Pressan - 19.12.1991, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
21
um jólin
Gudbergur Bergsson
SVANURINN
(Forlagið)
Guðbergur gefur út fyrstu
skáldsöguna í sex ár. Það er
náttúrlega viðburður í sjálfu
sér, en bókin ber iíka vott
um meiri yfirlegu en skáld-
verkin sem flæddu frá Guð-
bergi fyrst eftir að hann
lærði á tölvu.
Þjóðleikhúsid
RÓMEÓ OG JÚLÍA
Guðjón Petersen þykir hvað
efnilegastur ungra leikstjóra
og hér fær hann aideilis
tækifæri, ástar- og harm-
sögu allra tíma eftir Shake-
speare. Enginn efast um að
Guðjón kann að láta leikara
hreyfa sig á sviði, en hins
vegar hafa Shakespeare-sýn-
ingar leikhúsanna undanfar-
in ár liðið nokkuð fyrir það
hversu framsögn ungra leik-
ara er ábótavant. Vonandi
tekst að ráða bót á því.
Frumsýningin er annan í
jólum, það verður ógurlegt
fínerí fyrir þá sem hafa
áhuga á slíku; við vörum
hins vegar eindregið við
sýningu númer tvö — hana
sækja aðallega þeir sem
hafa átt áskriftarmiða síðan
leikhúsið var byggt og
stemmningin er eftir því. ..
j
Jón Leifs
VISIONS AND IMAGES
(islensk tónverkamiðstöö)
Jón Leifs hafði sérstakt lag
á að koma sér út úr húsi,
líka í tónleikasölum. Hann
andaðist 1968 og var eftir
það hérumbil öllum gleymd-
ur í meira en tuttugu ár. Nú
hefur hann verið endurupp-
götvaður með pomp og
prakt, blaðagreinum, tón-
leikum, hér er fyrsti geisla-
diskurinn og kvikmynd er í
bígerð. Það er Sinfóníu-
hljómsveit íslands sem hér
flytur fjögur verk eftir Jón
undir stjórn Pauls Zukofsky;
Geysi, Heklu, Landsýn og
Þrjú óhlutræn málverk.
Hlustendur hafa sjálfsagt
misjafna skoðun á tónlist-
inni; sumir geta ekki varist
þeirri tilhugsun að músík
Jóns sé lítið annað en há-
vaði, skruðningar og belg-
ingur, öðrum finnst hann
vera stórfenglegt tónaskáld
á heimsvísu. Hlustið á disk-
inn, dæmið sjálf...
Pað er víst fátt nýtt hœgt aö segja um jólin. Pau koma á sama tíma á hverju ári og
eru kœrkomin flestum. Best eru eiginlega þau jól sem eru hvad líkust öllum góöu jól-
unum sem á undan komu. Hér aö neöan og á nœstu síöum skyggnumst viö inn um
jólagœttina hjá nokkrum nafnkunnum körlum og konum. Viö œtlumst ekki til þess
aö þau segi okkur einhver nýmæli, heldur tali hara ögn um jólin.
Matthíasson
Pálmi Matthíasson er sóknar-
prestur í Bústaðakirkju.
Hann verður önnum kafinn
um jólin.
Hvað ætlarðu að gera á jól-
unum?
— Vinna og reyna að vera
með fjölskyldunni.
Hvaða þýöingu hafa jólin
fyrir þig?
— Þau eru mér heilög trú-
ar- og fagnaðarhátíð.
Hvað erþaö besta við jólin?
— Boðskapur þeirra.
Hvað er þaö versta við jól-
in?
— Sé ekkert slæmt við þau.
Hvað viltu fá í jólagjöf?
— Góða bók.
Hvað heldurðu aö þú fáir í
jólagjöf?
— Veit það ekki.
Hver er eftirminnilegasta
jólagjöfin sem þú hefur feng-
ið?
— Fyrstu __ skíðin sem ég
eignaðist. Ég svaf með þau
uppi í hjá mér, og í skónum
líka. Ég man sérstaklega
hvað það var ferlegt þegar
átti að rífa mig úr þeim.
