Morgunblaðið - 03.04.2004, Qupperneq 69
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2004 69
DENNIS Wise, fyrrverandi leik-
maður með Chelsea og Wimbledon,
sem er nú knattspyrnustjóri Lund-
únaliðsins Millwall, segist hafa sett
stefnuna á sæti í UEFA-keppninni
næsta keppnistímabil. Til þess að ná
því verður Wise að stjórna sínu liði
til sigurs í undanúrslitaleik ensku
bikarkeppninnar gegn Sunderland
á Old Trafford á morgun. Millwall
hefur aldrei leikið til úrslita í bik-
arkeppninni og ef liðinu tekst það
nú er UEFA-sætið í öruggri höfn,
þar sem liðið mætir í úrslitaleiknum
Arsenal eða Manchester United,
sem leika í Meistaradeild Evrópu
næsta keppnistímabil.
„Við munum leggja okkur alla
fram, því að það getur farið svo að
við fáum þetta tækifæri ekki aftur,“
sagði Wise, 37 ára, sem leikur með
Millwall. Wise, sem er geysilegur
baráttumaður inni á vellinum –
gefst aldrei upp, þekkir vel hvernig
það er að leika bikarúrslitaleiki –
varð bikarmeistari með Chelsea
1997 og 2000, og með Wimbledon
1988.
„Sunderland er talið sig-
urstranglegra liðið, en knatt-
spyrnan er óútreiknanleg,“ sagði
Wise.
Þess má geta til gamans að Sund-
erland og Millwall mættust í undan-
úrslitum 1937 – þá fagnaði Sunder-
land sigri og vann síðan sinn eina
bikarmeistaratitil með því að leggja
Preston að velli, 3:1.
Dennis Wise hjá Millwall
stefnir á UEFA-sæti
FÓLK
OLEG Velyky, handknattleiks-
maður og félagi Guðjóns Vals Sig-
urðssonar hjá Essen í Þýskalandi,
fékk í gær þýskan ríkisborgararétt.
Velyky þykir einn fremsti hand-
knattleiksmaður sem leikur í þýsk-
um handknattleik og því er talið að
hann styrki þýska landsliðið til muna
þegar hann getur leikið með því.
Óvíst er að hann geti leikið með
Þjóðverjum á Ólympíuleikunum í
sumar þar sem hann spilaði síðast
með landsliði Úkraínu á EM í Sví-
þjóð fyrir tveimur árum.
VELYKY er 26 ára gamall og hef-
ur verið í herbúðum Essen í þrjú ár.
Hann hefur nýverið framlengt samn-
ing sinn við félagið til 2008 en for-
ráðamenn Flensburg sóttu stíft að fá
hann í sínar raðir.
CLAUS Møller Jakobsen leik-
stjórnandi danska landsliðsins í
handknattleik leikur með Ólafi Stef-
ánssyni hjá spænska stórliðinu
Ciudad Real á næstu leiktíð. Jakob-
sen hefur undanfarin ár leikið með
Altea á Spáni. Hann skrifar undir
tveggja ára samning við Ciudad Real
á næstu dögum. Jakobsen er ætlað
að hlaupa í skarðið fyrir Talant
Duishebaev sem farinn er að lýjast.
SIR Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, er stað-
ráðinn í að kaupa í sumar hollenska
miðvallarleikmanninn Rafael van
der Vaart frá Ajax. Enskir fjöl-
miðlar fullyrða að eftir Chelsea
„stal“ Arjen Robben fyrir framan
nefið á Ferguson ætli hann að leggja
allt í sölurnar til þess að tryggja sér
der Vaart sem vakið hefur mikla at-
hylgi, bæði með Ajax og hollenska
landsliðinu þrátt fyrir að vera aðeins
21 árs. Talið er að Ferguson sé
reiðubúinn að greiða á milli 11 og 12
milljónir punda, jafnvirði hálfs ann-
ars milljarðs króna fyrir der Vaart.
MARCIO Amoroso hefur verið
sagt upp samningi sínum hjá þýska
knattspyrnuliðinu Dortmund, en
Amoroso hefur ekkert leikið með lið-
inu síðan í október vegna meiðsla.
Hann hefur verið hjá Dortmund í
þrjú ár en aldrei náð sér verulega á
skrið. Amoroso var áður hjá Parma
á Ítalíu og hermt er að hann vilji
helst fara á ný til Ítalíu og leika þar.
TALIÐ er að Dortmund spari
nærri 400 millj. króna við að segja
Amoroso upp þrátt fyri að hann fái
væna peningagreiðslu vegna upp-
sagnarinnar. Frjáhagur Dortmund
er afar bágur um þessar mundir eins
og svo margra annarra þýskra
knattspyrnliða sem spennta hafa
bogann full hátt á síðustu árum.
SVEN-Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englendinga, hefur skorað á
forráðamenn sænska knattspyrnu-
sambandsins á hnékrjúpa fyrir
framan Henrik Larsson og grátbiðja
hann um að gefa kost á sér í sænska
landsliðið fyrir EM í Portúgal í sum-
ar.
