Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 30
LANDIÐ
30 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ísafjörður | Það leyndi sér ekki aðdáunin í
andliti krakkanna sem æfa skíðagöngu hjá
Skíðafélagi Ísfirðinga, þegar hinn sigursæli,
norski skíðagöngumaður Thomas Alsgaard,
mætti á æfingu hjá þeim og tók að sér kennsl-
una þann daginn. Í för með honum var önnur
hetja krakkanna, heimamaðurinn Ólafur Th.
Árnason, margfaldur Íslandsmeistari í göngu,
og sá hann um að snara yfir á íslensku því sem
Norðmaðurinn vildi koma á framfæri við
krakkana og eins að túlka fyrir þau enda ým-
islegt sem þurfti að spyrja meistarann um.
Alsgaard er reyndar hættur keppni meðal
þeirra bestu en alls vann hann sex gull á
heimsmeistaramótum og fjögur á Ólympíu-
leikum, auk þess að vinna stigakeppni heims-
bikarsins árið 1998. Hann er enn firnasterkur
skíðagöngumaður eins og áhorfendur á Skíða-
móti Íslands á Ísafirði fengu að sjá, bæði í
sprettgöngunni og eins í 15 km hefðbundinni
göngu þar sem hann kom í mark nokkuð á
undan Ólafi Th. Árnasyni sem var fyrstur Ís-
lendinganna í mark.
Skíðin verði eðlileg
framlenging af fótunum
Alsgaard byrjaði æfinguna með yngsta
hópnum, þ.e. 8 ára og yngri, og gekk með þeim
í brautinni jafnframt því sem hann sagði þeim
frá því þegar hann var að byrja á skíðum. Þá
æfði hann tvisvar í viku, rétt eins og þessi hóp-
ur, en bætti við að hann hefði samt leikið sér á
skíðum á hverjum einasta degi með vinum sín-
um.
Hann leggur mikla áherslu á leiki fyrir
þennan aldurshóp þannig að þau venjist skíð-
unum og líti nánast á þau sem eðlilega fram-
lengingu af fótunum. Auðvitað vildu krakk-
arnir fá að vita hvað leikjum hann hefði verið í
þegar hann var lítill og eftir að hann hafði sagt
þeim frá því, dreif hann hópinn með sér í
skíðastökk og var mikið fjör í brekkunni með-
an á því stóð.
Seinni hluta æfingarinnar gekk Alsgaard
með 9–12 ára hópnum og þeim sem eru 13 ára
og eldri, og fór með þeim yfir ýmis atriði skíða-
göngu. Meðal annars lagði hann mikla áherslu
á jafnvægi og sagði leiki vel til þess fallna að
æfa jafnvægið. Þótti krökkunum merkilegt að
vita til þess að í norska landsliðinu slepptu
menn því stundum að ganga og færu bara í
leiki, en það sagði Alsgaard einmitt vera mik-
ilvægan lið í jafnvægisþjálfun og svo væri líka
nauðsynlegt að hafa æfingarnar fjölbreyttar
og skemmtilegar.
Lögðu til að Alsgaard
flytti til Ísafjarðar
Að þessu sinni varð æfing dagsins heldur
lengri en venjulega en krökkunum fannst hún
þó of stutt og í yngsta hópnum mátti heyra til-
lögu þess efnis að Alsgaard flytti á Ísafjörð svo
hann gæti mætt oftar á æfingar með þeim.
Fjörinu var þó ekki fyllilega lokið, því að í
skíðaskálanum beið pitsuveisla og þá var tæki-
færið notað og Alsgaard beðinn um að árita
skíði, blöð, pappamál og allt sem nothæft var í
þeim tilgangi, auk þess sem ófáar myndir voru
teknar af kempunni.
„Honum fannst við rosagóð,“ sagði ein stutt
hnáta þegar Thomas Alsgaard var horfinn á
braut. Héldu síðan allir til síns heima, þreyttir
en í sjöunda himni eftir kynnin af norsku
skíðahetjunni.
Æfðu með margföldum ólympíu- og heimsmeistara
Morgunblaðið/Guðfinna M. Hreiðarsdóttir
Leikir og jafnvægi: Thomas Alsgaard og Ólafur Th. Árnason með yngsta hópnum sem æfir
göngu hjá Skíðafélagi Ísfirðinga. Alsgaard lagði áherslu á leiki og jafnvægi á æfingunum.