Manstu eftir jólum sem
voru nœstum búin að klúðr-
ast?
— Ég man ekki eftir því. í
mínum huga hafa þau alltaf
staðið upp úr öllu öðru. Jólin
eru ekki í hættu, miklu frekar
ég sjálfur.
Hvenœr hœttiröu að trúa á
tilvistJólasveinsins?
— Eg trúði aldrei á hann,
en ég var hræddur við hann.
Svo fór ég að vera hann.
Hvað er í jólamatinn hjá
þér?
— Blandaðir sjávarréttir,'
rjúpur og heimatilbúinn ís.
Feröu í kirkju á jólunum?
— Kemur fyrir.
Ferðu í fjölskylduboð?
— Því miður er ekki tími.
Hvað eyöiröu miklum pen-
ingum í jólahaldið?
— Aldrei tekið það saman.
Uppáhaldsjólalag?
— Heims um ból.
Hver erþér efst í huga á jól-
unum?
— Dóttir mín, kona og fjöl-
skylda.
Hvað er þér efst í huga á
jólunum?
— Kærleikur Guðs til okkar
mannanna.
tJlallcyUnuiA,
Thorsteinsson
Hallgrímur Thorsteinsson út-
varpsmaður flutti búferlum á
árinu. Hann kom aftur heim
frá Ameríku þar sem hann
stundaði nám um skeið og
hóf á nýjanleik störf á Bylgj-
unni.
Hvað œtlarðu aö gera um jól-
in?
— Borða, sofa, kela, lesa.
Hvaða þýðingu hafa jólin
fyrir þig?
— Þau eru þarna — guði sé
lof.
Hvaö erþað besta viö jólin?
— Jólaguðspjallið í útvarp-
inu, engin spurning.
Hvaö er það versta viö jól-
in?
— Lokaðar sjoppur.
Hvað viltu fá t jólagjöf?
— Slökkvitæki.
Hvað helduröu að þú fáir í
jólagjöt?
— Kveikjara.
Manstu eftir jólum sem
voru nœstum búin að klúör-
ast?
— Jólastressið fór svo í
taugarnar á mér fyrir ein jól-
in að ég neitaði í lengstu lög
að kaupa jólatré. Svo gaf ég
mig á síðustu stundu og
keypti síðasta jólatréð hjá
Landgræðslusjóði á aðfanga-
dag.
Hvenœr hœttiröu aö trúa á
tilvistjólasveinsins?
— Eg trúði aldrei á hann.
Hann virkaði alltaf feik. Ég
trúi samt alltaf á íslensku jóla-
sveinana.
Hvaö er í jólamatinn hjá
þér?
— Rjúpur a la Kirsten.
Ferðu í kirkju á jólunum?
— Nei, útvarpsmessan
nægir mér.
Ferðu t fjölskylduboð?
— Þetta venjulega — til for-
eldranna og tengdó.
Hvaö eyöiröu miklum pen-
ingum í jólahaldið?
— Ég hef aldrei spáð of
mikið í það og ætla ekki að
fara að byrja á því um þessi
jól.
Uppáhaldsjólalagið?
— Hann sáði.
Hvað er þér efst í huga á
jólunum?
— Heimatilbúni rjómaísinn
hennar mömmu — með mar-
engs.
SiaftA
Pál^óttir
Signý Pálsdóttir flutti öðru
sinni norður yfir heiðar fyrr á
þessu ári. Þá tók hún við sínu
gamla starfi sem leikhússtjóri
hjá Leikfélagi Akureyrar.
Hvað œtlarðu að gera á jól-
unum?
— Ég ætla að njóta að-
fangadagskvölds á Akureyri
með börnunum mínum, Guð-
rúnu, Torfa og Melkorku, á
hefðbundinn hátt í friði og ró.
Hvaöa þýðingu hafa jólin
fyrir þig?
— Þá sömu og alltaf. Þau
endurnæra trú mína með því
að minna á fæðingu Jesú og
þau sameina fjölskylduna,
því þau gefa mér tækifæri til
að sýna í verki hvað mér þyk-
ir vænt um þá sem standa
mér næst.