Pressan - 19.12.1991, Qupperneq 24
24
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
ott
um jólin
Nanna Rögnvaldardóttir
SKILMÁLARNIR HENNAR
MARÍU
(Forlagið)
Það orð hefur lengi farið af
Maríu Þorsteinsdóttur að
hún sé einhver harðsvírað-
asti kommúnisti á norður-
hveli. Hér eru stór örlög:
annars vegar átrúnaður á
hugmyndafræði sem reynd-
ist rugl og heimsveldi sem
hrundi með brauki og
bramli; hins vegar löng ævi,
mörkuð stóráföllum og sorg.
Kjaftasögur hafa gengið í
áratugi um dularfullan
dauðdaga Þorsteins, sonar
Maríu, í Austur-Þýskalandi;
ekki síst hafa menn velt
vöngum yfir því hvort ís-
lenskum námsmönnum sem
þar voru á vegum Sósíalista-
flokksins hafi á einhvern
hátt verið um að kenna.
María segir sína hlið á mál-
inu, en ráðgátan er engu
minni en fyrr. Efni bókar-
innar er semsagt merkt, en
hún hefði getað verið svo
miklu betri, hefði skrásetjar-
inn vandað sig svona helm-
ingi meira.
Megas
TEXTAR
(Almenna bókafélagið)
Allt eftir smekk: Sumum
blöskrar ennþá orðfæri
Megasar, sumum finnst
hann leiðinlegur og halló,
sumir eru agndofa yfir
snilldinni. Það er eins með
textana: Sumir er fyndnir,
sumir fyrir utan allt vel-
sæmi, sumir hrein og tær
póesía. Rímaðir og stuðlaðir
rokktextar, miðja vegu milli
bókmenntaarfsins og götu-
ræsisins. Görótt blanda og
einstök.
Stjörnubíó
BILUN í BEINNI
ÚTSENDINGU
Tilraunin til að íslenska
heiti þessarar myndar er
blátt áfram fáránleg. I raun
heitir hún „The Fisher
King" sem útleggst Fiski-
kóngurinn eða Veiðikóngur-
inn. Titillinn vísar til þjóð-
sögunnar um leitina að hin-
um heilaga kaleik, gralinu,
en þar kemur áðurnefndur
Fiskikóngur við sögu, getu-
leysi hans og gagnsleysi.
Hvað um það, eftir upp-
skrúfaðar stórmyndir fullar
af hávaða og bægslagangi
lánast Terry Gillam (Brazil,
Munchhausen) að gera fal-
lega og skemmtilega mynd
um ólánsmenn sem reynast
ekki svo ýkja lánlausir þeg-
ar öllu er á botninn hvolft.
íslenska óperan
TÖFRAFLAUTAN
Mozart-árið mikla er að
renna sitt skeið; er ekki
fjarskalega viðeigandi að
enda það á Töfraflautunni,
furðulega stykki sem Moz-
art samdi rétt undir andlát-
ið, fyrir sléttum tvöhundruð
árum?
Ekki ætti það heldur að
gera þessa ágætu sýningu
leiðinlegri að Diddú, sem
áður fór á kostum í hlut-
verki Papagenu, brillerar nú
í enn vandasamara gervi
Næturdrottningarinnar.
Sumir telja sig kannski vera
búna að fá nóg af Mozart
eftir allt tilstandið kringum
hann síðustu misserin, en
það fær ekki staðist; það er
ekki hægt að fá nóg af
himneskri snilld . ..
— Öll jól sem ég man eftir
hafa næstum verið búin að
klúðrast, en á einhvern óskilj-
anlegan hátt hefur allt fallið í
ljúfa löð á síðustu stundu.
Hvenœr hœttirdu aö trúa á
tilvist jólasveinsins?
— Ertu að reyna að segja
mér að ég eigi að hætta að
trúa á jólasveininn. Kanntu
annan?
Hvaö er í jólamatinn hjá
þér?
— Hef ekki græna glóru.
Feröu í kirkju á jólunum?
