Pressan - 19.12.1991, Side 62
Heiðar Jónsson snyrtir hefur
flaekst inn í harðnandi samkeppni
á happdrættismarkaðinum.
Slysavarnafélagið
Yfirbýður
vinninga í
happdrætti
SÁÁ
— við munum ekki aðeins
bjóða einn dag með Heiðari
heldur nóttina líka, — segir
Árni Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri
Eftirlaunasamningur Sláturfélags-
ins við Jón H. Bergs forstjóra leiðir
til þess að eigiö fé fyrirtækisins
brennur upp á næstu 95 árum,
samkvæmt úttekt GULU PRESS-
UNNAR.
Uttekt á viðskiptasíðu GULU PRESSUNNAR
Sláturfélagið stefnir í
gjaldþrot árið 2086
— ef fyrirtækið þarf að borga Jóni H. Bergs, fyrrum forstjóra,
laun þar til hann verður 160 ára
Það er tóm tjara að ég hafi verið
óþægur. Þau hnupluðu gottinu, — ,
segir Lárus Reynisson, sem kærði
foreldra sina fyrir þjófnað.
Drengur í Breiðholti
Kœrir foreldra
sína fyrir að
hafa stolið
gotti úr
skónum sínum
— ég hlusta ekki á þetta, —
segir faðir drengsins, — hann
getur sjálfum sér um kennt
fyrir að hafa verið óþægur
51. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 19. DESEMBER 1991 STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
Ríkisstjórnin gafst upp á fjárlögunum
SKATTTEKJUNUM SKIPT
Á MILLI ÞINGMANNA
lpeí^ef^p!fi?se5ín^r3Tel??^essum,aíjrum^
- sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra um leið
og hann rauk út úr þinghúsinu
mm
Algjör upplausn varð á Alþingi þegar ríkisstjórnin gafst upp á
fjárlögunum og fór í jólafrí.
Reykjavík, 19. desember
„Eg hlusta ekki lengur á
þetta væl. Það er alveg
sama hverju við stingum
upp á; alltaf verða ein-
hverjir tii þess að segja að
það sé ómögulegt. Ég bara
nenni þessu ekki lengur,“
sagði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra um leið
hann rauk út úr þinghús-
inu við Austurvöll
snemma í morgun.
Davið skildi eftir nýtt fjár-
lagafrumvarp fyrir árið 1992.
Þar er gert ráð fyrir að 100
milljarða skatttekjum næsta
árs verði skipt jafnt á milli
allra þingmannanna þannig
að 1 milljarður og 590 millj-
ónir koma í hlut hvers um sig.
í greinargerð með frumvarp-
inu segir að þingmennirnir
geti dreift þessum fjármun-
um um kjördæmi sín eða til
þeirra hagsmunahópa sem
þeim þyki vænst um.
„Þetta er algjör kleppur,"
sagði Davíð þegar GULA
PRESSAN náði tali af honum
í morgun. ,,Ef ég hefði vitað
hvernig þingmennirnir geta
látið hefði ég aldrei látið
borgina af hendi."
Aðspurður sagðist Davíð
ekki hafa ráðstafað sínum
hluta af fjárlögunum.
,,Mér er skapi næst að
henda þessum aurum í Ríkis-
skip. Maður þarf þá ekki að
hafa áhyggjur af jjeim meir,"
sagði Davíð Oddsson.
Tillögur fiskifræðinga
Hreyfanlegur
sjómannaafsláttur
í stað kvótans
afslátturinn minnkaður til að minnka sóknina en
síðan aukinn þegar betur stendur á
Jakob Jakobsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, vill
nota sjómannaafsláttinn til
fiskveiðistjórnunar.
Reykjovík, ]8. desember
„Mér virðist sem betri
sátt gæti rnyndast um
þetta kerfi en kvótann,"
sagði Jakob Jakobsson,
forstjóri Hafrannsókna-
stofnunar, þegar hann
kynnti nýjar hugmyndir
fiskifræðinga um stjórn
fiskveiða á blaðamanna-
fundi í gær.
