Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Gliðnun jarðskorpunnar
Gliðnun jarðskorpunnar á Íslandi
er að mati Árna Hjartarsonar, jarð-
fræðings hjá Íslenskum orkurann-
sóknum, meiri en almennt hefur ver-
ið talið til þessa, eða um 3,4 cm á ári í
stað 1,8 cm samkvæmt nýjustu
reiknilíkönum.
Beðið eftir Metallica
Hundruð Metallica-aðdáenda
lögðu talsvert á sig í bið eftir miðum
á tónleika þungarokkshljómsveitar-
innar fyrir utan Verslun OgVoda-
fone í Síðumúlanum í fyrrinótt.
Mætti fólk með kúlutjöld og svefn-
poka, stóla og annan útilegubúnað
svo helst minnti ástandið á útihátíð.
Þriggja ára nám
Menntaskólinn við Sund og Verzl-
unarskóli Íslands munu bjóða ný-
nemum upp á þriggja ára nám til
stúdentsprófs í haust samhliða hinu
hefðbundna fjögurra ára námi.
Námið er ætlað góðum nem-
endum og þarf að uppfylla ákveðin
lágmarksskilyrði til þess að vera
tekinn inn í það í MS, en VÍ hefur
ekki sett ákveðin inntökuskilyrði.
Herinn kyrr
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, sagði í gær, að bandarísk-
ur her yrði áfram í Írak eftir vænt-
anleg valdaskipti í landinu 30. júní
næstkomandi. Áður höfðu Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, og utanríkisráðherrar
Bretlands, Ítalíu og Japans lýst yfir,
að herlið þeirra yrðu kölluð frá Írak
ef væntanleg stjórn færi fram á það.
Þeir bjuggust þó ekki við slíkri ósk í
bráð. Ný skoðanakönnun vestra sýn-
ir, að mikið hefur fjarað undan Bush
og væri kosið nú, myndi John Kerry,
forsetaframbjóðandi demókrata,
sigra örugglega. Kerry segir, að
Bandaríkjamenn megi aldrei framar
heyja „hentugleikastríð“.
Heimilum tortímt
Ísraelskir hermenn hafa eyðilagt
meira en 100 hús og heimili í flótta-
mannabúðum Palestínumanna í Raf-
ah á Gaza. Hyggjast þeir koma upp
einskismannslandi á landamær-
unum við Egyptaland til að koma í
veg fyrir vopnasmygl að því er þeir
segja.
Keppt í S-Afríku
FIFA, Alþjóðaknattspyrnu-
sambandið, ákvað í gær, að heims-
meistarakeppnin í knattspyrnu 2010
færi fram í Suður-Afríku. Var því
tekið með miklum fögnuði í landinu
en þetta verður fyrsta heims-
meistarakeppnin í álfunni.
Y f i r l i t
Í dag
Skissa 6 Bréf 58/59
Sigmund 8 Dagbók 60/61
Rispur 22 Þjónusta 61
Listir 26/39 Hugvekja 47
Forystugrein 36 Leikhús 64
Reykjavíkurbréf 36 Fólk 64/69
Minningar 40/45 Bíó 66/69
Skoðun 45/51 Sjónvarp 70
Myndasögur 58 Veður 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
STARFSMENN Íslenskrar nýorku
lögðu í sérstaka tilraun þegar þeir
mældu eldsneytisnotkun tilrauna-
vetnisvagnanna sem hafa verið í
umferð hjá Strætó bs. í Reykjavík
frá því í október. Mælt var hversu
miklu eldsneyti vagnarnir eyddu
fullir, hálffullir og tómir og borið
saman við fullan dísilknúinn
strætisvagn af sömu stærð.
Til þess að vinna þessa tilraun
þurfti farþega og leitaði Íslensk
nýorka því til félagsmiðstöðva
aldraðra, sem brugðust vel við og
fylltu vagnana út úr dyrum. Í troð-
fulla vagninn var síðan bætt við
gangstéttarhellum frá BM Vallá,
til að þyngja hann, svo enginn
þyrfti að standa.