— Já, í huganum.
Feröu í íjölskylduboö?
— Já, ég fer í aðalfjöl-
skylduboðið í bænum sem
verður heima hjá mér.
Hvaö eyöiröu miklum pen-
ingum í jólahaldiö?
— Engum. Ég veifa bara
litlu korti sem ég á út í allar
áttir og fæ allt sem ég vil.
Uppáhaldsjólalag?
— All I want for Christmas
is my two front teeth.
Hver er þér efst í huga á jól-
unum?
— Andrés Önd. Alltaf þeg-
ar klukkan slær sex á að-
fangadag er bara ein persóna
mér efst í huga, Andrés Önd.
Það er sennilega vegna þess
að þá er verið að taka frænda
hans út úr ofninum heima,
steiktan í gegn, og ég er að
búa mig undir að borða
hann . ..
Hvaö er þér efst í huga á
jólunum?
— Ekkert. Á jólunum hef
ég bara eitt mottó: að tæma
hugann og fylla magann.
Hallelúja . . .
Friðleifsdóttir
Siv Friðleifsdóttir er formað-
ur Sambands ungra fram-
sóknarmanna og bæjarfull-
trúi á Seltjarnarnesi. Sú
breyting hefur orðið á pólit-
ískum högum hennar þetta
árið að flokkurinn hennar er
ekki í ríkisstjórn, eiginlega í
fyrsta skipti í tvo áratugi.
Hvaö œtlaröu aö gera á jól-
unum?
— Á aðfangadagskvöld
býð ég fjölskyldunni í jólamat
með öllu tilheyrandi. Það
verður prófsteinn á kunnáttu
mína í að elda rjúpur. Yfir há-
tíðina ætlum við sonur minn
Húnbogi að lesa saman, en
hann er nýbyrjaður að tengja
saman orð.
Hvaöa þýöingu hafa jólin
fyrir þig?
— Jólin eru ánægjulcgasta
fjölskylduhátíðin sem haldin
er. Bernskuminningarnar eru
einna sterkast tengdar þess-
ari hátíð.
Hvaö er þaö besta viö jólin?
— Gleðin sem fylgir þeim.
Þá eru allir samstilltir um að
láta sér og öðrum líða vel,
ekki aðeins með gjöfum held-
ur einnig með samveru.
Hvaö er þaö versta viö jól-
in?
— Þau líða fljótar en maður
hélt. Það hef ég upplifað ár
eftir ár!
Hvaö viltu fá í jólagjöf?
— Trimmskó, vöðlur, nýju
bókina um Jónas frá Hriflu,
dagbók fyrir 1992 og háls-
men í fornaldarstíl.
Hvaö helduröu aö þú fáir í
jólagjöf?
— Frá syni mínum fæ ég
sennilega meiri háttar fönd-
urverk. Systir mín gefur mér
sjálfsagt eitthvað sem hana
langar sjálfa í og hún fær lán-
að daginn eftir. Annað er á
huldu.
Hver er eftirminnilegasta
jólagjöfin sem þú hefur feng-
iö?
— Eitt sinn fékk ég hlaupa-
sleða sem varð mér mjög
kær. Okkur krökkunum þótti
hann hálfgerður undragripur.
Siíkir sleðar sjást ekki i dag,
nema ef til vill á byggðasöfn-
um.
Manstu eftir jólum sem
voru nœstum búin aö klúör-
ast?
— Á aðfangadagskvöld fyr-
ir tveimur árum, klukkan tíu
mínútur í sex, varð kaos á
heimilinu sem við vorum ný-
flutt inn í. Þá uppgötvaði hús-
bóndinn að jólabuxurnar
voru týndar. Hann hljóp á
sloppnum yfir í fyrri íbúð
okkar, sem er hér stutt frá, og
gat vélað þær út.
Hvenœr hœttiröu aö trúa á
tilvist jóíbsveinsins?
— Trúin á jólasveininn
hvarf algerlega þegar ég tók
eftir því að hann var með stál-
úr föður míns.
