Pressan - 25.06.1992, Blaðsíða 39

Pressan - 25.06.1992, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR PRCSSAM 25. JÚNI 1992 39 L í F I Ð E F T BARIR • Perian er fyrst og fremst þekkt sem veitingastaður og útsýnispallur (með langbesta ísinn í bænum). En í tengsl- um viö veitingastaðinn er líka einn skemmtilegasti bar í Reykjavík. Ekki svo að skilja aö þar sé rífandi stuð, þar sem fáklæddar hofróður og velklasddir dándimenn uni viö sitt dægrin löng. En það er enginn staður í höfuðborginni, þar sem menn geta verið jafnhátt uppi í tvennum skilningi. Menn fara ekki út að borða í Perlunni nema þeir séu agalega flottir í tauinu, sem setur vita- skuld sitt mark á stemmninguna, þannig að hún er afar raffíneruö. Úr- valið á barnum er prýðilegt, en helst sýpur maöur náttúrulega á hinum bestu veigum, þó svo sá smekkur dældi veskið nokkuð. Fyrst og fremst er það þ>ó útsýnið, sem eftirsókn er í. Þaö er dásamlegt á reykvísku vor- kvöldi, því maöur sér yfir alla borgina, nágrenni hennar, Snæfellsnes og Reykjanesskaga, Esjuna og Mosfells- heiöi. I góöu skyggni á sjötta glasi eygja sumir meira aö segja Vestfirði, þó svo ég selji það ekki dýrar en ég keypti. Hiö eina sem spillt getur fyrir er útsýniö yfir Kópavog, en oftar en ekki kemur Móðir náttúra fegurðarskyni gestanna til bjargar og leggur þoku- hjúp yfir kumbaldana þar. Dugi það ekki til er ekki annað til ráða en að fá sér einn gráan til og snúa sér undan, því barinn í Perlunni er eini staðurinn, sem ekki snýst, þótt „allt sýnist hring- snúast, stólar og borð“. MraivjjKHB Ólafur Jónsson upplýsingafulltrúi Reykjavíkurborg- ar (Jason Ólafsson, handboltakappi og nýbakaður faðir talar) „Jáááh Tónsmiðjan... halló... halló. Uhm. Þetta er sjálfvirkur síms\’ari hjá Olafi, Kristínu, Jas- oni og Bjarneyju. Það er enginn við þessa stundina en vinsam- legast skiljið eftir skilaboð ejtir þetta lag (og stúfur úr Vegbúa Kristjáns Kristjánssonar hljóm- ar, Jason leikur á harmonikku og syngur undurblítt). “ „Það er búið að klára allar út- gáfunar. Ein verður á sound- trekkinu úr Sódómu Reykjavík, önnur á erlendri safnplötu, þá verður og gefin út tólftomma með mismunandi mixi og síðan verður lagið á sólóplötu Bjark- ar,“ segir Þórhallur Skúlason tónlistarmaður. Hann og Björk Guðmundsóttir Sykurmoli hafa verið að vinna saman undanfarið og útkoman er lag- ið Takk fyrir eða Thank you. Lagið er eftir Þórhall en textinn eftir Björk og á næstunni kemur lagið út á fjórum plötum en kemur hvergi til með að hljóma eins. „Fólk getur því keypt allar plötumar.“ Á Englandi hafa verið gefnar út safnplötur undir heitinu Volume og lagið verður á Volume fjögur eða fimm, það eru engin smástimi sem eiga lög á þessum plötum og dugar þar að nefna sveitir eins og Sykurmol- ana og REM. Og nú er Þórhallur að komast í hópinn — eða Ajax eins og hljómsveitin hans heitir. Þórhallur er ekki gamall mað- ur, aðeins tvítugur, en hefur engu að síður verið í tónlistarbransan- um í fjölmörg ár; byrjaði sem diskótekari 12 ára gamall. Sem er kannski ekkert skrýtið þegar þess er gætt að „mamma var diskótekari og pabbi var í hljóm- sveit þannig að ég er alinn upp í þessu. Hef þetta í blóðinu". Ajax spilar House-músík eins og hún gerist best og Þórhallur stefnir ótrauður að því að flytja