Pressan - 19.12.1991, Page 18
181
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
PNDIR
OXINNI
Sveinbjörn
Björnsson
háskólarektor
— Er ekki mögu-
legt að reka Háskól-
ann innan ramma
þess fjárlagafrum-
varps sem nú liggur
fyrir?
„Innan fjárlaga-
frumvarpsins eins og
það lítur út núna, sér-
staklega eftir aðra
umræðu, sjáum við
enga leið til að það
gangi nema grípa til
einhverra róttækra
aðgerða innan skól-
ans. Dæmið lítur
þannig út, miðað við
nemendafjölda eins
og reiknað er með
næsta haust, að það
vanti 250 milljónir
upp á svokallaða fjár-
veitingu.
Svo er hins vegar
gert ráð fyrir að Há-
skólinn innheimti
skólagjöld, sem gæfi i
auknar sértekjur 90
milljónir króna. Inni í
þessari tölu, 250
milljónum, er niður-
skurður upp á 90
milljónir, en af honum
getur menntamála-
ráðherra látið okkur fá
aftur 40 prósent eða
36,4 milljónir. Þá
stæðum við eftir með
fjárvöntun upp á
127,1 milljón''
— Finnst þér koma
til greina að hækka
skólagjöldin?
„Mér finnst það
ekki. En það er ekkert
óeðlilegt að menn
spyrji. Við höfum ver-
ið andvíg því að
skólagjöld væru tekin
upp vegna þess að
við óttumst að freist-
ingin verði til þess að
hækka þau alltaf þeg-
ar ríkisstjórnum þykir
hart í ári."
— Hefur Háskólinn
verið rekinn innan
fjárlaga i gegnum ár-
in?
„Ég held þú mundir
fá það staðfest hjá yf-
irvöldum að Háskól-
inn hefur verið vel
ábyrgur í fjármálum. I
ár er útlit fyrir að það
sem við förum fram
úr nemi 40 milljónum.
— En þið sjáið
ekki fram á að geta
búið til þessar
milljónir sem vantar
innan stofnunarinn-
ar?
„Ekki með neinum
venjulegum aðgerð-
um."
Framlög til Háskólans eru
skert verulega i fjárlagafrum-
varpi þvi sem nú liggur fyrir.
Menn þar á bæ eru ekki par
ánægöir og hafa meöal annars
sagtaö ekki veröi hægt aö taka
á móti nýnemum á næsta ári ef
fjárveiting verði ekki aukin.
Sláturfélag Suðurlands
ÞARF AB BORGA100
MIUJOHIB FYBIB
BROTTREKSTORINN
Hæstiréttur hefur dæmt
Sláturfélag Suðurlands til að
greiða Jóni H. Bergs, fyrrum
forstjóra félagsins, sömu laun
og eftirmenn hans hafa, og
það allt til dauðadags. Lifi
eiginkona Jóns mann sinn
fær hún greidd nærri sömu
laun og hann. Reikna má
með að sú ákvörðun stjórnar
Sláturfélagsins að reka Jón
frá störfum geti kostað félag-
ið um 100 milljónir króna.
Jón H. Bergs var rekinn frá
Sláturfélaginu árið 1988.
Hann hafði áður gert samn-
ing um laun eftir að hann léti
af störfum. Það er sá samn-
ingur sem Hæstiréttur hefur
dæmt um. Samkvæmt hon-
um hefur Jón um 600 þúsund
krónur á mánuði, án nokk-
urrar vinnuskyldu.
Nokkru eftir að Jón var
hættur hætti Siáturfélagið að
greiða honum. Það varð til
þess að málið fór fyrir dóm-
stóla. Borgardómur og Hæsti-
réttur komust að sömu niður-
stöðu, þ.e.a.s. að samningur-
inn hefði fullt gildi.
Fyrrum stjórnarformaður
SS, Gísli Andrésson, sem nú
er látinn, gerði starfsloka-
samning við Jón árið 1984.
Eftir að Jón hætti dró stjórn
SS í vafa að Gísli hefði haft
heimild til að gera samning-
inn. Eigi að síður voru Jóni
greidd laun samkvæmt hon-
um eftir að hann lét af störf-
um.
Með dómi Hæstaréttar hef-
ur SS verið dæmt til að greiða
Jóni sömu laun og núverandi
forstjóri, Steinþór Skúlason,
hefur, eða um 600 þúsund
krónur á mánuði.
í dómsmeðferð málsins var
hiuti raka SS sá að Jón hefði
í raun verið óhæfur til starfs-
ins sökum áfengisneyslu og
mistaka í starfi og eins hefði
hann ekki upplýst stjórn fé-
lagsins um raunverulega
stöðu þess. Þessar fullyrðing-
ar voru hraktar fyrir dómi.
Að lokum má geta þess að
Sláturfélagið var dæmt til að
gefa út afsal fyrir forstjóra-
bílnum, R-355, Buick Electra,
en Jón hafði bílinn þegar
hann var forstjóri og í hinum
umdeilda samningi var
ákvæði um að Jón héldi yfir-
ráðum yfir bílnum eftir að
hann léti af störfum. Jón var
ekki nema 61 árs þegar hon-
um var vikið frá störfum.
Jón H. Bergs. Hæstiréttur
hefur dæmt honum góð
forstjóralaun þrátt fyrir að
vinnuskyldan sé engin.
Steinþór Skúlason forstjóri.
Hann hefur sömu laun og
forveri hans, Jón H. Bergs.
Fækkun ríkisstarfsmanna um 600
Færip fjölda píkisstapfsmanna aðeins eitt áp aftup í tímann
Fyrirhuguð fækkun ríkis-
stjórnarinnar á ríkisstarfs-
mönnum um 600 er ekki rót-
tækari aðgerð en svo, að hún
mundi færa fjölda ríkisstarfs-
manna aftur í það horf sem
var fyrir aðeins einu ári.