Hvolsvöllur | Nú hefur dómnefnd
valið nafn á ísbjörninn á Hótel
Rangá, en nýlega var efnt til sam-
keppni meðal grunnskólanema á
svæðinu um nafn á ísbjörninn.
Dómnefnd hefur valið úr tillögum
og var það hún Lea Birna Stef-
aníudóttir í 4. bekk Hvolsskóla sem
átti tillöguna að nafninu en hún vill
kalla ísbjörninn Hramm. Allur
bekkurinn hennar Leu fær verð-
laun en nemendunum verður boðið
út að borða á hótelinu.
Í áliti dómnefndar kom fram að
fjölmargar skemmtilegar tillögur
hefðu borist nefndinni. Lea Birna
fékk stóra mynd af birninum og á
henni sést vel skugginn af risastór-
um hrammi hans, þannig að nafnið
er vel til fundið. Svo skemmtilega
vill til að Lea heitir líka Birna en
það nefnast kvendýr bjarnarins.
Að sögn Elvu Jóhannsdóttur um-
sjónarkennara bekkjarins völdu
nemendur þrjár tillögur til að
leggja fram í keppnina. Allar til-
lögur voru skrifaðar á töfluna og
síðan kosið um þrjú nöfn, þ.e. Ísi,
Hrammur og Muggur. Þegar
krakkarnir fóru síðan í heimsókn á
hótelið fóru þau með þessar þrjár
tillögur og náðu þessum góða ár-
angri. Nú hlakka þau til að fá að
heilsa aftur uppá Hramm og snæða
dýrindis máltíð á hótelinu.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Lea Birna Stefaníudóttir sem átti
tillögu að nafni ísbjarnarins á Hótel
Rangá, heldur á mynd af Hrammi.
Hrammur
skal hann
heita
Borgarnes | Úrslit réðust í marsmánuði í spurn-
ingakeppni UMSB sem fram fór á Hótel Borg-
arnesi. Þar mættu þau fjögur lið sem eftir voru úr
annarri umferð og voru það Humar- og Álafélagið,
Borgarfjarðarsveit, KB banki og Jörvi. Leikar
fóru þannig að Humar- og Álafélagið og Jörvi
kepptu til úrslita. Lið Jörva vann, eins og árið áð-
ur, með 25 stigum gegn 16.
Lið Jörva, sem er verktakafyrirtæki gert út frá
Hvanneyri, skipuðu Haukur Júlíusson, Hvanneyri,
Ólafur Jóhannesson, Hóli, og Þorsteinn Magn-
ússon, Gilsbakka. Verðlaun fyrir fyrsta og annað
sæti voru bókin Íslendingar á Ólympíuleikum eftir
Gísla Halldórsson en ÍSÍ gaf þessi verðlaun, að
auki fékk hver þátttakandi sigurliðsins gjafakort
fyrir tvo á sýningu í Þjóðleikhúsinu. Hljóm-
plötuútgáfan Steinsnar ehf. í Fossatúni gaf öllum
þátttakendum geisladisk, alls 39 diska.
Alls tóku 13 lið þátt í keppninni í ár og tók hún
fjögur kvöld. Önnur lið sem tóku þátt: Grunnskól-
inn í Borgarnesi, Heiðarskóli, Skrifstofa Borg-
arbyggðar, Héraðsfréttablaðið Skessuhorn, Olsen
Olsen klúbburinn, Loftorka, Vírnet, Landbún-
aðarháskólinn á Hvanneyri og Viðskiptaháskólinn
á Bifröst. Keppnin var byggð upp líkt og hin vin-
sæla spurningakeppni Gettu betur, með hraða-
spurningum, vísbendingarspurningum og bjöllu-
spurningum. Dómari og aðalhöfundur spurninga í
ár var Finnbogi Rögnvaldsson, kennari við Fjöl-
brautaskólann á Akranesi, en til aðstoðar voru
Bjarni Guðmundsson og Torfi Jóhannesson. Ásdís
Helga Bjarnadóttir var spyrill, Axel Vatnsdal
stigavörður, og sá Eyjólfur Hjálmsson um tækni-
atriði, uppsetningu hljóðkerfis og hannaði og smíð-
aði bjöllu og ljósabúnað sem notaður var við
keppnina.
