Pressan - 19.12.1991, Síða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
9
Böövar Bragason lögreglustjóri. Fær
750 milljónir en eyöir 925 milljónum.
Samansöfnuð umframkeyrsla á fimm
ára tímabili nam 875 milljónum króna.
LÖGREGLUSTJÓ RAR Á
OFSAHRAÐA FRAM
ÚR FJÁRLÖGUM
PRESSAN skoðaði niðurstöðutöl-
ur ríkisreikninga og fjáraukalög fyr-
ir tímabilið 1986 til 1990 og kannaði
þróun frá fjárlögum hjá nokkrum
stofnunum. í ljós kom að embætti
Lögreglustjórans í Reykjavík, þar
sem Böövar Bragason ræður ríkj-
anríkisráðuneytinu. Að meðaltali
hafa verið settar 2 00 milljónir króna
á nafn embættisins, en útkoman
orðið um 265 milljónir eða 31 pró-
senti hærri.
HÁLFUR MILLJARÐUR Á FIMM
ÁRUM HJÁ FLUGMÁLASTJÓRA
Flugmálastjórn, undir hand-
leiðslu Péturs Einarssonar, hefur
íslandsmeistanarnir í umframkeyrslu
Samanburður á upphæð fjárlaga og niðurstöðu ríkisreiknings
á samtals sjö árum, 1984 til 1990, heildartölur í milljónum
króna að núvirði.
Stofnun Fjárlög lltkoma Umfram Hlutf.
1. Unglingaheimili ríkisins . . . 159,3 393,4 234,0 146,9%
2. Löggildingastofan 36,1 88,5 52,4 145,1%
3. Holdanautastöðin Hrísey . . 18,9 46,3 27,4 144,5%
4. Laxeldisstöðin Kollafirði . . 48,4 112,4 64,0 132,0%
5. Héraðsskólinn Reykholti .. 138,3 290,6 152,3 110,2%
6. Veiðistjóri 97,0 201,7 104,7 108,0%
Skýringar: Með Unglingaheimilinu eru talin útgjöld vegna nýs meðferðarheimilis fyrir unga fikniefnaneytendur. Útgjöld Löggildingastofunnar urðu venju fremur mikil 1990 vegna breytinga. Tótur yfir Héraðsskólann i Reykholti ná ekki til 1990 og ná þvi aðeins yfir 6 ár.
um, fór að jafnaði tæplega fjórðungi
fram úr því sem á fjárlögum var
veitt. Á fjárlögum hafa að meðaltali
verið settar um 750 milljónir króna
á þennan fjárlagalið, en niðurstöðu-
tölur orðið um 925 milljónir. Saman-
söfnuð umframkeyrsla hjá Böðvari
og félögum á þessu fimm ára tíma-
bili nemur 875 milljónum króna.
Annað lögreglustjórambætti hef-
ur þó farið hlutfallslega meir fram
úr fjárlögum á tímabilifiu. Það er
embætti Þorgeirs Þorsteinssonar á
Keflavíkurflugvelli, sem tilheyrir ut-
ekki keyrt hlutfallslega jafnmikið
fram úr og lögreglustjóraembætti
Böðvars og Þorgeirs, en aftur á móti
nemur uppsöfnuð umframkeyrsla
Péturs og félaga á þessu tímabili um
530 milljónum króna. Að meðaltali
hefur fjárveitingavaldið sett um 625
milljónir króna í embættið, en upp-
staðið hefur útkoman orðið um 732
milljónir eða sem nemur 106 millj-
ónum króna á ári hverju.
Raunar má segja svipaða sögu um
embætti Tollstjórans í Reykjavík,
þar sem Björn Hermannsson hefur
Jón Skaftason yfirborgarfógeti. Hefur
fengiö 82 milljónir að jafnaði til ráðstöf-
unar, en niðurstaðan orðið 104 milljónir.
110 milljóna króna umframkeyrsla á 5
árum.
