Pressan - 19.12.1991, Qupperneq 55
55
og Alheit, en það er lágþýska
myndin af Sankt Adelheid.
Nafnið Tale hefur verið notað
í Danmörku frá því á 14. öld
en í Noregi frá því um miðja
16. öld.
LOFTHÆNA ER LÁTIN
Svo vikið sé að einkenni-
legum nöfnum þá hefur nafn-
ið Lofthœna löngum verið
haft í flimtingum. Engin kona
með þessu nafni var á þjóð-
skrá árið 1989. En nafnið var
til og notað. í bókinni Nöfn ís-
lendinga segir svo um Loft-
hænu:
„Tvær konur hétu Loft-
hænasamkvæmt Landnámu.
Önnur var kona Braga skálds
gamla og hin var dótturdóttir
hennar. Ein kona í Skaft. bar
nafnið 1845 og önnur í sömu
sýslu árið 1910. Uppruni er
óviss. Giskað hefur verið á að
um gælunafn sé að ræða og
Loft- sé sama orð og loft-(efri)
hæö í húsi. Heldur er það
ólíklegt og sennilegra að
nafnið sé afbökun á erlendu
nafni."
Meðal annarra kven-
mannsnafna með forliðnum
Jólin: Þarna koma jólin, sögöu
vinnufélagarnir
Loft- má nefna Loftey. Ein
kona hét þessu nafni sam-
kvæmt manntali 1910 og bjó
hún í Snæfellssýslu. Engin
Loftey finnst á þjóðskrá árið
1989. Þá er kona undir nafn-
inu Loftsína í manntali 1910
en engin Loftsína 1989. Hins
vegar báru þá þrjár konur
nafnið Loftveig.
FÆDDIST JÓLÍN
Á JÓLUNUM?
„Ég heiti eftir,ömmu minni
sem bar þetta nafn en ég veit
ekki hvernig það er tilkomið.
Ég veit ekki hvenær hún var
fædd en hefur dottið í hug að
hún hafi fæðst á jólunum,"
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19; DESEMBER 1991
Algengustu nöfnin á
fslandi
Jón og
Guðrún á
toppnum
í bókinni Nöfn íslendinga
er birt tafla yfir 50 algengustu
karlmanns- og kvenmanns-
nöfnin . í þjóðskránni 1982
ásamt fjölda tilvika um 1.
nafn og 2. nafn. Hér á eftir
eru 15 algengustu karl-
mannsnöfnin hvort heldur er
1. eða 2. nafn.
Jón 6.428
Sigurður 4.821
Guðmundur 4.674
Þór 4.111
Gunnar 3.684
Ólafur 3.326
Magnús 2.733
Einar 2.648
Örn 2.411
Kristján 2.339
Björn 2.283
Jóhann 2.239
Helgi 2.055
Stefán 2.052
Árni 1.935
Þau 15 kvenmannsnöfn
sem algengust voru í þjóð-
skránni árið 1982 eru eftirfar-
andi:
Guðrún 6.660
Sigríður 5.211
Kristín 4.756
Anna 4.472
Helga 3.537
María 3.028
Sigrún 2.831
Ingibjörg 2.785
Margrét 3.919
Jóhanna 2.411
Björk 2.111
Björg 1.886
Elín 1.815
Jóna 1.811
Guðbjörg 1.636
Á bakvið 50 algengustu
nöfn karla og kvenna standa
um 70% allra nafnbera í þjóð-
skránni og 91% þeirra heitir
100 algengustu nöfnunum,
segir í fyrrnefndri bók.
Nafnaskógur
og eldblossi
Stundum koma fyrir atvik
sem tengjast nöfnum með
skemmtilegum hætti. Eitt
slíkt átti sér stað í Vesturbæn-
um fyrir fáeinum árum.
Þar voru menn að vinna að
framkvæmdum við íbúðar-
hús og söguðu niður mikið
tré, ösp, sem stóð þar á mörk-
um næstu lóðar. Eigandi
þeirrar lóðar brást ókvæða
við þá hann uppgötvaði að
öspin fagra var horfin og
kærði málið til lögreglu. Tek-
in var skýrsla vegna þess
arna eins og lög gera ráð fyr-
ir. Þegar farið var að skoða
skýrslur málsins kom eftirfar-
andi í Ijós:
Þeir tveir menn sem deildu
vegna asparinnar hétu Reyn-
ir og Víðir. Það var lögreglu-
maðurinn Birkir sem fór á
staðinn til að kanna vegsum-
merki og skrifaði síðan
skýrslur. Sú skýrsla barst síð-
an áfram innan lögreglunnar
og sá sem fékk málið í hendur
þar heitir Börkur Skúlason.