Tillögurnar fela í sér að sjó-
mannaafslátturinn verði
gerður hreyfanlegur. Þegar
minnka þurfi sókn í fiskstofna
verði afslátturinn minnkaður
svo sjómenn sigli í land. Þeg-
ar ástand fiskstofnanna sé
orðið betra verði afslátturinn
síðan aukinn á ný.
,,Eftir reynsluna af kvóta-
kerfinu finnst mér tilvinnandi
að prufa eitthvað nýtt. Kvóta-
kerfið hefur skipt þessari
þjóð í stríðandi fylkingar en
það er hugsanlegt að meiri
friður myndist um afslátt-
ar-kerfið," sagði Jakob.
Afsökunarbeiðni
GULA PRESSAN biður Jón
Sigurðsson afsökunar á frétt
undir fyrirsögninni; ,,ÚR
RÁÐHERRASTÓL í RAMMA-
GERÐINA", þar sem sagt var
að Jón hefði hrökklast frá
embætti vegna endaloka ál-
málsins og tekið við starfi
framkvæmdastjóra Ramma-
gerðarinnar. Hið rétta er að
Jón er enn ráðherra. Hins
vegar er alnafni hans fram-
kvæmdastjóri Rammagerð-
arinnar og villti það um fyrir
blaðamanni. GULA PRESS-
AN stendur að öðru leyti við
frétt sína.
Ritstj.
Tviburabróðir Sighvats vakti ugg á Elliheimilinu Grund.
Tvíburabróðir Sighvats Björgvinssonar býr við
hliðina á Elliheimilinu Grund
KOM MÉR Á
ÓVART HVAÐ
ÞETTA ER
ELSKULEGUR
MAÐUR
segir Hlín Guðmundsdóttir, vistmaður á Grund
Reykjavík, 19. desember
„Audvitað vorum við
hrædd við manninn
fyrst eftir að hann flutti
hingað. Það er skiljan-
legt. Hann lítur alveg
eins út og heilbrigðis-
ráðherrann,“ sagði Hlín
Guðmundsdóttir, vist-
kona á Elliheimilinu
Grund, í samtali við
GULU PRESSUNA, en
næsti nágranni heimiiis-
ins er Tryggvi Björgvins-
son, tvíburabróðir Sig-
hvats Björgvinssonar
heilbrigðisráðherra.
„Einu sinni rakst ég á
manninn úti í búð. Ég varð
dauðskelkuð og missti fisk-
búðinginn sem ég hélt á.
Mér til mikillar furðu
beygði hann sig niður og
rétti mér búðinginn. Ég
hreinlega missti andlitið,"
sagði Hiín.
Hún sagði að upp úr
þessu hefði hún farið að
gefa sig á tal við manninn
og þá hefði komið í ljós að
þetta var ekki ráðherrann
heldur tvíburabróðir hans.
„Það er ótrúlegt hvað
bræður geta verið ólíkir.
Tryggva er vel við sjúka og
þá sem lasburða eru. Hann
hefur aldrei sýnt af sér svip-
að hugarfar og bróðirinn,"
sagði Hlín Guðmundsdótt-
ir.
== cordata j
- ■
IO órci ofmœli/Ulboð i
80386-16 örgjörvi
IMbminni
42Mb diskur
1.44Mb 3.5" drif
VGA litaskjár
101 hnappa lyklaborð
Genius mús
Windows 3.0
MS-DOS 4.01
kr. 99.900 staðgreitt
Sumum finnst 10 ára afmælistilboðið okkar lyginni
líkust, enda jafn ótrúlegt og annað á þessari síðu. Þú
getur komist að hinu sanna í þessu dularfulla
tilboðsmáli. Notaðu tækifærið, líttu við eða hringdu!
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - sími 688944 - fax 679976