Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 31
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Sýning Tryggva Ólafssonar í Bak-
salnum og Rauðu stofunni og ljós-
myndasýning Friðriks Tryggvason-
ar í Ljósfold eru framlengdar til 23.
maí.
Sýning
framlengd
ÞRIÐJUDAGINN 18. maí og mið-
vikudaginn 19. maí verður dag-
skráin Hraðlestin París – Brussel
haldin í Borgarleikhúsinu, en þá
verða fjögur ný frönsk og belgísk
leikrit lesin – með hraði – í ís-
lenskum þýðingum. Það er franska
leikfélagið La Barraca sem stend-
ur fyrir verkefninu, í samvinnu við
Borgarleikhúsið, Listahátíð í
Reykjavík og leiklistardeild Lista-
háskóla Íslands.
Listræn stjórn verkefnisins er í
höndum La Barraca, en einn helsti
forvígismaður þess er Ragnheiður
Ásgeirsdóttir. „Hraðlestin París –
Brussel, þegar frönsku og belgísku
verkin eru lesin í Reykjavík, er
lokaáfangi ferðarinnar, en í mars
voru verk íslenskra leikskálda,
þeirra Hávars Sigurjónssonar,
Hrafnhildar Hagalín, Ólafs Hauks
Símonarsonar, Sigurðar Pálssonar
og Þorvaldar Þorsteinssonar, þýdd
og leiklesin í París og Brussel,“
segir Ragnheiður.
Hún segir að verkin séu gerólík
innbyrðis og við val þeirra hafi
m.a. verið haft í huga að höfund-
arnir eru vel þekktir í heimalönd-
um sínum en lítt eða ekkert þekkt-
ir hérlendis. „Þetta eru ekki verk
sem eru leikin í stærstu og þekkt-
ustu leikhúsum Frakklands og
Belgíu en þau eru öll mjög vel
þekkt meðal leikhúsfólks og mikið
leikin af smærri leikhúsum og leik-
hópum. Það hefur verið ánægju-
legt að heyra hvað íslensku leik-
ararnir og leikstjórarnir hafa tekið
verkin upp á arma sína og eru
hrifin af þeim.“
Leikritin sem kynnt verða eru
ekki lesin í heild sinni, heldur
„með hraði“ í fjörutíu mínútna
dagskrám. Höfundarnir og fleira
leikhúsfólk koma hingað til lands
til að vera viðstaddir viðburðinn.
Þriðjudaginn 18. maí kl. 17 á
Nýja sviðinu verða lesin verkin
Eva, Gloria, Lea eftir Jean-Marie
Piemme í þýðingu Oddnýjar Eirar
Ævarsdóttur og Agnes eftir Cath-
erine Anne í þýðingu Sigurðar
Pálssonar.
Miðvikudaginn 19. maí kl. 17 á
Nýja sviðinu verða lesin verkin
Boðun Benoît eftir Jean Louvet í
þýðingu Kristjáns Þórðar Hrafns-
sonar og Frú Ká eftir Noëlle Ren-
aude í þýðingu Guðrúnar Vilmund-
ardóttur.
Leikstjórn er í höndum Krist-
ínar Jóhannesdóttur, Sigrúnar
Eddu Björnsdóttur, Péturs Ein-
arssonar og Steinunnar Knúts-
dóttur, og það eru leikarar Borg-
arleikhússins og nemendur leik-
listardeildar Listaháskólans sem
lesa.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
Hraðlestin París – Brussel
Noëlle
Renaude
Catherine
Anne
Jean
Louvet
Jean-Marie
Piemme
SAMTÖK um tónlistarhús gangast
fyrir opnum fundi í Íslensku óper-
unni á mánudagskvöld kl. 20. Á fund-
inum verður m.a. skýrt frá undir-
búningi forvals að útboði um
byggingu og hönnun tónlistarhúss-
ins að sögn Stefáns Hermannssonar
framkvæmdastjóra Austurhafnar.
