Pressan - 19.12.1991, Page 41
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. DESEMBER 1991
41
i þessi jól?
Soda-Stream-söiumenn fóru
um landið eins og eldur i sinu
og seldu grimmt. IMú eru flest-
ir tilbúnir að gefa tækin til að
losna við þau úr skápunum.
Heyrst hefur að Soda-Stream
komi aftur þegar kreppan
herjar á landslýð.
margar dósir á mánuði? Væri
ekki sniðugra að kaupa sér
ilmvatn eða fara út að borða?
GRÆJURNAR AUKA
MATARÚRVALIÐ
Þó svo að allar þessar græj-
ann færa tækin meiri vinnu
yfir á heimilisfólkið.
Nú er verið að selja forláta
ryksugu sem kostar um
100.000 krónur og getur gert
ótrúlegustu hluti. Fyrir utan
að ryksjúga meira upp úr
teppum og húsgögnum en
aðrar ryksugur nuddar hún
eigandann, bónar bílinn og
skrúbbar í hólf og gólf. Fjöldi
manns, karlmenn í miklum
meirihluta, hefur keypt þessa
vél. í flestum tilfellum er hún
aðeins notuð til að strjúka yf-
ir gólfin.
Það er ýmislegt hægt að
gera fyrir 100.000 krónur
annað en að binda fjárhæð-
ina í ryksugu. Það er til dæm-
is hægt að láta hreingerning-
arfyrirtæki djúphreinsa hjá
sér teppin og húsgögnin einu
sinni á ári í tíu ár. Svo er líka
hægt að fá manneskju sem
ekki bara ryksýgur heldur
þurrkar af, skúrar, þvær upp
og tekur úr þvottavélinni fyr-
ir um 3.000 krónur á viku.
GRÆJUR SEM
KOMU OG FÓRU
Tæki og tól hafa alltaf til-
Gervihnattamóttakarar sem geta tekið við sendingum frá fimm
gervihnöttum og boðið notendum upp á allt að 30 sjónvarpsrás-
um á sjö tungumáium. Nú geta íslenskir unglingar lært jap-
önsku af sjónvarpinu eins og þeir læra ensku í dag. Hver horfir
þá á ríkissjónvarpið þegar valið er orðið svona mikið?
þetta í hundraðatali, en eigin-
konurnar voru ekki eins
hrifnar. Rjóminn, sem átti að
vera svo auðvelt að þeyta,
varð að smjöri áður en þær
vissu af og grænmetið svo
smátt saxað að gefa varð
hamstrinum.
NUDDTÆKI
Fótanuddtæki þekkja allir
og þau eru víst ófá heimilin
sem hafa eitt uppi á lofti eða
á hillu í kjallaranum. Nudd-
tæki af ýmsum gerðum virð-
ast alltaf vera vinsæl meðal
íslendinga, enda kvartar eng-
Það er víðar flóð en í bókabúðunum. Jólin eru líka
vertíð fyrir sölumenn heimilistækja. Og eins og bæk-
urnar raða sér á metsölulistann þá eru heimilistækin
misvinsæl. bau vinsælustu komast inn á annað hvert
heimili. Sum þeirra staldra stutt við í eldhúsinu og
enda niðri í geymslu skömmu eftir jól og verða sjálf-
sagt geymd við hliðina á bílabrautinni sem bilaði á að-
fangadagskvöld.
ur hjálpi kannski ekki mikið
til við tímasparnað í eldhús-
inu hafa þær sína kosti.
Matarúrval íslendinga hef-
ur aukist mikið. Nú er hægt
að búa til góðan fljótlegan
mat en ekki bara kjötfars.
Fólk er farið að búa til kín-
verskan mat, — þ.e.a.s. þeir
sem eiga Wok-pott og gas-
tæki. Sumir eru farnir aði
borða meira grænmeti vegna
þess að það er svo fljótlegt að
skera það niður í matvinnslu-
tækjunum.
HREINGERNINGARTÆKI
Áður fyrr voru hreingern-
ingarmenn fengnir til að gera
hreint einu sinni eða tvisvar á
ári. Nú getur almenningur
keypt mikið af tólum þeirra
og gert þetta sjálft. Hér er
kaldhæðni aftur á ferðinni: í
stað þess að auka við frítím-
Litlar handryksugur á uppleiö.
Nú hefur enginn lengur pláss
fyrir ryksugur og þessi getur
rúmast undir eldhúsvaskin-
um.
heyrt heimilum en þau breyt-
ast með tíma og kynslóðum.
Saumavélar, prjónavélar og
strauvélar voru mikil búbót
fyrir þær konur sem unnu
heima. Vélar þessar dóu hins
vegar að mestu út með
stór-fjölskyldunni. Hrærivél-
arnar gömlu voru líka ómiss-
andi og matur var seldur með
því hugarfari að kaupendur
ættu hrærivél. Unga kynslóð-
in í dag þekkir tæpast þessi
tæki.