utan og starfa þar að tónlist. Þórhallur Skúlason. Ajax er hugarfóstur hans en hann Bjössi er líka í sveitinni. Hann hefur reyndar fyllstu ástæðu til að vera bjartsýnn því plata Ajax, Roughish, seldist f yfir 3.000 eintökum á Bretlandi. „Eg ætla að lifa og hrærast í þessu í framtíðinni, það er ör- uggt,“ segir Þórhallur. Og á morgun spilar Ajax í Héðinshús- rnu. SUMARÞINC UM CUNNAR CUNNARSSON Á laugardaginn efnir Félag frá Danmöiku í boði félagsins til áhugamanna um bókmenntir til að ræða stöðu Gunnars í danskri sumarþings um Gunnar bókmenntasögu. Þá tala og Gunnarsson skáld. Þing- _ Thor Vilhjálmsson, ið verður haldið í /jjjgttmf' Gunnar Jóhannes Borgartúni 6 og hefst fÆfím X\ Árnason, Halla klukkan korter yfir / __» \ Kjartansdóttir, tíu að morgni og | 1 Sojfía Auður Birg- stendur allan daginn | 'SMkÁ. I isdóttir, Þórir Ósk- og verður öllum op- \ J arsson og Þorleifitr Fjallað verður umamir Helgi Skúlason ævi og verk Gunnars og Helga Backmann ýmsum hliðum. Meðal annars flytja leikgerð Bjarna Bene- kemur Böðvar Guðmundsson, diktssonar og Lárusar Pálsson- skáld og fræðimaður, til landsins ar, Myndir úr Fjallkirkjunni. POPPIÐ • The Fabulous Blues Babies eru væntanlega einhvers konar blúsband. Af hverju þaö er skírt upp á útlensku vitum við ekkert um og við vitum held- ur ekkert um hverjir skipa þetta band en hitt er víst og satt að í kvöld (nú þýöir í kvöld fimmtudagskvöld en ekki miövikudagskvöld eins og í siðustu viku) veröur þessi sveit á Gauknum. Við vonum að þessi frábæru börn standi undir nafni. • Jói á hakanum heitir hljómsveit sem kemur fram í kvöld í Gallerí Ing- ólfsstræti. Það er óháða listahátíöin sem stendur að þessum tónleikum, en þama koma fram ásamt Jóa Stórsveit Regnhlífarsamtakanna og ungir ís- lenskir gítarleikarar. Þeir félagar í Jóa á hakanum ætla að flytja tónlistar- spuna en ekki er okkur kunnugt um hvað hinir ætla aö gera. Sjálfsagt verð- ur joetta allt hið skemmtilegasta. • Bogomil Font og milljónamær- ingarnir eru ein heitasta sveitin á landinu í dag. Á fimmtudagskvöldið verða þeir á Púlsinum en þeim tónleik- um veröur útvarpaö beint á Bylgjunni í boöi Gunnars Asgeirssonar hf. Þeir ætla aö spila sína suðrænu tónlist fyrir gesti og til að andrúmsloftiö verði al- vöru hefur Binni verið fenginn til að skreyta Púlsinn með blómum og boö- ið veröur upp á suðræna koktælara. Og sömbukóngurinn Bogomil verður líka þarna á föstudagskvöldið. Strá- pils. • 1000 andlit er nafn á sveit sem nú hefur starfað um nokkurt skeiö. I henni eru Tómas Tómasson, Sigrún Eva Ár- mannsdóttir, Birgir J. Birgisson, Jó- hann Hjörleifsson og færeyski bassa- leikarinn Arnold Ludwig. Svo eru líka tvær bakraddasöngkonur. Þetta er ágæt hljómsveit og á laugardags- kvöldið verður hún í Firðinum, Göflur- um til skemmtunar. • Jökulsveitin er nýtt blúsband. Söngkona þeirrar sveitar er Margrét Siguröardóttir, sú hin sama og sigraöi í Söngkeppni framhaldsskólanna. Pi- netop gamli Perkins ku hafa sagt Margréti eina bestu íslensku blús- söngkonuna sem hann hefur heyrt í. ÆSKUMYNDIN Á eldri myndinni, sem tekin er fyrir um það bil hálfum öðrum áratug, var Þráinn Bertelsson ennþá rithöfundur. Hann var róttækur rnjög og skrifaði meðal annars einu skáldsöguna um íslenska borgarskæruliða, Kópamaros. Frekar