Af öðrum tilvikum þar sem
nöfn koma við sögu eru til
dæmis þessi:
Neyðarsími slökkviliðsins
hringdi og er brunavörður
svaraði heyrðist æst rödd
segja:
„Þetta er Logi í Blossa. Hér
hefur kviknað eldur og þið
verðið að koma strax."
Brunavörður bað sím-
hringjara að spandera gam-
ansemi sinni á einhverja aðra
og skellti á. En það var sam-
stundis hringt aftur og mað-
urinn skýrði út að þetta væri
í fyrirtækinu Blossa og nafn
sitt væri Logi og það væri
kviknað í.
Ormur: Fékk marga pústra
vegna nafnsins
sagði Jólín Jóelsdóttir.
„Mér finnst þetta fallegt
nafn og ekki haft nein óþæg-
indi af því. En það kom fyrir
eftir að ég flutti til Reykjavík-
ur og fór að vinna að starfsfé-
lagarnir grínuðust svolítið
með nafnið. Sögðu að jólin
væru að koma þegar ég birt-
ist og annað í þeim dúr, en
það var allt í góðu. Hins veg-
ar eiga margir erfitt með að
skilja nafnið og ég þarf oft að
stafa það,“ sagði Jólín enn-
fremur og var sammála því
að þarna gerði ein komma
gæfumuninn. Hún á einn son
en ekki var seilst langt eftir
nafni á hann því sonurinn
heitir Halldór. Þrjár aðrar
konur á landinu bera nafnið
Jólín og eru þær frænkur Jól-
ínar Jóelsdóttur. Hún kvaðst
ekki vita hvort ætlunin væri
að halda nafninu við í ættinni
en sæi ekkert sem mælti
gegn því.
I bókinni Nöfn Islendinga
segir að nafnið sé amerískt
að uppruna, lagað eftir nafn-
inu Jolene.
NAFNIÐ KOSTAÐI
MARGA PÚSTRA
„Ég varð oft fyrir aðkasti
sem barn út af nafninu en var
svo heppinn að svara því af
fullri hörku í stað þess að ein-
angra mig. En þetta kostaði
marga pústra og ekki ósjald-
an sem ég kom heim með
blóðnasir eftir slagsmál
vegna nafnsins," sagði Ormur
Ólafsson.
„Raunar kemur það fyrir
enn þann dag í dag að það er
hringt í mig og þá sérstaklega
að næturlagi bara vegna
nafnsins. Það er eins og fólk í
fylleríspartíum lesi síma-
skrána sér til skemmtunar og
hringi svo til mín. Yfir sumar-
ið er algengast að fyndnin fel-
ist í því að biðja um beitu. Svo
grípa menn önnur tilefni. Á
vinnustað var ég til dæmis
eitt sinn spurður hvort ég
væri ekki hræddur við mann
að nafni Þröstur sem þar
starfaði. Ég spurði því ég ætti
að vera hræddur við hann. —
Ja, það gerir nafnið, sagði
vinnufélaginn og þóttist af-
skaplega fyndinn," sagði
Ormur ennfremur.
Hann var skírður í höfuðið
á föðurafa sínum, sem var
ættaður úr Meðallandi. En
Ormur sagðist vita að nafnið
hefði einnig tíðkast fyrir
norðan og þá einkum í
Strandasýslu. Hann sagðist
hafa bannað sonum sínum að
skíra í höfuðið á sér.
Nafnabókin segir að nafnið
Ormur komi fyrir í Land-
námu og íslendinga sögum.
Það kemur einnig fyrir í
Sturlungu og í fornbréfum frá
14. og 15. öld. Samkvæmt
manntali 1910 hétu fjórir
karlar Ormur en í þjóðskrá
1989 voru tíu karlar skráðir
með þessu nafni, þar af tveir
sem síðara af tveimur. Nafnið
er sama orðið og dýrsheitið
ormur.
HRASAÐI UM NAFNIÐ
„Það er ósköp einfalt
Dúfa: Aldrei orðið fyrir óþæg-
indum vegna nafnsins
hvernig mitt nafn varð til.
Þegar mamma gekk með mig
hrasaði hún og datt og fékk
ör á augabrún," sagði Örbrún
Halldórsdóttir. Hún skírði
dóttur sína þessu sama nafni
og þær mæðgur eru einu
konurnar á landinu sem nafn-
ið bera.
„Það er eins og viðbrögð
fólks við nafninu hafi breyst
nú síðari árin. Áður var mun
algengara að fólk hváði með
undrunarsvip þegar það
heyrði nafnið. Þetta er ekki
eins áberandi núna og það er
eins og fólk sé orðið vanara
sjaldgæfari nöfnum. En ég
hef aldrei orðið fyrir stríðni
eða áreitl vegna nafnsins og
það fellur vel inn í málið, líkt
og Kolbrún," sagði Örbrún
Halldórsdóttir.
