Pressan - 25.06.1992, Page 30

Pressan - 25.06.1992, Page 30
30 FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. JÚNÍ 1992 Samanburður á Reykjavík og jafnstórum borgum í Frakklandi og Bandaríkjunum Rey kj aví k er mesta sveitaþorpið en býður upp á flest bíóin Það er ekki einfalt að bera saman borgir í svona ólíkum löndum. I Bandaríkjunum er allt svo stórt og Frakkland er jú næstfjölmennasta ríki í Evrópu- bandalaginu. Við reynum nú samt og veljum til þess borgim- ar La Rochelle í Frakklandi og Springfield í Massachusetts í Bandaríkjunum. La Rochelle á það sameigin- legt með Reykjavík að vera hafnarborg og tiltölulega ein- angruð, miðað við að vera stað- sett á meginlandinu. Hún er við suðvesturströnd landsins, miðja vegu milli Bordeaux og Nantes. Hraðbrautin frá París úl Spánar í gegnum Bordeaux liggur einn- ig fram hjá La Rochelle nokkuð í alfaraleið. Enn sem komið er eru lestarsamgöngur þangað ífá París þó ekkert alltof greiðar finnst manni. Skipta verður um lest í Poitiers, en á næsta ári verður Atlantshafs- braut TGV-hraðlestarinnar teygð til La Rochelle og vænt- anlega vænkast þá hagur borg- arinnar. Ibúar La Rochelle eru 102.000 með úthverfum. Nokk- um veginn jafnmargir Reykvík- ingum semsagt. Borgin banda- ríska er nokkru stærri, eða svip- uð Stór-Reykjavíkursvæðinu, með 160.000 íbúa. Hún er í fylkinu Massachusetts og til- heyrir því svæði sem fyrst byggðist Evrópubúum í Banda- rfkjunum, Nýja-Englandi. Ekki skal fúllyrt hvort hún er heima- borg Simpson-fjölskyldunnar, þar sem ein Springfield ku vera til í flestum fylkjum Bandaríkj- anna. Springfield er heldur ekki í neinni órafjarlægð frá stórborg- um, sem varla getur verið kostur íyrir smáborg í Bandaríkjunum. Það tekur aðeins þrjá tíma að keyra þaðan til New York og tæpa tvo til Boston á meðan La Rochelle er í fjögurra tfma fjar- lægð frá París. Springfield er engu að síður — eins og La Rochelle og Reykjavík — mið- punktur efnahagslífsins í sinni sýslu. FRÆGAR BYSSUR OG LÍFTRYGGINGAR I Reykjavík starfa langflestir við þjónustustörf eða yfir sextíu prósent borgar- búa. Hvorki meira né minna. Og hvar skyldi svo allt þetta fólk vera í vinnu? Jú, flestir vinna hjá Reykjavfkurborg sjálfri, eða hátt á fimmta þúsund manns. Hvorug hinna borganna nefnir fjölda borgarstarfsmanna, svo við getum því miður ekki borið tölumar saman. Aftur á móti er Baystate-læknamið- stöðin stærsú vinnuveitandinn í Springfield með 4.850 starfs- menn. Það eru miklu fleiri en vinna á Borgarspítalanum (1.262). Fjöldi starfsmanna hjá einu fyrirtæki í Springfield er yfirleitt miklu meiri en í hinum borgun- um tveimur, ef frá eru taldir starfsmenn Reykjavfkurborgar. Næststærsti vinnuveitandinn í Springfield er líftryggingarfyrir- tæki með 4.200 starfsmenn! Við skulum bara vona að þeir séu ekki í neinum tengslum við sjúkrahúsið. Né heldur vopna- framleiðandann Smith & Wes- son (1.500). Það vinna annars flestir í verksmiðjum í Spring- field og við þjónustustörf. Við fengum því miður engar tölur yfir veltu einstakra fyrir- tækja í bandarísku borginni, en ekki er erfitt að ímynda sér að hún sé allmiklu meiri en gengur og gerist í Reykjavík. Ekki síst þar sem þeir framleiða ýmis heimsþekkt vörumerki. Eða hver kannast ekki við Bosch- handrafmagnsverkfæri? Ýmis- legt fleira framleiða þeir, sem undirrituð kannast ekki við, en kannski lesendur. Þar á meðal eru leikföng frá Milton Bradley, Breck-hárvörur, Buxton-seðla- veski, Chapman-lokur, plast