fróðleg, vel skrifuð,
vel fram sett, mæli með henni.”
Ólafur B. Guðmundsson fyrrv. ritstjóri
Garðyrkjurits Garðyrkjufélags Íslands.
„Okkar viðskiptavinir hrósa
bókinni bæði vinstri og hægri.
Það gerum við líka!”
Garðyrkjustöð
Ingibjargar Sigmundsdóttur, Hveragerði.
„Hafsjór af upplýsingum í orði
og myndum frá fagmanni.”
Lára Jónsdóttir,
garðyrkjufræðingur í Blómavali.
„Greinargóðar upplýsingar,
agaður texti, öguð bók.”
Hafsteinn Hafliðason
garðyrkjusérfræðingur.
Á TOPP TÍU Á FYRSTU SÖLUVIKUM !
TRÉ-RUNNAR • TRJÁKLIPPINGAR • GRÓÐURSETNING • FRÆSÖFNUNF
J
Ö
L
G
U
N
•
S
U
M
A
R
B
Ú
S
T
A
Ð
A
L
A
N
D
IÐ
•
S
K
Ó
G
R
Æ
K
T
•
S
U
M
A
R
B
L
Ó
M
BANDARÍSKIR embættismenn
vissu nokkrum mánuðum fyrir árás-
irnar á Bandaríkin 11. september
2001 að hryðjuverkasamtökin al-
Qaeda hygðust beita flugvélum til að
fremja hryðjuverk, að sögn fyrrver-
andi þýðanda bandarísku alríkislög-
reglunnar, FBI.
Sibel Edmonds, sem þýddi skjöl og
upptökur á símtölum sem voru hler-
uð, hélt þessu fram í viðtali í breska
dagblaðinu The Independent í gær.
Hún sagði að staðhæfing Condol-
eezza Rice, þjóðaröryggisráðgjafa
Bandaríkjaforseta, um að slíkar upp-
lýsingar hefðu ekki komið fram fyrir
hryðjuverkin væri „svívirðileg lygi“.
„Fram komu almennar upplýsing-
ar um tímarammann, um aðferðirnar
sem beita átti – en ekki sérstaklega
um hvernig þeim yrði beitt – og um
fólk sem væri til staðar og gæfi fyr-
irmæli um slík hryðjuverk,“ sagði
Edmonds. „Aðrar borgir voru nefnd-
ar. Stórborgir – með skýjakljúfa.“
Edmonds bætti við að í ljósi þeirra
gagna sem hún þýddi fyrir FBI væri
„óhugsandi“ að bandarískir leyni-
þjónustumenn hefðu ekki fengið upp-
lýsingar fyrirfram um hryðjuverkin.
Bannað að ræða við fjölmiðla
The Independent segir að embætt-
ismenn í Hvíta húsinu hafi reynt að
þagga niður í Edmonds og fengið
dómstól til að banna henni að ræða
málið við fjölmiðla.
Edmonds hélt því fram í júlí að
embættismenn FBI hefðu af ásettu
ráði tafið þýðingar á skjölum, sem
varða hryðjuverkin, til að láta líta út
fyrir að alríkislögreglan hefði alltof
fáa þýðendur.
Edmonds er 33 ára, af tyrknesku
bergi brotin og var á meðal margra
þýðenda sem FBI réð fyrstu dagana
eftir hryðjuverkin. Hún sagði að ljóst
væri af þeim skjölum sem hún las að
nægar upplýsingar hefðu komið fram
vorið og sumarið 2001 um að hryðju-
verk væru í undirbúningi.
„Bush forseti sagði að engar upp-
lýsingar hefðu komið fram um 11.
september og það er rétt en aðeins
vegna þess að hann sagði 11. sept-
ember,“ sagði Edmonds. Hún bætti
við að samt sem áður hefðu komið
fram almennar upplýsingar um að
beita ætti flugvélum og að árásir yrðu
gerðar innan nokkurra mánaða.
Óskað eftir útskýringum
Edmonds kvaðst hafa skýrt banda-
rískri nefnd, sem rannsakar málið,
frá þessu á fundi sem haldinn var fyr-
ir luktum dyrum.
The New York Times skýrði frá því
í gær að rannsóknarnefndin hefði
beðið embættismenn í Hvíta húsinu
að útskýra hvers vegna þeir hefðu
hindrað að nefndin fengi skjöl frá for-
setatíð Bills Clintons um utanríkis-
stefnuna og baráttuna gegn hryðju-
verkastarfsemi.
Áður höfðu fyrrverandi ráðgjafar
Clintons kvartað yfir því að embætt-
ismenn í Hvíta húsinu hefðu neitað að
láta af hendi þrjá fjórðu þeirra skjala
sem Clinton vildi að rannsóknar-
nefndin fengi. Alls væru skjölin um
11.000 síður og á meðal þeirra væru
leynileg skjöl um baráttu stjórnar
Clintons gegn al-Qaeda.