Af öðrum sjaldgæfum
kvenmannsnöfnum sem
byrja á Ö má nefna Ölrún, en
tvær konur voru skráðar með
þessu nafni í þjóðskrá 1989.
Ein kona bar þá nafnið Ölveig
og í manntali 1910 hét ein
kona Ölvína. Ein kona bar
nafnið Örk sem einnefni
1989 eða fyrra nafn af tveim-
ur en fjórar að síðara nafni.
Þá voru átta konur skráðar
með nafninu Ösp sem ein-
nefni eða fyrra nafni af tveim-
ur en 233 að síðara nafni.
Sæmundur Guðvinsson
Einfarar
á nafna-
skrám
Sumir heita svo
sjaldgæfum nöfnum
að þeir eiga enga
alnafna á opinber-
um nafnaskrám.
Meðal kvenmanns-
nafna þar sem
nafnberi er aðeins
ein kona sam-
kvæmt þjóðskrá
1989 eru eftirtalin
nöfn:
Agna
Alfífa
Alfreðsína
Árvök
Blíða
Blómey
Hneta
Ísalína
Kaðlín
Maídís
Milda
Nótt
Óvína
Randalín
Rín
Ugla
Æska
Karlmannsnöfn
Agni
Án
Dósóþeus
Dvalinn
Eldur
Geisli
Hafni
Hárlaugur
Hlújárn
Knöttur
Lýtingur
Sigursæll
Tinni
Þyrnir
MT eir Hilmar Örn Hilmarsson
og Egill Ólafsson koma fram
ásamt fleiri listamönnum á jólafagn-
aði Ásatrúarfélags-
ins, sem haldinn
verður á Hótel Borg
þann 28. desember
kl. 23.00. Ásatrúar-
félagið vill með
þessu móti endur-
vekja hina fornu
jólagleði, sem var, eins og önnur
skemmtun, bönnuð af kirkjunnar
mönnum á átjándu öld. Þeir uppá-
stóðu að jólagleðin væri leifar heið-
inna blótsiða og frjósemishátíða og
aðrir hafa bent á að jólin í dag gangi
aðeins út á nautnir og svall. Þetta og
fleira benda ásatrúarmenn á í nýj-
asta fréttabréfi sínu og fagna því að
jólin skuli vera að færast nær upp-
runa sínum .. .
M
1» iyndlistarsýning Kristmund-
ar Þórarins Gíslasonar listmál-
ara, sem hann opnaði á kaffihúsinu
Hressó í Austurstræti á sunnudag-
inn, fékk snubbóttan endi því hún
stóð aðeins yfir í þrjá daga. Ástæð-
una segir Kristmundur þá að sér
hafi reynst erfitt að fá eigendur stað-
arins til að koma til móts við sig
hvað varðar lýsingu á veitinga-
staðnum auk þess sem þeir hafi ekki
viljað taka niður aðrar myndir með-
an á sýningunni stóð. Því ákvað
Kristmundur að taka sýninguna nið-
ur og færa hana yfir í Gallerí 8 í
Austurstræti . . .
F
ML lestar hljómsveitir í dag hafa
umboðsmenn á sínum snærum sem
halda utan um málefni hljómsveit-
arinnar. Dauða-
rokkssveitin Soror-
icide, sem nýlega
gaf út plötu, er þar
engin undantekn-
ing. Umboðsmaður
sveitarinnar hefur
þó hingað til ekki
verið bendlaður við hljómsveitir af
þessu tagi, þótt hann hafi vissulega
komið nálægt tónlist áður. Sonur
umboðsmannsins leikur í hljóm-
sveitinni en umboðsmaðurinn er
Edda Þórarinsdóttir leikkona . . .
F
JL reyvangsleikhúsið í Eyjafjarð-
arsýslu ætlar að setja upp eftir ára-
mótin söngleikinn „Jesus Christ
superstar". Jesús sjálfur er fundinn
en hann leyndist í Ingólfi Jóhanns-
syni garðyrkjumanni. Tónlistar-
stjóri verður Jón Ólafsson úr Ný
danskri en leikstjóri hefur verið ráð-
in Kolbrún Halldórsdóttir leik-
kona...
æT að hefur vakið athygli að þrátt
fyrir setu Helgu Kress bókmennta-
fræðings í tilnefningarnefnd Is-
lensku bókmenntaverðlaunanna í
flokki fagurbókmennta var engin
bók eftir konu tilnefnd í ár. Uppi
hafa verið margar getgátur um or-
sakirnar og hæst ber þá að kvenna-
bókmenntafræðingnum hreinlega
leiðist konur og það sem þær skrifa.
Önnur er sú að karlútgefendurnir
hafi ekki séð ástæðu til að borga fyr-
ir bók eftir konu, en eins og öllum
mun vera kunnugt tíðkast ekki að
birta lista yfir bækurnar sem
keppa...