Að sögn Maríu Hildar Maack, hjá
Íslenskri nýorku, koma mæling-
arnar að góðum notum og verða
niðurstöður úr þeim kynntar í sam-
starfslöndum verkefnisins í júní.
„Við fáum viðbótarupplýsingar frá
Daimler-Chrysler í Þýskalandi og
þeir fá frá okkur, svo við getum
borið saman bækur okkar. Öll
gögnin úr efnarafölunum sem eru
um borð í vetnisvögnunum eru
send beint til Benz.“
Heldri borgararnir voru hinir
hressustu með rúntinn, sem tók um
tvo tíma, eftir að vagnarnir höfðu
verið vigtaðir með öllu. Fengu þeir
veitingar frá Mjólkursamsölunni
og voru ánægðir með vetnis-
vagnana. „Þetta eru mjög fallegir
og mjúkir vagnar,“ sagði önnur
tveggja systra sem sátu fram-
arlega í vagninum. „Þeir eru mjúk-
ir í akstrinum og hægt að halda sér
alls staðar í. Svo eru áklæðin svo
björt og falleg og í skemmtilegum
litum.“
Ekki var rúnturinn heldur
leiðinlegur, því um borð voru
harmónikkuleikari og tveir gítar-
leikarar sem héldu uppi góðri
stemmningu og spiluðu undir
fjöldasöng.
Morgunblaðið/Jim Smart
Ekki bar á öðru en að þessir herramenn væru hinir hressustu þegar lagt var í ferðina með vetnisstrætisvagninum.
Heldri borgarar í vetnisstrætó
Þessar systur létu fara vel um sig í
fremstu sætum á leið númer þrjú.
BEINBROT karla mega ekki
gleymast í umræðunni, konur brotna
að jafnaði fyrr á lífsleiðinni en karl-
ar, en þeir brotna líka. Þetta er með-
al þess sem fram kemur í erindinu
Brothættir karlar, sem flutt var á
Ársþingi Skurðlæknafélags Íslands
og Svæfinga- og gjörgæslufélags Ís-
lands sem hófst á föstudag.
„Það er alltaf verið að tala um að
konur séu miklu brothættari en karl-
ar. Þær eru fyrr á ferðinni, en karlar
brotna líka,“ segir Brynjólfur Mog-
ensen, sviðsstjóri lækninga á slysa-
og bráðasviði Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss.
Erindi Brynjólfs, Brothættir karl-
ar, fjallaði um rannsókn á tíðni og
eðli beinbrota hjá stórum hópi karl-
manna. Notaðar voru upplýsingar úr
hóprannsókn Hjartaverndar sem ná
aftur til ársins 1967, en þeirri rann-
sókn var ætlað að fylgjast með
áhættuþáttum hjarta- og æðasjúk-
dóma. Einstaklingarnir í könnuninni
voru fæddir á árunum 1907–1934.
23% höfðu beinbrotnað
Fram kom í niðurstöðum að 23%
karlanna höfðu beinbrotnað á rúm-
lega 18 ára tímabili, og hafði rúmur
þriðjungur brotnað oftar en einu
sinni. Brynjólfur segir að oft þurfi
ekki mikið til að menn sem komnir
eru yfir miðjan aldur beinbrotni.
Þannig hafi meirihluti brotanna,
53%, átt sér stað við til þess að gera
lítið fall eða hras. Mikilvægt er fyrir
bæði kynin að halda sér í góðu formi,
reykja ekki, og borða kalkríkan mat
til að viðhalda sterkum beinum, seg-
ir Brynjólfur.
Konur
brotna fyrr
en karlar
brotna líka
SAMNINGUR Samtaka at-
vinnulífsins og Landsvirkjunar
við ASÍ, Starfsgreinasamband-
ið, Samiðn og Rafiðnaðarsam-
band Íslands um kaup og kjör
við virkjunarframkvæmdir á
vegum Landsvirkjunar var
samþykktur í atkvæðagreiðslu.