Sigurður Björnsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar-
innar. Þar átti hallinn að vera að meöal-
tali tæplega 100 milljónir á ári, en út-
koman reyndist hins vegar 187 milljóna
halli á ári eða hátt í 800 milljónir á áð-
eins fjórum árum.
ráðið ríkjum. Birn i og félögum hefur
verið úthlutað um 182 milljónum
króna að jafnaði, en þegar upp hef-
ur verið staðið hafa milljónirnar
reynst 215 og uppsöfnuð umfram-
keyrsla á fimm árum alls 162 millj-
ónir króna.
BORGARFÓGETI í
VANDRÆÐUM MEÐ
ÚTGJÖLDIN
Nokkrar aðrar smærri en þó
veigamiklar stofnanir hafa einnig
átt í erfiðleikum með að fylgja for-
sendum fjárlaga. Borgarfógetaemb-
ætti Jóns Skaftasonar hefur þannig
fengið 82 milljónir að jafnaði til ráð-
stöfunar, en niðurstaðan hefur verið
104 milljónir úr ríkissjóði á ári — 110
milljóna króna umframkeyrsla á
tímabilinu. Borgardómaraembætt-
ið, þar sem Fridgeir Björnsson ræð-
ur ríkjum, hefur fengið 60 milljónir
að jafnaði en endað uppi í 70 millj-
ónum.
Skógrækt ríkisins, sem þar til und-
ir það síðasta var stjórnað af Sigurdi
Blöndal skógræktarstjóra, hefur
einstök ár farið duglega fram úr fjár-
lögum, einkum þó árin 1986 til
1987. Að jafnaði hefur 92 milljónum
króna verið úthlutað til embættis-
ins, en endanlegt framlag orðið 26
prósentum hærra eða 116 milljónir.
Uppsöfnuð umframkeyrsla á fimm
árum nemur því um 120 milljónum.
Litlu minni hefur uppsöfnunin orðið
hjá Rafmagnseftirliti ríkisins, en raf-
magnseftirlitsstjóri er Bergur Jóns-
son. Bergur og félagar hafa að jafn-
aði fengið um 70 milljónir til skipt-
anna, en niðurstaðan orðið um 90
milljónir og uppsöfnunin því nær
100 milljónir á tímabilinu.
Pétur Einarsson flugmálastjóri. Að
meðaltali hefur fjárveitingavaldið sett
um 625 milljónir króna í embættið, en
uppstaðið hefur útkoman orðið um 732
milljónir eða sem nemur 106 milljóna
króna umframkeyrslu á ári hverju.
Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri.
Stjórnarformaöur Holdanautastöðvar-
innar í Hrísey og stjórnarmaður í Veiði-
málastofnun, sem rekur Laxeldisstöð-
ina í Kollafirði. Ár eftir ár meira en tvö-
falt framúr tölum fjárlaga.
ÁR EFTIR ÁR YFIR 100%
FRAM ÚR FJÁRLÖGUM
Margt smátt gerir eitt stórt. Stofn-
anir og fyrirtæki þurfa ekki að vera
með mikla veltu til að setja strik í
fjárlög ríkisins. Það sannast á Ung-
lingaheimili ríkisins, Löggildinga-
stofunni, Holdanautastöðinni í Hrís-
ey, Laxeldisstöðinni í Kollafirði,
Héraðsskólanum í Reykholti og
embætti Veiðimálastjóra.
Á sjö ára tímabili, 1984 til 1990,
áttu í heild að renna til þessara
stofnana 500 milljónir króna sam-
kvæmt fjárlögum. Þegar niður-
stöðutölur lágu fyrir blöstu hins veg-
ar við 1.133 milljónir. Þegar
rekstrartölur Un glingaheimilisins
eru skoðaðar fyrir árin 1986 til 1989
sést, að tekjur fara iðulega nokkuð
undir það sem áætlað var, en gjöldin
upp úr öllu valdi. Þessi fjögur til-
teknu ár sýndu forsendur fjárlaga
alls 18 milljóna króna halla að með-
altali, en reyndin varð halli upp á 55
milljónir á ári.