Embættismenn í Hvíta húsinu
staðfestu að ýmis skjöl hefðu ekki
verið afhent. Scott McClellan, tals-
maður George W. Bush forseta, sagði
að nokkur skjalanna hefðu ekki verið
afhent vegna þess að þau væru mál-
inu óviðkomandi eða innihéldu upp-
lýsingar sem kæmu fram í öðrum
skjölum. Önnur hefðu ekki verið af-
hent vegna þess að þau væru „afar
viðkvæm“ og upplýsingunum yrði
komið á framfæri með öðrum hætti.
„Við tryggjum nefndinni aðgang að
öllum þeim upplýsingum sem hún
þarf til að inna verk sitt af hendi.“
Al Felzenberg, talsmaður rann-
sóknarnefndarinnar, sagði að hún
biði eftir útskýringum á ákvörðun
embættismannanna. „Við þurfum að
vera fullviss um að við fáum öll þau
gögn sem við óskum eftir.“
Fyrrverandi þýðandi FBI sakar bandaríska embættismenn um lygar
„Þeir vissu að al-Qaeda
hugðist beita flugvélum“
Komu í veg fyrir að rannsóknarnefndin fengi skjöl frá forsetatíð Bills Clintons
London. AFP.
Reuters
Condoleezza Rice þjóðaröryggisráðgjafi með George W. Bush forseta.
MÖRG þúsund manns komu saman
fyrir utan höfuðstöðvar bandaríska
hersins í Bagdad í gær og héldu
áfram að mótmæla því, að Banda-
ríkjamenn skyldu banna tímabundið
útgáfu vikublaðsins al-Hawsa al-Nat-
iqa, sem er í eigu róttæks sjítamúsl-
ímaklerks, Moqtada Sadr. Stuðnings-
menn hans hrópuðu slagorð gegn
Bandaríkjunum og kröfðust þess að
útgáfa blaðsins yrði hafin á ný.
Bandaríska herstjórnin í Írak setti
á sunnudaginn tveggja mánaða bann
á útgáfu blaðsins á þeim forsendum
að það hefði birt greinar „sem sýna
greinilegan vilja til að ógna almennu
öryggi og hvetja til ofbeldis gegn
hersetuliðinu og starfsfólki þess“.
Hundruð stuðningsmanna Sadrs hófu
mótmælastöðu við ritstjórnar-
skrifstofur blaðsins strax á sunnu-
dagskvöldið, og hefur mótmælaað-
gerðunum verið haldið áfram svo að
segja daglega síðan.
Mótmælin í gær voru þau fjöl-
mennustu, og sumir þátttakenda
báru eld að hvítum dúk sem Davíðs-
stjarnan hafði verið máluð á. Sadr
lýsti í gær yfir samstöðu sinni með
Hamas-samtökum Palestínumanna,
og sagðist sjálfur vera „barefli“ sam-
takanna í Írak, „vegna þess að örlög
Íraks og Palestínu eru samofin“.
Útgáfubanni mótmælt
Reuters
FLOKKAR jafnaðarmanna og
vinstrimanna Einingarlistans á
danska þinginu krefjast þess nú
að ríkisstjórnin geri grein fyrir
aðstæðum við sölu á úran-stöng
til Íraks árið 1986, að sögn Jyl-
landsposten í gær. Kaupandi
var íraska kjarnorkunefndin og
var ætlunin að nota efnið í til-
raunakjarnaofni. Ekki er talið
gerlegt að nýta það til að smíða
vopn.
Írakar reyndu ákaft á þessum
árum að smíða kjarnorku-
sprengju. Jafnaðarmenn segjast
ekki hafa miklar áhyggjur af
málinu en vilja samt láta kanna
hvort stjórn íhaldsmannsins
Poul Schlüters hafi farið eftir
gildandi reglum 1986. Einnig
hyggjast þeir biðja stjórnvöld að
kanna hvort Danir hafi ef til vill
selt stjórn Saddams Husseins í
Írak fleiri hluti sem hægt sé að
nota jafnt í friðsamleg verkefni
sem í hernaði. Einingarlistinn er
mun hvassyrtari og segir að
Danir hafi með viðskiptunum
skipað sér í hóp „útlagaríkja“ og
vilja ræða málið í fyrirspurna-
tíma á þingi.
Forsætisráðuneytið í Kaup-
mannahöfn hefur skýrt frá því
að kjarnorkurannsóknastöðin í
Risø hafi selt Írökum stöngina
sem er um 20 sentimetra löng og
105 grömm að þyngd. Stjórn-
völd gáfu leyfi fyrir sölunni eftir
að Írakar höfðu heitið því að
nota efnið eingöngu til friðsam-
legra rannsókna. Um er að ræða
úran sem búið er að auðga nokk-
uð og er það notað til að kanna
hvort brennsla í kjarnaofni hafi
gengið eðlilega fyrir sig.
Danir seldu
Írökum
úran-stöng
ATVINNA mbl.is