Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylking-
arinnar, og Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, átöldu við upphaf þing-
fundar á Alþingi í gær ummæli Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra, um forseta Íslands, í
Sjónvarpinu kvöldið áður. Forsætisráðherra var
ekki í þingsalnum til andsvara þegar þessar um-
ræður fóru fram.
Össur sagði að Davíð hefði talað með slíkum
hætti að það væri til vansa fyrir þingið. Sagði
hann að Davíð væri sæmst að biðja forsetann af-
sökunar. Guðjón sagði ummæli Davíðs óviður-
kvæmileg og beindi því til forystumanna ríkis-
stjórnarinnar að gæta hófsemi í því sem þeir létu
sér um munn fara.
Össur sagði að það hefði verið með ólíkindum
að hlýða á orðbragð forsætisráðherra.
„Ég tel að hann hafi talað með þeim hætti að
það er til vansa fyrir þingið. Ég tel að það sé ekki
hægt af nokkrum alþingismanni að ráðast með
þessum hætti á forseta lýðveldisins eins og hæst-
virtur forsætisráðherra gerði í gær. Og ég tel að
til þess að stilla þetta mál og lægja þessar öldur,
væri hæstvirtum forsætisráðherra sæmst að
biðja þjóðhöfðingjann afsökunar.“ Síðan sagði
Össur: „Við alþingismenn lendum oft í pólitísku
skaki, en eitt er það sem við höfum aldrei gert og
aldrei farið yfir þau mörk: Fjölskyldur okkar eru
friðhelgar. Börn okkar eru friðhelg. Menn tala
ekki um börn alþingismanna og stjórnmála-
manna og draga þau inn í umræður eins og hæst-
virtur forsætisráðherra gerði í gær.“
Össur sagði að það væri eins og forsætisráð-
herra skyldi ekki grundvallarreglur í okkar
stjórnskipan. „Má ég rifja það upp sem Ólafur
Jóhannesson hefur sagt: Forseti er aldrei van-
hæfur, hann er hluti af lagasetningarvaldinu.“
Guðjón A. Kristjánsson sagði að hann hefði
staðið í þeirri meiningu að verið væri að ræða al-
menn lög. Því hefði sérstaklega verið haldið fram
af stjórnarliðum. „Ég átta mig því ekki á því
hvers vegna hæstvirtur forsætisráðherra fer að
tala um þetta mál á þessum nótum. Ég furða mig
á því. Ég ætla ekki að hafa mikið fleiri orð um
þetta, herra forseti, en tel að þetta hafi verið
óviðurkvæmilegt af hæstvirtum forsætisráð-
herra.“
Davíð væri sæmst að biðja
forsetann afsökunar
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hjálmar Árnason og Magnús Þór Hafsteinsson
bera saman bækur sínar á Alþingi í gær.
Formenn Samfylkingar og Frjálslynda flokks gagnrýna forsætisráðherra
GABRÍELA Friðriksdóttir myndlistar-
maður hefur gert samning við Spielhaus
Morrison-galleríið í Berlín í Þýskalandi og
i8-gallerí í Reykjavík, til að kynna, sýna og
selja verk sín í þessum löndum og á alþjóð-
legum vettvangi.
Gabríela opnaði í gær, á Listahátíð í
Reykjavík, sýninguna Karþarsis í i8-gall-
eríi á Klapparstíg. Þar sýnir hún tvö
myndbandsverk, ljósmyndir, málverk,
teikningar og skúlptúrverk.
Gabríela á margar sýningar að baki og
hefur notið vaxandi velgengni. Á þessu ári
sýnir hún á samsýningum í Þýskalandi,
Frakklandi, Belgíu og í Bandaríkjunum;
New York.
Edda Jónsdóttir eigandi i8 segir að í
samningum milli gallería og listamanna
felist gagnkvæm samskipti, kynning á
verkum, þjónusta og umboð á Íslandi og
sýningum sem galleríið taki þátt í erlend-
is. „Gabríela er einbeittur listamaður, hún
trúir á sig og ég á hana,“ segir Edda.
Gabríela verður fulltrúi Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum 2005 og segir í samtali
við Tímarit Morgunblaðsins að stundum
hafi verið gagnrýnt að þjóðir sendi út lið
til að vera með þjóðarskála. „En það er
aftur á móti feikilegur metnaður í þessu
og viðburðurinn er mikilvægur fyrir alla
menningu í sérhverju landi sem tekur
þátt,“ segir hún.
