Pressan - 19.12.1991, Side 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
ÞRESSAN
Útgefandi
Blaö hf.
Framkvæmdastjóri
Hákon Hákonarson
Ritstjóri
Gunnar Smári Egilsson.
Ritstjórnarfulltrúi
Sigurjón M. Egilsson
Auglýsingasljóri
Hinrik Gunnar Hilmarsson.
Dreifingarstjóri
Steindór Karvelsson
Ritstjórn, skrifstofur og
auglýsingar: Hverfisgötu 8-10,
sími 62 13 13.
Faxnúmer: 62 70 19.
Eftlr lokun sklptiborös:
Ritstjórn 621391, dreifing 621395,
tæknideild 620055.
Askriftargjald 600 kr. á mánuðl.
Verð í lausasölu 190 kr. eintakið.
Þad er ódýrast
að reka þá
í PRESSUNNI í dager greint frá
því hvernig nokkrir ríkisforstjór-
ar og forstöðumenn ríkisstofn-
ana hafa virt fjárlög ríkisins að
vettugi.
Ár eftir ár hafa þessir menn
tekið sér fjárveitingavald og eytt
fjármunum skattgreiðenda að
eigin geðþótta. Þeir hafa unnið
samkvæmt kenningunni að
eyddur eyrir sé græddur eyrir.
Það virðist ekki votta fyrir að-
haldssemi í rekstri þeirra stofn-
ana sem þeim er trúað fyrir. Þeir
virðast ekki einu sinni hafa hug-
mynd um hvað áætlanir eru.
Hvað þá að þeir láti sér detta í
hug að fara eftir þeim.
Þegar ráðherrar ríkisstjórnar-
innar ýjuðu að þvi um daginn að
líkast til væri rétt að ríkisforstjór-
ar bæru einhverja ábyrgð á
rekstri stofnana sinna drógu þeir
í iand i næstu setningu. Þeir
sögðu að það gæti orðið dýrt að
reka mennina vegna uppsagnar-
ákvæða i samningum við opin-
bera starfsmenn.
Miðað við úttekt PRESSUNN-
AR í dag er hins vegar erfitt að
ímynda sér að það geti reynst
dýrara en að hafa þessa menn í
vinnu.
FJÖLMIÐLAR
Undanfarnar vikur hafa
blöð og aðrir fjölmiðlar verið
vettvangur varnarbaráttu
ýmissa hagsmunahópa gegn
hugmyndum ríkisstjórnar-
innar um niðurskurð þar og
skattahækkun hér.
Það er áberandi að í þess-
um kór heyrist hæst í þeim
sem eru best skipulagðir eða
geta hótað drastískustu að-
gerðunum. Meðal þeirra eru
sjómenn (sem vilja ekki
missa skattfríðindi sín), há-
skólarektor (sem vill ekki
sníða skóla sínum stakk eftir
fjárveitingum), vinnuveitend-
ur (sem gæta hags fyrirtækj-
anna) að ógleymdri stjórnar-
andstöðunni (sem hefur fyrst
og fremst hag af því að gera
aðgerðir stjórnarinnar tor-
kennilegar).
Minna fer fyrir ýmsum öðr-
Beint í starfskynningu
„Ég mun byrja á því að kynna
mér starfsemina.“
Arnar Páll Hauksson,
nýráðinn svœðlsstjóri RÚV.
Vill einhver heyra
höfuðkúpubrot?
„Þetta byggist nefnilega á því
að finna ákveðinn blett þar
sem maður fær hauskúpuna
til að svara högginu og
syngja. Þetta geta ekki allir."
Slgurður Rúnar .Jónsson
tónlistarmaður.
um hópum sem kannski
þurfa ekki að þola minni
skerðingu þjónustu eða
hækkun skatta.
Sjálfsagt verða einhverjir til
þess að halda því fram að
hlutverk fölmiðla sé að segja
fréttir. Ef einhver hagsmuna-
hópur kemur saman og sam-
þykkir að stjórnin sé vond og
fyrirætlanir hennar ómerki-
legar beri að birta það. Ef
engir eru til að koma saman
og setja samþykktir niður á
blöð geti blöðin lítið við því
gert. Astand síðustu vikna sé
því eðlilegt.
