Morgunblaðið - 03.04.2004, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 61
SÍMINN efndi til keppni í smassi
sem er stytting á SMS-sendingum.
Bæði ungir sem aldnir nota smass-
aðferðina eins og kom berlega í
ljós þegar Síminn efndi til keppni í
smassi. Vinningshafinn sendi inn
línuna „Við erum öll Sigfús á lín-
unni“. Stefán Árnason, framhalds-
skólakennari við Fjölbrautaskól-
ann í Garðabæ, var hlutskarpastur
í smasskeppni Símans.
Vinningshafi í öðru sæti var
Sveinbjörn Logason en hann sendi
inn línuna: „Fokið er í skjóli og
mér er kalt eða er mér heitt í
hamsi á hálum ís vitsmunalegrar
vitleysu…einn,“ Keppandi í þriðja
sæti var Guðrún Sigurjónsdóttir
og hennar lína var: „Mér líður eis
og tómri flugu í aspassúpu. Mig
klæjar í skósvertuna.“ Þetta ljóð
samdi Guðrún þegar hún var 14
ára.
Vinningshafarnir hlutu allir
GSM–síma frá Símanum í verð-
laun, segir í fréttatilkynningu.
Stefán Árnason vinningshafi og Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans.
Vinningshafi í
smasskeppni Símans
VEGNA fréttar í DV sem birtist 2.
apríl undir fyrirsögninni „Vandræða-
leg vanskil. Fríkirkjan rukkar pípu-
lagningamann“ vill Hreiðar Örn Zoëga
Stefánsson framkvæmdastjóri Frí-
kirkjusafnaðarins í Reykjavík taka eft-
irfarandi fram:
„Það er rétt í frétt DV af þessu máli
að áminning var send greiðendum
styrktarframlaga, en fyrir mistök, sem
eru hörmuð. Framsetning fréttarinnar
er þó til þess fallin að kasta rýrð á Frí-
kirkjusöfnuðinn. DV sá ekki ástæðu til
að leita til Fríkirkjunnar eftir skýring-
um, heldur tók þann kost að birta frétt-
ina svo sem raun ber vitni. Því er brýn
nauðsyn að Fríkirkjan skýri þetta mál.
Fríkirkjan er að gefa út hátíðarrit í
tilefni aldarafmælis Fríkirkjunnar um
þessar mundir. Styrktarlínum og aug-
lýsingum er safnað í blaðið til að
standa undir útgáfunni í þetta sinn
sem endra nær þegar gefin eru út
safnaðarblöð.
Verktaki er ráðinn til að safna þess-
um auglýsingum og styrktarlínum.
Þegar vilyrði er fengið hjá fyrirtæki
eða einstaklingi til að styrkja blaðið er
sendur út gíróseðill. Það er fyrst og
fremst til að auðvelda þeim sem gefið
hefur, að greiða framlagið.
Landsbankinn annast útsendingu
gíróseðlanna, en til eru mismunandi
kerfi til innheimtu gíróseðla, eða allt
frá því að senda einn gíróseðil og upp í
það að annast ítrekanir og frekari inn-
heimtuaðgerðir. Við útsendingu þess-
ara umræddu gíróseðla urðu þau mis-
tök að þeir voru skráðir í röngu kerfi.
Það átti bara að senda út einn gíróseðil
og síðan ekki söguna meir.
Það er enginn á vanskilaskrá, né í
vanskilum við Fríkirkjuna í Reykjavík
vegna styrktarframlaga. Það að ítrek-
un barst nokkrum þeim sem heitið
höfðu að styrkja þetta málefni voru al-
varleg mistök, sem Fríkirkjusöfnuður-
inn harmar og biðst afsökunar á.“
Fríkirkjan harmar mistök
AÐ GEFNU tilefni vill Trygg-
ingastofnun ríkisins árétta að
tannlæknum er í sjálfsvald sett
hvort þeir innheimta endur-
greiðslur sjálfir hjá TR eða láta
viðskiptavini sína um það.
Margir tannlæknar veita þá
þjónustu að innheimta endur-
greiðsluhluta viðskiptavina hjá
Tryggingastofnun og spara
þeim sporin. Slík þjónusta spar-
ar fólki bæði fjárútlát og um-
stang sem fylgir því að greiða
reikning tannlæknis að fullu og
fara síðan með reikninginn ann-
að til að fá endurgreiðslu.
Ráða hvern-
ig endur-
greiðslu
er háttað HÓPUR af krökkum áþriðja ári í Versló á hag-
fræðibraut hafa gefið út
blað um framhaldsskólana
á höfuðborgarsvæðinu sem
er ætlað öllum tíundubekk-
ingum á svæðinu. Blaðið
nefnist 88 sem vísar til þess
árgangs sem fær þetta blað.
Blaðinu var dreift í alla
grunnskólanna á höfuðborgarsvæð-
inu 2. apríl sl. sem var síðasti
kennsludagur fyrir páska.