Þegar yfirstandandi ár var
hálfnað hafði stöðugildum
hjá ríkisstofnunum fjölgað
um 582 og er þá aðeins litið
til stofnana A-hluta ríkissjóðs.
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra. Ætlar að fækka
ríkisstarfsmönnum um 600 á
næsta ári. Það samsvarar
fjölgun þeirra á þessu ári.
I nýlegri skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um framkvæmd
fjárlaga kemur fram að
launakostnaður A-hluta ríkis-
sjóðs hækkaði um 700 millj-
ónir frá fyrri hluta síðasta árs
til fyrri hluta þessa árs og má
rekja helming hækkunarinn-
ar til fjölgunar starfsmanna.
í fjárlögum fyrir yfirstand-
andi ár var gert ráð fyrir fjölg-
un starfsfólks um 600 stöðu-
gildi, þar af 500 stöðugildi
vegna breytinga á verka-
skiptingu ríkis og sveitarfé-
laga. Þegar fjölgun stöðu-
gilda innan einstakra ráðu-
neyta er skoðuð kemur í ljós
að mest munaði um stofnanir
menntamálaráðuneytisins.
Þar fjölgaði stöðugildum um
293, þar af 138 stöðugildi hjá
grunnskólum. Muna þar
mestu skólaskylda 6 ára
barna og nýjar reglur um sér-
kennslu.
Hjá heilbrigðisráðuneytinu
varð fjölgunin 203 stöðugildi,
þar af 123 stöðugildi hjá
Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur. Þar var um nýjan lið að
ræða, vegna verkaskiptingar,
ríkis og sveitarfélaga. Hjá rík-
isspítulunum fjölgaði samtals
um 49 stöðugildi. Hjá stofn-
unum flestra annarra ráðu-
neyta varð breytingin óveru-
leg.
Össur Skarphéðinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokksins. Einn fimm þingmanna sem sátu hjá í atkvæðagreiðslu um tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins.
DEBET
„Hann er duglegur maður með mikið sjálfs-
traust, húmoristi og vinur vina sinna. Maður
heilinda eins langt og það getur náð í pólitík.
Geysilegur baráttumaður, bæði í einstökum
skærum og í stöðustriði. Og svo má ekki gleym-
ast að helsti kostur hans er að hann á afskaplega
greinda og fagra eiginkonu," segir Mörður
Arnason, gamall skólabróðir og samstarfs-
maður. „Hann er gífurlega fljótur að átta sig á
aðalatriðum og mjög vinnusamur maður sem
vill láta hlutina gerast strax. Hann er líka ein-
staklega hjartagóður og má ekkert aumt sjá,"
segir Gísli Lárusson, forstjóri Skandia ís-
land. „Hann er duglegur og fyndinn. Hann er
breskmenntaður og hefur tamið sér ýmsar venj-
ur og hugsunarhátt þarlendra eyjaskeggja, sem
sumir kunna ekki að meta,“ segir Óiafur Ragn-
ar Grímsson, formaður Alþýðubandalags-
ins. „Hann getur verið hjartahlýr og traustur fé-
lagi. Hann er kappsamur og metnaðarfullur,
sem gerir hann að sjálfkjörnum forustumanni
hvar sem hann skipar sér í sveit," segir Óskar
Guðmundsson, ritstjóri Þjóðlífs. „Það fylgir
Össuri hressilegur andblær. Hann er frjór pólit-
íkus hvað varðar hugmyndir og nálgun við-
fangsefna. Svo þegar hann fer af stað gerir hann
það með stæl. Hann er vinur vina sinna og það
er gott að vinna með honum og hann er ærleg-
ur,“ segir Guðmundur Arni Stefánsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði. „Hann er hreinskiptinn
og heiðarlegur og mikill vinur vina sinna. Hann
er glaðlyndur og mikill húmoristi," segir Arnór
Benónýsson leikari. „Helsti kostur hans er að
hafa getað gert laxfiska," segir Björn Bald-
vinsson, framkvæmdastjóri Fellalax.
Össur Skarphéðinsson
alþingismaður
KREDIT
„Hann er feikiiega duglegur með mikið
sjálfstraust, þess vegna stundum fljótfær
og hlustar ekki nægilega á þá menn sem
ráða honum heilast,“ segir Mörður Árnason.
„Honum hættir til að vaða úr einu í annað
og ætlar sér stundum of margt í einu. Metn-
aður hans í starfi truflar stundum hans
góða hjartalag," segir Gísli Lárusson. „Hann
er fljótfær — meðal annars var sá gáliinn á
honum þegar hann flýtti sér um of í Alþýðu-
flokkinn," segir Ólafur Ragnar Grímsson.
„Hann á það til að gera ekki sömu kröfur til
sjáifs sín og hann gerir til annarra. Hann
getur orðið fúll af litlu tilefni og svo er hann
dálítið seinheppinn með ríkisstjórnir,“ segir
Óskar Guðmundsson. „Aðalgalli hans er
þverslaufan. Svo mætti hann anda eilítið á
milli áður en hann lætur vaða. Gefa sér tíma
til að hugsa svolítið. Hans versti galli er að
hann var í Alþýðubandalaginu, en nú er
hann búinn að laga það," segir Guðmundur
Árni Stefánsson. „Hann er gífurlega afkasta-
mikill og hættir til að sýna þeim óþolin-
mæði sem starfa ekki á sama tempói og
hann,“ segir Arnór Benónýsson leikari. „Helsti
galli hans er að hann hljóp frá laxeldinu án
þess að klára dæmið,“ segir Björn Baldvins-
son.