ótótlegt róttækt skáld. Á seinni myndinni sjáum við Þráin sem er hættur að vera róttækur og hættur að vera rit- höfundur og er í staðinn formaður Rithöfundasambandsins og kvikmyndagerðarmaður. Útlitið ber þess líka merki. Of- ursnyrtilegur og frisklegur. I R V I N N U Þetta er Mette og þarna er hún sko kappklædd! La ví ‘vclcí'l' BERAR5IO „Okkur fannst bara mjög vel við hæfi að hafa sex vel vaxna karlmenn á sviðinu í svona klukkutíma og fá svo eina vel vaxna stúlku á sviðið í um það bil hálftíma. Með þessu gerum við báðum kynjum jafnt undir höfði,“ segir Ragnar Gunnars- son, Raggi sót, í Skriðjöklunum. Skriðjöklamir ætla í sumar í tónleikaferð um landið og í fylgd með þeim verður danska nektar- dansmærin Mette Larsen. Mette þessi gekk fram af Norðmönn- um ekki alls fýrir löngu er hún leysti niður um sig í beinni sjón- varpsútsendingu. Hinir siða- vöndu Norðmenn urðu ekki par hrifnir—að minnsta kosti svona út á við. Mette varð líka í öðm sæti í dönsku landskeppninni í stripli í vor, þannig að þetta er hæfileikarík og hugrökk stúlka. I kvöld, fimmtudagskvöld, verða Skriðjöklamir í Sjallanum á Ak- ureyri og þar ætlar Mette að hátta sig fyrsta sinni. Annað kvöld er það Miðgarður í Skagafirði og á laugardaginn Breiðamýri í Aðal- dal. Og síðan er það sunnudags- kvöldið. Þá verður Mattý á Tveimur vinum (hér mundu Norðmenn sennilega skrifa hjá Tveimur vinum). Vinimir Kári og Jónas ætla þó ekki að sitja einir að Mattý; við hin megum líka koma og sjá dísina bera. „Það má kannski geta þess að á föstudags- og sunnudagskvöld stendur til að hljómsveitarmeð- limir baði sig með Mette,“ segir Raggi. Og við strákamir stofnum hljómsveit. Arna María Gunnarsdóttir ungfrú Hvað ætlar þú að gera um helgina, Arna María? „A föstudagsh’öldið œtla ég í bíó og ég hugsa að ég skoði bara leikmyndina í Bugsy. A laugardaginn œtla ég að hafa það huggulegt,fer kannski í gönguferð að deg- inum og svo þaifég líka að lesa. A sunnudagskvöldið œtla ég í Héðinshúsið að sjá leiksýningu P-leikhópsins og Vasaleikhússins.“ I Þarna koma líka Magnús og Jóhann fram og ætla aö leika lög af væntan- legrí plötu. Og þeir ætla lika að spila með Jökulsveitinni. Jakedí jak. • Loðin rotta verður á iði á Gauknum á sunnudagskvöldið og reyndar líka á mánudags- og þriðjudagskvöldiö og svo á Tveimur vinum á föstudags- og laugardagskvöld — það er að segja síðustu tvö kvöldin á undan sunnu- dagskvöldinu sem talað var um fyrst. Ef einhverjum finnst þetta flókið þá er bara að lesa þetta aftur — hægt. Okk- ur er til efs að miklu skemmtilegri bönd finnist hér á landi. Ó nei. VEITINGAHÚS • Einhvem tíma las ég — eða var sagt það — að pizzur væru hollasti ruslmat- urinn svokallaöi. Ekki veit ég hvort það er rétt en það hljómar mjög líklega. Hvort sem þær eru hollar eða ekki þá eru þær vinsæll matur enda eru pizz- eríur margar — og misjafnar. Ein þeirra heitir Eldsmiðjan og er á Bragagötunni. Eldsmiðjan byggir starf- sefni sína aðallega á heimsendingum en á efri hæöinni er samt sem áöur lít- ill matsalur. Pínulítill matsalur. Bara með fimm boröum. Þar af fjórum litl- um. Ákaflega samt snyrtilegur og heimilislegur salur. Manni líður svona svolítið eins og maður sé í veislu hjá ættingja sem maður þekkir ekkert allt of mikið og á næstu borðum séu