Í blaðinu er m.a. umfjöllun um
framhaldskóla og inniheldur umfjöll-
un hvers skóla m.a. viðtöl við tvo
nemendur skólans, annan á fyrsta
ári og hinn á síðasta. Þeir eru spurðir
ýmissa spurninga svo sem hvers
vegna þau völdu skólann, hvað mætti
betur fara, sérkenni skólans,
það sem stendur uppúr o.fl.
Einnig inniheldur umfjöllunin
stutta grein um skólann,
skipurit, myndir af félagslífi
og nokkra punkta um aðstöðu
og félagslíf skólans.
Blaðið er prentað í Ísafold-
arprentsmiðjunni og verður
dreift í 3.000 eintökum og er
algjörlega á vegum hópsins sem gef-
ur það út en hann tengist ekkert
Verzlunarskólanum.
Markmið með blaðinu er að auð-
velda tíundubekkingum að taka
ákvörðun um hvar þau muni eyða
næstu árum enda eru þetta bestu ár
ævinnar að margra mati og grunnur
að framtíðínni, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Nýtt blað fyrir
grunnskólanema
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
24
05
2
03
/2
00
4 Nokia 3200
Myndavélasími
Stærð myndar 352 x 288 punktar
Litaskjár 4.000 litir
Minni 1 MB
Verð 19.900 kr.
Verslanir Og Vodafone: Kringlunni, Smáralind, Síðumúla 28, Skífunni Laugavegi 26,
Hafnarstræti Akureyri og umboðsmenn. Þjónustuver sími 1414, www.ogvodafone.is
Frítt að senda Myndskilaboð til 1. sept. 2004.
Símann er eingöngu hægt að nota með símkorti frá Og Vodafone.
Risapáskaegg fylgir!
M
yndskilab
oð
Frí
tt að senda
Ökukennsla - Akstursmat. Kenni
á Ford Mondeo. Aðstoð við end-
urnýjun ökuréttinda. Fagmennska
í fyrirrúmi. www.sveinningi.com
- Sveinn Ingi Lýðsson ökukennari,
KHÍ, s. 892 2860 og 586 1342.
Akstursmat vegna tveggja ára
endurnýjunar og aðstoð vegna
endurnýjunar ökuréttinda. Kenni
á Benz 220 C.
Vagn Gunnarsson
s. 894 5200 og 565 2877.
Óska eftir tjaldvagni. Óska eftir
vel með förnum tjaldvagni. Verð-
hugmynd ca 200-300 þús.
Áhugasamir sendi tölvupóst á
steinn@lerkias.is.
2 hjól til sölu, 250 Yammi og 600
Radian. Topphjól sem hafa átt
heima í bílskúr á veturna og göt-
unni á sumrin. 250 þúsund fyrir
Yammann og 300 þúsund fyrir
Radianinn. Ekkert prútt. S. 847
1900 - eie@mi.is.
Yamaha Viper '02. 150 HP, start
og bakkg. Pípur. Ek. 2.800 km,
ryðfrí br/grind, extra kælir, 30 mm
belti og fl. Páskatilboð 600 þús.
Sími 892 8788.
Til sölu vélsleðakerra fyrir tvo
sleða með botnmáli 250x340,
smíðaár 2000.
Upplýsingar í síma 897 1188.
Toyota Double cab árg. '95. 2,4
dísel, túrbó, intercooler, aukatank-
ur, cd, cb, VHF talstöð, GPS, 38"
dekk, ný kúpl., legur, 5/29 hlutf. o.fl.
Ek. 160 þús. km. Góður og vel með
farinn bíll. V. kr. 1.360 þús. Skipti
mögul. á dýrari jeppa. Upplýsingar
í síma 840 0470.
Vöru og fisk flutningar
Getum bætt við verkefnum í
þungafl. Hvert á land sem er,
stakar ferðir/föst viðskipti, góð
tilboð. Frjálsa flutningafélagið
s. 894 9690.
Tunnuvagn. Nýr Eurotrailer til af-
hendingar 15. maí. Th. Adolfsson
ehf., s. 898 3612.
Nýtt! Flatvagnar frá Kanada.
Erum að láta smíða sérútbúna
flatvagna í Kanada. 3ja öxla fyrir
49 tonna lest, 13,4 mx2,54 m, 2
lyftihásingar, 6 raðir af gámalás-
um, harðviðardekk, áfastur
strekkjarabúnaður + fl. o.fl.
Th. Adolfsson ehf., s. 898 3612.
ATH! Næsta sending af Eurotrail-
er gleiðöxla tunnuvögnum vænt-
anleg 10. maí.
Til sölu Volvo Station 740 árg.
1987 til niðurrifs.
Upplýsingar í síma 567 2710.
Scania, Volvo eigendur!
Varahlutir á lager. Upplýsingar,
www.islandia.is/scania
G.T. Óskarsson, Vesturvör 23,
Sími 554 6000.
Jeppapartasala Þórðar, Tangar-
höfða 2, sími 587 5058. Sérhæfum
okkur með varahluti í jeppa og
Subaru. Nýrifnir: Patrol '95,
Impreza '97, Pajero V6 '92, Patrol
'92, Legasy '92, og Vitara '91-'97
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.