Ég trúi því hins vegar að ef
blöð vilja ekki láta nauðga
sér stöðugt verði þau að
ákveða sjónarhorn sitt. Eðli-
legast er að þau líti á mál út
frá hagsmunum almennings,
skattgreiðenda og neytenda.
Endurhæfingarstöð fyrir
námsmenn
„Þegar fólk er orðið góðu
vant getur það verið mjög
sárt að aðlagast á ný.“
Lárus Jónsson,
framkvæmdastjóri LÍN.
„Framsóknarráðin eru ekki
síður mikilvæg nú en þau
áður hafa verið og kannski
enn mikilvægari.“
Stelngrlmur Hermannsson
framsóknarmaður.
Enginn þessara hópa á sér
skipulagða áróðursskrifstofu
(skrifstofa Neytendasamtak-
anna er svo aum og sérlund-
uð að ekki tekur að minnast á
hana).
Ef blöð ætla að koma at-
burðarás síðustu daga og
vikna til skila til þessara hópa
verða þau sjálf að hafa fyrir
því að reikna dæmin út og
setja hlutina í samhengi. Ef
fréttirnar væru settar í sam-
hengi við hagsmuni þessara
hópa ætti almenningur auð-
veldara með að meta hug-
myndir um niðurskurð og
skattaijreytingar. Og til þess
er fjölmiðlaleikurinn að hluta
til gerður; að koma upplýs-
ingum á framfæri.
Gunnar Smári Egilsson
Útfararstjóri
Sovétríkjanna
„Aðalverkefni lífs míns er
lokið. Ég hef gert það sem ég
gat og ég held að aðrir sem
hefðu verið í mínum sporum
hefðu fyrir löngu verið búnir
að gefast upp.“
Mikhail Gorbatsjov leiðtogi.
„Ég er að skána en er slæmur í
höfðinu og öxlinni. Læknamir skáru
upp á mér höfuðið og allt hárið var
rakað af. Síðan tóku þeir eitthvað
af heilanum í burtu. En það fór
ekkert úr sambandi. Vitið varð eftirt
■■■■■■■■■■■■■■■■■■i kristján pálsson tælandsfari
Rökleysur
Kin rökvilla eða rökleysa er
algeng í umræðum um ríkis-
afskipti á íslandi. Hana má
setja fram með skirskotun til
freyðandi kampavíns. Þegar
maður á erfitt þarf hann á
kampavíni að halda. Þegar
honum gengur vel verð-
skuldar hann kampavínið.
Niðurstaðan er hin sama,
hver svo sem forsagan er:
Maðurinn fær sér kampavín!
Kenningin er með öðrum
orðum eins og viðskiptavin-
urinn í hugum slyngra kaup-
sýslumanna: Hún hefur alltaf
rétt fyrir sér.
Kíkisrekstur virðist vera
eins og kampavín. Þegar
rekstur opinberrar stofnunar
gengur illa á hún greinilega
rétt á sér að sögn ríkisaf-
skiptasinna, því að hún gæti
ekki tórt á frjálsum markaði.
Skilningsleysi ráðamanna er
þá kennt um hversu illa geng-
ur. Dæla þurfi meiri fjármun-
um í stofnunina. Þetta hefur
komið berlega í Ijós í deilum
um byggðastefnuna, þar sem
misvitrir menn hafa sóað
milljörðum króna.
Þegar rekstur opinberrar
stofnunar gengur vel á hún
líka rétt á sér að sögn ríkisaf-
skiptasinna, því að ríkið get-
ur greinilega eins séð um slík-
an rekstur og markaðurinn
og því óþarfi að flytja hann á
markaðinn. Ágóði hinnar op-
inberu stofnunar eða árangur
er hafður til marks um þetta.
Hvert á frekar að veita fjár-
munum en til vel rekinna
stofnana? Síst á að selja þau
einkaaðilum, segja ríkisaf-
skiptasinnar.
Byggðastofnun gengur illa,
tapar fjármunum. Þess vegna
á hún rétt á sér, þvi að enginn
óvitlaus aðili á frjálsum mark-
aði mundi bjóða fram þá
þjónustu, sem Byggðastofn-
un veitir. Búnaðarbankinn
gengur hins vegar vel, græðir
fjármuni. Þess vegna á hann
rétt á sér sem opinber stofn-
un, ríkið þarf síður en svo að
flytja þessa starfsemi til
einkaaðila.