Gjöld hafa sömuieiðis farið nokk-
uð fram úr áætlunum hjá nautaeld-
isstöðinni í Hrísey og hallarekstur
farið talsvert fram úr forsendum
fjárlaga. Rekstrarniðurstaða Laxeld-
isstöðvarinnar í Kollafirði hefur hins
vegar ekki komið svo illa út miðað
við forsendur fjárlaga. Þar hefur rík-
issjóðsframlag þó hækkað verulega
og stafar það að því er virðist eink-
um af því að í forsendunum hefur
ekki verið gert ráð fyrir fjárfesting-
um hjá stöðinni, en á tímabilinu
reyndust þær að jafnaði 12 til 13
milljónir króna.
Friðrik Þór Guðmundsson
F
JL-linn umtalaðasti ráðherrabíll
ársins er Volvo Sighvats Björg-
vinssonar. Nú er búið að setja
þjófavarnarkerfi í
bílinn. Meðan verið
var að setja kerfið í
bílinn voru ráðherr-
ann og bílstjórinn
hans á bílaleigubíl.
Þetta vakti athygli
og einn þeirra for-
vitnustu var Jón Árnason, bílstjóri
Davíðs Oddssonar. Leifur
Bjarnason, bílstjóri Sighvats, sagði
ástæðuna fyrir bílaleigubílnum þá
að hann hefði klessukeyrt Volvoinn
og verið væri að senda annan ná-
kvæmlega eins með flugi að utan.
Jón efaðist um sannleiksgildi sög-
unnar. Þegar Sighvatur kom að bíl-
stjórunum spurði Jón hann hvar
bíllinn væri. Ráðherrann sá að bíl-
stjóri hans mundi hafa búið til ein-
hverja sögu og svaraði á þann hátt
að Jón trúði. Það varð til þess að
sagan fór viða . . .
N
A ^okkrar bækur, sem reiknað
var með að yrðu góðar „sölubæk-
ur“, hafa valdið útgefendum sínum
og höfundum miklum vonbrigðum.
Meðal þeirra má nefna bók Omars
Ragnarssonar, bókina um Erlend
Einarsson, fyrrum forstjóra Sam-
bandsins, og Fimmtándu fjölskyld-
una eftir Jón Óttar Ragnars-
son . . .
N
1 ^ u eru þrjar vikur frá því Hall-
varður Einvarðsson ríkissaksókn-
ari gaf út ákæru á hendur ívari
-------- Haukssyni inn-
theimtumanni. Þrátt
fyrir hversu stutt er
frá útgáfu ákærunn-
ar verður dómur
kveðinn upp í mál-
inu á morgun, föstu-
JL að er athyglisvert að þeim sem
stunda íþróttir á landinu fer fækk-
andi. Árið 1989 stunduðu 103.500
manns íþróttir hér á landi, en árið
1990 hafði þeim fækkað í 101 þús-
und. Mest varð fækkunin í hand-
bolta, eða rétt um tólf hundruð þátt-
takendur. Karate æfðu 600 færri
1990 en 1989. í nokkrum íþrótta-
greinum varð fjölgun; golfi, hesta-
íþróttum, íþróttum fatlaðra, júdó,
lyftingum, siglingum, skíðaíþrótt-
um og tennis. Þrátt fyrir að þátttak-
endum hafi fækkað hefur stjórnar-
mönnum í íþróttahreyfingunni fjölg-
að um 230 . . .
lEiftir að PRESSAN birti frétt um
að Eiríkur Tómasson hæstaréttar-
lögmaður hefði verið skipaður sér-
stakur ríkissaksókn-
ari, vegna máls á
hendur Braga
Steinarssyni vara-
ríkissaksóknara,
hafa nokkrir lesend-
ur haft samband við
blaðið og furðað sig
á að Bragi skuli ekki þurfa að víkja
úr stöðu sinni á meðan mál á hend-
ur honum er til meðferðar í kerf-
inu ...