EINAR Sigurðsson, leikmaður HK,
og Miglena Aposolova, Þrótti Nes-
kaupstað, voru valin bestu blak-
menn Íslandsmótsins sem nú er ný-
afstaðið, en tilkynnt var um valið á
uppskeruhátíð Blaksambandsins
um síðustu helgi.
Leikmönnum og þjálfurum lið-
anna þóttu þau Jóna Guðlaug Vig-
fúsdóttir, úr Þrótti Neskaupstað,
og Fannar Örn Þórðarson, Þrótti
Reykjavík, efnilegust og Leifur
Harðarson var valinn besti dóm-
arinn.
Einnig voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir að vera stigahæsti ein-
staklingurinn í mótinu og hjá kon-
unum var það
Elsa Sæný
Valgeirs-
dóttir, úr Þrótti Reykjavík, með 188
stig og Einar Sigurðsson var með
210 stig og efstur á lista yfir karl-
ana.
Elsa Sæný var stigahæst kvenna í
sókn með 148 stig og í uppgjöfum
með 32 stig en Natalía Gomzina,
KA, var stigahæst í hávörn kvenna
með 21 stig.
Einar var stigahæstur í sókn með
187 stig, Ólafur Viggósson, HK, var
stigahæstur í hávörn með 29 stig og
Brynjar Pétursson, HK, var stiga-
hæstur í uppgjöfum með 23 stig.
Einar Sigurðsson, HK, og Miglena Aposolova, Þrótti Nes., Leifur Harðarson, dómari úr Þrótti R.,
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, Þrótti Nes., og Fannar Örn Þórðarson, Þrótti R., með verðlaunin sín.
Miglena og Einar
bestu leikmennirnir
BLAK
BRESKI kylfingurinn Ian
Poulter lenti í nokkuð
skondnu atviki á Meist-
aramóti leikmanna í golfi sem
fram fór í Flórída um
helgina. Á fjórðu flöt merkti
hann bolta sinn og ærlaði síð-
an að rífa hann upp, frekar
fúll yfir innáskotinu sem var
ekki nægilega gott. Ekki vildi
betur til en svo að hann
missti boltann úr hendi sér
og út í vatn sem er við flöt-
ina. Kappinn var fínt klædd-
ur og ætlaði alls ekki að vaða
út í til að ná í boltann, heldur
skipta um bolta og fá þá tvö
högg í víti. Einn kunningi
hans, sem var meðal áhorf-
enda, klæddi sig þá úr bux-
unum og sótti boltann fyrir
félaga sinn sem lauk holunni
á pari og endaði í 16. sæti en
hefði hann leikið á tveimur
höggum meira, tekið vítið í
þessu tilviki, hefði hann orðið
í 53. sæti. Munurinn á verð-
launafé á þessum sætum er
um 1,5 milljónir króna þannig
að kunninginn á eitthvað inni
hjá Poulter.
Óð út í
vatn eftir
golfbolta
meistaralið allra heimsálfa um
þennan titil.
„Við urðum að breyta þessu og
stækka keppnina til að hún væri
lögmæt. Þegar ég spilaði með Ju-
ventus héldum við að við værum
heimsmeistarar, en við höfðum í
raun ekki rétt fyrir okkur því að-
eins tvær heimsálfur höfðu þátt-
tökurétt. Það er rökrétt að bjóða
meisturum allra heimsálfa til þess-
arar keppni, sem eflaust mun njóta
meiri hylli fyrir vikið,“ sagði Michel
Platini.
ÍSLENSKA dómaraparið Gunnar
Stefánsson og Stefán Arnaldsson
munu dæma fyrri leik spænsku lið-
anna Valladolid og Portland San
Antonio í úrslitum Evrópukeppni
bikarhafa. Leikurinn fer fram í
Valladolid þann 17. apríl en síðari
leikurinn fer fram 24. apríl.
Gunnar og Stefán dæmdu í und-
anúrslitum Meistaradeildarinnar á
dögunum þar sem Flensborg hafði
betur gegn Magdeburg á heima-
velli, en liðin eru bæði frá Þýska-
landi. Flensborg hafði betur sam-
anlagt í rimmunum tveimur og
mætir Celje Lasko frá Slóveníu í
úrslitum Meistaradeildarinnar,
fyrri leikurinn fer fram 18. apríl í
Slóveníu en sá síðari 24. apríl í
Þýskalandi.
Gunnar og Stefán hafa fengið
fjölmörg verkefni á erlendri grund
á undanförnum misserum og
dæmdu m.a. úrslitaleikinn á
Heimsmeistaramóti kvennalands-
liða í Króatíu s.l. desember. Þeir
félagar munu dæma á ÓL í Aþenu í
sumar.
Helga Magnúsdóttir verður eft-
irlitsmaður á síðari leik franska
liðsins Dunkerque gegn sænska
liðinu Skövde en liðin leika til úr-
slita í áskorendakeppni Evrópu. Ís-
lenski landsliðsmaðurinn Ragnar
Óskarsson er leikmaður hjá
Dunkerque.
Gunnar og
Stefán í
eldlínunni
á Spáni