ÓDEIG/Tímaritið
Verkin
kynnt víða
um Evrópu
Gabríela Friðriksdóttir
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
MENNTASKÓLINN við Sund og Verzlunar-
skóli Íslands munu bjóða nýnemum upp á
þriggja ára nám til stúdentsprófs í haust sam-
hliða hinu hefðbundna fjögurra ára námi. Til að
byrja með verður boðið upp á þriggja ára nám á
einni námsbraut í MS, á líffræðikjörsviði nátt-
úrufræðibrautar, og á tveimur námssviðum í
VÍ, á lífræðisviði innan náttúrufræðibrautar og
á hagfræðisviði viðskiptabrautar.
Námið er ætlað góðum nemendum og þarf að
uppfylla ákveðin lágmarksskilyrði til þess að
vera tekinn inn í það í MS, en samkvæmt upp-
lýsingum VÍ hafa ekki verið sett ákveðin töluleg
inntökuskilyrði vegna námsins. Það segi sig
hins vegar sjálft að þetta nám sé fyrst og fremst
fyrir góða nemendur. Námið verður í samræmi
við aðalnámskrá framhaldsskóla, en skipulag
námsins og kennslan verður með nokkuð öðrum
hætti en í hefðbundnu stúdentsprófsnámi.
Áhersla á sjálfstæð vinnubrögð
Í frétt frá MS kemur fram að meiri áhersla
verður lögð á sjálfstæð vinnubrögð og verkefna-
vinnu og námið verði skipulagt þannig að nem-
endur einbeiti sér að fáum námsgreinum í senn.
Már Vilhjálmsson, rektor MS, segir að þetta sé
tilraun til að auka sveigjanleika í námi við skól-
ann og koma til móts við nemendur sem vilji
ljúka stúdentsprófi á styttri tíma en fjórum ár-
um.
Ingi Ólafsson, aðstoðarskólameistari VÍ,
sagði að aðalnámskrá lægi til grundvallar nám-
inu. Hverri önn fyrir sig væri skipt niður í tvær
lotur og nemendur tækju þrjár til fjórar greinar
í einu og kláruðu þær á hálfri önn eða einni lotu
og tækju síðan næstu þrjár til fjórar greinar.
Færri greinar væru þannig undir í einu, en tím-
inn styttri í staðinn.
Námið í MS verður kynnt á opnu húsi í
Menntaskólanum við Sund í dag milli klukkan
14 og 16 samhliða hefðbundnu námi til stúdents-
prófs.
Boðið upp á þriggja ára
nám til stúdentsprófs
ERLENDUM ferðamönnum sem sækja Ísland
heim fer smám saman fjölgandi þessa dagana
og setja þeir svip sinn á borgarlífið. Þessir er-
lendu ferðamenn leituðu skjóls undan rigning-
unni undir skyggni við Hótel Borg og notuðu
tímann til að kynna sér hvað væri helst á döf-
inni í höfuðborginni. Veðurstofan gerir ráð fyr-
ir að næstu daga verði fremur svalt verði í veðri
og hætt er við næturfrosti um miðja vikuna.
Morgunblaðið/Ásdís
Í skjóli undir skyggninu
VERKFRÆÐINGAR telja mögulegt að
leggja hljóðfráa lest á milli New York-borg-
ar í Bandaríkjunum og Lundúna, höfuð-
borgar Bretlands. Lestin þyrfti að sjálf-
sögðu að ferðast um lönd og höf, en
verkfræðingarnir reikna með að hún fari yf-
ir á 6.400 kílómetra hraða á klukkustund,
sem er þrefaldur sá hraði sem Concorde-
þotan flaug á og tvöfaldur hraði hraðskreið-
ustu herþotu sem smíðuð hefur verið. Þor-
steinn Vilhjálmsson, prófessor í eðlisfræði,
segir hugmyndina ekki út í hött og aldrei sé
að vita hvað verði eftir markvissa tækniþró-
un í nokkra áratugi.
Verkfræðingarnir; fyrrverandi starfs-
menn MIT-háskólans í Bandaríkjunum,
gera ráð fyrir að lestin bruni í norður frá
New York, um norðausturhluta Kanada,
stingi sér svo í hafið, nái aftur föstu landi á
Grænlandi, hverfi aftur í sjó, komi upp á Ís-
landi og haldi þaðan sjóleiðina til Bretlands.
Þeir segja að engin sérstök vandkvæði
séu á að hrinda hugmyndinni í framkvæmd,
ef frá er talinn kostnaðurinn. Hann er áætl-
aður allt að 175 milljarðar Bandaríkjadala,
eða tæpir 13.000 milljarðar íslenskra króna.
Frá New York
til London á
klukkustund?
Hljóðfrá lest/12
♦♦♦