Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 24
24 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Að kvöldi 4. maí árið 1945, fyrir rétt tæpum 59 árum, barst sú frétt til
Kaupmannahafnar í útvarpinu frá London að Þjóðverjar hefðu gefist
upp í Norður-Þýskalandi og í Danmörku og að formleg uppgjöf yrði
undirrituð daginn eftir, 5. maí. Þessi frétt barst eins og eldur í sinu og í Kaupmannahöfn
þusti fólk út á götur til að fagna því að Danmörk væri aftur orðin frjálst land. Danska út-
varpið og dönsku blöðin voru því ekki lengur ritskoðuð af þýska hernámsliðinu, en útvarpið
varaði fólk við að fara óvarlega því að ennþá gengu danskir fylgismenn Þjóðverja í svo-
nefndri hjálparlögreglu þeirra (HIPO) lausir og vopnum búnir. Örfáir þeirra notuðu þó skot-
vopn er þeir voru handteknir af liðsmönnum andspyrnuhreyfingarinnar, enda reyndu flestir
þeirra að fara í felur.
Hjálmar R. Bárðarson – fyrrverandi siglingamálastjóri, ljósmyndari og rithöfundur – var
þá við nám í Verkfræðiháskólanum í Kaupmannahöfn. „Þessi dagur hefur að sjálfsögðu
ávallt verið mér minnisstæður,“ segir Hjálmar. „Ég tók nokkuð af ljósmyndum þennan dag
og næstu daga, enda ekki bannað lengur að taka myndir utan dyra. En myndirnar segja
meira en mörg orð um stemninguna í borginni.“
Hér birtist úrval þessara merku mynda sem Hjálmar tók þessa eftirminnilegu daga.
Ljósmyndir: Hjálmar R. Bárðarson
Verkfræðingur: Meðlimur í herdeild verkfræðistúdenta í andspyrnuhreyfing-
unni mundar byssuna við sandpokavígi fyrir framan háskólann.
Í dagsljósið: Þegar Þjóðverjar gáfust upp komu herdeildir andspyrnuhreyfingarinnar fram á sjónarsviðið
í Kaupmannahöfn. Sumir höfðu farið leynt í Danmörku, verið neðanjarðar eins og það var nefnt, en
nokkrir flúið til Svíþjóðar til þjálfunar. Hér er hluti herdeilda verkfræðistúdenta.
Andspyrnan: Liðsmenn
andspyrnuhreyfing-
arinnar sáu um að vera
á varðbergi á götum
Kaupmannahafnar
strax eftir að Þjóðverjar
höfðu viðurkennt sig
sigraða. Enda var engin
dönsk lögregla lengur að
störfum og hætta á að
danskir fylgismenn
þýska hernámsliðsins
gætu gert óskunda, áð-
ur en tækist að koma
þeim öllum í fangelsi.
Þennan liðsmann and-
spyrnuhreyfingarinnar
hitti Hjálmar á götu á
Amager.
Forsíðan: Að morgni 5. maí komu dönsku dagblöðin út. Nú gátu þau birt fréttir án ritskoðunar.
Hér má sjá forsíðu Politiken þennan sögufræga dag, þar sem frelsinu er fagnað.
Eftirlýstir: Á blaðsölustöðum voru ljósmyndir af hópum Dana
sem höfðu gerst liðsmenn þýsku hjálparlögreglunnar, HIPO.
Fólk var beðið að tilkynna dönskum yfirvöldum um nöfn
þeirra liðsmanna sem það þekkti, til að auðvelda handtöku
þeirra. Þá er á fréttamiða sagt frá því að breskar flugsveitir
hafi lent á Kastrup um morguninn.
Velkomnir: Fögnuður fólks í Kaupmannahöfn var ólýs-
anlegur. Þýska hernámsliðið að fara til síns heima.
Breskar hersveitir að koma. Á glugga í bakaríi stóð:
„Welcome to Denmark.“ Á annarri búð stóð „lukket
paa grund af glæde“ — lokað vegna gleði.
Fögnuður: Bílar óku um götur, troðfullir af fagnandi fólki sem veifaði dönskum fánum.
Minnisverður
dagur
Í Kaupmannahöfn 5. maí 1945 — þegar Danmörk
varð aftur frjáls undan þýska hernámsliðinu
Rispur
Marserað: Þýskar hersveitir ganga út úr Kaupmannahöfn, heim á leið, eftir uppgjöfina.
…með allt fyrir bragðlaukana