Hvaö er í jólamatinn hjá
þér?
— Á aðfangadagskvöld er
jólagrautur og marsipangrís í
möndlugjöf. Rjúpur að vest-
an með hefðbundnu íslensku
meðlæti.
Feröu í kirkju á jólunum?
— Við hlustum alltaf á jóla-
messuna í útvarpinu og opn-
um jólakortin um leið.
Feröu í fjölskylduboö?
— Föðursystir mín Sigga
býður okkur bræðrabörnum
sínum. Auk þess fer fram jóla-
marsípankeppni fjölskyld-
unnar ár hvért. Móðir mín er
mótstjóri og fær það erfiða
hlutverk að velja „listamann
ársins", þann sem býr til
frumlegasta marsípanmol-
ann. Bróðir minn vann í
fyrra. Ég stefni á sigur nú! í ár
förum við systkinin í eitt
„nýtt“ jólahóf, en það er til
vinar okkar Gumma smiðs.
Hvaö eyöirðu miklum pen-
ingum í jólahaldiö?
— Ég giska á 80 þúsund
með gjöfum, mat og fleira.
Uppáhaldsjólalag?
— Heims um ból.
Hver er þér efst í huga á jól-
unum?
— Sonur minn. Jólin eru
hátíð barnanna, og ég geri
mér far um að láta hann njóta
sín þá.
Hvaö er þér efst í huga á
jólunum?
— Klukkan sex á aðfanga-
dagskvöld, þegar kirkju-
klukkurnar hringja og ég
faðma að mér fjölskylduna
og óska henni gleðilegra jóla,
skynjar maður sterklega
hvað lífið er hverfult. Þá finn-
ur maður hve hinir nánustu
eru mikil kjölfesta í lífi
manns.
■&tu
Eðvaldsson
Þetta hefur verið viðburða-
ríkt ár hjá Atla Eðvaldssyni
knattspyrnumanni. Hann
hætti að leika með landslið-
inu í fótbolta, gerðist aðstoð-
arþjálfari hjá KR og stofnaði
verslun þar sem hann selur
glæsiteppi frá Tyrklandi.
Hvaö œtlaröu aö gera á jól-
unum?
— Það sama og ég hef gert
síðan ég man eftir mér, vera í
faðmi fjölskyldunnar.
Hvaöa þýöingu hafa jólin
fyrir þig?
— Þau eru hápunktur hvers
árs og hafa alltaf verið.
Hvaö erþaö besta viö jólin?
— Spennan og gieðin sem
fylgir þeim þrátt fyrir
skammdegi sem gerir alla
hálfvitlausa.
Hvaö er þaö versta viö jól-
in?
— Ég get ekki séð neitt nei-
kvætt við þau. Við getum
ekki verið án jólanna.
Hvaö viltu fá í jólagjöf?
— Hundrað prósent hand-
unnið teppi frá versluninni
Kadir í Skipholti 50c.
Hvaö helduröu aö þú fáir í
jólagjöf?
—- Tyrkneskt silkiteppi sem
er ekki nema einn fermetri
að stærð, en tekur eina konu
heilt ár að vefa.
Hver er eftirminnilegasta
jólagjöf"sem þú hefur fengiö?
— Það var fyrir einhverjum
árum að ég fékk vasaljós. Mér
þótti svo gaman að lýsa með
því í myrkrinu að þegar dugði
ekki að slökkva öll ljós á
heimilinu, tók ég mig til og
fjarlægði öll öryggi. Eg fékk
aldrei vasaljós aftur.
Manstu eftir jólum sem
voru nœstum búin aö klúör-
ast?
— Nei, það er ekki hægt að
klúðra jólunum. Þegar ég var
lítill og búinn að fara yfir
pakkana á annan í jólum byrj-
aði ég strax að skipuleggja
þau næstu. Undirbúningstím-
inn er svo langur.
Hvenœr hœttiröu aö trúa á
tilvistjólasveinsins?
