Morgunblaðið - 16.04.2004, Page 60
60 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 4, 5.45, 8 og 10.15.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.45. B.i.12 ára
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
Viggo Mortensen
í magnaðri
ævintýramynd
byggð á sannri
sögu!
Enginn trúir því að hann muni lifa af
þetta villta og seiðandi ferðalag.
i i í i lif f
ill i i f l .
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA
KL. 4, 8 OG 10.45.
Það vilja allir vera hún, en hún vil vera
„frjáls“ eins og allir aðrir.
Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um
forsetadóttur í ævintýraleit!
FRUMSÝNINGHann mun gera allt
til að verða þú!
Hágæða spennutryllir með Angelinu
Jolie, Ethan Hawke og Kiefer
Sutherland í aðalhlutverki.
t lli li
li , t i f
t l í l l t i.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16.
Sýnd kl. 10. B.i. 16. Kl. 5.40 og 8.
Enginn trúir því að
hann muni lifa af þetta
villta og seiðandi
ferðalag.
Viggo Mortensen í magnaðri ævintýramynd
byggð á sannri sögu!
Sýnd kl. 5.30, 8.15 og 10. B.i. 12 ára.
„Stórkostlegt
kvikmyndaverk“
HL. MBL
SV. MBL
Sýnd kl. 6. Með ísl taliSýnd kl. 8.
Sýnd kl. 6 og 8.
VG. DV
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6 og 10.
Ævintýrahópurinn Ráðgáta hf er mætt
aftur til að leysa hin undarlegustu mál
eins og þeim einum er lagið!
ÚTVARPSSTÖÐIN X-ið 977 held-
ur svokallaða „Jack Live“ tónleika
í kvöld á Gauki á Stöng. Fram
koma sveitirnar Mammút, Úlpa og
Maus. Mammút eru nýbakaðir sig-
urvegarar Músíktilrauna og ef-
laust margir sem bíða spenntir
eftir að heyra í þeim. Úlpa vinnur
hörðum höndum að gerð annarrar
breiðskífu sinnar um þessar mund-
ir og er sveitin nýkomin úr tón-
leikaferð sem farin var um Dan-
mörku.
Hin siglda sveit Maus ætlar svo
að bjóða tónleikagestum upp á
nokkur ný lög í bland við efni af
síðustu plötu þeirra, Musick. Í
burðarliðnum er svo tvöföld safn-
plata með Mausi og kemur hún út
í haust. Birgir Örn Steinarsson,
Biggi Maus, upplýsti blaðamann
um það verkefni, sem er giska
viðamikið.
Tvöföld plata
Ástæður þess að Mausverjar
ráðast í gerð safnplötu þetta árið
eru margvíslegar. Þegar Maus
sagði upp samningi við Skífuna á
sínum tíma fólst í þeim „starfs-
lokum“ réttur til að gefa út safn-
plötu. Birgir segir Maus jafnframt
standa á tímamótum að mörgu
leyti í ár og t.d. séu tíu ár liðin frá
því að þeir félagar gáfu út fyrstu
plötuna sína. Hún hefur verið ófá-
anleg um árabil og ætti safnplatan
að bæta þar úr skák að einhverju
leyti.
„Það hefur líka myndast athygl-
isvert kynslóðabil í hlustendahóp
Maus,“ segir Birgir. „Ég man að
þegar við vorum að taka lög sem
prýddu þriðju og fjórðu plötuna
þá fyrtist fólk við og vildi heyra
gömlu lögin. En þegar við tökum
gömul lög í dag verður fólk
hvumsa og vill heyra nýrri lög!
Það eru ákveðin tímamót að verða
í sögu Mauss og það er ágætt að
gera upp síðustu tíu árin núna.“
Platan verður tvöföld og einkar
vegleg að innihaldi. Tvö ný lög
verða á plötunni, meðal annars
lagið „Liquid Substance“ sem er
endurgerð á laginu „Replacing My
Bones“ sem er að finna á Musick.
Birgir segir að þeir hafi unnið
lagið með Delphi og hafi það tekið
svo miklum stakkaskiptum að í
raun sé um að ræða nýtt lag –
enda hafi það verið skýrt upp á
nýtt. Lagið fer í spilun á útvarps-
stöðvum eftir um mánuð.
Á plötunni verða líka lög sem
hafa ekki verið á breiðskífum
Mauss eins og t.a.m. „Skjár“,
„Nánast ólöglegt“ og „(Inn í) krist-
alnótt“.