„Margir vita ekki hvar verkið er
statt og nokkurs misskilnings hefur
gætt um það. Þessum fundi er m.a.
ætlað að upplýsa um stöðu mála og
hver næstu skref verða í fram-
kvæmdaáætluninni,“ sagði Stefán.
Egill Ólafsson formaður SUT mun
opna fundinn og síðan ávarpar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
menntamálaráðherra, fundinn og
síðan munu eftirtaldir flytja stutt
innlegg. Björn Th. Árnason, FÍH,
Margrét Bóasdóttir, FÍT, Bjarni
Daníelsson, Íslensku óperunni, Ein-
ar Bárðarson, tónleikahaldari, Ár-
sæll Harðarson, Ferðamálaráði,
Þröstur Ólafsson, SÍ, Kjartan
Sveinsson, Sigur Rós, Kjartan Ólafs-
son, Tónskáldafélagi Íslands, Stefán
Arngrímsson, Einsöngvarafélaginu,
Magnús Kjartansson, FTT, Þórunn
Sigurðardóttir, Listahátíð, Egill
Ólafsson, SUT, Jón Karl Ólafsson,
Flugleiðum.
Að erindum loknum verða umræð-
ur og fyrirspurnir úr sal. Fundurinn
hefst kl. 20 og eru allir velkomnir.
Kynningar-
fundur um
byggingu
tónlistar-
hússins
TÓNLISTARHÁTÍÐIN „Við Djúp-
ið“ verður nú haldin í annað sinn
dagana 3.–7. júní. Sú nýbreytni verð-
ur tekin upp á þessu ári að hátíðin
fer fram á fleiri stöðum í Ísafjarð-
arbæ. Á hátíðinni verða námskeið í
píanóleik, klassískum söng og djass-
söng, flautu, klassískum gítar og
rokkgítar fyrri hluta dags en tón-
leikar haldnir síðdegis og á kvöldin
alla dagana.
Ný íslensk verk
meðal sígildra tónverka
Á kvöldtónleikum verða metn-
aðarfullar efnisskrár sem spanna
vítt svið tónlistarinnar. Jöfnum
höndum verða leikin verk eftir ný ís-
lensk tónskáld, djassstandardar og
sígild tónverk. Þeir sem þar koma
fram eru kennarar námskeiðsins
Halldór Haraldsson píanóleikari,
heiðursgestur, Jóhanna Linnet
djasssöngkona, Árni Heiðar Karls-
son píanóleikari (klassík og djass),
Guðrún S. Birgisdóttir flautuleikari
og Pétur Jónasson gítarleikari auk
heimamanna. Einnig verða haldnir
nemendatónleikar, smærri tónleikar
og aðrar uppákomur á ýmsum stöð-
um í byggðarlaginu.
Skipulagsvinna og fram-
kvæmdastjórn er í höndum Guð-
rúnar Birgisdóttur og Péturs Jón-
assonar auk samstarfsaðila á
Vestfjörðum.
Nánari upplýsingar og umsókn-
areyðublað er að finna á heimasíðu
hátíðarinnar, www.viddjupid.is.
Tónlist-
arhátíðin
Við Djúpið
Morgunblaðið/Þorkell
Halldór Haraldsson, skólastjóri
Tónlistarskólans í Reykjavík,
verður heiðursgestur hátíðarinnar
Við Djúpið.
FERÐALEIKHÚSIÐ Light Nights
leitar að dönsurum/leikurum til að
koma fram í leiksýningum leikhúss-
ins í Björtum nóttum í Iðnó í sumar.
Umsækjendur þurfa að hafa góðar
hreyfingar og leiklistarhæfileika.
Starfið felur í sér nám í leiklist og
dansi. Einnig er laus staða fyrir einn
tæknimann.
Allar nánari upplýsingar gefur
Kristín G. Magnús í síma 551-9181.
Leikhús leitar
að dönsurum