— Eg er ekki ennþá hættur
að trúa á hann. Það eru svo
margir jólasveinar sem fara
aldrei til fjalla.
Hvaö er í jólamatinn hjá
þér?
— Heima var alltaf þrírétt-
að. Hangikjöt handa ömmu,
svínakjöt og súrkál handa
pabba og rjúpur handa öllum
hinum.
Feröu í kirkju á jólunum?
— Ég fór á mínum yngri ár-
um með mömmu og pabba,
en sjaldan núorðið.
Feröu í fjölskylduboö?
— Við reynum að heim-
sækja sem flesta úr fjölskyld-
unni.
Hvaö eyöiröu miklum pen-
ingum í jólahaldiö?
— Ég hef alltaf eytt miklu.
Það breytist ekki.
Uppáhaldsjólalag?
— Þau eru flest góð. Þessa
dagana hlusta ég mest á
Dengsa og Hemma.
Hver er þér efst í huga á jól-
unum?
— Mamma sem dó í fyrra.
Hvaö er þér efst í huga á
jólunum?
— Aðfangadagskvöld hjá
mömmu og pabba og þrírétt-
aða máltíðin.
Masvcyiét
Blöndal
Margrét Blöndal er út-
varpskona á Rás 2. Hún hefur
lengi talað í útvarp norður á
Akureyri, en starfar nú í
Efstaleiti í Reykjavík.
Hvaö œtlaröu aö gera á jól-
unum?
— Njóta þess að vera heima
með mínu fólki — og reyna
að hitta eitthvað af því góða
fólki sem ég hef vanrækt að
undanförnu.
Hvaöa þýöingu hafa jólin
fyrir þig?
— Mér finnst jólin yndisleg
og ég verð skelfingu lostin yf-
ir þeirri tilhugsun að missa
jólin og reyndar er öll aðvent-
an minn tími. Ég nýt þess að
setjast niður og skrifa á jóla-
kort og pakka inn gjöfum og
hugsa í leiðinni um allt þetta
góða fólk sem ég þekki og
þykir vænt um.
Hvaö erþaö besta viö jólin?
— Jólanna vegna get ég
leyft mér að vera fimm ára
einu sinni á ári. Forvitin, eftir-
væntingarfull, óþolinmóð og
raunar flest það sem fólki
sem telst vera fullorðið líðst
ekki. Og jólin hafa líka þann-
ig áhrif á mig að ég kann
miklu betur að meta hvað ég
á gott.
Hvaö er þaö versta viö jól-
in?
— Það eina sem ég get sett
út á jólin er hvað þau líða
fljótt.
Hvaö viltu fá í jólagjöf?
— Bækur hafa alltaf verið
efstar á óskalistanum hjá mér
og eru enn. Það sem hefur
komið á effir bókunum hefur
fylgt aldrimínum og mér sýn-
ist að skartgripir ætli að
fylgja fertugsaldrinum.
Hvaö helduröu aö þú fáir í
jólagjöf?
— Ég veit að ég fæ bók frá
foreldrum mínum. Það bygg-
ist á samningi sem var gerður
ein unglingsjólin mín þegar
ég fékk enga bók en þeim
mun meira af ilmsöltum og
kölnarvötnum. £ldri dóttir
mín útbjó eitthvað dularfullt í
handmenntatíma sem hún er
búin að vera að pukrast með
í rúma viku. Eina gjöf er ég
búin að fá. Það beið mynd-
bandstæki á eldhúsborðinu
einn daginn, innpakkað í
jólasveinapappír og með
rauða slaufu.
Hver er eftirminnilegasta
jólagjöf sem þú hefur fengiö?
— Sennilega var það risa-
stór dúkka sem ég fékk frá
foreldrum mínum þegar ég
var níu ára. Ég var búin að
mæna á hana lengi og fannst
ég ekki geta lifað án hennar.
Manstu eftir jólum sem
voru nœstum búin aö klúör-
ast?
— Já reyndar, en ég nenni
eiginlega ekki að rifja það
upp.
