Morgunblaðið - 03.04.2004, Page 36
FERÐALÖG
36 LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Alltaf ód‡rast á netinuÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
22
35
0
10
/2
00
3
Nýr Netsmellur
Ódýrastir til Evrópu
Verð frá 14.490 kr.
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgr. gjöld á ugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna
og minibus 9 manna og rútur með/án
bílstjóra.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshver ,
Danskfolkeferie orlofshver
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk GSM símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU
Það er gott að vera í Hafnarfirði
ar
gu
s
04
-0
15
3
Tilvalin gjöf til fermingarbarnsins sem vex og dafnar um ókomin ár!
• Þú velur binditímann • Hagstæð ávöxtun • Enginn kostnaður
Komdu í heimsókn – við tökum vel á móti þér!
Allir 14 ára unglingar, sem búa í Hafnarfirði,
Garðabæ og Bessastaðahreppi, fá gefins
reiknivél frá SPH.
– með ánægju!
GJAFABRÉF SPH
Strandgötu 65 • 220 Hafnarfjörður • fjorukrain.is
Hótel Víking og t veir öðruvísi
veitingastaðir
borðapantanir í síma 565 1213
Strandgötu 33 - Hafnarfirði - Sími 565 4533 - www.albatros.is
Gott úrval af vörum
fyrir golfara
Glæsilegt úrval fermingargjafa
Pennasett og ferðatöskur á tilboði
Opið: mán - föst 09 - 18 og laug 10 - 16
Nike vörurnar
komnar
Reykjavíkurvegi 60 · 220 Hafnarfi rði
Sími 555 2887
Nýja ostarúllan
og
Skyrdesert
m/ karamellu og súkkulaði
Ostahúsið - Strandgötu 75 - Sími: 565 3940
Nú á tilboði í Hagkaupum
NÝTT
Skóhöllin Firði, S: 555 4420
Páskatilboð
allt að60% afsláttur
Miðlun ehf
NÝR vefur Ferðaþjónustu bænda
var opnaður í vikunni, www.sveit.is.
Á nýja vefnum eru upplýsingar um
fyrirtækið, Félag ferðaþjón-
ustubænda, og það sem er efst á
baugi hverju sinni. Síðast en ekki
síst eru þar upplýsingar um gist-
ingu á ferðaþjónustubæjum um allt
land.
Nú eru um 120 ferðaþjónustubæir
innan Ferðaþjónustu bænda. Aðeins
lögbýli geta gerst aðilar að Ferða-
þjónustu bænda, en ekki eru gerðar
kröfur um búskap á bænum. Alls
eru í boði um 2800 gistirými á þess-
um bæjum um allt land, en flest
gistirými eru á Suðurlandi.
Ferðaþjónusta bænda hefur sett
sér það markmið að vera í far-
arbroddi í umhverfisvænni ferða-
þjónustu á landsbyggðinni. Um er
að ræða langtímaverkefni og sér
Ferðaþjónustan um að aðstoða og
miðla upplýsingum. Félagsmenn
eru hvattir til að vinna markvisst að
því að halda nánasta umhverfi
hreinu og aðlaðandi, stuðla að
verndun menningar- og nátt-
úruminja, draga úr mengun t.d. með
að endurnýta, endurvinna, nota um-
hverfisvæn efni og spara orku,
tryggja að fráveitur spilli ekki um-
hverfinu, nota endurnýjanlegar auð-
lindir við reksturinn og stunda græn
innkaup.
Kína og Alparnir
Utanlandsdeild Ferðaþjónustu
bænda var stofnuð haustið 2003 og
býður nú upp á ferðir til útlanda.
Um er að ræða skipulagðar hópferð-
ir en einnig er fyrirhugað að bjóða
upp á bændagistingu í öðrum lönd-
um. Uppselt var í ferð til Kína sem
nú stendur yfir, en önnur er fyr-
irhuguð í september. Af öðrum ferð-
um má nefna hjólaferð við rætur
Alpanna í júní, heimsókn til skoskra
fjárbænda í ágúst, gönguferð í faðmi
Alpafjalla í ágúst og sérferð fyrir
ferðaþjónustufólk til Lapplands í
september.
Morgunblaðið/RAX
GISTING| Nýr vefur opnaður
2.800 gistirými hjá
ferðaþjónustubændum
www.sveit.is
Hjólaferðir á Spáni
Vias Verdes eru aflagðir járnbraut-
arteinar á Spáni sem á síðustu árum
hefur verið breytt
í hjólreiðastíga. Á
hverju ári eru
skipulagðar tvær
hjólreiðaferðir
með fararstjórn á
nokkrum völdum
leiðum. Á þessu
vori verður farin
ferð dagana 7.–21.
maí og næsta
haust frá 15.–29.
október. Ferðin
tekur tvær vikur og eru hjólaðir 350
kílómetrar. Þó er hægt að velja að fara
styttri leiðir. Innifalið í ferðunum er gist-
ing í fjórtán nætur, hádegis- og kvöld-
verðir, lestarferðir milli leiða, hjólaleiga,
leiðsögn á ensku, tæknilið til aðstoðar,
slysatryggingar og aðgangseyrir á
söfn.
Páskatilboð á Hótel Hvolsvelli
Hótel Hvolsvöllur býður tilboð fyrir fjöl-
skyldufólk um páskana. Dagskráin
hefst laugardaginn 10. apríl klukkan 14.
Síðar um daginn verður farin æv-
intýraferð fyrir börnin og þeim boðið á
hestbak og í páskaeggjaleit og fleira.
Um kvöldið verður kvöldverður og
pitsuveisla fyrir börnin, barnaball og
kvöldvaka. Á meðan verður róleg
stemning fyrir foreldrana. Á páskadag
verður boðið upp á dögurð (brunch) og
barnaefni. Eftir hádegi verður ýmislegt
á boðstólum fyrir fjölskylduna og fram
á kvöld. Á annan í páskum verður einn-
ig dagskrá fram yfir hádegi.
Skelfiskdagar á Hótel Rangá
Hótel Rangá býður upp á skelfiskdaga
2.–12. apríl. Í því felst gisting og er mið-
að við tvo í herbergi, morgunverður og
fjögurra rétta kvöldverður. En um er að
ræða tvo mismunandi matseðla,
hörpuskeljafylltan smokkfisk, carp-
accio með pistasíuhnetum og parma-
osti, „Toast Skagen“ og gratineraðan
krækling, íslenskan risahumar með
koriander hrísgrjónum og kryddaðri
kókos sósu og kaffi og kirsuberjatiram-
isu. Hins vegar krabba „petit-choux“,
steiktar tígrisrækjur með kolkrabba
„rissioni“, humar Thermidor með spín-
atsalati og djúpsteiktum mozzarella og
hindberjasoufflé fyllt með heitum
súkkulaðitrufflum.
Upplýsingar um hjólaferðir á Spáni
www.viaverdes.com
Sími: +34 91 151 10 64
+34 91 151 10 63
+34 91 151 10 65
Páskatilboð á Hótel Hvolsvelli
Upplýsingar og pantanir í síma 587
8050
Hótel Rangá
Suðurlandsvegur 851 Hella
Sími: 487 5700 Fax: 487 5701 netfang:
hotelranga@icehotel.is