Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 69
bara tekið upp fljótt og vel og allt svo-
lítið hrátt, sem var kannski svolítil
breyting fyrir mig því ég hef und-
anfarin misseri starfað með félögum
mínum í Sálinni að stórum lagasmíð-
um, söngleiknum Sól og Mána og
þess háttar. Ég tala nú ekki um þegar
maður er kominn með sinfóníu-
hljómsveitina líka. Þarna langaði mig
að fara í hina áttina og vera svolítið
innvortis og njóta þess að spila á gít-
ar, taka löng gítarsóló og láta vaða.
Það er skemmtileg tilbreyting.
Fyrst og fremst er ég samt laga-
smiður og maður verður bara að
koma einhverju frá sér. Þetta var í
raun ein leiðin í þetta skiptið. Það er
einhver þörf sem maður er búinn að
vera með síðan maður var unglingur,
að semja lög og gefa út.“
Hvernig var að vinna með þeim
drengjunum Birgi og Jakobi Smára?
„Það myndaðist mjög góð liðsheild
þegar við vorum svona fáir að vinna
þetta svona náið, en ég var þó með
þetta allt saman útsett í kollinum.
Jakob er aðalrokkbassaleikari þjóð-
arinnar, fyrir utan að hann er rosa-
lega góður músíkant og bassaleikari
þá er hann frábær strákur og gott að
vinna með honum. Ég fíla það líka að
hann er svona stílisti, það heyrist að
hann er að spila. Það er ekki oft sem
hljóðfæraleikarar ná að þróa með sér
sérstakan stíl. Margir hljóma bara
eins og ná ekki að temja sér stíl, en
Jakob hefur flottan stíl. Birgi er ég
búinn að þekkja lengi, frábær og já-
kvæður að vinna með, skemmtilega
líflegur trommari og fátt sem honum
vex yfir höfuð. Við þrír náðum vel
saman og síðan bætti ég við söng,
hljómborði og röddum og málið
dautt.“
Vinátta
Nú kemur Helgi Björnsson inn
sem gestasöngvari og syngur með
þér lagið „Vinur í raun“. Hvernig er
ykkar vináttu háttað?
„Við erum búnir að þekkjast síðan
Sólin og Sálin voru að berjast á
sveitaböllunum í gamla daga. Þessi
bransi hér á Íslandi er ekki svo stór
svo að menn kynnast fljótt í honum.
Lagið sem hann syngur með mér
fjallar um vináttuna og hvað hún er
mikilvæg. Helgi hefur þann kost að
hann getur sungið einlæga og tilfinn-
ingaríka texta og gert þá töff. Hann
gerði þetta líka alveg listavel. Röddin
í honum batnar líka bara og batnar
með ári hverju.“
Má telja til einhverja sérstaka
áhrifavalda á Japl?
„Ég hef alltaf hlustað á mikið af
melódískum gítarpopprokk hljóm-
sveitum, bæði innlendum og erlend-
um, en annars er maður ekkert sér-
staklega að sækja í neitt sérstakt.
Maður fer af stað og vonar það besta.
Það að gera þessa plötu er búið að
vera rosalega lærdómsríkt. Að koma
sér úr farinu og prófa eitthvað nýtt.
Það er nauðsynlegt fyrir alla að stíga
út úr því sem er þægilegt. Þegar hlut-
irnir fara að verða of þægilegir og
kósý, þá er eitthvað að. Ég hef alltaf
mikla þörf fyrir að klífa fjallið. Ef lífið
er of þægilegt, þá er það ekki spenn-
andi. Þess vegna er það ein mesta
ögrun sem ég hef tekist á við lengi að
gera þessa plötu.
Svo er líka eitt sem mig langaði svo
að gera með þessu dæmi, að geta
leyft mér að djamma meira svona
„læf“. Þegar maður sér bæði um
sönginn og gítarinn getur maður
slakað á og leyft sér að taka lögin af-
slappaðar og leika sér með þau. Mað-
ur er kominn með grunn að lögum og
svo fer maður að spila og það kemur í
ljós hvað kemur út.“
Já, minni hljómsveit þýðir vænt-
anlega að maður geti leyft sér meira
svigrúm og notað augnsambandið til
að stýra henni.
„Einmitt, og það hlýtur að vera
hægt að koma upp sterkari tónleika-
menningu á Íslandi þar sem bönd
geta spilað sitt „stöff“ í einn, tvo tíma
undir miðnætti í stað þess að byrja
klukkan tvö um nóttina og þreyja
þorrann til fimm til sex um morg-
uninn. En það er allt önnur Ella, eins
og maður segir. En ég er að taka
þetta allt í smáskrefum og verð bara
að spila eftir eyranu hvernig málin
þróast.“
Á næstunni má eiga von á að sjá
Gumma leika ásamt félögum
sínum á tónleikum á Grand rokk
og Gauknum.
ÍSLANDSVINURINN Pablo Francisco treður
upp í aðalsal Hótels Nordica í kvöld ásamt grín-
istunum Cory Holcomb og Mike Loftus. Lögð
verður áhersla á að íslenskir áhorfendur geti
upplifað svipaða stemmningu og á alvöru grín-
klúbbum erlendis. Áhorfendur sitja við borð og
mögulegt verður að panta léttar veitingar. Ein-
ungis 500 miðar eru seldir á hverja sýningu.
Pablo kom tvisvar fram í Háskólabíó haustið
2003 og gerði allt vitlaust. Viðbrögðin voru slík
þegar Pablo kom síðast að hægt hefði verið að
halda tvær sýningar í viðbót, segir í frétta-
tilkynningu. Ákveðið var að hann skyldi koma
aftur og nú með aðra toppgrínista með sér. Alls
verða haldnar þrjár sýningar, allar á Hótel
Nordica.
Fyrsta sýningin á Hótel Nordica í kvöld
Pablo Francisco
snýr aftur
Pablo Francisco og vinir verða
með þrjár uppistandssýningar á
Hótel Nordica.
Pablo og vinir verða á Hótel
Nordica í kvöld, 18. og 20. maí.
Miðaverð er 3.000 kr.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
KRINGLAN
Sýnd kl. 4, 6 og 8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i.16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.30, 4, 5.20, 8 og 10.40.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45, 3.30 og 6.30. Ísl tal.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær
gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd
sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við
Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
Fyrsta
stórmyndsumarsins.
Með L i ndsay Lohan úr Freaky Friday Það eru 4 leiðir inn í Drekafjöll,
en það er ekki allt sem sýnist!
Frábær fjölskyldu og ævintýramynd
Með
íslen
sku
tali
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.20, 8 OG 10.40.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl.12, 2, 4 og 6. Ísl tal.
Fyrsta
stórmyndsumarsins.
Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar
í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar sem hetjan
Van Helsing á í höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.
Tvíhöfði
DV
Tvíhöfði
DV
VINSÆL
ASTA
MYNDIN
Á ÍSLAN
DI!
VINSÆL
ASTA
MYNDIN
Á ÍSLAN
DI!
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“
OG „THE MUMMY RETURNS“
Útlit myndarinnar er frábært.
Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks. Van Helsing er alvöru
sumarpoppkornssmellur sem stendur fyllilega undir væntingum.
Þ.Þ. Fréttablaðið.
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
Roger Ebert
Chicago Sun Tribune
FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16
ÁLFABAKKI
Kl. 4. Enskt tal kl. 2, 4 og 6. ísl tal
KRINGLAN
Sýnd kl. 2. Ísl tal.
Ekki
eiga við
hattinn
hans
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2. Ísl. texti.
Kötturinn
með hattinn