frá Monsanto, Moore-handverk- færi, innpökkunarvélar, Spald- ing-sportvörur og Stanley „heimatilbúnar" vörur, að ógleymdum Smith & Wesson- byssunum. Stærstu iðnfyrirtækin í Reykjavík, Hampiðjan (179 starfsmenn), Kassagerð Reykja- víkur (156), Áburðarverksmiðja ríkisins (145) og Múlalundur (56), státa víst ekki af neinni sambærilegri frægð. Né stærð. Allt eru þetta smáfyrirtæki sam- anborið við Kanann. Það er ekki nema við leyfum íslenska álfé- laginu að fljóta með, að eitthvað verður í þetta varið. Þar vinna 588 menn og veltan er 9,8 millj- arðar. Sem er ríflega tvöföld samanlögð velta hinna fyrir- tækjanna. Franska borgin er miklu nær okkur í öllum hlutföllum og stærð. Iðnaður þar er reyndar ekki ýkja mikill, en engu að síð- ur veita iðnfyrirtæki fleirum vinnu. Veltan virðist aftur á móti vera svipuð og hjá þeim reykvísku, 4,5 milljarðar. Flest iðnfyrirtækin starfa í vél- og jámiðnaði. Alsthom framleiðir hluti fyrir jámbrautimar, þar á meðal TGV-lesúmar, og hefur 1.227 starfsmenn. Efnaverk- smiðjan Rhone Poulenc hefur á að skipa 534 starfsmönnum og vélaffamleiðandinn Triax Ind- ustries 545. Matvælaiðnaður í frönsku borginni er ekki stór. Þó er þar staðsett Yoplait-mjólkurbúið, en vömr þess em landsþekktar eins og vömr Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og Friendly-ísinn þeirra í Springfield. OSTRUR RÆKTAÐAR í STÓRUM STÍL Með flmm stærstu fyrirtækj- um íslands eru Sölumiðstöð hraðffystihúsanna og Sölusam- band íslenskra fiskframleiðenda. Þau velta 34 milljörðum á ári, en veita þó ekki nema 150 manns vinnu samanlagt. Alls stunda 1.000 manns störf tengd sjávarútvegi í Reykjavík, en á annan tug þúsunda í La Roc- helle. Springfield er sjálfkrafa undanskilin í þessu dæmi, þar sem hún liggur ekki að sjó. Höfnin í La Rochelle er átt- unda stærsta höfnin í Frakklandi og um hana fara þijár milljónir tonna af vörum á ári á móti tveimur milljónum sem fara um Reykjavíkurhöfn. Við eigum aftur á móti metið í löndun á fiski. Hér var landað 56.000 tonnum, en aðeins 15.000 tonn- um í La Rochelle, að verðmæú 23 milljarðar króna. Það er annars konar iðnaður tengdur fiski, sem skapar öll þessi störf í La Rochelle. í borg- inni og nágrannabæjum hennar eru nefnilega fremstu skelfisk- ræktendur alls Frakkalands. Á ári hveiju em framleidd 60.000 tonn af ostrum til neyslu, en heildameyslan í Frakklandi er 120.000 tonn. Veltan er 1,6 milljarðar íslenskra króna og 700 milljónir í kræklingabú- skapnum, sem nær því að vera h m : w R |C •/ fjórðungur af allri framleiðslu í Frakklandi. MILLcJÓN TIL LA ROC- HELI.Fi - 100.000 TIL REYKJAVÍKUR Það verður að játast að að- dráttarafl Reykjavíkur er víst ekki ýkja mikið fyrir aðra en landsmenn. Erlendir ferðamenn koma hingað flestir af því þá langar að sjá ffamandi landslag. Úú á landsbyggðinni. Ekki til að skoða byggingarlistina í Þing- holtunum né heldur Perluna. Þeir koma nú engu að síður við í Reykjavík, óhjákvæmilega, og hafa verið á bilinu 130-140.000 á síðustu árum. Springfield og La Rochelle hafa ívið meira að- dráttarafl. Til þeirrar síðar- nefndu koma milljón manns á ári hverju og víst er að ekki heimsækja færri Springfield. Fyrir utan að hafa upp á að bjóða sögulegar heimildir, eins og gamlar byggingar, er ýmis- legt um að vera í hvorum- tveggja borgunum. I La Rochelle er haldin mikil sönghátíð á hverju sumri, sem

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.