Á kjörskrá voru 937 og kusu
444 eða 36,7%. Já sögðu 202 eða
58,7% og nei 135 eða 39,2%.
Nær samningurinn m.a. til
starfsmanna við Kárahnjúka-
virkjun.
Virkjunar-
samningur
samþykktur
BALDUR Guðnason og Steingrímur
Pétursson, athafnamenn á Akureyri,
hafa keypt 50% hlut Kaldbaks í Sjöfn
hf. á Akureyri. Fyrir áttu tvímenn-
ingarnar samtals 50% í Sjöfn og eiga
þar með allt fyrirtækið. Kaupverð er
trúnaðarmál.
Á aðafundi Sjafnar á föstudag
kom fram að rekstur félagsins skil-
aði 160,2 milljónum króna á árinu
eða 193,5 milljónum fyrir skatta.
Eftir breytingarnar á Baldur 65%
í Sjöfn og eignarhlutur Steingríms
er 35%.
Eiríkur S. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hér væri um
að ræða eðlilega þróun á því sam-
starfi sem félögin hefðu verið í og um
leið léttvæg breyting á samstarfinu.
„Við ætlum héðan í frá að vinna sam-
an í ákveðnum, afmörkuðum verk-
efnum,“ sagði hann. Baldur Guðna-
son tók í sama streng: „Markmiðið
er að vinna áfram saman í verkefn-
um þar sem hagsmunir félaganna
geta farið saman.“ Kaldbakur og
Sjöfn eiga til að mynda Hans Pet-
ersen hf. að jöfnu eftir þessi við-
skipti.
Á aðalfundi Sjafnar á föstudaginn
kom fram að rekstur félagsins skil-
aði 160,2 milljónum króna á árinu
eða 193,5 milljónum fyrir skatta.
Sjöfn hefur á síðustu árum þróast
úr því að vera efnaverksmiða í fjár-
festingar- og eignarhaldsfélag.
Eignarhaldið hefur verið
sameinað í nafni Sjafnar
Eignarhald Baldurs og Stein-
gríms í öðrum félögum hefur nú ver-
ið sameinað í nafni Sjafnar og er
eignasafn félagsins nú þannig, að fé-
lagið á 50% hlut í Ásprenti Stíl, 70% í
Ferðaskrifstofu Akureyrar (sem á
síðan ferðaskrifstofuna Destination
Iceland að fullu), 50% í Hans Pet-
ersen, 50% í MB Holding (sem á síð-
an franska sjávarútvegsfyrirtækið
Marcel Baey að fullu), 50% í 3X ehf.
(sem á 32% í Ingvari Helgasyni ehf./
Bílheimum ehf.), 50% í Akra (sem á
Nýju kaffibrennsluna og Búbót) og
65% í Mjöll.
Baldur og Steingrímur
eignast Sjöfn að fullu
Akureyri. Morgunblaðið.
Keyptu 50%
hlut Kaldbaks
í félaginu
FORSETI Íslands tjáir sig
ekki um ummæli forsætisráð-
herra um forsetann, sem greint
var frá í Morgunblaðinu í gær.
Blaðið hefur ítrekað leitað eftir
viðtali við forseta Íslands vegna
atburða á undanförnum dögum
en forseti hefur ekki gefið kost
á viðtali.
Forseti tjáir
sig ekki
KONA féll af hestbaki við hest-
húsabyggð í nágrenni Voga við
Vatnsleysuströnd sl. föstudags-
kvöld. Hestur hennar hafði fælst
vegna bifhjóls sem ók um vegar-
slóða í námunda við konuna, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni í Keflavík. Féll konan af baki
er hesturinn fældist og lenti á hlið-
inni á steini. Var hún flutt á sjúkra-
hús í Keflavík.
Féll af baki er
bifhjól fældi hest