SODASTREAM OG
TÖFRASPROTI
Allir muna eftir Sodastre-
am-vélinni. Hún átti að draga
úr gosdrykkjakaupum. Salan
gekk vel, en nú nota fáir tæk-
ið nema til að setja sódavatn
í viskíið. Rjómasprautan var
annað geysivinsælt tæki. í
dag skiptist fólk í tvo hópa
um dásemdir þessa tækis.
Annaðhvort finnst því tækið
gott og hefur það ævinlega
til taks í ísskápnum
eða því finnst rjóminn
svo vondur úr þessu að
það klígjar við til-
hugsunina.
Töfrasprotinn var
líka töfratæki.
Karlmenn keyptu
in þjóð jafnmikið yfir eymsl-
um í baki og íslendingar.
Eitt þessara bakveikitækja
var stór og fyrirferðarmikill
púði með þremur hita- og titr-
ingsstillingum. Púðinn var
svo stór og fyrirferðarmikill
að það var bara hægt að nota
hann í rúminu. Nýjasta nudd-
tækið er lítil kúla, á við með-
alstóran garnhnykil, með
handfangi, svo maður geti
nuddað staði sem erfitt er að
ná til.
POPPVÉLAR
Þegar myndbandstæki fóru
að ná fótfestu hér á landi
voru poppvélarnar ekki langt
undan. Þær keppa við ör-
bylgjuofnana og Paul New-
man-poppið, en margir nota
ofnana sína ekki til annars.
Nú er hægt að poppa með þar
til gerðri vél og losna þar
með við pottaþvott. Poppið á
að vera eins gott og það sem
maður fær í bíóum. Nú er því
búið að koma því eina sem er
gott í sælgætisverslunum bíó-
anna inn á heimilin. Poppvél-
ar eru til á mörgum heimilum
en menn deila um hvort þær
séu í mikilli notkun í dag.
RAFMAGNSHNÍFUR OG
HANDRYKSUGUR
Það er með ólíkindum að í
hvert sinn sem karlar taka yf-
ir störf kvenna þá vélvæðast
störfin. Sú hefð komst á að
karlar fóru að skera kjötið á
jólunum og við það varð raf-
magnshnífurinn til. Sjálfsagt
varð hann ekki til vegna þess
að það væri svo erfitt að
skera kjötið. Það hefur ein-
faldlega þótt karlmannlegra
að nota réttu græjurnar. Hníf-
ar þessir urðu geysivinsælir
en eru bara notaðir um jólin.
Utan stórhátíða eru venjuleg-
ir hnífar notaðir. Kannski
vegna þess að þá sker konan
kjötið.
Um leið og fjölnota ryksug-
ur eru að ryðja sér til rúms
eru litlar handryksugur vin-
sælar í heimilistækjabúðun-
um. Kannski vantar eigendur
stóru ryksuganna eitthvert
handhægara tól en stóru
verksmiðjuna til að ryksjúgai
smákusk. Líkiegra er þó að
það sé fólk af parket-heimil-
um sem er að kaupa hand-
ryksugurnar.
Matvinnsluvélarnar geta næstum allt
nema þvegið upp. Fjöldi manns keypti
þessar vélar en nú safna þær bara ryki í
mörgum eldhúsum. Fólk hefur ekki
tíma til að nota þessi frábæru tæki
og svo taka aukahlutirnir svo
mikið pláss að þeir
eru litið notaðir.
SÍMAR OG
GERVIHNETTIR
Nú er hægt að kaupa simtól
sem líta út eins og hljóðnem-
inn sem Madonna notar á
tónieikum. Tækin eru tengd í
annan síma en notandinn
getur hjólað á þrekhjólinu
um leið og hann talar við vini
og vandamenn. Svo má ekki
gleyma því nýjasta. Það eru
símtæki sem tveir geta talað í
í einu. Þarfaþing það.
Það nýjasta í sjónvarps-
tækni er gervihnattadiskar. í
gegnum þá má horfa á efni
frá fimm gervihnöttum og
velja um 30 sjónvarpsrásir.
Nú getum við meðal annars
horft á tyrkneska matreiðslu-
þætti, spænskan sakamála-
þátt og ítalskar fréttir.
Sjónvarpstæki eru heldur
ekki lengur bara sjónvarps-
tæki. Nú er hægt að kaupa
þau stærri en nokkru sinni
fyrr og myndin er svo skörp
að hið mannlega auga fær
ekki greint. Það er spurning
fyrir hvern það er gert.