líka ættingjar sem maður þekkir lítiö. Mann langar til aö tala viö þá en hefur sig einhvern veginn ekki í það. Sem sagt mjög vinalegt. Og það sem mestu máli skiptir; pizzurnar eru afbragðsgóðar. Viö fengum kókið í hálfs lítra kútum og pilsnerinn á hálfs lítra dósum, lítil glös vw M4ELUM Mi# Lögreglumönnum á hestum þótt íslensku hestarnir séu reyndar frekar litlir og lög- reglumennimir stórir Fuglaskoðun hollt áhugamál og fróðlegt og kannski pínulítið örvandi á fengitímanum Að fjölmiðlamönnum verði refsað þeim sem nota klisjuna „að vísa á bug“ Fannfergi um sumarsól- stöður það minnir okkur á að við erum hörð og stolt þjóð sem storkar óblíðri náttúru Lengi vom spyrtar saman tvær hallærislegustu höfuðborgir í Norðurálfu, Osló og Reykjavík. Þær þóttu með slíkum afbrigðum leiðinlegar að ferðamönnum var ráðlagt að forðast þessa staði. Þó hugguðu Reykvíkingar sig við að Osló væri líklega ennþá skelfi- legri en borgin þeirra. Og kannski var það rétt; um kvöldmatarleytið stóð fólk þar í biðröðum utan við diskótek, sá sem sást á ferli eftir hálftólf á kvöldin var að líkindum hirtur af lögreglunni. Ekki lengur. Osló er orðin fjörugasta og skemmtilegasta borg á Norður- löndum. Hún iðar af lífi frá morgni, þegar sportidjótamir vakna, og fram undir næsta morgun, þegar nátthrafnar skak- klappast út af næstum hundrað börum sem hafa sprottið upp síð- ustu fimm árin. Á útiveitingahús- um situr það í þúsundatali þetta fólk, sem Islendingar hafa alltaf talið sér ífemra í púkalegheitum og útúrboruskap, og drekkur bjór sem er þó þetta 100 til 200 krón- um ódýrari en á knæpunum í Reykjavík. í einu tilliti emm við þó Oslóbúum ffemri: Við setjum ekki dósasveppi á pizzur... UTI Fyrst eftir að Kringlan reis vomm við svo stolt að við gerð- um okkur far um að bjóða út- lendingum þangað. Okkur fannst við hafa eignast verslunarmið- stöð, „mall“, á heimsmæli- kvarða. Ferðamenn vom keyrðir þangað í rútum til að skoða. Rammagerðin opnaði minja- gripaverslun fyrir túrista þar inni. Við vomm svo stolt að við tók- um ekki eftir því að útlending- amir vom kurteisislega áhuga- lausir. Við gerðum okkur upp er- indi í Kringluna, skálduðum þau upp, bara til að finna andblæinn þar inni. Hún hafði þvílíkt að- dráttarafl að margir höfðu áhyggjur af því að byggð í ná- grannasýslum Reykjavíkur leggðist í eyði, vegna þess að all- ir flyttu í bæinn til að geta verið sem næst Kringlunni. Ákveðin tegund af vinstrimönnum taldi hana ógna þjóðlegum verðmæt- um og fannst afleitt hvemig þar væri bruðlað með gjaldeyri. f sjálfu sér hefur Kringlan ekki breyst, en við erum ekki sama fólkið og íyrir sex ámm: Kringl- an er bara orðin að gömlum vana, bara enn eitt húsið þessari frekar dauflegu bæjarmynd (hús með bflastæði á maganum); og af þvf við emm búin að sjá svo marga „malla“ í útlöndum gemm við okkur engar grillur um það leng- ur að Kringlan sé nema líkt og deild í almennilegum „malli“ — svona rétt eins og við vitum að Keflavíkurvegurinn rís ekki und- ir því að heita hraðbraut. Nú fer maður ekki í Kringluna nema maður þurfi í Ríkið eða Hag- kaup; hún vekur enga spennu lengur, nenta kannski hjá þeim sem búa lengst í burtu, á hinunt enda landsins. Kannski þurfum við nýja Kringlu?

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.