Niðurstaðan er hin sama,
hvort sem vel eða illa gengur:
Ríkisafskipti skulu ekki
minnka! En við, sem viljum
geta andað fyrir stjórnvöld-
um, verðum að afhjúpa þessa
rökleysu ríkisafskiptasinna.
Þeir halda dauðahaldi í
skömmtunarvöld sin, bitlinga
og áhrif. Þeir grípa hvert
hálmstrá, sem gefst.
Höfundur er lektor i stjórn-
málafræði i félagsvisindadeild
Háskóla Islands.
MENN
Albert með langa
framtíð í stjórnmálum
Mikið rosalega var það
slæmt plott að gera Albert
Guðmundsson að sendiherra
til að losna við hann út úr pól-
itík. Til að hafa alla góða
þurfti Sjálfstæðisflokkurinn
að tryggja Inga Birni, syni
hans, öruggt sæti á lista. Og
niðurstaðan er sú að í stað Al-
berts, sem ætti bara fáein ár
eftir í pólitík, situr flokkurinn
uppi með Inga Björn, sem á
þrjátíu ár og jafnvel meira eft-
ir í stjórnmálum.
Auðvitað áttu menn að sjá
þetta fyrir. Það hefði ekki átt
að blekkja neinn þótt lítið
færi fyrir Inga Birni á meðan
pabbi hans var enn á þingi.
Og ekki heldur þótt hann
væri svo sem stilltur á meðan
hann var nýgenginn í Sjálf-
stæðisflokkinn með greyið
hann Hreggvið á bakinu.
Auðvitað áttu menn að sjá í
gegnum þetta og vita að
drengurinn yrði alveg eins og
pabbi hans.
Og það hefur gerst. Ingi
Björn hefur sýnt að hann ætl-
ar að verða lóner í pólitík
eins og pabbi hans. Hann ætl-
ar að stökkva á þau málefni
sem líkleg eru til vinsælda og
halda sér fast.
Slíkt krefst þess að menn
fórni bæði stefnu og sam-
starfsmönnum ef nauðsyn
krefur. Það gerði Albert. Þótt
ferill hans væri rannsakaður í
þúsund ár yrði aldrei hægt að
finna neinn þráð í pólitík
hans. Það tókst ekki þegar
hann stofnaði Borgaraflokk-
inn og reyndi að sjóða upp
stjórnmálastefnu. I hvert sinn
sem átti að beina henni í
ákveðna átt kom í ljós að það
yrði hugsanlega til meiri vin-
sælda að sveigja hana annað.
Og það var gert. Stundum í
tvær eða þrjár áttir samtímis.
Sökum þessa átti Albert lít-
ið skylt við stjórnmál. Hann
var hins vegar nothæfur sem
barómet á almenningsálit i
ýmsum dægurmálum.
Ingi Björn, sonur hans, hef-
ur valið sér sömu braut. Hann
tjáir sig bara í þeim málum
sem líkleg eru til vinsælda en
lætur sig hverfa annars. Eins
og föðurnum tekst honum
með þessu að tala alltaf máli
almennings.
Og Ingi Björn mun safna í
kringum sig hirð eins og faðir
hans gerði. Hún mun vaxa
jafnt og þétt þanngað til hún
verður svo stór að ekki verð-
ur hægt aö ganga framhjá
Inga Birni þegar ráðherra-
stólunum verður útbýtt. Og
þegar hann verður sestur í
ráðherrastól mun hirðin upp-
skera laun erfiðis síns. Alveg
eins og þegar faðirinn komst
loks að í fjármálaráðuneytinu
og tók að gera vinum sinum
greiða.
AS
UG&t H&FUK FUiJdí-Ð PIÁSTA& SiVjn/
í R£VKT/)ViK FRAMrí0Ap.iWAR /
AHH 3B$r ByRrA oa&ímaj á
SKo£MNAfcFEfc{> IAM FÁT'ZKRAHðEArÍM
E\H% os- VF(Vjm.LE:g-A ha HA hbhbí
VA Sh 6*R PLOTT, EGHj ÉGr nBiNf
ÍGr sý FLoTTj BG- AABt'tJAyHVA é.'rv/Ht/ií,
Aí> Kom/1 iÁT ? f1
C
£
JD
ro
to
fó