Kannski heimilisköttinn? Síð-
an eru þessi tæki þannig að
það er hægt að horfa á fjórar
rásir samtímis; eina í stórri
mynd og þrjár aðrar í smærri
mynd á skjánum. Þetta er
gott ef maður vill vera viss
um að missa ekki af neinu.
Kannski sérstaklega tyrkn-
eska matreiðslukennslutím-
anum.
TÆKI SEM VANTAR
En þótt mörg sniðug tæki
hafi komið fram á undanförn-
um árum sárvantar enn fleiri:
Til dæmis farsíma með inn-
byggðri hárþurrku og rakvél.
Það er hentugt tæki fyrir þá
sem eru orðnir seinir fyrir og
vilja afgreiða fyrsta símtalið í
bílnum um leið og þeir snyrta
sig. Bráðnauðsynlegt er líka
að eiga kaffibolla með inn-
byggðu elementi til að halda
kaffinu heitu. Það mundi til
dæmis nýtast opinberum
starfsmönnum vel þar sem
það liti alltaf út fyrir að þeir
væru nýstaðnir upp frá borð-
inu sínu. Það gæti leyst auka-
jakkann af hólmi. Eins væri
hægt að selja kjötbollugrill til
að íslendingar gætu eldað
þjóðarréttinn sinn, steiktar
kjötbollur.
Og vélmenni sem þvær
upp, tekur úr þvottavélinni og
brýtur saman þvottinn og
skúrar á laugardögum.
Þórunn Bjarnadóttir
um jólin
Bubbi
ÉG ERi
(Steinar)
Kannski er hann Bubbi ekki
alltaf samkvæmur sjálfum
sér, en hann er sannur og
trúr viðhorfum sínum, þótt
þau séu raunar alltaf breyt-
ingum undirorpin. Þannig
hefur Bubbi aldrei hætt að
vera forvitin, leitandi og dá-
lítið rótlaus sál. Þessir eigin-
leikar Bubba enduróma
skemmtilega á þessari tón-
leikaplötu sem tekin var
upp síðla árs í fyrra; lögin
eru héðan og þaðan af
söngferli Bubba og eru til
marks um hvernig hann
hefur sífellt reynt að takast
af einlægni á við sjálfan sig
og lífið. Hljómsveitin er
mátulega lítil og lágvær,
harmonikka Reynis Jónas-
sonar ljær músíkinni ákveð-
inn töfrablæ. Annað heyrist
glöggt: Bubbi ber virðingu
fyrir áheyrendum, kemur
heiðarlega og falslaust fram.
Fjodor Dostojevskí
KARAMAZOV-BRÆÐURNIR
INGIBJÖRG
HARALDSDÓTTIR ÞÝDDI
(Mál og menning)
Annað bindið og kannski
viturlegt að verða sér úti
um hið fyrsta áður en það
er lesið. Dostojevskí er nátt-
úrlega flestum skáldsagna-
höfundum meiri, en það er
best að lesa hann á við-
kvæmum og hrifnæmum
aldri, kannski frá sextán til
tuttugu og fimm. Eftir það
fer að verða erfiðara að
komast í gegnum hann.
Guöjón Fridriksson
SAGA REYKJAVÍKUR
1870—1940
(Iðunn)
Bærinn vaknar heitir þetta
fyrsta bindi sögu Reykjavík-
ur og endar þegar Bretinn
kemur og allt fer á hverf-
anda hvel. Forvitnilegt, en
væntanlega verður sagan
ennþá meira spennandi þeg-
ar dregur nær nútímanum,
mannlífið gerist margflókn-
ara og við höfundunum
blasir ofgnótt heimilda sem
þarf að reyna að vinsa úr af
viti. Það er nefnilega búið
að skrifa alveg nóg um sögu
þorpsins Reykjavíkur, en allt
of lítið um sögu Reykjavík-
urborgar. Eiguleg bók —
fyrir þá sem hafa efni á
henni.
Jonathan Porrit
BJARGIÐ JÖRÐINNI
(Iðunn)
Karl Bretaprins, Vigdís for-
seti, Paul McCartney, De-
smond Tutu og fleiri stór-
höfðingjar vara við því að
allt fari til andskotans ef við
stöðvum ekki sóða þessa
heims og sóðann í okkur
sjálfum. Falleg, hræðileg og
tímabær bók.
Nýdönsk
DE LUXE
(Steinar)
Kannski ekki frumlegustu
tónlistarmenn landsins — en
hver er svosem frumlegur í
poppinu núorðið? Við áhrif-
in frá bítlamúsík og sýru-
poppi hefur nú bæst yfir-
bragð sem auðheyrilega er
fengið frá amerísku sveit-
inni REM. En lögin eru mel-
ódísk og full af lífsgleði,
textarnir lunknir, strákarnir
sætir og klárir.