Hvenœr hœttiröu aö trúa á
jólasveininn?
— Ég hef sennilega verið
átta eða níu ára. Ég man ekki
hvaða óféti það var sem kom
upp um svikin en sorgin var
mikil, líklega verður þetta að
teljast mín fyrsta ástarsorg.
Hvaö er í jólamatinn hjá
þér?
— Hamborgarhryggur
með brúnuðum kartöflum á
aðfangadagskvöld og hangi-
kjöt með laufabrauði á jóla-
dag — svo þetta verði eins og
heima hjá pabba og mömmu.
Núna bætist við snjóbúðing-
ur í eftirrétt á aðfangadags-
kvöld — það er víst alveg
ómissandi góðgæti.
Feröu í kirkju á jólunum?
— Já, nú ætla ég í fyrsta
skipti að fara í kirkju á að-
fangadagskvöld.
Feröu í fjölskylduboö?
— Þetta eru fyrstu jólin sem
ég er ekki hjá pabba mínum
og mömmu sem eru fyrir
norðan, því miður. Dísa
frænka og Unnar eru búin að
lofa að halda veglegt jólaboð
fyrir okkur og ætla líka að
mæta í frumraun okkar í jóla-
boðum.
Hvaö eyöiröu miklum pen-
ingum í jólahaldiö?
— Öllum sem ég á og meiru
til! Það er samt ekki nein
svaka upphæð.
Uppáhaldsjólalag?
— „Please come home for
Christmas" með Eagles, svo
finnst mér alltaf einstaklega
fallegt að heyra Egil Ólafsson
syngja Hátíð í bæ.
Hver er þér efst í huga á jól-
unum?
— Fólkið mitt og foreldrar
mínir og ég veit ekki alveg
hvernig ég ætla að fara að
þessu án þeirra og veit að ég
á eftir að sakna þeirra og
hinna Norðlendinganna
minna mikið.
Hvaö er þér efst í huga á
jólunum?
— Sú tilhugsun hvað það
væri gott ef öllum liði jafnvel
og mér og mínum um jólin.
&dda
Andrésdóttir
Hið fræga bros Eddu Andr-
ésdóttur hefur að undan-
förnu prýtt skemmtiþáttinn
Óskastundina á Stöð 2.
Hvaö œtlaröu aö gera á jól-
unum?
— Njóta lífsins.
Hvaöa þýöingu hafa jólin
fyrir þig?
— Þetta er besti tími ársins
í mínum huga — í einu og
öllu.
Hvaö er þaö besta viö jólin?
— Gjafirnar — ehe ...
Hvaö er þaö versta viö jól-
in?
— Stressið og aukakílóin —
ef eitthvað.
Hvaö viltu fá í jólagjöf?
— Svo margt.
Hvaö helduröu aö þú fáir í
jólagjöf?
— Ekki svo margt.
Hver er eftirminnilegasta
jólagjöf sem þú hefur fengiö?
— Úff — ég man það ekki í
svipinn.
Manstu eftir jólum sem
voru nœstum búin aö klúör-
ast?
— Já, — en ég segi ekki
meir.
Hvenœr hœttiröu aö trúa á
tilvist jólasveinsins?
— Hver segir að ég sé hætt
því?
Hvaö er í jólamatinn hjá
þér?
— Ógurlegar krásir og sæt-
indi.
Feröu í kirkju á jólunum?
— Já.
Feröu í jólaboð?
— Já, til foreldra og tengda-
foreldra.
Hvaö eyöiröu miklum pen-
ingum í jólahaldiö?
— Álíka og aðrir.
Uppáhaldsjólalag?
— Ég fylgi stráknum mín-
um í þeim efnum; nú eru það
Dengsi og Hemmi.
Hver er þér efst í huga á jól-
unum?
— Þeir og það sem mér
þykir vænst um.
Hvaö er þér efst í huga á
jólunum?
— Að jólin eiga að vera há-
tíð ljóss og friðar.