„Síðari diskurinn verður hins
vegar stútfullur af áður óútgefnu
efni,“ staðhæfir Birgir. „Þar verða
t.d. endurhljóðblandanir frá gus-
gus, Dáðadrengjum, Quarashi og
fleirum. Einnig verða þarna tón-
leikaupptökur og lög sem einfald-
lega pössuðu ekki á plöturnar
okkar á sínum tíma og hafa aldrei
litið dagsins ljós.“
Mikið Maus
Birgir segir að Maus séu einnig
byrjaðir að semja á nýja plötu.
Stefnt sé að því að þeir verði
komnir langleiðina með hana í
haust og hún yrði þá gefin út á
næsta ári.
„Við höfum oft látið okkur
hverfa á milli platna,“ segir Birgir
að lokum. „En við ætlum ekki að
gera það núna. Við ætlum að vera
iðnir við kolann næstu misserin.“
Maus, Úlpa og Mammút spila á Gauknum í kvöld
Maus
með
safnplötu
í haust
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrsta plata Maus, Allar kenningar heimsins ... og ögn meira, kom út árið
1994. Væntanleg safnplata í haust mun því marka tíu ára útgáfuafmæli
sveitarinnar.
Húsið opnað kl. 22.00. Að-
gangseyrir er 800 kr.
GÓÐAR líkur eru nú á því að hægt
verði að bjóða upp á aukatónleika
með DEEP PURPLE en uppselt varð á
tónleika sveitarinnar í Höllinni 24.
júní á skotstundu. Að sögn tónleika-
haldara hjá Concert ehf. er svars
jafnvel að vænta í dag eða um
helgina. „Salan á fyrri tónleikanna
kom okkar algjörlega í opna skjöldu
og við erum búin að stija hér sveitt í
því að koma á aukatónleikum. Það er
mikið haft samband við okkur hingað
en við höfum ekki getað staðfest neitt
en vonandi liggur þetta fyrir seinni
partinn í dag,“ segir Einar Bárð-
arson tónleikahaldari og bætir við að
þeir sem vilji tryggja sér miða á
aukatónleikana ef af þeim verði geti
sent póst á concert@concert.is …
TV ON THE RADIO, hin umtalaða
New York-sveit, hefur gert samning
við breska fyrirtækið 4AD og mun
það gefa út nýjustu plötu þeirra,
Desperate Youths, Blood Thirsty
Babes, í Evrópu. Sveitin er hins veg-
ar á mála hjá Touch & Go í Banda-
ríkjunum sem fyrr …
ANDRE 3000, annar helmingur Out-
Kast, segir í nýlegu
viðtali við Rolling
Stone að hann og
félagi hans Big Boi
ætli að halda sam-
starfinu áfram.
Nýjasta plata
þeirra félaga er hin
tvöfalda Speaker-
boxx/The Love Below og þótti sum-
um framlag Andre (The Love Below)
skara það mikið fram úr plötu Big Boi
að sólóferill væri svo gott sem óhjá-
kvæmilegur. „Ef við værum ekki að
gera tónlist saman veit ég ekki hvort
við værum enn vinir. Í fullkomnum
heimi væri þetta síðasta Outkast-
platan,“ sagði Andre. „Það verða
tvær Outkast-plötur til viðbótar en
eftir það, veit ég ekki. Ég mun líkega
aldrei toppa „Hey Ya!“ eða Outkast.
En hver veit. Paul McCartney og
John Lennon gerðu aldrei neitt í lík-
ingu við Bítlana er þeir hættu en
gerðu þó svala hluti sitt í hvoru
lagi …
WILLIE NELSON er með djassplötu í
burðarliðnum. Heitir hún Nacogdoc-
hes og var tekin
upp fyrir fimm ár-
um. Hún verður
einungis í boði á
Netinu enda „hefur
líklega engin út-
gáfa áhuga á að
gefa þetta út,“ eins
og Nelson sjálfur
segir. Hægt verður að nálgast plöt-
una í gegnum willienelson.com en
reyndar líka á veitingastöðunum Tex-
as Roadhouse sem styrkja Nelson á
yfirstandandi tónleikaferðalagi …
„WEIRD AL“ YANKOVIC missti for-
eldra sína fyrir stuttu. Foreldrar
grínarans fundust látnir á heimili
sínu á föstudag og höfðu látist úr kol-
efniseitrun. Þau voru á níræðisaldri.
Yankovic hefur ekki gefið út neina yf-
irlýsingu en helgaði uppistand sitt,
sem fram fór í Mankato í Minnesota á
laugardaginn, foreldrum sínum …
POPPkorn