Öll kvöldin voru skemmtiatriði í hléum, þar má
telja hagyrðingana Unni Halldórsdóttur og Jón
Björnsson úr Borgarnesi og Helga Björnsson frá
Snartarstöðum, sem skemmtu fyrsta kvöldið. Ung-
lingar úr grunnskólunum á Kleppjárnsreykjum og
Varmalandi og félagsmiðstöðinni Óðali í Borg-
arnesi skemmtu með söng og dansi eitt kvöldið. Þá
skemmti Systrakvartettinn í Borgarnesi, en hann
skipa systurnar Birna og Theodóra Þorsteins-
dætur og Unnur og Jónína Arnardætur. Loka-
kvöldið sungu þeir Snorri Hjálmarsson og Gunnar
Örn Guðmundsson við undirleik Viðars Guð-
mundssonar og Munnhörputríóið spilaði en það
skipa Einar Ole Pedersen, Einar Bjarni Pedersen
og Guðný Grendal Magnúsdóttir.
Spurningakeppnin var vel sótt og á þessi fjögur
kvöld komu rúmlega 600 manns. Keppnin var
hugsuð sem fjáröflun fyrir UMSB og skemmtun
fyrir íbúa Borgarfjarðar. UMSB vill koma á fram-
færi þakklæti til þeirra sem skemmtu, tóku þátt í
keppninni og á annan hátt unnu að keppninni.
Jörvi sigraði
í spurninga-
keppni í
annað sinn
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Spennandi spurningakeppni: Áhugasamir áhorfendur á keppni UMSB í Borgarnesi. Lið Jörva sigraði
í úrslitum gegn Humar- og Álafélaginu, en margir komu að framkvæmd spurningakeppninnar.
Skorradalur | Nýlega var haldið
námskeið og æfing fyrir dýralækna,
á vegum embættis yfirdýralæknis, í
viðbrögðum við smitsjúkdómum í
dýrum. Námskeiðið stóð í tvo daga
og var haldið í húsakynnum Pharm-
aNor í Garðabæ, en verkleg æfing
var haldin þriðja daginn fyrir hér-
aðsdýralækna og sérgreinadýra-
lækna í Landbúnaðarháskólanum á
Hvanneyri og Fjárræktarbúinu
Hesti.
Á námskeiðinu var fjallað um flest
atriði sem reynir á og taka þarf
ákvarðanir um þegar upp kemur
grunur um alvarlegan smitsjúkdóm í
dýrum. Þar má nefna boðleiðir og að-
gerðir til varnar útbreiðslu smits,
sýnatökur, sendingu sýna, aðferðir
við slátrun, förgun, þrif, sótthreins-
un o.fl. Þrír erlendir sérfræðingar,
með mikla reynslu af smitsjúkdóm-
um, báru hitann og þungann af
kennslu á námskeiðinu, en auk
þeirra fjölluðu íslenskir sérfræðing-
ar um það sem tengist aðstæðum hér
á landi.
Á Hesti voru dýralæknarnir Há-
kon Hansson, Gunnar Þorkelsson,
Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir, Hjört-
ur Magnason og Gunnar Örn Guð-
mundsson sem var einn af undirbún-
ingsnefndinni. Þeim til aðstoðar var
írskur dýralæknir, dr. Brendan
McCartan, en hann stóð í eldlínunni
þegar gin- og klaufaveiki kom upp á
Norður-Írlandi 2001. Æfingin fólst í
því að æfa viðbrögð við því ef upp
kæmi grunur um gin- og klaufaveiki
á Hestsbúinu sem líklegast hefði
borist þangað með erlendum gesti.
Reynt var að gera sér í hugarlund
dreifingu smitsins og viðbrögð í ljósi
þess að síðustu dægur hefðu einnig
nemendur á Hvanneyri og rúnings-
menn heimsótt búið.
Viðbrögð við
smitsjúkdómum
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Dýralæknarnir æfðu viðbrögð við því ef upp kæmi grunur um gin- og
klaufaveiki á Hestsbúinu, sem líklegast hefði borist með erlendum gesti.
Námskeið dýralækna í viðbrögðum
við gin- og klaufaveiki í dýrum